blaðið - 01.02.2007, Side 18
Kvenréttindi í Pakistan
Pakistanski Þjóðarflokkurinn, sem fékk 25,8 prósent atkvæða í kosningum
2002, er sá frjálslyndasti í landinu. Meðal aðalbaráttumála flokksins eru aukin
kvenréttindi. Helsta skýring á frjálslyndi flokksins er sögð vera sú staðreynd að
forystumenn hans eru mun menntaðri en í öðrum flokkum landsins.
1. FEBRÚAR 2007
blaöiö
Konur í Sviss
Árið 1959 stofnuðu íhaldssamar, svissneskar konur samtök svissneskra kvenna
gegn kosningarétti kvenna. Álíka samtök hafa verið til i fleiri löndum á tímum
baráttu fyrir jöfnum kosningarétti kynjanna. Það var ekki fyrr en árið 1971 sem
svissneskir karlmenn samþykktu kosningarétt kvenna í þjóðaratkvæðagreiðslu.
konur@bladid.net
tsöCuCok á CaugarcCag!
±tvintýralegur
AUKAafsláttur af
gæðavöru
Peysur, peysusett,
bolir, bútasaumsefni,
bútasaumsbækur ofl.ofl.
J^lth: opið 10-1 7
laugardag
(Díza
Laugavegi 44 • S: 561-4000 • www.diza.is
Auglýsingasíminn er
510 3744
aföstudögum 0
Kyngervi og
menntun
Rannsóknarhópur í kynja-
fræði við Kennaraháskóla
íslands stendur fyrir málstofu
á morgun, 2. febrúar, klukkan
14-16 í stofu K 207. Þar munu
meðlimir hópsins flytja erindi
og kynna rannsóknir sínar.
Meðal þess sem fjallað verður
um er könnun á áhuga 1. árs
nema á kynjafræði sem náms-
grein í kennaranámi, en 90
prósent kennaranema reyndust
telja þörf á kynjafræðimenntun
í kennaranámi.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn. Boðið verður upp á
léttar veitingar.
BIRNA
Skólavörðustígur 2.
Sími: 445-2020
www.birna.net
A Indlandi um áramótin Guðrún var
vidstödd þegar hornsteinn var lagð-
ur að nýrri heimavist fyrir stúlkur á
Heimili litlu Ijósanna á Indlandi, sem
fjármagnað er af ABC-barnahjálp.
Guðrún Margrét hjá ABC-barnahjáKp:
Sjálfboðastarf
sem gefur mikið
Merkisdagur er í dag hjá
ABC-barnahjálp, enda
eru samtökin frá og
með deginum í dag
orðin að alþjóðlegum samtökum
með höfuðstöðvar á íslandi. ABC-
barnahjálp var stofnuð á fslandi
fyrir 19 árum af Guðrúnu Margréti
Pálsdóttur og fleira góðu fólki, en
skömmu áður hafði Guðrún verið á
árslöngu ferðalagi í kringum hnött-
inn. „Þá sá ég börn sem bjuggu á
götum úti og hitti ólæst fólk. Það
snerti mjög við mér og ég ákvað að
ég yrði að gera eitthvað í málunum.
Ég hef starfað við þetta í sjálfboða-
vinnu frá upphafi og tel mig ekki
vera að fórna neinu með því, enda
gefur þetta starf miklu meira en
það tekurútskýrir Guðrún.
Margvísleg starfsemi
ABC-barnahjálp er með starf-
semivíðaíheiminum. „Viðhöfum
meðal annars látið byggja skóla
og heimavistir í Oganda, Pakist-
an og Indlandi auk þess sem við
hófum nýlega starf í Líberíu og
Keníu. Þeir eru fjármagnaðir með-
al annars með sölu á svokölluðum
ABC-kortum og framlögum frá
fyrirtækjum og einstaklingum.
Einnig eru hér fjölmargír styrkt-
arforeldrar fátækra barna í sam-
starfslöndum okkar og fólk getur
farið á vefsíðuna okkar abc.is og
valið barn sem það vill styrkja,“
segir Guðrún.
Þakklát börn
Guðrún segir það gefa starfinu
mikið gildi að hitta börn sem hafa
notið góðs af aðstoð ABC-barna-
hjálpar. Síðustu jólum og áramót-
um eyddi hún ásamt fjölskyldu
sinni í Indlandi þar sem hún heim-
sótti börn á Heimili litlu ljósanna.
„Maður veit úr hvaða aðstæðum
þessi börn koma og hvað þau hafa
fengið. Menntun er eitthvað sem
er ekki hægt að taka frá fólki og
það vita börnin sem eru afar glöð
og þakklát fyrir tækifærið. Það er
auðvitað miður að geta ekki hjálp-
að öllum börnum sem eru í neyð í
heiminum en fyrir hvert barn sem
fær þessa aðstoð skiptir hún sköp-
um varðandi framtíð þess.“
Ótal margir leggja hönd á plóg
Á síðasta ári voru sendar um
135 milljónir króna til bágstaddra
barna í gegnum ABC-barnahjálp
og í ljósi þess að samstarfslöndum
fjölgar við það að samtökin verða
alþjóðleg má gera ráð fyrir því að
enn meiri peningar verði sendir á
þessu ári.
lnnrét±ingar í öll herbergi heimilisins.
Fagleg ráðgjöf og glæsilegur sýningarsalur.
JKE
DESIGN
Óteljandi mötjuleikar
Mörkinni 1 108 Reykjavlk
slmi 515 0700 www.jke-design.is
Veldu möguleika