blaðið - 26.06.2007, Page 16
ÞRIÐJUDAGUR 26. JUNI 2007
blaðiö
■ mmmm
FERÐIR
ferdir@bladid.net
' Ég mæli með því fyrir alla að fara
á þessa hátíð. Fólk kemur með
börnin sín með sér. Síðasta daginn
er ókeypis inn fyrir eldri borgara.
Vetrarferðir
Sala í vetrarferðir er hafin.
Þessar ferðir verða oft upp-
seldar mjög fljótt. Það er því
um að gera að panta ferð fyrir
alla fjölskylduna sem hægt er
að njóta í vetur. Hvernig væri
að fara til ftalíu eða ef til vill
renna sér á skíðum í Austur-
ríki? Það er mjög mikið úrval
vetrarferða sem allir ættu að
kynna sér.
Málaskólar
Á sumrin er tilvalið að fara
erlendis í málaskóla. Það getur
verið mjög sniðugt fyrir fólk
á öllum aldri að fara utan og
hressa aðeins upp á tungumála-
kunnáttuna. Þarna gefst líka
gott tækifæri til að kynnast
fólki frá öllum heimshornum.
Hér á landi er boðið upp á
ferðir til Þýskalands, Eng-
lands, Spánar og Ítalíu svo
einhver lönd séu nefnd.
Hjólið
Þegar fólk dvelur erlendis
getur verið gaman að upplifa
landið á annan hátt en með því
að ferðast í bíl eða fótgangandi.
Víða erlendis er boðið upp á
hjól til leigu og þá getur öll fjöl-
skyldan hjólað saman og notið
umhverfisins. Með þessu fæst
einnig mjög góð hreyfing.
Helgi Rúnar Gunnarsson er að fara á Hróarskeldu
Fólk á öllum aldri
kemur saman á hátíðinni
Helgi Rúnar Gunnarsson
er söngvari og gítar-
leikari í hljómsveitinni
Benny Crespos Gang.
Helgi Rúnar er að fara
á Hróarskelduhátíðina
sem er haldin í Dan-
mörku á hverju sumri.
Eftir Sigrúnu Maríu Einarsdóttur
sigrun@bladid.net
„Það er sérstökstemning sem mynd-
ast þarna,“ segir Helgi en hann er að
fara á Hróarskelduhátíðina í þriðja
sinn. „Við verðum líklega 10 eða
20 íslendingar saman í hóp á Hró-
arskeldu.“ Hátíðin hefst formlega
fimmtudaginn 5. júlí og henni lýkur
sunnudaginn 8. júlí. Helgi segir þó
að á mánudeginum byrji nokkurs
konar upphitun fyrir tónleikana
sjálfa. Þá fái ungir og upprennandi
tónlistarmenn að spreyta sig.
Það besta í tónlist í dag
Aðspurður um hvað sé svona sér-
stakt við Hróarskeldu segir Helgi
að þarna geti fólk séð rjómann af
því sem er að gerast í tónlistarheim-
inum í dag. „Ég hef farið á aðrar tón-
listarhátíðir en það er eitthvað við
þessa hátíð."
Helgi segir að Hróarskelda sé ekki
bara fyrir fólk sem lifir og hrærist í
tónlist alla daga.
„Ég mæli með því fyrir alla að
fara á þessa hátíð. Fólk kemur með
börnin sín með sér. Síðasta daginn er
ókeypis inn fyrir eldri borgara.“ Það
er því ljóst að þessi hátíð er fyrir alla
og aldurinn á ekki að skipta máli.
Gott að skipuleggja sig vel
Helgi segir að þegar hann fór
fyrst á Hróarskeldu hafi hann viljað
sjá sem flest tónlistaratriði og ekki
viljað missa af neinu. „Þá sá ég
örugglega um 40 hljómsveitir en
ekki mikið af heilum tónleikum.
Árið eftir var ég rólegri og sá fleiri
heila tónleika. En fyrsta skiptið fer
svolítið í það að læra á hátíðina.“
Hann bætir því við að það sé nauð-
synlegt að skipuleggja sig vel. „Það
eru oft tónleikar sem stangast á. Þá
HRÓARSKELDA
Á hverju ári koma fram um
170 hljómsveitir á hátíðinni
Hróarskelda er í um 35
kílómetra fjarlægð frá Kaup
mannahöfn.
getur maður séð helminginn af ein-
hverjum tónleikum og reynt svo að
ná seinni hlutanum af einhverjum
öðrum. Oft er ég orðinn sáttur eftir
fjögur eða fimm lög og þá er hægt að
fara á einhverja aðra tónleika."
Nokkrar íslenskar hljómsveitir
hafa spilað á Hróarskeldu og Helgi
sá Mugison þegar hann spilaði á há-
tíðinni árið 2005. „Þegar hann var
að spila voru örugglega allir Islend-
ingarnir sem voru á hátíðinni að
hlusta á hann.“
Helgi bætir því við að lokum að
hann sé byrjaður að skoða hvaða
hljómsveitir hann ætlar að sjá á
Hróaskeldu. „Fyrstu tónleikarnir
á fimmtudaginn eru með Arcade
Fire og svo mun Björk spila á
stærsta sviðinu á fimmtudeginum.
Ég er mest spenntur fyrir Ákron/
Family, Mastodon, Grizzly Bear
og The Who svo einhverjar séu
nefndar."
Gott að vita áður en farið er til útlanda
1
Sólin Þegar dvalið er erlendis
er mjög mikilvægt að hugsa vel
um húðina og láta sólina aðeins
skína á sig í stuttan tíma í senn
fyrstu dagana. Þegar líður á
ferðina má smám saman auka
þennan tíma. Nauðsynlegt er
að nota sólvarnarkrem en það
dregur úr líkum á sólbruna. Eftir
því sem húðin er ljósari því meiri
líkur eru á að hún brenni. Þeir
sem eru með dekkri húð þurfa
þó líka að vara sig á sólinni. Það
er því um að gera að vara sig á
sólinni því hún getur verið mjög
sterk og skaðleg.
Farsíminn Áður en farið er til
útlanda er nauðsynlegt að kynna
sér hvað kostar að hringja úr far-
símanum. Gott er að hafa í huga
að verð fyrir símtöl í farsíma er
mismunandi eftir löndum. Verðið
fer líka eftir því hvort síminn er
í reikningi eða hvort fólk nýtir
sér aðra þjónustu sem farsíma-
fyrirtækin bjóða upp á. Þegar
fólk dvelur erlendis er í mörgum
tilvikum ódýrara að láta hringja í
sig en að hringja heim til íslands.
Margir notast einnig við SMS þar
sem það er ódýrara en símtölin.
2
3
Bólusetning Erfitt er að
ráðleggja ferðamönnum um
bólusetningu. Nokkrir þættir
ráða því hvort hún er nauðsynleg
og hvaða bóluefni er notað. Það
fer eftir því til hvaða lands er
farið, hversu lengi einstaklingur-
inn ætlar að dvelja í landinu og
hvaða aðstæður ríkja þar. Einnig
fer það eftir því hversu algengir
sjúkdómar sem bólusett er fyrir
eru í viðkomandi landi. Bólusetn-
ingu er hægt að fá á heilsugæslu-
stöðvum, Miðstöð heilsuverndar
og á göngudeild smitsjúkdóma á
Landspítalanum í Fossvogi.
Vasaþjófar Margir hafa
lent í því að verðmætum er
stolið af þeim á ferðlögum um
heiminn. Víða erlendis eru
vasaþjófar á ferðinni. Vasaþjófa
má oftast finna í miðbæjum og
á þröngum mörkuðum. Einnig
á verslunargötum og í almenn-
ingsfarartækjum. Þjófarnir leita
á staði þar sem margt fólk er.
Ferðalangar þurfa að vera vel
vakandi fyrir þessari hættu og
hafa töskur og veski á öruggum
stöðum þar sem erfitt er fyrir
þjófana að ná til þeirra.
4