blaðið - 23.03.2007, Side 22
22
FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007
blaöiö
Vígalegur BMW 320d er svolítiö
eins og rándýrijakkafötum; töff
og viröulegur í senn. BMil/Frikki
bílar
bilar@bladid.net
Jeppimgautsaia
Á morgun lýkur jepplingaútsölu B&L.
Á útsölunni er mikið úrval fjórhjóla-
drifsbíla sem hægt er að fá á 100%
láni í allt að 84 mánuði.
Atvinnubílaferð til Stuttgart
Bílaumboðið Askja stendur fyrir ferðalagi atvinnubílstjóra til
Stuttgart dagana 29. apríl til 2. maí. Ferðin kostar 79.000 krónur
á mann auk flugvallaskatta og rennur skráningarfrestur út 4. apríl.
Upplýsingar um skráningu og hvað er innifalið á www.askja.is.
Formúluklúbbur
Toyota
Fyrir pá sem vilja fylgjast ofboðslega vel
með gengi Toyota-liðsins í Formúlunni er
rétt að benda á Formúluklúbb Toyota á
íslandi. Öllum er frjálst að skrá sig I klúbb-
inn án endurgjalds með því að senda póst
á netfangið f1@toyota.is.__
• Bílstjórar Toyota eru Ralf Schumacher og Jarno
Trulli • Liðið varð í sjötta sæti í fyrra en því fjórða
2005 • Liðið heldur sig áfram við Bridgestone-
dekk þrátt fyrir að hafa átt erfitt með að aðiagast
þeim á síðasta timabili
Ætlunin er að bjóða 70.000 dollara í starfs-
lokagreiðslu til þeirra sem hafa unnið 130
ár eða lengur hjá fyrirtækinu. Á sama tíma
hafa yfirmenn fengið árangurstengdar
bónusgreiðslur.________________________________
• Fyrr í mánuðinum tilkynnti Chrysler 1.300 upp-
sagnir • Chrysler tapaði einum og hálfum milljarði
dollara í fyrra • Ford tapaðí 12,5 milljörðum •
Starfsmenn sem segja sjálfviljugir upp eftir meira
en eins árs starf fá 100.000 dollara starfsloka-
greiðslu
Evrópufrumsýning
31. mars frumsýnir Brimborg Ford Edge
í fyrsta sinn í Evrópu. Edge er sportjeppi
með tölvustýrðu fjórhjóladrifi, en nafnið á
að vísa til djarfrar hönnunar bílsins.
• Edge er búinn 265 hestafla, 3,5 lítra V6 vél og
sex þrepa sjálfskiptingu • Billinn er rétt rúmar 7
sekúndur í hundrað • Samtökin IIHW settu Edge
efst á lista yfir örugga bíla nýlega
Corolla og Prius
bindast bondum
2009 útgáfa tvinnbílsins Prius frá Toyota
mun samnýta fjöldann allan af burðarvirk-
ishlutum og varahlutum með Toyota Auris.
Ástæðan er hagkvæmni I framleiðslu en
Prius hefur hingað til verið byggður frá
grunni sem sérstæður bíll í framleiðslu-
línunni._______________________
• Auris er nýja nafnið á Corolla • Bílarnir nýta
sömu grunnplotu en hún verður teygð og stækkuð
fyrir Priusinn • Prius var settur á markað í Japan
1997 og komst á heimsmarkað 2001 • Prius var
fyrsti fjöldaframleiddi tvinnbíllinn.
mm\.
r
Alltaf stuð
hjá Chrysler
Nyjustu fréttir at Chrysier eru þær að
til stendur að skera niður 600 störf til
viðbótar við þau sem þegar voru ákveðin.
790 þúsund
innkallanir
Volkswagen er nú að innkalla um 790 þú-
sund bíla af gerðunum Jetta, Golf og Nýju
bjöllunni vegna_bilunar í hemla[jós_um.
• Bilarnir sem um ræðir eru árgerðir 1999-2006
• Bilunin lýsir sér þannig að hemlaljósin detta út
• I Bandarikjunum hefur þetta valdið af-
tanákeyrslun • Fljótlegt er að lagfæra gallann
□xulliðir í flestar
gerðir jeppa
FUALLABÍL
Stál og stansar ehf.
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
fjallabilar@fjaiiabilar.is
STYRISEIMDAR,
SPIIMDILKÚLUR
miklu úruali
jeppa
Japan/U.S.A.
JALLABÍ
Stál og stansar ehf.
Vagnhöföa 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
lakstur BMW 320d:
Borgað fyrir
risturinn, eða „þrír línan“,
frá BMW er gott dæmi um
bíl sem er í stöðugri fram-
þróun. Meira er lagt í bílinn
með hverri útgáfu en um
leið er þess gætt að breyta ekki of
miklu.
Nýjasta útgáfan hefur fengið snyrti-
lega andlitslyftingu, nýjar vélar, enn
betri aksturseiginleika og aukið rými
fyrir aftursætisfarþega og farangur,
svo eitthvað sé nefnt.
Að utan
Þrátt fyrir að sumir segi nýjasta
þristinn of aggresívan vil ég meina að
hönnuðir hans hafi fundið ákveðinn
gullinn meðalveg. Með ákveðnum og
skörpum línum hafa þeir skapað bil
sem er allt í senn sportlegur, virðu-
legur, klassískur og nútímalegur.
Áberandi brot í vélarhlíf og eftir endi-
löngum hliðum bílsins leika hér stórt
hlutverk.
BMW-grillið er enn á sínum stað,
örlítið fíniserað, og hringlaga fram-
ljósin hafa líka verið uppfærð.
Að innan
Bíllinn hefur líka verið uppfærður
að innan. Mælaborðið snýr örlítið
móti ökumanninum og liggur vel við
honum. Útlitslega vil ég meina að það
hæfi loksins orðið sportlegum lúxus-
anda bílsins en það kom mér á óvart
hversu einfalt það er í grunngerðinni.
Miðað við að í bílnum eru tölvu-
heilar sem fylgjast til dæmis grannt
með ástandi smurolíunnar, reikna út
frá veðri, akstri og öðrum breytum
hversu oft þarf að skipta um frjókorn-
asíu, bremsuklossa og þess háttar fín-
erí þykir mér dálítið súrt að þurfa að
kaupa glasahaldara og skriðstilli sem
aukabúnað.
Akstur
BMW gengur út frá einfaldri rök-
fræði þegar kemur að drifbúnaði:
Afturhjólin sjá um að koma bílnum
áfram, framhjólin stýra bílnum og
það er ekki hægt að biðja sömu hjólin
um að gera hvort tveggja og gera það
vel. Þessi fræði virðast svínvirka því
bíllinn lætur afbragðsvel að stjórn.
íslendingar hafa stundum fælst frá
afturhjóladrifnum bílum vegna aug-
ljósra veikleika þeirra í vetrarfærð.
Fyrir utan 50/50 þyngdardreifingu
er þristurinn búinn mjög fullkomnu
stöðugleikakerfi sem tryggir örugg-
an akstur í flughálku, eins og þeirri
sem bíllinn var prófaður í. Afturend-
inn leitar vissulega til hliðar ef mað-
ur er of ákveðinn á olíugjöfinni, en
með kerfið virkt sér billinn sjálfur
um að leiðrétta það jafnóðum. Með
því að slökkva á þvi getur maður svo
skemmt sér heilu dagana. Þá borgar
sig samt að vera með góða tónlist til
að hlusta á því á vetrardekkjum er
veghljóð í bílnum talsvert.
Mótorinn í prufubílnum er tveggja
lítra dísilmótor sem skilar 163 hestöfl-
um og 340 Newtonmetrum. Hann
er gangþýður og sprækur og velji
maður að hafa 6 þrepa skiptinguna í
sportham verður maður 17 ára aftur.
í venjulegum ham lærir skiptingin á
mann og bregst við því sem maður
gerir í samhengi við það aksturslag
sem er manni tamt.
Búnaðurog öryggi
Fyrir utan áðurnefnt stöðugleika-
kerfi og tölvur sem fylgjast grannt
með ástandi bílsins fannst mér mest
til koma að bíllinn kemur á svoköll-
uðum „runflat" dekkjum. Þau eru
þannig uppbyggð að hægt er að keyra
á þeim sprungnum talsverða vega-
lengd án þess að þau leggist saman.
Þá eru í bílnum 3ja punkta öryggis-
belti fyrir fimm og sex loftpúða.
Hægt er að panta nánast allan hugs-
anlegan aukabúnað með bílnum og
fylgjast svo með verðinu hækka í sam-
ræmi við það.
Bíllinn sem prófaður var er með
„Exclusive" pakka sem meðal annars
BMW 320d
Exclusive
Aksturseiginleikar, falleg
hönnun, mikiö lagt í bílinn
tæknilega, mótorinn
passar velvið bílinn.
Hátt verð miðað við
staðalbúnað, vcy- Einar EM MagnúSson
hljOO á vetrardekkjum. einareli@bladid.net
Reynsluakstur ★★★★★
• 2,0 lítra dísilvél • 163 hestöfl • 340 Nm • 6 þrepa
steptronic sjálfskipting • 8,3 sek. i 100 • Eyðsla í
blönduðum akstri: 6,71/100 km • 6 loftpúðar
• OSC • ABS • CBS • DTC • Tengi fyrir iPod
• Verð: 4.550.000 kr. • Umboð: B&L
inniheldur metallic lakk, leður á sæti
og stýri, hita í sætum, loftkælingu,
sjálfskiptingu, 17 tommu álfelgur og
fleira. Með þeim pakka stendur bíll-
inn í 4.550.000 krónum. Grunnverðið
er 3.750.000 krónur.
Niðurstaða
Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að það er gott og gaman að keyra
þennan bfl. Þetta er jú BMW. Þristur-
inn ætti að henta flestum; fjölskyldu-
fólki, forstjórum eða unglingum með
bíladellu. Fullkomið stöðugleikakerfi
gerir bílinn mjög raunhæfan kost á ís-
landi, meira að segja í þeim landshlut-
um þar sem enn snjóar, og sparneyt-
inn og sprækur 2 lítra dísilmótorinn
er líklega skynsamlegasti kosturinn
fyrir hagsýna bíleigendur.
En er hann 4,5 milljóna króna virði,
án glasahaldara? BMW heldur góðu
endursöluverði og þjónustuskoðun
er aðeins á 25.000 km fresti svo rekst-
urinn ætti að vera hagkvæmur. BMW
hefur líka orð á sér fyrir að smíða
góða og vandaða bíla svo þó að þú get-
ir fundið bíl á lægra veðri með meiri
staðalbúnað verður þú að spyrja
þig hvort þú sért ekki tilbúinn til að
borga aðeins fyrir aksturseiginleika
oggæði.
Tvær spexmandi frumsýningar hérlendis um helgina:
Ofursportbíll og alvöru jeppi
Um helgina verða t vær bílafrumsýn-
ingar hér á landi sem bílaáhugamenn
ættu að gefa sér tíma til að mæta á.
Fyrst ber að nefna ofursportbíl-
inn Audi R8 sem verður frumsýnd-
ur hjá Heklu. Sumir hafa kallað R8
fullorðinsútgáfuna afTT ogþað má
vissulega segja að 420 hestafla 4,2
lítra V8 mótor sé fullorðins. Líka að
komast í hundrað á 4,6 sekúndum.
R8 er tveggja sæta og jafn mikið
er lagt upp úr innréttingunni og ál-
yfirbyggingunni.
Hinn bíllinn er ekki síður áhuga-
verður en það er Nissan Qashqai
sem verður frumsýndur hjá Ingvari
Helgasyni.
Nissan Qashqai Alvöru jeppi á
góöu veröi.
Þrátt fyrir að vera frekar nettur, ná-
kvæmlega jafnstór og Toyota Rav4, er
Qashqai búinn hefðbundnum jeppa-
drifbúnaði. ökumaður getur þvi val-
ið hvort bíllinn er með drifi á tveim-
ur eða fjórum hjólum og ennfremur
er hægt að læsa millikassanum.
Audi R8 Byggðurá LeMans bíl og
frumsýndur hérlendis um helgina.
Qashqai kemur fyrst til landsins
sjálfskiptur með bensínvél en von er
á 2 lítra dísilvél í sumar með 6 þrepa
skiptingu.
Það sem er hvað mest spennandi
við Qashqai er verðið, frá 2.690.000
krónum.