blaðið - 01.02.2007, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2007
blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hefur þú einhvern
tímann tekið feil?
Nei, mér finnst þeir reyndar ekkert líkir
og finnst minn maður miklu fallegri.
Brynja Nordquist, flugfreyja
og eiginkona Þórhalls
Samkvæmt Tvífara vikunnar sem birtist hér á síðum Blaðsins í gær þykja
þeir Þórhallur Gunnarsson og Bardatröllið og leikarinn Jean-Claude Van
Damme með eindæmum líkir svo að þeir eru næstum eins og einn og
sami maður.
Sigríður Lund Hermanns-
dóttir: „Eftir fyrstu vikuna
í Zúúber hringdi ég nánast
grátandi íyfirmann minn og
sagðist ekki vita hvað ég hefði
verið að hugsa." BiaöMyþúr
Mæti ekki í vinnuna
með stírurnar í augunum
HEYRST HEFUR...
að hefur töluvert verið rætt
um svokallaða Supergirl-
keppni sem fór fram á skemmti-
staðnum Pravda um síðustu
helgi. í Blaðinu í gær segist
skemmtanastjóri Pravda skilja
gagnrýni á keppnina en þetta
sé úti um allan bæ og því orðið
hluti af menningunni. Áhuga-
vert sjónarhorn, sérstaklega í
ljósi þess að á www.superman.
is stendur að stúlkur þurfi að
gera hvað sem er til að heilla
Superman. Hvað þær gera er
þeim i sjálfsvald sett en það
er stungið upp á fækkun fata.
Spurning hver sé að skapa menn-
inguna í þessu tilfelli. Rúsínan
i pylsuendanum eru ummæli
eiganda umræddrar heimasíðu
í Fréttablaðinu i gær en þar talar
hann um utanlandsferðina sem
„sú heppna“ átti að hljóta í verð-
laun. En sú utanlandsferð er vist
„ekki enn þá algjörlega komin á
hreinf. Þannig var nú það.
Arni Mattíasson, tónlistar-
blaðamaður á Morgunblað-
inu, hélt upp á fimmtugsafmæli
sitt á Nasa á
þriðjudag. Fjöldi
hljómsveita tróð
upp og bar þar hæst
endurkomu Risa-
eðlunnar með Möggu Stínu og
Halldóru Geirharðsdóttur leik-
konu fremstar í flokki "T~ jjM
Eftir frábæra tónleika 1 \
kallaði Halldóra til
áhorfenda: „ísland er
fátækara án okkar!“
og áhorfendur voru sammála.
Fjöldi fólks úr tónlistarbrans-
anum mætti á svæðið, til
dæmis Jónsi og félagar úr
Sigur Rós, Erpur og Bent úr
Rottweilerhundunum, Rúnar
Júlíusson, Ómar Swarez, Siggi
úr Hjálmum og Sykurmolinn
Einar Örn. Þá hélt Arnar Egg-
ert Thoroddsen, samstarfsfélagi
Árna, ræðu og kynnir var eng-
inn annar en Óli Palli af Rás 2.
svanhvit@bladid.net
Þeir sem hlusta á Zúúber á FM957
þekkja vel dillandi hlátur Sigríðar
Lund Hermannsdóttur en hún er
einn af dagskrárgerðarmönnum
morgunþáttarins. „Þetta er mjög
skemmtilegt starf og góð tilbreyting
frá því sem ég var að gera en ég vann
á Létt 967. Það var svakaleg breyting
fyrst; ég var náttúrlega búin að vera
í rólegu, rómantísku og þægilegu lög-
unum alla daga. Svo fór ég í Zúúber
og fyrstu vikuna var karla- og konu-
vika þar sem verið var að tala um
hjálpartæki ástarlífsins alla dagana
auk þess sem það var fullnæging í
beinni síðasta daginn í fyrstu vik-
unni minni. Eftir þá viku hringdi ég
nánast grátandi í yfirmann minn og
velti fyrir mér hvort ég hefði tekið
ranga ákvörðun,“ segir Sigríður og
hlær. „Svo sjóaðist ég fljótlega og
það er frábært að vera með þessu
skemmtilega fólki. Ég er mjög sátt
við mitt starf og mér finnst forrétt-
indi að fá að vera hluti af þessu.“
Næturhrafn að eðlisfari
Sigríður hefur verið í morgunþætt-
inum Zúúber í bráðum ár en þar á
undan vann hún í þrjú ár á Létt 967.
.Zúúber hefst klukkan sjö á morgn-
ana, ég vakna því klukkan fimm og
er yfirleitt mætt um sexleytið. Ég og
Svali (Sigvaldi Kaldalóns) hittumst
hér á morgnana, förum yfir blöðin
og gerum okkur klár fyrir daginn.
Við mætum aðallega svona snemma
til að vera vel vöknuð. Það er eigin-
lega ekki hægt að mæta beint í þátt
með stírurnar í augunum," segir Sig-
ríður og bætir við að það sé bara erf-
itt að vakna snemma þegar hún fer
seint að sofa. „Það er ótrúlegt hverju
maður getur vanist. Ég er algjör næt-
urhrafn að eðlisfari, elska að vaka á
næturnar og sofa fram eftir en það
sýnir sig að það er allt hægt ef vilj-
inn er fyrir hendi. Mér finnst þetta
ekkert mál svo lengi sem ég aga mig
og er komin upp í rúm ekki seinna
en ellefu á kvöldin.“
Töfrar
Sigríður segir að það séu mjög
góðir straumar á milli fjórmenn-
inganna í Zúúber og allir vinni vel
saman. „Við náum vel saman en vit-
anlega eigum við okkar slæmu daga,
rétt eins og allir aðrir en þá reynum
við bara að gera okkar besta. 1 svona
þætti verður samstarfið að vera
mjög gott, annars er þetta ekki hægt.
Það er líka eins og það fari einhverjir
töfrar í gang þegar við kveikjum á
hljóðnemanum. Sérstaða þáttarins
felst í okkar hlustendum sem taka
mikinn þátt og spila stórt hlutverk
í þættinum," segir Sigríður og tekur
fram að hlustun á þáttinn sé mjög
góð. „Ég held að við séum einn af
vinsælustu morgunþáttum lands-
ins og það sem er svo frábært er
að aldur hlustenda hefur hækkað.
Við heyrum í hlustendum upp í
fimmtugt
svanhvit@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
2 9 6 4 7 8 5 3 1
7 8 3 1 2 5 6 9 4
4 5 1 3 9 6 2 7 8
5 6 2 8 3 4 9 1 7
9 3 4 2 1 7 8 5 6
8 1 7 5 6 9 3 4 2
3 2 8 9 4 i 7 6 5
6 4 9 7 5 2 1 8 3
1 7 5 6 8 3 4 2 9
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri l(nu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers niu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
6 7 1
8 2 7 1 9
3 9 7
2 5 7 3 1
7 1 5 9
9 4 3 8 2
8 5 4 2 1 3
5 8 7
2
®
eftir Jim Unger
Slakaðu bara á og reyndu að endurheimta
minnið þitt. Hafðu ekki áhyggjur af
3000 kallinum sem þú skuldar mér.
Á förnum vegi
Sverrir Helgason,
framkvæmdastjóri
Ég hef ekki fylgst mikið með en
ég skil vel að Margrét sé ósátt.
Andri Már Ólafsson, nemi
Ég veit það ekki. Hef ekki mik-
inn áhuga á íslenskri pólitík.
Ertu sáttur/sátt við úrslit
varaformannskjörs
Frjálslynda flokksins?
Björgvin Guðmundsson, fyrr-
verandi flugstjóri
Ég gæti nú ekki haft minni
áhuga á neinu.
Sólveig Sigurðardóttir,
húsmóðir
Nei, ég er ekki sátt. Margrét á að
halda áfram í pólitlk.
Þóra Bjarkadóttir, ritari
Nei, mér finnst þetta allt hið und-
arlegasta mál.