blaðið - 23.03.2007, Page 14
blaði
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Ofát og
hreyfingarieysi
Engin lýðheilsuógn er jafn vanmetin um víða veröld og offitan. Þetta
er mat sérfræðinga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Sam-
kvæmt upplýsingum stofnunarinnar eru meira en 22 milljónir barna
undir fimm ára aldri of þungar og um 155 milljónir barna á skólaaldri.
Talið er að of þungum börnum í Evrópu fjölgi um 400 þúsund á ári og á
hverju ári bætast 85 þúsund börn í hóp þeirra sem glíma við offitu.
Sú var tíðin að íslendingar litu á offitu sem vandamál annarra, sérstak-
lega Bandaríkjamanna en nú er tíðin önnur. Staðreyndirnar tala sínu
máli. í skýrslu faghóps um eflingu lýðheilsu á Islandi, sem skipaður var
af forsætisráðherra fyrir tveimur árum, kemur fram að sífellt fleiri börn
mælast yfir kjörþyngd. Hlutfall níu ára barna á höfuðborgarsvæðinu,
sem greinast yfir kjörþyngd, hefur aukist úr 2 prósentum árið 1938 í 23
prósent árið 2005. Þetta er ríflega tíföldun á 67 árum.
Niðurstöðurnar benda því eindregið til þess að breytingar á holdafari
íslenskra barna séu verulegt áhyggjuefni. Það er ekki nóg með að það sé
erfitt fyrir börnin að burðast með aukakílóin heldur er hættan á versn-
andi heilsufari samfara ofþyngd mikil.
í Blaðinu í gær kom fram að hreyfiþroski barna í Heilsuleikskólanum
Urðarhóli í Kópavogi er mun meiri en barna í öðrum leikskólum. Þá
stunda börnin sem verið hafa í leikskólanum frekar íþróttir eftir að þau
hætta í skólanum en börn sem verið hafa í öðrum leikskólum. Á Urðar-
hóli hefur verið starfandi íþróttakennari síðastliðin sjö ár en hann er nú
að fara að hætta. Unnur Stefánsdóttir leikskólastjóri sagði í samtali við
Blaðið í gær að bæjaryfirvöld í Kópavogi hefðu meinað henni að auglýsa
eftir nýjum íþróttakennara. Henni hefði verið tjáð að samkvæmt lögum
mætti bara ráða leikskólakennara í leikskóla. Þetta er í raun alveg ótrú-
legt. Það er alkunna að á leikskólum starfar nokkur fjöldi ófaglærðra.
Er virkilega betra að fá ófaglærðan starfsmann inn á leikskólann en
íþróttakennara?
Það liggur í augum uppi að offituvandamál barna er grafalvarlegt sam-
félagsmál. Auðvitað er nauðsynlegt að hið opinbera marki stefnu í lýð-
heilsumálum barna en þegar öllu er á botninn hvolft þá liggur ábyrgðin
hins vegar fyrst og fremst hjá foreldrum. Það er sama hversu mikið átak
er gert í leikfimikennslu og næringarfræðslu í skólum, það skilar ekki
árangri ef það nær ekki inn á heimilin. Ef foreldrar gefa sér ekki tíma og
eru ekki meðvitaðir um hættuna sem fylgir hreyfingarleysi og ofáti þá
kemur það niður á börnunum. Ef ekki verður hugarfarsbreyting í sam-
félaginu liggur alveg ljóst fyrir að í framtíðinni munu æ fleiri þjást af
sjúkdómum eins og sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini
og stoðkerfisvandamálum.
Trausti Hafliðason
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Heimilisi/ænir og gómsætir
matfiskur^
FULLELDAÐIR
OG TILBÚNIR
Á PÖNNUNA
EÐA í OFNINN!
- Lostæti með lítilli fyrirhöfn
Sól um allt ísland
Umræðan um stækkun álversins
í Straumsvík hefur um margt verið
merkileg.
Hópur umhverfissinna hefur
sameinast í samtökunum Sól í
Straumi en þau grasrótarsamtök
hafa orðið til þess að fólk annars
staðar á landinu hefur fylkt liði
gegn stóriðjustefnunni undir Sól-
aryfirskriftinni. Þannig eru orðin
til Sól á Suðurnesjum gegn álveri í
Helguvík og Sól á Suðurlandi gegn
virkjunum í Neðri-Þjórsá.
Sól um allt land, segjum við
Vinstri-græn. Við fögnum öllum
þeim sem fylla nú raðir umhverfis-
sinna og vilja breyta forgangsröðun
Islendinga. Látum náttúruna njóta
vafans, gerum hlé á stóriðjunni,
samþykkjum fyrst vandaða náttúru-
verndaráætlun áður en við gerum
áætlanir um nýtingu. Þannig
viljum við Vinstri-græn hafa það ef
við komumst í aðstöðu til þess að
loknum kosningum í maí. En það
er enn langt til kosninga og áður
en þær renna upp munu Hafnfirð-
ingar kjósa um nýtt deiliskipulag
í Straumsvík sem í raun og veru
snýst um stækkun álvers Alcans.
Kosningabaráttan í Hafnarfirði
hefur harðnað mjög á undan-
förnum vikum. Þar heyja grasrótar-
samtökin Sól í Straumi baráttu gegn
stækkun og álfyrirtækið Alcan
berst fyrir þessari sömu stækkun.
Þessi kosningabarátta er um margt
einstæð í Islandssögunni, ekki síst
vegna þess að þarna er fjölþjóðlegt
fyrirtæki að beita sér í hápólitísku
umhverfismáli. Starfsmenn eru í
úthringingum og upplýsingum er
safnað af fyrirtækinu í miðlægan
gagnagrunn. Þessar aðfarir hafa
nú verið kærðar til Persónuverndar
enda orka þær mjög tvímælis. Á
dögunum voru sett lög um fjár-
reiður stjórnmálaflokka þar sem
margt var fært til bóta, t.d. hvað
varðar bókhald flokkanna. Þar er
hins vegar ekki tekið til þess að fyr-
irtæki beiti sér í pólitískum málum,
enda slíkt kannski nýlunda hér á
landi.
Katrín Jakobsdóttir
Annað eftirtektarvert við barátt-
una er að flokkslínur hafa riðlast
nokkuð og þannig standa ýmsir
sjálfstæðis- og samfylkingarmenn
með okkur Vinstri-grænum gegn
stækkun þó að meirihluti Sam-
fylkingar í bæjarstjórn hafi verið
hlynntur stækkuninni og að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi rekið öfluga
stóriðjustefnu hérlendis undan-
farin ár. Þetta sýnir að umhverfis-
mál skipta æ meira máli í pólitískri
umræðu og sífellt fleiri skilja hve
miklu máli skiptir að reka öfluga
umhverfispólitík samkvæmt hug-
myndafræði sjálfbærrar þróunar.
Það er ljóst að stækkun álvers
í Straumsvík mun valda aukinni
loftmengun í Hafnarfirði. Álverið
á að stækka úr 180.000 tonnum
í 460.000 tonn sem gerir það eitt
af allra stærstu álverum í Evrópu.
Losun gróðurhúsalofttegunda frá
álverinu mun meira en tvöfaldast
við stækkunina sem hlýtur að vera
umhugsunarefni fyrir alla íbúa
höfuðborgarsvæðisins en ekki síst
þá sem búa nánast í bakgarði ál-
versins, í Vallahverfinu. Mér þykir
eins og mörgum öðrum ávinning-
urinn af þessari stækkun óveru-
legur miðað við umhverfiskostnað-
inn en talsmenn Alcans hafa hins
vegar hótað því að ef ekki verði af
stækkuninni geti farið svo að álver-
inu verði lokað og það fari alfarið.
Hótanir af þessu tagi eru engin ný-
lunda hjá auðhringjum um heim
allan þó að ekki sé alltaf staðið við
þær. Og þar sem það hefur verið
gert kemur oftast í ljós að enginn
er ómissandi. Forsvarsmenn Sólar
í Straumi hafa ennfremur verið dug-
legir að benda á að stækkunin úti-
loki einnig ýmsa aðra möguleika í
hafnfirsku atvinnulífi.
Atkvæðagreiðslan um deiliskipu-
lagið fer fram 31. mars og ljóst að
það verður mjótt á munum í glímu
Davíðs við Golíat. Þessi atkvæða-
greiðsla er mikilvægur áfangi
í baráttunni gegn stóriðjuöfg-
unum — og baráttan hefur þegar
sýnt okkur að æ fleiri fylkja sér
um græna framtíð og sól um allt
ísland.
Höfundur er varaformaður Vinstri-grænna
Klippt & skorið
Pistlar Jónasar Kristjánssonar á jonas.
is eru vinsælt lesefni. Jónas er vanur leið-
arahöfundur og er sjaldnast orða vant.
Hann er ekki sáttur við dóma sem fallið hafa í
meiðyrðamálum undanfarið og segir: Formaður
Rafiðnaðarsambandsins var dæmdur til að
greiða forsvarsmönnum starfsmannaleigu 1,5
milljón króna í miskabætur
og málskostnað. Hann hafði
látið hörð orð falla um vinnu-
brögð fyrirtækisins 2B í garð
pólskraverkamannaviðKára-
hnjúka. Hann hafði reynt að
gæta hagsmuna lítilmagnans, sem fyrirtækið
hafði fótum troðið. Dómurinn fylgir nýjum sið
íslenskra dómstóla að dæma háar fébætur fyrir
meiðyrði og brot á persónufrelsi. Þessir misvitru
dómar munu smám saman draga úr gegnsæi
þjóðfélagsins, efla fasisma og leiða vandræði
yfirþjóðfélagið.
Sigurður Kári Kristjánsson er sár og
reiður yfir þvf að frumvarp um sölu
á léttvíni og bjór fór
þingið. Hann segir frum-
varpið hafa verið notað
sem skiptimynt í samninga-
viðræðum milli formanna
þingflokkanna og samið út
af dagskrá þingsins. Sjálf-
stæðismenn harma þá niðurstöðu, segir hann
á heimasiðu sinni. „Þingmenn Vinstri grænna
hafa alla tið verið á móti frjálsræði en talað
fyrir höftum, boðum og bönnum. Formaður
flokksins, Steingrímur J. Sigfússon, var til
dæmis á móti því að leyfa bjórinn, hann var á
móti frjálsu útvarpi, hann vará móti einkavæð-
ingu bankanna, á móti skattalækkunum til
einstaklinga og fyrirtækja og svo mætti lengi
telja. Afstaða Vinstri grænna í þessu máli er að
mínu mati enn eitt dæmi um þá forpokuðu for-
sjárhyggju og afturhald sem einkennir stefnu
Vinstri grænna."
r
slandshreyfingin var formlega stofnuð í
gær. Margrét Sverrisdóttir og Úmar
Ragnarsson kynntu nýjan lista sem ætlar
að bjóða fram í vor. Merki flokksins er rautt,
grænt og blátt. Af hverju
ekki í fánalitunum í takt við
nafn flokksins? Rautt er litur
Samfylkingarinnar, grænt
er litur framsóknar, rautt
og grænt eru litir Vinstri
grænna og Sjálfstæðisflokkurinn hefur eignað
sér bláa litinn að mestu þótt Frjálslyndir noti
hann líka, að vísu með hvítum. Hvort þessir
litir hafa einhvern boðskap á eftir að koma í
Ijós.
elin@bladid.net
ekki i gegnum