blaðið - 30.05.2007, Síða 20

blaðið - 30.05.2007, Síða 20
28 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 blaðið heimili heimili@bladid.net Ráð gegn grasgrænku Þessa dagana er ekki óalgengt að grasgrænka myndist á fatn- aði barna og fullorðinna. Til að ná henni úr er sniðugt að hella nýmjólk á blettinn og svo uppþvottalegi og nudda saman. Burt með fitubletti Gott ráð gegn fitublettum á fatnaði, dúkum og öðru taui er að hella kóki á blettinn (og passa að það sé gos í kókinu), láta það liggja í nokkrar mínútur og setja svo beint í þvottavélina Geitungar eru ekki aufúsugestir á mörgum heimilum: Heimatilbúnar geitungagildrur Nýstárlegur stóll klæddur kýrhúö. Glæný húsbún- aðarlína Ný húsbúnaöarlína, STOCKHOLM- línan, hefur nú litið dagsins Ijós í verslunum IKEA víða um heim, en til að hanna hana voru þekktustu hönnuðir IKEA fengnir til verksins. Við framleiðsluna eru notuð dýr og ósvikin efni á borð við gagn- heilan við, vandaða málma, leður, angóruull og kýrhúð, auk þess sem ýmis sérþægindi eru fólgin í notkun varanna. Má þar nefna sem dæmi Ijósajöfnun á lömpum, breytilegar stærðir á hirslum með aukahólfum og færanlegum hliðum og margt fleira. Kominn tími á átak Garðeigendur þurfa að huga að ýmsu á þessum tíma árs, en stórátak í garðinum er í senn nauð- synlegt verk og fín líkamsrækt í góðu veðri. Fyrir utan hefðbundna hreinsun á rusii, plöntuleifum og fleiru sem kann að hafa safnast fyrir í garðinum um veturinn getur verið nauðsynlegt að klippa trjá- og rósarunna snemma, helst strax á vorin. Það ætti líka að vera orðið löngu tímabært að setja út potta með sumarblómum, hvort heldur sem er út á svalir eða út á stétt. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Óhjákvæmilegur fylgifiskur sumars- ins eru misvinsæl skordýr á borð við geitunga. Margir óttast þessar litskrúðugu flugur enda hafa þær stungubrodd sem er tengdur eit- urkirtli. Eitrið er ætlað til varna en ekki veiða en er ekki hættulegt nema í undantekningartilfellum, til að mynda þegar fólk hefur ofnæmi fyrir því eða stungan kemur á slæm- an stað, eins og til dæmis nærri önd- unarfærunum. En þó svo að eitrið úr broddum geitunga sé einungis ætlað til varnar stinga þeir einstaka sinnum án tilefnis aukþess sem geit- ungar hafa mun minni þolinmæði gagnvart áreiti en flugur á borð við býflugur. Þeir leggja engu að síður sjaldnast til atlögu nema tilneyddir eða ef farið er óvarlega nálægt bú- um þeirra. Ekki er óalgengt að garðeigendur rekist á geitungabú uppi í tré eða undir þakskeggjum hjá sér á sumr- in, en svokölluð holugeitungabú er gjarnan erfiðara að koma auga á, þar sem þau eru oftast neðanjarð- ar, til dæmis undir sólpöllum eða grjóthellum. Mjög varasamt getur verið að freista þess að fjarlægja geit- ungabú upp á eigin spýtur og því er ráðlegt að hafa frekar samband við meindýraeyða þegar þeirra verður vart. Geitungar sækja mjög í sætindi og af þeim sökum er rík ástæða til að gæta fyllstu varúðar þegar opnar gos- og bjórflöskur eru annars vegar á sumrin, jafnt innandyra sem utan. Ráðlegra er að drekka slíka drykki úr glösum, enda sést þá betur hvort geitungur er svamlandi í vökvanum. Eins og fyrr segir geta stungur geit- unga verið sérstaklega hættulegar við öndunarfærin, sem geta bólgn- að upp og valdið andnauð. Þegar börn eru annars vegar borgar sig að fylgjast sérstaklega með drykkjun- um þeirra, enda geta geitungar auð- veldlega farið framhjá þeim. Sökum þess hversu sólgnir geit- ungar, sem og aðrar flugur, eru í sæta, litríka drykki, má með góðu móti nota þá til þess að búa til afar einfaldar og öflugar geitungagildrur. Það er gert með því að taka plastgos- flösku í hvaða stærð sem er, skilja eftir í henni dágóðan slatta af sætu gosi, gjarnan í skærum lit, skrúfa tappann af og skera efsta þriðjung- inn á flöskunni af. Þeim hluta er síð- an snúið við, þannig að stúturinn vísi niður á við en nái ekki niður í sjálfan gosdrykkinn. Geitungar eru fljótir að bíta á agnið og sækja í drykkinn, en um leið og þeir eru fallnir í gildruna eiga þeir sér ekki undankomu auðið. Svona gildrum má koma fyrir „Rík ástæða er til að gæta fyllstu varúðar þegar opnar gos- og bjórflöskur eru annars vegar.“ hvar sem er, jafnt innan dyra sem ut- an, en foreldrar ungra barna og gælu- dýraeigendur ættu þó að tryggja vel að gildrurnar séu ekki þar sem óvit- ar geta náð til þeirra, og mikilvægt er að hreinsa gildrurnar reglulega og endurnýja gosið, hvort sem geit- ungar hafa bitið á agnið eður ei. Fyrir þá sem ekki eru mikið fyrir föndur með gosflöskur er hægt að kaupa tilbúnar geitungagildrur úti í búð á hagstæðu verði, til dæmis í Rúmfatalagernum. blaöi Auglýsingasíminn er 510 3744 Rennandi vatn fyrir heilsuna Hvers kyns gosbrunnar verða sí- fellt vinsælli á heimilum og í görðum hér á landi sem víðar. Á árum áður tengdu menn gosbrunna aðallega við stóra og íburðarmikla garða en nú er öldin önnur, enda er fjölbreytileik- inn í gosbrunnum afar mikill, bæði hvað varðar stærð og form. Litla gosbrunna er jafnvel hægt að setja í blómapotta og staðsetja úti á tröpp- um, svölum eða í anddyri. Innanhúss eru ýmiss konar fossar afar vinsælir, enda þykja þeir gefa skemmtilegan og líflegan svip á baðherbergi, stiga- ganga og fleiri herbergi. En gosbrunnar og fossar eru ekki bara líflegir heldur hafa rannsóknir sýnt að vatnsniður eflir sköpunargáf- una og róar spenntar taugar. Að auki er rennandi vatn ágætlega til þess fallið að hreinsa andrúmsloftið af ryki og bakteríum. íburðarmikill gosbrunnur af gamla skólanum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.