blaðið - 30.05.2007, Síða 10

blaðið - 30.05.2007, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 blaðiö UTAN ÚR HEIMI JAPAN Ráðherra sviptir sig lífi Toshikatsu Matsuoka, landbúnaðarráðherra Japans, svipti sig lífi á mánudag, skömmu áður en hann átti að mæta fyrir þingnefnd sem rannsakar spillingarmál sem hann var aðili að. Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, hefur sætt mikilli gagn- rýni í kjölfarið, en hann hafði haldið uppi vörnum fyrir Matsuoka. Ellilífeyrisþegi myrtur 85 ára gömul kona fannst myrt í íbúð sinni í Árósum í Danmörku um helgina. Að sögn lögreglu hafði konan, sem bjó ein í þjónustuíbúð, verið barin í höf- uðið og stungin ítrekað með hnífi. Lögreglan leitar tveggja karlmanna í tengslum við morðið. NÍGERÍA Nýr forseti til valda Umaru YarAdua sór í gær embættiseið sinn er hann tók við emb- ætti forseta af Olusegun Obasanjo. Þetta er í fyrsta sinn sem lýðræðislega kjörinn forseti tekur við af öðrum lýðræðislega kjörnum forseta í landinu. Nígería er fjölmennasta land Afríku, en spilling og óstöðugleiki eru viðvarandi vandamál í landinu. Vinstri græn: Ögmundur heldur sínu Ögmundur Jónasson verður áfram formaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þingflokkurinn kom saman í gær og skipti með sér verkum fyrir komandi þing. Katrín Jakobsdóttir verður varaformaður og Kolbrún Halldórsdóttir verður ritari. Ögmundur er nú að hefja sitt fjórða kjörtímabil á Alþingi, Kolbrún sitt þriðja en Katrín er að taka sín fyrstu skref á þingi. Þingflokk Vinstri grænna skipa nú níu þingmenn, en flokkurinn bætti við sig fjór- um þingmönnum í nýbðnum alþingiskosningum. Vinstri græn eru því stærsti stjórnar- andstöðuflokkurinn á Alþingi. Lagabreytingartillaga ríkisstjórnarinnar um réttindi íbúa innan EES-svæðisins: Nýta frestunarákvæðið ■ Loka á Búlgara og Rúmena til ársins 2009 ■ Innihaldslaus málflutningur Samfylkingarinnar Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net „Við erum að nýta okkur þetta frest- unarákvæði, en þeir hafa heimild til að koma hingað í gegnum þjón- ustusamninga og starfsmanna- leigur," segir Jóhanna Sigurðar- dóttir, ráðherra velferðarmála, um frumvarp til laga um breytingu á lögum um frjálsan atvinnu- og bú- seturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) sem ríkis- stjórnin ætlar að leggja fram á sum- arþinginu á fimmtudag. Ákvæðið snýst um að frelsi laun- þega frá Búlgaríu og Rúmeníu, sem gengu inn í Evrópusambandið (ESB) um síðustu áramót, til að taka þátt á íslenskum vinnumark- aði á forsendum EES-samningsins er frestað til ársins 2009. Frjálslyndi flokkurinn var með það á stefnuskrá sinni í aðdrag- anda nýliðinna kosninga að nýta þennan frest og fékk oft óvægnar skammir fyrir málflutning sinn. Jón Magnússon, þingmaður flokks- ins, segir að Samfylkingin hafi þar verið fremst í flokki, en hún 11»* -rrmam Ríkisstjórn íslands Eitt af fyrstu verkum hennar verður að nýta sér frestunarákvæði í EES-samningnum. W’ situr nú í ríkisstjórn og stendur að frumvarpinu. „Þetta sýnir að ríkisstjórnin metur það svo að sú gagnrýni sem kom fram hafi verið á rökum reist. Það ber auðvitað alltaf að fagna því þegar skynsemin kemur yfir fólk. Það sáu það allir sem vildu tala hlutlægt um málið að það var verið að ræða hluti sem skipta gríð- arlega miklu máli. En þetta sýnir hversu málflutningur Samfylking- arinnar og allt tal hennar um öfgar, kynþáttamisrétti og -hatur var innihaldslaust.“ Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, segir sinn flokk ekki hafa verið neitt sérstak- lega á því að beita lokunum um- fram það sem efnisleg rök standi til. Varðandi sinnaskipti Samfylkingar- innar í þessum málum sagði hann best að leyfa henni að útskýra þau sjálf. „Ég bíð bara eftir að heyra þeirra rök fyrir því. Við tökum svo á málinu þegar það kemur hingað til þings.“ FAM Hillur fataskápar og stál innréttingar Leidandi ítaCsCtfyrirtæCi í fiönnun og framCeiðsCu d iðnaðar innréttingum Fataskapar með hillu, slá, krók og lás, tilboðsverð 11.524 kr. mm Hamarshöfða 1. Sími 511 1122 VERSLUN Skoðið nýja FAMI bæklinginn á www.ri-verslun.is Hillukerfi: Hæð 2.2 m, breidd 2.7 m, dýpt 40 cm, tilboðsverð 21.315 kr.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.