blaðið - 26.06.2007, Side 2

blaðið - 26.06.2007, Side 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. JIINÍ 2007 blaðiö Karlmaður dæmdur Hálft ár fyrir fíkniefnabrot Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot í Héraðs- dómi Norðurlands eystra í gær. í dómnum segir að maðurinn hafi verið tekinn með um 700 grömm af hassi í fórum sínum og hafi rofið skilyrði reynslu- lausnar með brotinu. Fíkniefnin fundust þegar lögregla stöðvaði manninn og unnustu hans vegna hrað- aksturs í Hörgárdal. Við leit í bílnum fannst hassið í poka, en rökum handklæðum hafði verið vafið um pokann og ilm- efnum sprautað yfir. STUTT • Formúlukappi Sett hefur verið upp sex hundruð manna stúka svo áhorfendur geti fylgst með Formúlukappanum Nico Rosberg spyrna á bílaplaninu við Smáralind í dag. Fyrst spyrnir hann milli klukkan hálffimm og korter í fimm og síðan aftur klukkan sex til korter yfir. • Gjaldeyririnn Greiningar- deild Glitnis reiknar með því að dollarinn verði enn ódýrari í kaupum en nú er og kosti ríf- lega 61 krónu á seinni helmingi þessa árs. Þá kosti evran að meðaltali 82 krónur. Glitnir reiknar með að gengi krón- unnar lækki um 13 prósent á næsta ári, dollarinn kosti þá 70 krónur en evran 95 krónur að meðaltali. • Stjórnkerfisbreytingar Embætti borgarritara og borgar- lögmanns verða endurvakin x. júlí. Kristbjörg Stephensen hefur verið ráðin borgarlögmaðuren embætti borgarritara auglýst laus til umsóknar. Embættin voru lögð niður við stjórnkerf- isbreytingar innan Reykjavík- urborgar á árunum 2004 til 2005. Þá verða fjármálasvið, stjórnsýslu- og starfsmannasvið og þjónustu- og rekstrarsvið í Ráðhúsi Reykjavíkur lögð niður og starfsemin sett undir endur- vöktu embættin. Elstu veiðimenn muna ekki annað eins Laxveiðin byrjar illa Það virðist ekki vera á vísan að róa í laxveið- inni þessa dagana. Veiðin byrjaði mjög rólega og lítið virðist vera komið af fiski í árnar. Þetta er ein allra rólegasta byrjun í laxveiðinni sem elstu veiðimenn muna. Göngurnar er kraftlitlar og reyndar mjög fiskfáar, 5 til 10 laxar í göngu, þykir gott núna. Fyrir 15 til 20 árum hefðu 50 til 100 laxar talist sæmileg ganga af fiski. „Við erum búnir að vera hérna í Laxá í Aðaldal í fjóra daga og fá tvo laxa. Þetta er rólegasta byrjun sem ég man eftir hérna. Samt er búið að færa veiðitímabilið aftar,“ sagði Magnús Jónas- son sem var staddur við Laxá í miklu tregfiskiríi. Veiðiskapurinn byrjaði rólega i Grímsá, menn sáu fiska en þeir tóku ekki flugur veiðimanna. Þrír laxar hafa veiðst síðan áin var opnuð. Sömu sögu er að segja af flestum svæðum, en reyndar er stækkandi straumur á allra næstu dögum. Næstu flóð áttu að skera úr um hvort lax- inn væri að mæta í árnar. Veiðimenn bíða. Erfitt er að henda reiður á hvað margir laxar hafa veiðst í öllum ánum sem búið er að opna en líklega eru þeir ekki fleiri en 230-250. Laxveiðitímabilinu frestað? Rætt er alvöru í veiðiheiminum að fresta opnun á laxveiðiánum strax næsta sumar. Stór- laxinn er hættur að mæta í neinu magni og smá- laxinn kemur ekki að neinu ráði fyrr en undir mánaðamótin júní/júlí. Ólafur Vigfússon, kaupmaður í Veiðihorninu, segir að samhengi sé á milli lélegrar laxveiði núna og lélegs gengis KR í fótboltanum. Það sama hafi gerst síðast þegar KR gekk illa, þá hafi líka verið lélegt laxveiðisumar. g.bender@bladid.net Dræm laxveiði Veiði- | menn kikja víða eftir laxi þessa dagana en sjá iítið Sagðist vel kunna að keyra ■ Bað farþegann að fara í bílbelti rétt fyrir slysið ■ Hraðakstur til- ræði við samborgara Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net Hinn nítján ára Frans Friðriksson sat í farþegasætinu í sínum eigin bíl er hann rakst á Hamborgarabúlluna sem stendur á horni Geirsgötu og Mýrargötu. Ásamt honum voru tvö ungmenni í bílnum, stúlka sem sat í aftursætinu og ökumaður sem höf- uðkúpubrotnaði, en hann hitti Frans í fyrsta skipti fyrr um kvöldið. „Bílstjórinn gaf í í beygjunni á leið- inni að Granda og klessti á annan bíl. Billinn okkar snerist í hundrað og áttatíu gráður og rakst svo á Ham- borgarabúlluna," segir Frans Frið- riksson sem var eigandi bílsins sem gjöreyðilagðist við atvikið. Sjálfur segist Frans hafa sloppið vel út úr slysinu, miðað við hin tvö sem bæði voru send á gjörgæslu en eru nú laus þaðan. „Ég var búinn að fá mér í glas um kvöldið og þess vegna bað ég strák sem ég var að hitta í fyrsta skipti að keyra bílinn minn heim.“ Frans segir ökumanninn hafa keyrt ansi hratt alla leiðina og rétt fyrir slysið hafi hann verið í spyrnukeppni við annan ökumann á Ægisgötu. „Ég ■■■ Frans Friðriksson í Var í farþegasæti eigin bifreiðar sem ekið var á Hamborgarabúlluna UMFERÐARSLYS ► ► Fjöldi umferðarslysa fyrstu fjóra mánuði ársins er 2515. Fjöldi slysa með minnihátt- ar meiðslum fyrstu fjóra mánuði ársins eykst um 10,04% miðað við síðasta ár ®0 er ekki bílhræddur og er vanur tals- verðum hraða. Ég man samt að rétt fyrir áreksturinn sagðist ökumaður- inn vel kunna að keyra en ég sagði stelpunni hins vegar að fara í belti.“ Tilræði við fólk Birgir Hákonarson, framkvæmda- stjóri umferðaröryggissviðs Umferð- arstofu, segir að litið sé á vísvitandi hraðakstur sem tilræði við samborg- VEÐRIÐ í DAG ara. „Við köllum þetta ekki slys heldur tilræði sem á ekki að líðast í almennri umferð.“ Ennfremur segir hann að lögin séu orðin þannig að þeir ökumenn bráðabirgðaskírteina sem missa ökuleyfið þurfi að fara á sérstakt viðhorfsnámskeið. „Það er sálfræðilegt og öðruvísi en hefð- bundið ökunám.“ Frans missti meðvitund er bíllinn skall á Búllunni. „Mér er sagt að öku- maður bílsins sem var í spyrnu við okkur hafi hjálpað mér úr bílflak- inu en strákurinn sem keyrði bílinn minn var fastur inni í 45 mínútur." Veit hvað ég hef undir húddinu Bíllinn er 300 hestöfl af gerðinni Subaru Impreza. „Ég hef aldrei lent í óhappi á honum, kannski vegna þess að ég veit hvað ég hef undir húddinu." AMORGUN virkjum ORKUSTOÐVARNAR Hefurðu hugleitt hvar þú færð ódýrasta ÞAÐ MUNAR UM MINNA Skúrir norðaustanlands Heldur stífari norðanátt í dag en í gær með skúrum norðaustanlands. Svipaður hiti á Suður- og Vesturlandi, en kólnar á Norður- og Austurlandi. Hlýjast syðra Norðaustan 5 til 10 m/s, en norðan 10 til 15 við austurströndina. Léttskýjað á Suður- og Vesturlandi en annars skýjað. Hiti 12 til 17 stig. VIÐA UM HEIM Algarve 25 Halifax 25 New York 24 Amsterdam 16 Hamborg 21 Nuuk 14 Ankara 24 Helslnki 24 Orlando 26 Barcelona 27 Kaupmannahöfn 20 Osló 22 Berlin 23 London 15 Palma 23 Chicago 30 Madrid 28 Parls 19 Dublin 14 Mllanó 31 Prag 18 Frankfurt 17 Montreal 19 Stokkhólmur 22 Glasgow 15 Miinchen 18 Þórshöfn 10 Blaöið Breytingar Uppröðun efnis í Blaðinu breytist lítillega í dag. Síðan Fólk færist á öftustu opnu blaðsins og fyrir vikið verður dagskrársíðan á næstöftustu opnunni. Aðrar breytingar verða ekki á uppröðun efnis í blaðinu að sinni. Útlit og framsetn- ing efnis tekur hins vegar nokkrum breytingum. Leitast er við að gera efni Blaðsins aðgengilegra og auðlæsilegra fyrir lesendur. Lesendur fá meiri viðbótar- og bakgrunns- upplýsingar með fréttum og meira erlagt upp úr því að setja flókin mál fram með ein- földum og aðgengilegum hætti. Lesendur Blaðsins eru hvattir til að Iáta í sér heyra og hafa samband við ritstjórnina, hafi þeir ábendingar um fréttir, framhaldsfleti á málum sem Blaðið fjallar um eða ef þeir vilja að blaðið fjalli ýtarlegar um einhver mál. Ritstj. Kárahnjúkar Fimmta banaslysið Banaslys varð á Kárahnjúkum í gærmorgun. Portúgalskur karlmaður féll fjóra metra niður á steingólf í Fljótsdalsstöð, stöðvarhúsi Kárahnj úkavirkj unar í Fljóts- dal. Hann lést af völdum innvortis blæðinga og höfuð- áverka í sjúkrabíl á leiðinni á Egilsstaðaflugvöll en til stóð að fljúga með hann til Reykjavíkur. Þetta er fyrsta banaslysið sem verður í stöðvarhúsinu en fimmta banaslysið frá því bygging Kárahnjúkavirkjunar hófst. Samkvæmt upplýs- ingum frá Vinnueftirlitinu hafa alls um 1300 slys verið tilkynnt á framkvæmdasvæð- inu frá því að framkvæmdir hófust. Maðurinn var starfsmaður Stálsmiðjunnar ehf. sem starfar sem undirverktaki þýsk-austurríska fyrirtækis- ins VA-Tech sem sér um vélar og rafbúnað í stöðvarhúsinu. Maðurinn hafði starfað hér í nokkur ár. ejg Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.