blaðið - 23.03.2007, Page 10
blaðið
FOSSBERG
SERVERSLUN
FAG MANNSINS
Sími 5757 600 • Fax 5757 605 • Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík
fossberg@fossberg.is • www.fossberg.is
Urval af
sængurfatnaði
til fermingagjafa
CBCDCu
OCBCDD5
Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 * Reykjavik
20-50-10
• f
^/) heilsuakademían kynnir
Fit-Pilates
Heilsuakademían býður upp á Fit-Pilates í
Egilshöll.
Fit - Pilates þjálfardjúpvöðva líkamans, sem
gefur langa fallega vöðva, flata kviðvöðva,
grönn læri, sterkt bak, betri líkamsstöðu og
aukinn liðleika. Móta flottar línur líkamans.
Enginn hamagangur og læti, en virkilega vel tekið á.
Leikfimi fyrir alla sem vilja sjá línurnar verða flottari. Frábært
æfingakerfi.
Næstu námskeið hefjast 2. apríl.
Skráning hafin.
Vortiíboð •
14.990krfyrir6viknanámskeið heilsuakadem(an
Skráning hafin. / Hreyfing, heilbrigðí, skemmtun
www.heilsuakademian.is - sími: 594 9666
10
FOSTUDAGUR 23. MARS 2007
UTAN ÚR HEIMi
EVRÓPUSAMBANDIÐ £
Flug yfir Atlantshaf auðveldað
Samgönguráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins styðja það að sér-
stakur samningur verði gerður við Bandaríkin um að opna markaðinn
fyrir flugfélög sem fljúga yfir Atlantshafið. Ýmis bresk flugfélög hafa
gagnrýnt samkomulagið sem auðveldar flugfélögum að fljúga milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna. Stuðningsmenn segja samkeppni aukast.
Höfuðborgarsvæðið:
Tíu þúsund íbúðir á
næstu fimm árum
■ Engar áhyggjur
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Gera má ráð fyrir að rúmlega 10 þús-
und íbúðir verði byggðar á næstu
fimm árum í nýjum hverfum sem
skipulögð hafa verið á höfuðborg-
arsvæðinu. Björn Þorri Viktorsson
fasteignasali hefur ekki sérstakar
áhyggjur af fasteignamarkaðnum
þótt fyrirhugað sé að byggja þús-
undir nýrra íbúða á höfuðborgar-
svæðinu á næstu árum.
„Það selst alltaf allt þótt auðvitað
sé ekki hægt að reikna með að allt
seljist á einu bretti. Það er bara gott
að fólk geti valið um hvar það vill
setja sig niður,“ segir Björn. „Þegar
Grafarvogurinn var að byggjast upp
voru menn undrandi á því að þar
væri bara allt til sölu. Auðvitað var
allt til sölu. Það var verið að byggja
íbúðir til að selja þær,“ tekur Björn
Þorri fram.
Athygli hefur vakið að seljendur
hafa lækkað verð á nýbyggðum
íbúðum um nokkrar milljónir í
sumum tilfellum. „Verð á nýbygg-
ingum voru skrúfuð upp að hluta til
afsvokölluðumfasteignaheildsölum
sem mikið var rætt um á síðasta ári.
Menn keyptu heilu blokkirnar í
■ Handdrifin hækkun ■ Breytt búsetuform
byggingu og veðjuðu á verðhækkun
fram að þeim tíma sem þær yrðu
til sölu. Hækkunin var kannski að
einhverju leyti handdrifin og svo
reyndust ekki forsendur fyrir þeim
væntingum sem menn voru með.
Það þarf auðvitað að vera eðlilegt
samræmi milli byggingarkostnaðar
og verðs,“ leggur Björn áherslu á.
Það er skoðun hans að bjart sé
fram undan, atvinnustigið sé hátt
og hagvöxtur góður auk þess sem
breytt búsetuform hafi áhrif á
markaðinn þar sem algengara sé
orðið að fólk búi eitt. „Eins manns
fjölskyldur eru nýtt hugtak sem
hefur verið mikið í umræðunni í
Evrópu. Það er örugg þróun í þá
átt hér eins og í nágrannalönd-
unum. Og síðast en ekki síst urðu
íslendingar 300 þúsund um þetta
leyti í fyrra. Það var miklu fyrr
en spár höfðu gefið til kynna. Nú
um síðustu áramót voru íslend-
ingar orðnir rúmlega 307 þúsund.
Bara þessi fjölgun kallar kannski
á 2500 til 3000 nýjar íbúðir. Þetta
er atriði sem menn hafa ekki
reiknað með. Þessi fjölgun bæt-
ist við náttúrulega fjölgun sem
verður þegar stórir árgangar koma
á markaðinn."
HELSTU NÝBYGGINGAR
Reykjavlk Úlfarsárdalur: 3.600 ibúðir
/ þremur fyrstu skólahverfunum.
Norölingaholt: 950 íbúðir
Skuggahverti: 250 íbúðir
Ármannsreitur: 70 íbúðir
Hafnarfjörður Vellir, Ásland og Hamranes: 1.800 íbúðir til ársins 2009
Seltjarnarnes Hrólfsskálamelur: 80 íbúðir
Garðabær Akrahverfi: 495 ibúðir
Urriðaholt: 1.600 íbúðir
þegarfullbyggtverður
Mosfellsbær Helgafellshverfi: 1000 íbúðir
Krikahverfi: 200 íbúðir
Leirvogstunga: 420 íbúðir
Blikastaðaland: 1.800 íbúðir
helmingurinnfyrír2012.
Kópavogur Lundur: 380 íbúðir
Rjúpnahæð: 400 íbúðir
Kópavogstún: 300 íbúðir
Kerrur á góðu verði
Margar stæröir og gerðir
. . r^i 1 - - - - J
www.topdrive.is
Sími 4227722
Kynferðisafbrot:
Þrjá mánuði inni
Karlmaður sem misnotaði stjúp-
dóttur sína kynferðislega hefur
verið dæmdur til tólf mánaða fang-
elsisvistar, þar af eru níu mánuðir
skilorðsbundnir. Héraðsdómur
Vesturlands dæmdi manninn auk
þess til að greiða stúlk-
unni 600 þúsund krónur í
miskabætur.
Stúlkan er fædd
árið 1991, og er
maðurinn dæmdur
fyrir að hafa káfað
á kynfærum stúlk-
unnar innanklæða í
apríl 2002, er hún lá
sofandi á heimili þeirra.
Hann var hins vegar
sýknaður af því að hafa
káfað á læri stúlkunnar
utanklæða í ágúst 2005.
Við meðferð málsins kom
fram að stúlkan greindi frá
því í viðtali við skóla-
sálfræðing að hún
hefði orðið fyrirkyn-
ferðislegu ofbeldi
af hálfu stjúpföður
síns, en kennari
stúlkunnar vísaði
henni til sálfræð-
ingsins. Þar kom
einnig fram að móðir
stúlkunnar hafði vitað
af grunsemdum um að
stúlkan hefði verið mis-
notuð kynferðislega,
en kvaðst sjálf aldrei
hafa haft grunsemdir
í þá veru.