blaðið - 26.06.2007, Page 11
gjfÍPSs
Fe irúllur
Simí «66 6239 471 2748
Sími:471 2748/8666239
r@^ÍÐITRÉ
-Nýjung á íslandi
m
L~• j
"’l □ L? 1
■ III
Fellirúllur eru nýjung á markaði hérlendis en margir hafa beðið eftir
þessum val-kosti. Á meginlandi Evrópu hafa rúmlega 90% heimila
fellirúllur og sama er að segja um Bandaríkin. í mörgum löndum
koma fellirúllur oft í stað gluggatjalda því þær þjóna hlutverki
þeirra til að byrgja gluggana fyrir utanaðkomandi.
Sumarhúsaeigendur ættu að skoða kosti fellirúlla þegar loka á
bústaðnum vel og vandlega fyrir veturinn eða þegar enginn er í
honum. Þær auka öryggið, sérstaklega gegn innbrotum því erfitt er að
komast inn fyrir fellirúllur úr sterku áli.
Hér á landi eru gluggar á húsum almennt hafðir stórir til þess að fá sem
mest af dagsbirtunni inn. Fellirúllur koma í veg fyrir það að sólin hiti
húsið of mikið og einnig að hún uppliti húsmuni. Að sama skapi gefa
fellirúllurnar gott skjól í vetrarveðrum þegar vindur, regn og snjór
lemur á gluggunum.
Fellirúllur má setja upp innan dyra eða utan. Hægt er að setja upp
fellirúllur á eldri húsum eða gera ráð fyrir þeim á meðan húsið er í
hönnun.
Hægt er að fá fellirúllur í öllum stærðum og margvíslegum litum til þess
$ að tóna við litaval hússins. Fellirúllurnar verða þannig prýði á hverju húsi
fyrir utan þægindin sem fylgja.
NOTAGILDI FELLIRÚLLANNA
1. Orkusparnaður: Hiti helst betur inni í húsum og hitastigið verður stöðu-
gra. Þess vegna er hér um ákveðna einangrun að ræða.
2. Verndun innanstokksmuna: Fellirúllur vernda húsmuni fyrir upplitun af
völdum sólarljóssins.
3. Hljóðvörn: Fellirúllur einangra húsið fyrir hávaða í umhverfinu og
sérstaklega gegn umferðarnið.
4. Fok- og vindvörn: Fellirúllur útiloka að rúður brotni í ofsaveðrum vegna
vindstyrks eða foks á lausamunum.
5. Gler og gluggar: Fellirúllur vernda glerið og auka endingu þess og
einnig gluggaumbúnaðar.
6. Vörn gegn innbrotum: Erfitt er fyrir innbrotsþjófa að komast inn um
glugga þar sem fellirúllur eru fyrir.
7. Vörn gegn náttúruhamförum: Fellirúllur verja gegn minni háttar snjó-
flóðum og aurskriðum því þær verja rúður sem auðveldlega brotna við
slíkar aðstæður.
8. Verndun einkalífsins: Fellirúllurnar virka sem þykk gluggatjöld og fyrir
bragðið sér enginn inn í húsið.
Nánari upplýsingar hjá Víðitré, Hléskógum 2 Egilstaðir
Sími: 866 6239 - Nefang: viditre 61 @simnet.is