blaðið - 26.06.2007, Side 13

blaðið - 26.06.2007, Side 13
blaóiö ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNI 2007 13 Leikskólabörn og vinnuvélar Þann 19. júní birtist grein í Blað- inu undir yfirskriftinni „Börn sjá 95% kynbundið samfélag” þar sem er fjallað um áhugasvið kynjanna í tilefni dagsins og þá af hverju stelpur hafi ekki áhuga á vinnuvélum. I greininni er vitnað í Margréti Pálu Olafsdóttur, forsvarsmann Hjalla- stefnunnar, og hún beðin um álit sitt á þessum mun. f greininni svarar Margrét því til að leikskólar sem fylgi Hjallastefnunni reyni að sporna við þessari þróun og hafi ekki leikföng með kynlega skírskotun. Upphaflega kveikjan að þessari grein sem blaðamaður var að vinna Vettvangsferð gröfuhóps- drengja var liður í að dýpka reynsluheim þeirra Soffía Þorsteinsdóttir að varðandi ólíkan áhuga á því sem umhverfið býður upp á fyrir börn, var önnur grein. í þeirri grein var fjallað um glaða drengi á leikskól- anum Sæborg, sem kalla sig „gröfu- hópinn”, að leika sér í vinnuvélum í sýningarsal fyrirtækisins Vélaverks. Upphaflega höfðu þessir drengir verið að fylgjast með nokkrum vinnu- vélum að störfum út um glugga leik- skólans veturinn 2006-2007, þar sem áhugi þeirra var vakinn á þessum fyrirbærum. Á leikskólanum Sæborg er lögð áhersla á að leyfa hugmyndum barn- anna að njóta sin og reynt að fylgja þeim eftir og gera þeim hátt undir höfði. Umhverfi og samfélag eru mótandi öfl í lífi barns með foreldra, systkini og ættingja fremsta í flokki. Leikskólinn er viðbót við foreldra- hlutverkið, staður þar sem börn læra í samvinnu við aðra í gegnum leikinn. Börn þurfa að fá tækifæri til að vinna úr reynslu sinni og upplifun og það gera þau best í tengslum við önnur börn með aðstoð hins fullorðna. Sam- starf leikskóla og foreldra verður að vera gott og vinna þarf með barnið sem eina heild. Ef breyta á hugsunarhætti barna með því að taka leikföng burt úr umhverfinu, sem Margrét Pála telur að hafi kynlega skírskotun, tel ég að verið sé að skerða val barnsins og áhugasvið. Þess utan, ef slíkar aðgerðir eiga að duga, þyrfti einnig að taka ákveðin leikföng út af heim- ilum barnanna, þar sem mótunin fer einnig fram. Við í Sæborg viljum leggja áherslu á að leyfa börnum að koma með spurningar og leita sjálf svara, gera þau þannig gagnrýnin á umhverfi sitt. Drengir jafnt sem stúlkur í Sæ- borg hafa jafna möguleika á að vinna saman eða sitt í hvoru lagi að hugðar- efnum sínurn. Þeim er kennt að kafa djúpt í viðfangsefnið og nota öll skiln- ingarvit sín til þess. Vettvangsferð gröfuhópsdrengja í Vélaver var liður í að dýpka reynslu- heim þeirra og skilning á umhverfi sínu. Þá reynslu nýta þeir síðan áfram í ný og krefjandi verkefni. Ekki skiptir öllu máli hvaða verk- efni er unnið með, hvort það eru fiskar, prinsessur, rissessur, beina- grindur eða vinnuvélar. Með því að leyfa börnum að fást við hugðar- efni sín erum við að hjálpa þeim að öðlast þekkingu á umhverfinu og sjálfum sér, þar sem þau eru knúin áfram af innri áhuga. Bernskan á líka að vera eitt ævintýri þar sem litróf lífsins fær að blómstra og það var svo sannarlega ævintýri hjá drengjunum þegar þeir heimsóttu vinnuvélarnar. Höfundur er leikskólastjóri leikskólans Sæborgar Ökuleyfi Framundan er sá tími sem mörg alvarleg umferðarslys eiga sér stað. Með reglulegu millibili berast fréttir þess efnis að fyrsta árs bílprófshafar hafi valdið slysum með glæfralegu aksturslagi sínu. Ómögulegt er að segja til um hversu stór sá hópur ungra ökumanna er sem á hverjum tíma er hættulegur sjálfum sér og öðrum i umferðinni. Því skal varast að dæma alla unga ökumenn sem ábyrgðarlausa. Flestir handhafar nýrra ökuskírteina gera sér einmitt Veigamestu rökin hafa að gera með þroska og þroskaferil ungmenna Kolbrún Baldursdóttir far um að vanda sig við aksturinn. Þessi ábyrgðarfullu ungmenni leggja sig fram við að sýna fyllstu aðgætni og eru sérstaklega varkár fyrstu mán- uðina meðan þau eru að þjálfa aksturs- hæfni sína og átta sig á aðstæðum. í nóvember sl. var mælt fyrir frum- varpi til laga um hækkun lágmarks- aldurs til ökuréttinda úr 17 í 18 ár. Fjölmörg rök voru reifuð sem renna stoðum undir mikilvægi þess að hækka ökuleyfisaldurinn um eitt ár. Veigamestu rökin hafa að gera með þroska og þroskaferil ungmenna. Að aka bifreið við misjafnar og oft erfiðar aðstæður krefst ákveðins vits- muna- og félagsþroska. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa þroskasálfræði unglinga til hliðsjónar þegar fjallað er um hvenær unglingar hafa öðlast í 18 ár tilskilda hæfni til að stjórna ökutæki. Þau ungmenni sem hafa ekki öðl- ast nægjanlegan þroska til að gera sér grein fyrir hversu öflugum tækjum þau eru að stjórna og hvaða afleið- ingar glæfraakstur getur haft í för með sér hafa tilhneigingu til að varpa , varkárni fyrir róða í þeirri trú að ekk- ert illt geti hent þau. Þau líta oft létt- vægum augum á atriði sem fullorðnir líta alvarlegum augum. Enda þótt foreldrar og aðrir fullorðnir sem um- gangast unglingana geri sitt besta til að uppfræða og vara þá við ófyrirsjá- anlegum hættum og mikilvægi þess að gæta að sér ná viðvörunarorðin ekki alltaf eyrum þeirra. Því nær sem dregur fullorðinsárum dregur úr þessum einkennum. Dómgreind dýpkar, innsæi eykst og einstakling- urinn verður hæfari með hverju ári sem líður til að setja sig í spor ann- arra, meta aðstæður, gera áætlanir og sjá fyrir möguleg orsakatengsl. Út frá sjónarmiðum þroskasálfræð- innar er því auðvelt að leiða líkur að því að 18 ára unglingar séu mun hæfari til að taka ábyrgð á sér og sínu lífi en þegar þeir voru 17 ára. Hvert ár á þessu tímaskeiði skiptir þannig sköpum hvað varðar nauðsynlegan þroska til að geta tekið þá lágmarks- ábyrgð sem stjórnun ökutækis í um- ferðinni krefst. Með því að hækka lágmarksaldur ökuleyfis um eitt ár eru sterkar líkur á að draga muni úr þeim umferð- arslysum sem hægt er að rekja til hraðaksturs þessa aldurshóps. Ung- lingum á aldrinum 17-18 ára er í það minnsta forðað frá því að geta slasast eða látið lífið undir stýri eða verða fyrir þeirri ógæfu að aðrir slasist eða láti lífið af þeirra völdum. Höfundur er sálfræðingur Nánari upplýsingar og bókaðu á www.icelandair.is Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júni-13. júlí Ferðatimabil: 17. júli-10. desember % Takmarkaö sætaframboö * r Gæða þakgluggar á sérstöku tilboði á meðan birgðir endast. Fást í eftirfarandi stærðum: 55 x 78 • 55 x 98 • 66x118 78x98 •78x140 •94x140 Álevokkavmál AyfAK Stórhöföa 33 • 110 Reykjavík • Sími: 577-4100 • www.aflak.is bazookaboy!!

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.