blaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007
bla6iö
INNLENT
REYKJANESBÆR
Lögregla lagði hald á fíkniefní
Þrjár ungar konur og karlmaður voru handtekin í
fyrrinótt grunuð um vörslu og neyslu fíkniefna. Fund-
ust efnin við leit í heimahúsi þar sem hald var lagt á
lítilræði af fíkniefnum og neysluáhöldum. Fólkinu var
sleppt að loknum skýrslutökum.
SNÆFELLSBÆR
Lögreglan fær nýtt lasertæki
Lögreglumenn á Snæfellsnesi hafa fengið í sínar hendur
nýtt lasertæki sem mælir hraöa ökutækja. Tækið er hand-
hægt og einungis 1,6 kíló að þyngd en það getur mælt
hraða bifreiðar af mikilli nákvæmni á innan við sekúndu.
Tækið býður einnig upp á nákvæmar fjarlægðarmælingar.
GUÐMUNDUR I BYRGINU
Ekki búinn að kæra
„Hann hefur enn ekki lagt fram kæru hjá okkur. Kærurnar sem
komnar eru fram snúa allar að því sama, meintri kynferðislegri
misnotkun," segir Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi.
Lagðar hafa verið fram sjö kærur vegna kynferðisbrota Guð-
mundar Jónssonar, fyrrverandi forstöðumanns Byrgisins.
Konur af erlendum uppruna:
Fordæma klámið
„Full ástæða er til að fordæma
komu þessa hóps til landsins og
hvetjum við stjórnvöld
til að fylgjast grannt með
ferðum hans og athæfi
meðan á heimsókninni
stendur," segir Amal
Tamini, fræðslufulltrúi
Alþjóðahúss og stjórn-
armaður í Samtökum
kvenna af erlendum
uppruna. Samtökin
sendu frá sér yfirlýsingu
þar sem þau harma að
haldin sé klámráðstefna
hér á landi
búið verði
Klámráðstefna
haldin á Hótel Sögu
Blaðið 16. feb
og telja likur á því að
til klámfengið mynd-
efni meðan á ráðstefnu-
haldi stendur.
„Það fer ekkert
á milli mála að af-
rakstur síðustu sam-
kundu þessa hóps
var klámefni. Félag
kvenna af erlendum
uppruna harmar það
að framleiðendur
kláms skuli velja Is-
land sem samkomu-
stað,“ segir Tamini.
Kraftaverkabarn 1 Bandankjunum:
Vó 284 grömm
Kraftaverkastúlkan Amillia Ta-
ylor hefur verið útskrifuð af sjúkra-
húsi í Miami í Bandaríkjunum og
er komin heim til foreldra sinna.
Amillia er sögð vera það barn sem
hefur verið styst allra barna í móð-
urkviði, eða tæpar 23 vikur. Hún
kom í heiminn þann 24. október
síðastliðinn og var þá 241 milli-
metri að lengd og 284 grömm að
þyngd. Almennt er talið að Hfs-
líkur barna sem eru léttari en 400
grömm þegar þau koma í heiminn
séu litlar sem engar.
Amillia hefur átt í erfiðleikum
með öndun og meltingu, en
læknar telja horfurnar nú vera
mjög góðar.
Félag dúklagninga- og
veggfóðrarameistara
LATIÐ FAGMANN
VINNA VERKIÐ!
- Dúkalögn
- Veggfóörun
- Teppalögn
dukur@simnet. is - www.dukur.is
Traustur bakhjarl f
Vöröu
á 50% afsl
ISLEIUSKI
DAIUSFLOKKURIIU
FRUMSYNIR
23. FEBRUAR mt
SOFT DEATH OF A SOLITARY MASS eftir André Gingras
IN THE NAME OF THE LAND eftir Roberto Oliván
AÐRAR SYNINGAR: 25.02 - 04.03 - 11.03
MIÐASALA: s. 568 8000 - www.id.is
18.03
25.03
_
Ágúst Ólafur Ágústsson um breytingar á kynferðisbrotalögum:
Leyfa kynlífskaup
hér en ekki ytra
■ Ótrúlegur tvískinnungur ■ Til umræöu hjá allsherjarnefnd
■ukaaon | Kul bUtteon lér tU Higntu tU •«
I mai ofl kyniu tyrtz h.imjmonmim nhm
islensktr erindrekar á erlendri grund:
Bannað að kaupa kynlíf
■ Jáfnréttlsstofa krefst nýrrs reglna ■ S|álfsagöur hhitur ■ Ustl yflr kUmfrl tiótel
M fM # I IMdMii im IfW. IM i
M. iIm, .»
Blaðið 20. febrúar 2007
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Á meðan utanríkisráðuneytið
skoðar hvort setja eigi reglur sem
banna opinberum starfsmönnum
að kaupa kynlífsþjónstu á ferðum
erlendis er til umfjöllunar hjá alls-
herjarnefnd Alþingis hvort gera eigi
kaup og sölu á kynlífi hér á landi
refsilaus. Áfram er lagt til að milli-
ganga verði refsiverð.
„Ég skil ekki hvernig ráðherrarnir
geta tekið vel í erindi sem fer fram
á að opinberir starfsmenn kaupi
ekki kynlíf þegar þeir eru erlendis á
sama tima og þeir leggja fram frum-
varp sem gerir ráð fyrir að þessir
sömu starfsmenn, og í raun allir,
geti keypt kynlíf hér á landi. Þetta er
ótrúlegur tvískinnungur og lítið göf-
ugt,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson,
varaformaður Samfylkingarinnar
og nefndarmaður í allsherjarnefnd.
Engin niðurstaða
Dómsmálaráðherra skipaði sér-
staka vændisnefnd til þess að fara
sérstaklega yfir tillögur að breyt-
ingum á kynferðisbrotalögum. Áður
en nefndin skilaði niðurstöðu lagði
ráðherra fram frumvarpið. Kolbrún
Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna, var einn af meðlimum
vændisnefndarinnar.
„Sá sem leiðist út í vændi á ekki
að eiga refsingu yfir höfði sér
heldur á að gera kaupin refsi-
verð. Þetta er eina raunhæfa
leiðin að mínu mati,“ segir
Kolbrún. „Lögin verða að vera
Þetta er ótrúlegur
tvískinnungur og
titi» göfugt
Ágúst Ólafur Ágústsson,
varaformaður
Samfylkingarlnnar
Kúnninn hefur
völdin í þessum
viðskiptum
Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaðurVinstri
grænna.
skýr og að útiloka refsingu fyrir
kaup og sölu á vændi býður aðeins
hættunni heim. Kúnninn hefur
völdin í þessum viðskiptum og lög-
reglan á mun betur með að sækja
gegn þeim einstaklingum."
Einstakt tækifæri
Aðspurður segir Ágúst Ólafur að
sú leið sem farin var í Svíþjóð hafi
reynst vel. Þar hafa kaup á vændi
verið gerð refsiverð og opinberum
starfsmönnum bannað að kaupa
kynlíf erlendis. „Besta leiðin til að
útiloka vændi er að einbeita sér að
kaupandanum, hann hefur valið og
ræður eftirspurninni,“ segir Ágúst
Ólafur. „Vonandi sýna ráðherrar
ríkisstjórnarinnar vilja sinn í verki
og gera kaup á vændi hérlendis
refsiverð. Þeir hafa núna einstakt
tækifæri til þess.“
Slaka ekki á klónni
Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins og
nefndarmaður í allsherjarnefnd,
er mótfallinn sænsku aðferðinni.
Wð viljum nátt-
úrlega ekki
siaka á klónni
Slgurður Kárl Kristjánsson,
þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hann telur sjálfsagt að setja bann
við kaupum opinberra starfsmanna
erlendis. „Við viljum náttúrlega
ekki slaka á klónni í þessum efnum
hér á landi. Með frumvarpinu er
fyrst og fremst verið að auka refsi-
vernd þeirra sem lenda í kynferð-
islegu ofbeldi og þeirra sem leiðst
hafa út í vændi,“ segir Sigurður
Kári. „í Svíþjóðhafaaðstæðurvænd-
iskvenna versnað til muna þar sem
starfsemin hefur færst í undirheim-
ana. Ég er því í harðri andstöðu við
þá leið.“
Framkvæmdir í Lækjargötu:
Malbikað þegar veður leyfir
Lagnavinnu vegna byggingar
tónlistarhúss og fjögurra annarra
stórbygginga í miðbæ Reykjavíkur
miðar vel að sögn Friðgeirs Indr-
iðasonar, verkefnisstjóra hjá fram-
kvæmdasviði borgarinnar.
„Það fer eftir tíðinni hvenær tekst
að malbika og breikka aftur Lækj-
argötuna og Kalkofnsveginn með
fram Seðlabankanum. Ástandið
í Lækjargötunni á bara eftir að
batna,“ greinir Friðgeir frá og
fullyrðir að truflunin vegna fram-
kvæmdanna hafi í raun verið ótrú-
lega lítil miðað við hversu umfangs-
miklar þær eru.
Búið er að rífa öll hús á svæðinu
sem átti að fjarlægja nema Esso-bens-
ínstöðina sem mun fara á næstu
dögum. Næsta stóra verkefni er að
færa Geirsgötuna til bráðabirgða.
„Þá verður farið að grafa fyrir bíla-
kjallaranum, sem verður undir öllu
svæðinu nema tónlistarhúsinu, og
nýrri Geirsgötu sem fer upp í brú til
að hægt sé að ganga undir götuna.“
Hluti af botnplötu tónlistarhússins
hefur verið steyptur og verið er að
undirbúa kjallaraveggi og súlur í
kjallaranum.