blaðið - 21.02.2007, Síða 26
blaðið
Ástarævintýri
Eitt rómantískasta par sögunnar virðist hata verið mjög ófrítt fólk að sögn fornleifafræðinga sem
fundu nýlega 2.000 ára gamlar myntir með myndum af þeim Markúsi Antoníusi og Kleópötru sem rugl-
uðu saman reytum fyrir tíma Krists. Ástarævintýri þessara valdamiklu einstaklinga hefur veitt fjölda
listamanna innblástur en egyþska drottningin var leikin af hinni fögru Elizabeth Taylor á sínum tíma.
tíska
Elva Dögg Árnadóttir hefur alltaf haft gaman af gömlum
fötum og henni finnst mjög skemmtilegt að gramsa á mörk-
uðum og finna þar einstakar flíkur og faldar gersemar. Hún
er svo heppin að fást við áhugamál sitt alla daga þar sem
hún rekur verslunina Glamúr á Laugavegi en verslunin selur
einmitt gömul föt og fallega fylgihluti. Eins og nafn verslunar-
innar ber með sér stílar hún upp á fínni dömur og glamúr og
glæsileika. Orðlaus komst að því hvaða merku fundir leynast
í fataskáp Elvu Daggar og hvað einkennir hennar fatastíl.
ELSKUM...
Þá staðreynd að vorið er
að koma. Nú er bjartara
‘lengur og sólin skín.
Það léttir lund, eykur
hreysti og eflir útlit. Vet-
urinn hefur verið langur
og dimmur og nú sjáum
við loksins fyrir endann
á honum.
LANGAR...
í stór sólgleraugu sem
eru í anda skordýra og
sjöunda áratugarins.
Þau eru í tísku enn eitt
árið og nauðsynleg nú
þegar vorið er að koma.
Það er líka ekkert eins
gott og að fela sig á bak
við risastór gleraugu og
þá er meira að segja
hægt að leggja aftur
augun og hvíla sig í ör-
fáar mínútur án þess að
nokkur verði var við.
LÍKAR VIÐ...
Skemmtileg tímarit.
Því miður er það svo á
[slandi að álagning á
tímaritum er gríðarleg
og því ekki á allra færi
að njóta þeirra. Það
væri svo indælt að geta
rölt í bókabúðirnar á
föstudagseftimiðdögum
og splæst í eins og tvö
stykki án þess að þurfa
að sleppa tveimur mál-
tíðum í kjölfarið.
VITUM EKKI MEÐ...
Rosalega miklar týpur
sem horfa bara á myndir
eftir látna rússneska
kvikmyndagerðarmenn
og hlusta á tónlist eftir
menn og konur sem
enginn kannast við. Eru
þeir sem leggja mesta
áherslu á að vera öðru-
vísi líka rosalega spes
þegar þeir eru einir
heima hjá sér á kvöldin?
Hafið það í huga að
það er óhollt að vera of
kúl. Maður gæti dáið úr
leiðindum.
BLESS BLESS...
Létt 96,7. Það er komið
nóg af rólegu og róm-
antísku enda hlýtur
almennileg rómantík að
Nafn? Elva Dögg Árnadóttir
Aldur? 26
Starfsheltl? Verslunareigandi.
Kvaöa fllk iangar þig mest í ?
Mig langar mikið í þægilegan, víðan
bómullarkjól sem hægt er að nota
kósý heima. Hann má vera með
einhverju fallegu mynstri og í flottum
litum.
Mesti fundur Það flottasta
sem ég hef fundið á markaði
er hvít Chanei-taska og ekki
spillti fyrir að hún kostaði bara
40 dollara, alger gersemi.
Hvaða flíkur notar þú mest?
Kjóla. Ég er algert kjólafrík og nota
kjóla við öll tækifæri hvort sem er yfir
buxur hversdags eða þegar ég að
fara eitthvað fínt.
Af hverju er mest í fata-
skápnum þínum?
Það eru kjólar, ég á örugglega um 40
kjóla. Annars er ég nýbúin að grisja
aðeins úr skápnum mínum. Síðan
á ég líka mjög mikið af allskonar
peysum.
Hverju faerðu ekki nóg af?
Þessa dagana er ég mjög hrifin af
kímonóum og held mikið upp á þá.
Ég er nýbyrjuð að selja kímonóa í
búðinni og þá fæ ég frá Japan. Það
sem mér finnst svo skemmtilegt
við þá er hversu fjölbreyttir þeir eru
og úr fallegum efnum með flottum
mynstrum. Enginn einn er eins og
það er hægt að nota þá bæði spari
og.dagsdaglega.
Fylgihlutur Chanel-eyrnalokkar.
Ég var haldin smá Chanel-æði
og þessa varð ég að eignast.
Hvaða verslanir eru f uppá-
haldi?
Ég versla að sjálfsögðu mikið í minni
eigin búð. Ég er mikið fyrir notuð föt
og lifi og hrærist svolítið í þeim heimi
og mér finnst mjög gaman að versla
og gramsa á mörkuðum. Annars kíki
ég yfirleitt í H og M þegar ég er er-
lendis og einnig hef ég gaman af því
að skoða í hönnunarbúöir.
Mr Nota mikið Þessa
dagana er ég mikið í
svartri loðslá sem ég fékk
f Glamúr. Hún er búin að
ylja mér á köldum dögum i vetur.
Uppahaldsflíkin mín
Kímonó sem ég keypti
líka á markaði i New York.
Ég hefátt hann lengi og
finnst hann alltafjafn
. fallegur.
Hvað skllur þú aldrei vlð þlg?
Giftingarhringinn minn, hann er ég
alltaf með á mér.
Hvað gerirðu til þess að Ifta
vel út?
Ég mæli með því að fara í sund og
gufu, það er alltaf hressandi. Síðan
finnst mér Ifka gott að fara í andlits-
bað, það gerir góða hluti. En svona
venjulega þá læt ég það duga að
greiða hárið og mála mig.
Kjóllinn minn Laxableikur
80’s-kjóllsem ég eignaðist fyr-
ir einu og hálfu ári síðan. Ég
fæ aldrei nóg afþessum kjól
og nota hann mjög mikið.
felast í einhverju öðru
en að hlusta á Michael
Bolton. Og af hverju
halda dagskrárgerðar-
menn stöðvarinnar að
allar konur veltist um
með ást í hjarta og séu
stöðugt að reyna að
setja rólega og róman-
tíska tónlist á fóninn. Nei
takk, það er ýmislegt
annað hægt að gera.
- n
ÞOLUM EKKI...
Risabfla. Feitir yfir-
byggðir risapallbílar frá
Ameríku henta ekki fyrir
litlar götur í Reykjavík
og sérstaklega ekki
miðbæinn. Rassarnirá
bílunum standa út úr
öllum stæðum og hefta
þannig almenna umferð.
Hættið nú að troðast
Íum á risavöxnum
k fjallabílum með upp-
B hækkuðum skrilljón
V tomma dekkjum.
Allt um Hjördísi
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, dansari hjá
(slenska dansflokknum, hefur haft í
nógu að snúast undanfarna daga en hún
hefur verið upplekin á æfingum með
dansflokknum fyrir sýninguna í okkar
nafni sem frumsýnd verður næstkomandi
föstudag.
Hvað ertu að gera núna? Aðallega
bara að æfa, æfa og aftur æfa. Við
frumsýnum sýninguna I okkar nafni á
föstudaginn.
Hvaða flfk langar þlg mest I? Mig
langar mest í flottar svartar buxur, sem
mér hefur ekki enn tekist að finna.
Aukahluti? Eg elska skartgripina frá
Pilgrim.
Hvernig lætur þú gott af þér leiða?
Ég læt gott af mér leiða með því að reyna
aö vera jákvæð í viðmóti. Það smitar út
frá sér og það er bara svo miklu auðveld-
ara að lifa þegar fólk er jákvætt.
Uppáhaldsverslanlr? Yfirleitt versla
ég mest þegar ég fer til útlanda og þá eru
Zara og Mango-búðir í uppáhaldi þar sem
ég finn mér alltaf eitthvað þar.
Netverslanir? Ekki verið mikið í þeim pakkanum.
Ertu með ðr? Það fylgir nú bara starfinu, sérstaklega á fótleggjunum.
Fegurðarráð? Heilsusamlegt liferni og sjálfsöryggi. /3\
Uppáhaldsveítingastaður? Vegamót eru með góðan mat á viðráðanlegu verði. fr X
Hvaða tónlist ertu að hlusta á núna? Ég hlusta alltaf bara á sitt lítið af hverju. W
Uppáhaldsstaður f Reykjavfk? Get ekki sagt að einhver einn staður sé meira uppáhald en annar, en stundum finnst mér gott að ganga niður að sjó við Laug- arnestangann. Getur verið mjög friðsælt að kvöldi til. t-
Hvaða bókum mælir þú með? Ég mæli með Sagnfræðingnum. Það er frábær bók.
Uppáhaldshlutur? Nýja úrið mitt sem ég fékk i jólagjöf. Tek það ekki af mér.
Fyrir hvað hrósar fólk þér oftast? Ætli
fólk hrósi mér ekki oftast fyrir að vera
fljót að læra nýja hluti.
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir Uþþtekin á æfingum með Islenska
dansflokknum um þessar mundir
BlaliD/Frikkl