blaðið - 26.06.2007, Page 10
10
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007
blaðiö
■
Lokunin lengi
vofaö yfir
Rækjuvinnslunni Miðfelli á ísa-
firði hefur verið lokað ótímabundið.
,Þetta er hlutur sem hefur vofað yfir
okkur lengi vegna erfiðrar stöðu
rækjuiðnaðarins. Við vonum að
tímarnir breytist þannig að þeir
treysti sér til að fara af stað aftur.
Það yrði skelfilegt högg ef vinnslan
leggst af,“ segir Einar Oddur Kri-
sjánsson þingmaður um lokunina.
Ástæða lokunarinnar er sögð
erfið staða á mörkuðum sem og
staða krónunnar sem hafi styrkst
að undanförnu. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvort 35 til 40 starfs-
mönnum fyrirtækisins verður sagt
upp störfum. mge
PP1 heilsa
ILi /m haföu þáð gott
UÐ-AKTÍN
GXTRA
Glucosamine & Chondroitin
60 töflur
Heldur liöunum
liðugum!
íGNffs
Toavo'
heilsa
-hafðu þaö gott
STUTT
• Biðla til ríkisins Samþykkt
var á stjórnarfundi Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu í gær að skipa viðræðunefnd
við ríkið um þátttöku þess í
kostnaði vegna almennings-
samgangna. Vilja samtökin
meðal annars að skoðað verði
að fella niður virðisaukaskatt
af aðföngum og nýjum stræti-
svögnum og að ýmis önnur gjöld
af almenningssamgöngum verði
felld niður. mbl.is
• Hverfisfljótsvirkjun Land-
vernd hefur sent umhverfis-
ráðherra bréf. Óskað er eftir
að ráðherra ógildi úrskurð
Skipulagsstofnunar varðandi
virkjun í Hverfisfljóti í Hnútu
í Skaftárhreppi, samkvæmt
vísir.is. Stofnunin komst að
því að virkjunin sem verður
2,5 megavatta þyrfti ekki að
fara í umhverfismat.
• Einkunnaskil Umboðsmaður
Alþingis hefur ekki í hyggju að
taka til frekari athugunar ein-
kunnaskil kennara við Háskóla
íslands. Verklagsreglur frá Há-
skólaráði um almennar aðgerðir
til þess að bæta einkunnaskilin
gildi. Stúdentar hafa löngum
verið ósáttir við það hversu seint
kennarar skili einkunnum úr
prófum.
• Kennaraháskóli Byrjað
verður að bjóða upp á starfs-
tengt diplómunám fyrir fólk
með þroskahömlun á þroska-
þjálfa- og tómstundabraut
við Kennaraháskóla fslands
næsta haust. Er þetta nýjung
í samræmi við mannréttinda-
sáttmála, yfirlýsta alþjóðlega
stefnu hagsmunasamtaka fólks
með þroskahömlun og stefnu
Kennaraháskólans.
Við stækkum og
prentum myndir
á striga fyrir þig
Kynntu þér strigaprentun
í næstu verslun okkar
Bankastræt) FJðrður Krtnglan Laugavegur 178 Smárallnd
Haldið sofandi eftir barsmíðar
Árásarmannanna enn leitað
Litháunum sex sem voru í haldi vegna slagsmála í
Hjaltabakka í Breiðholti aðfaranótt sunnudags hefur
öllum verið sleppt úr haldi eftir yfirheyrslur. Að sögn
Sigurbjörns Víðis Eggertssonar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, voru þeir
allir yfirheyrðir sem vitni eða fórnarlömb. Gerendanna
er enn leitað og málið er enn að mestu leyti óupplýst.
Hann segir að svo virðist sem árásarmennirnir, sem
talið er að séu einnig frá Litháen, hafi ráðist óboðnir
inn í einkasamkvæmi í Hjaltabakka og komið af stað
slagsmálum sem enduðu með því að tveir voru fluttir á
sjúkrahús, annar höfuðkúpubrotinn eftir að hafa verið
sleginn með barefli í höfuðið og hinn með minni áverka
eftir að hafa verið stunginn í bakið.
Hinum fyrrnefnda, sem mun hafa verið húsráðandi
í íbúðinni, er enn haldið sofandi í öndunarvél, en sá
síðarnefndi var útskrifaður eftir að gert hafði verið að
sárum hans. hlynur@bladid.net
Hjaltabakki Árásarmennirnir réðust
óboðnir inn í einkasamkvæmi í Hjalta-
bakka og komu af stað slagsmálum.
Dópsalar gripnir
vegna ábendinga
■ 39 tilkynningar í Fíkniefnasímann á árinu ■ Ný efni í umferð
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Um 39 tilkynningar hafa borist lög-
reglu í gegnum Fíkniefnasímann það
sem af er árinu. Karl Steinar Valsson,
yfirmaður fikniefnadeildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, segir
þær upplýsingar sem tilkynntar eru í
gegnum símann skipta deildina gifur-
legu máli og komi oft að miklu gagni
í baráttu þeirra við fíkniefnavand-
ann. Hefur lögreglan verið að fást við
fleiri fíkniefnamál á götunni í ár en
undanfarið. Fleiri fikniefnamál hafa
komið upp á götunni núna en áður.
Það sem af er árinu hefur lögreglan
séð töluverða aukningu á LSD og virð-
ist sem notkun metamfetamíns sé að
færast i aukana.
Ekki hægt að rekja símtöiin
Meðal upplýsinga sem hafa bor-
ist í gegnum Fíkniefnasímann er
um fíkniefnasölu á einhverjum
ákveðnum stað og komu einhvers
frá útlöndum sem ætlar að smygla
inn efnum. Bæði hafa borist upplýs-
ingar um mál sem lögreglan vissi
ekki af áður eða sem hafa styrkt mál
sem lögreglan hefur þegar í rann-
sókn. Oft fylgja umfangsmiklar að-
gerðir, þar sem fíkniefnasalar eru
handteknir, í kjölfar upplýsinga sem
berast í gegnum símann.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
lögreglunnar hefur á þessu ári verið
lagt hald á um fjögur hundruð e-
töflur, fjórtán kíló af hassi, þúsund
skammta af LSD, tæp tvö kíló af am-
Upplýsingar í síma
Ábendingar skipta
lögregluna miklu máli
Blaðið/Frikki
FÍKNIEFNASÍMINN
► Fíkniefnasíminn, 800 5005,
hefur verið starfræktur frá
árinu 1999.
► Símsvari tekur við skilaboð-
unum og þarf ekki að gefa
upp nafn.
►
Mikillar persónuleyndar er
gætt og er ekki hægt að
rekja símtalið.
fetamíni, um kíló af heróíni og rúm-
lega fjögur kíló af kókaíni. Skráð eru
um tvö grömm af metamfetamíni en
Karl Steinar segir að ekki sé búið að
skrá allt og sé magnið mun meira.
Karl Steinar segir að metamfet-
amín sé að færast í aukana hér á
landi en fyrir árið 2004 var það nán-
ast óþekkt á íslandi. Efnið, sem er
náskylt amfetamíni, er hins vegar
orðið það útbreiddasta í Bandaríkj-
unum. Notkun efnisins er langt frá
því skaðlaus og getur jafnvel valdið
skyndilegum dauða.
Notkun á ofskynjunarefninu LSD
hefur aukist á íslandi að undanförnu
en lögreglan hefur haldlagt um eitt
þúsund skammta það sem af er ár-
inu. Á öllu árinu í fyrra fundust 68
skammtar, samkvæmt bráðabirgða-
tölum lögreglunnar. Stór hluti af því
sem fundist hefur á árinu náðist í
apríl þegar karlmaður um þrítugt var
handtekinn á Suðurnesjum með tæp-
lega sjö hundruð skammta af LSD.
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
WWW.ICELANDAIR.IS
Nánari upplýsingar og bókaóu á www.icelandair.is
Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júní-13. júlí.
Ferðatímabil: 17. júlí-10. desember.
▲. Takmarkað sætaframboð.
Niðurstöður rannsóknar Öko-Test hraktar
Spilla ekki heilsu
Efnið í Crocs-skónum er hvorki
heilsuspillandi né á bannlista. Þetta
segir Ingimar Isaksson, innflytj-
andi Crocs-sandalanna vinsælu sem
fulltrúi Sænsku náttúruverndarsam-
takanna hefur varað við.
Á heimasíðu samtakanna er vísað
í rannsókn þýska neytendatímarits-
ins Öko-Test. Greint er frá þvi að
þýska rannsóknin hafi leitt í ljós
að sandalarnir vinsælu innihaldi
umhverfiseitur auk efna sem geta
valdið krabbameini.
Að sögn Ingimars hefur efnaverk-
fræðingur hjá eftirlitsstofnuninni
TUV-Rheinland í Þýskalandi farið
yfir niðurstöður rannsóknar Öko-
Test og komist að því að efnið í
skónum sé hvorki heilsuspillandi né
á bannlista. Jafnframt segir Ingimar
að samkvæmt öryggisstöðlum frá
Sandalarnir vinsælu Rannsókn leíddi í
Ijós hættuleg efni I þeim.
International Agency and Research
on Cancer, Occupational Safety and
Health Administration auk Ámer-
ican Conference of Governmental
Industrial Hygienists hafi verið stað-
fest að skórnir séu hættulausir og
valdi ekki krabbameini.
ingibjorg@bladid.net