blaðið - 01.02.2007, Qupperneq 26
FIMMTUDAGUR 1.
blaöiö
Fékk ekki hlutverkið
Leikarinn Brad Pitt er ein skærasta stjarna Hollywood.
Pitt fær þó ekki öll hlutverk sem hann sækist eftir og var
til dæmis hafnað sem Willy Wonka í Charlie and the Choc-
olate Factory en Johnny Depp var talinn betri kostur.
Coppola sem Han Solo
Persónan Han Solo í Star Wars er byggð á
einum af bestu vinum George Lucas sem
leikstýrði myndunum, leikstjóranum Franc-
is Ford Coppola.
HVAÐ SÁSTU
Ólíkindaheimur
Almodóvars
„Ég sá Volver um daginn og
fannst
hún
alveg
frábær,“
segir
Atli
Rafn
Sigurð-
arson
leikari
um þá
mynd
sem
hann sá síðast.
„Penelope Cruz var alveg frá-
bær í myndinni og það væri
í raun hægt að horfa bara á
hana í tvo tíma. En annars
er myndin í heild sinni alveg
frábær og ein besta mynd
Almodóvars í langan tíma.
Ég er yfirleitt mjög hrifinn af
myndum Almodóvars og það
sem heillar mig hvað mest við
myndir hans er hvernig hann
fær mann til að trúa þeim ólík-
indaheimi sem hann býr til í
myndum sínum. Allt er leyfilegt
í þeim heimi og það er sama
hversu fáránlegur hann verður
þá hættir hann aldrei að vera
trúverðugur.“
Shakespeare-flétta
og sjonræn fegurö
„Ég sá eina bestu mynd sem ég
hef séð
á síðustu
árum
fyrir um
það bil
þremur
vikurn,"
segir
Þórdís
Björns-
dóttir
skáld.
„Myndin heitir Curse of the
Golden Flower og ég sá hana
þegar ég var í New York á
dögunum. Myndin er sjónræn
og falleg og sögusviðið er Kína
á keisaratímanum. Fléttan í
myndinni er svakalega flott og
minnir á meistaraverk Shake-
speares sem er svo gaman að
sjá þar sem maður er vanur
myndum með klisjukenndum
söguþræði. Það var allt við
myndina sem heillaði mig;
sagan, leikurinn og endirinn
sem kom skemmtilega á óvart."
James Bond er þekktasti og að öllum líkindum fjölhæfasti njósnari í heimi, hann er allavega ódauðlegur.
Það sem gerir Bond svona góðan er sú staðreynd að hann hefur ráð undir rifi hverju og slær á létta strengi
hvenær sem hætta steðjar að.
Yfirleitt er hægt að horfa á myndirnar um 007 og gleyma sér nokkuð vel í atburðarásinni en stundum er ekki
hægt annað en að hnussa yfir vitleysunni enda flest af því sem gerist hjá Bond ólíkindalegt.
Margir taka líklega eftir smáatriðum sem ganga ekki upp og hafa sumir bent á þá staðreynd að Bond búi
við óvenju góða tannheilsu miðað við hinn dæmigerða Breta, hann er jafn brúnn allt árið um kring og ekki
má svo gleyma því að maðurinn er sífellt sötrandi Martini án þess að fá nokkurn tímann timburmenn.
Bond-stúlkurnar
Konur elska Bond og hver sem konan er þá fellur
hún fyrir Bond. Tiger Tanaka í You Only Live
Twice lýsir þessu kannski best þegar hann segir:
„My mother told me never to get into a car with a
strange girl. But you, it seems, Bond-san, will get
into anything with any girl“.
Hvar: 1 öllum Bond-myndunum, maðurinn
nælir sér alltaf í mestu skvísurnar.
Nafnafeikurinn
Eins og það sé ekki nógu erfitt að vera súperspæj-
ari þá þarf Bond líka að halda andlitinu í hvert
skipti sem einhver
kvenmaðurinn
kynnir sig, en
þær heita flestar
nöfnum á borð við
Pussy Galore og
Holly Goodhead
en svona nöfn
fengju meira segja
forhertar fata-
fellur til þess að
roðna.
Hvar: í flestum
myndum. Dr. No,
Goldfinger, You
Only Live Twice, Diamonds are Forever, The
Man with the Golden Gun, Moonraker, Octop-
ussy og GoldenEye.
Ekki er allt sem sýnist
James Bond veit betur en að láta blekkjast af
fyrstu kynnum. Þess vegna sér njósnarinn
yfirleitt í gegnum hinar illa innrættu Bond-
skvísur þó þær gefi
sig út fyrir að stíga
ekki í vitið. Flestar
þeirra eru sérfræð-
ingar á einhverju
sviði og því er best
að hafa varann á til
þess að lenda ekki
í konum á borð við
Stacey Sutton sem
jarðeðlisfræðingur,
Holly Goodhead sem
vinnur fyrir NASA og dr. Christmas Jones sem
er sérfræðingur í kjarnavopnum. Flestar kvenn-
anna eru líka reyndir þyrluflugmenn eins og
Corrine Dufour í Moonraker og Naomi í The
Spy Who Loved Me.
Hvar: A View to a Kill, Moonraker, Golden-
Eye, The Spy Who Loved Me og The World Is
Not Enough.
Tilfinningagreind
James Bond hefur alltaf stjórn á tilfinningum
sínum og er einkar laginn við að kolfalla ekki
fyrir neinum kvenmanni, sem er kannski eins
gott þar sem kon-
urnar í lífi hans hafa
lag á að láta lífið.
Aki í You Only Live
Twice er til dæmis
myrt af ninja-gaur,
Fiona Volpe deyr í
Thunderball, Tilly
Masterson er drepin
af Oddjob í Goldf-
inger, Tracy Draco,
sem er sú eina sem
Bond giftist, er skotin niður í On Her Maj-
esty’s Secret Service og Andrea Anders er myrt
með gullkúlu í The Man with the Golden
Gun. Með svona erfiðleika á bakinu er kannski
ekki skrýtið að 007 forðist skuldbindingu.
Hvar: You Only Live Twice, Thunderball,
Goldfinger, On Her Majesty’s Secret Service,
The Man with the Golden Gun.
Góður endir
Flestar myndir enda vel, að minnsta kosti ef
James Bond kemur við sögu í þeim. Endalokin
í myndum um njósnarann eru yfirleitt í faðmi
fagurrar konu og oftar en ekki nýtur Bond lífs-
ins á snekkju, á strönd eða á öðrum framandi
stöðum.
Hvar: í öllum myndum nema On Her Maj-
esty’s Secret Service.
Illmenni
Illmennin í Bond-myndunum eru ekki bara
illmenni heldur njóta þau þess að myrða fórn-
arlömb sín á kvalafullan hátt. 1 Moonraker og
The Spy Who Loved Me, þá er Jaws þrjótur sem
deyðir fórnarlömbin með munninum sem er
fullur af blýi, Xenia
Onatopp í Golden-
Eye kremur fórnar-
lömb sín á milli fóta
sér og í Goldfinger
sneiðir Oddjob
fólk í tvennt með
hattinum sínum.
Ekki er heldur
erfitt að koma
auga á illmennin í
Bond-myndunum.
Þumalputtareglan er sú að ef þeir glíma við van-
sköpun af einhverju tagi þá eru þeir valdasjúkir
og alveg brjálaðir. Til dæmis Blofeld í You Only
Live Twice sem er illa farinn í andliti af örum
og Stromberg í The Spy Who Loved Me sem
hefur minnimáttarkennd vegna fitjaðra fingra.
Ekki má svo gleyma Scaramanga í The Man
with the Golden Gun sem hefur þrjár geir-
vörtur og er í rusli vegna þess.
Hvar: You Only Live Twice, The Man with the
Golden Gun, The World Is Not Enough, The Spy
Who Loved Me, Die Another Day, Moonraker,
Goldfinger, GoldenEye.
Svitnar ekki
ÞaðersvoskrýtiðmeðBondaðþaðersamahvort
hann er að aftengja sprengju, forðast byssukúlur
eða flýja undan mestu illmennum sögunnar, þá
helst hárið fínt, fötin í lagi og hann svitnar aldrei.
Hvar: I öllum Bond-myndunum
Fleygar setningar
Ólíkt flestum þá verður Bond sniðugri eftir
því sem meiri hætta steðjar að og hrökkva þá
gjarnan upp úr honum fleygar setningar. Þegar
hann gefur illmenninu rafstuð í baðkarinu í
Goldfinger segir hann til dæmis: „Shocking,
positively shocking" sem er bæði sniðugt og
viðeigandi og engum nema James Bond dettur
slíkt í hug. Þegar þrjóturinn í Moonraker
verður undir píanói heyrist í Bond: „Play it
again, Sam“.
Hvar: í öllum myndunum. Þetta er eitt af því
sem einkennir James Bond.
ToppÖ
myndir um Jesú Krist
The Life and Passion of
Jesus Christ (1902-05)
Kvikmyndin
var ný af nálinni
þegar fyrirtæki í
Frakklandi fram-
leiddi seríu byggða
á guðspjöllunum.
Einföld og listræn
mynd þar sem
lögð er áhersla á hina heilögu þrenn-
ingu.
The King of Kings (1927)
Síðasta þögla kvikmynd Cecil B.
DeMille. Mörgum finnst hans bestu
og verstu verk sameinast í The King
of Kings. Myndin byggir að mest-
um hluta á guð-
spjöllunum og var
endurgerð á fjórða
áratugnum með
tónlist og hljóði
og sló myndin svo
rækilega í gegn að
ekkert stóru kvik-
myndaveranna treysti sér tilþess að
gera aðra mynd um son Guðs fyrr
en um 1960, eftir að DeMille lést.
The Gospel
According to St.
Matthew (1964)
Leikstjórinn
Pier Paolo Pasol-
ini var samkyn-
hneigður marxisti sem vakti fyrst
athygli sem ljóðskáld áður en hann
sneri sér að kvikmyndagerð. Pasol-
ini vildi sýna Jesú í öðru ljósi en gert
hafði verið og telst myndin helst til
jarðbundin og telja margir að hún
dragi úr byltingarkenndum og yf-
irnáttúrulegum skilaboðum Jesú
Krists.
The Greatest Story Ever Told (1965)
Sumir segja að
myndin hafi verið
dýr mistök og sé
dæmi um allt það
sem er að þegar
Hollywood fram-
leiðir my ndirbyggð-
ar á guðspjöllunum.
Myndin þykir of
falleg, of róleg og of amerísk. Kvik-
myndatakan er þó talin mjög góð
og leikurinn ágætur, sérstaklega hjá
Max von Sydow sem leikur Jesú.
Godspell (1973)
Ein af þremur
söngvamyndum
um guðssoninn
sem kom út árið
1973. Hinar tvær
voru Jesus Christ
Superstar eftir
Andrew Lloyd
Webber og The Gospel Road eftir
Johnny Cash. Myndin gerist í New
York og er eitt atriði tekið upp á
efstu hæð World Trade Center.
Jesus of Nazar-
eth (1977)
Sumir segja
að þetta sé besta
myndin. Þó fannst
mörgum Jesús
vera aðeins of
breskur þar sem
hann talaði með
miklum hreim, var bláeygður og
með hár eins og John Lennon sem
þykir frekar klisjukennt.
The Mirade
Maker (2000)
Var sýnd í kvik-
myndahúsumíEvr-
ópu og sjónvarpi
í Bandaríkjunum
og er fyrsta stóra
teiknimyndin um
líf Jesú. Leikarinn Ralph Fiennes
ljær Kristi rödd sína en persónan
þykir sérstaklega fyndin og heill-
andi i þessari mynd.
The Passion of the Christ (2004)
Ein allra þekktasta og eftirminni-
legasta myndin um Krist en eins og
flestir vita er Mel Gibson maðurinn
á bak við þessa mynd. Myndin vakti
gríðarlega athygli og þykir mörgum
hún aðeins of sjokkerandi vegna
þess að ekkert er dregið úr því of-
beldi sem sonur Guðs verður fyrir.
jemjsThrj.st
HUAUIII. MANGIK
IO Tlltl rxrs'?
KINO'I
KINíiS