blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 4
FRETTIR FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 blaðið Mannekla í leikskólum Reykjavíkurborgar Leitað allra leiða Talsverð mannekla er í leik- skólum Reykjavíkurborgar og leik- skólastjórar leita allra leiða til að leysa vandann. í leikskólanum Blás- ölum í Árbæ hefur verið brugðið á það ráð að auglýsa eftir starfsfólki á pólsku. Margrét Elíasdóttir leik- skólastjóri segir að fjölda starfs- fólks vanti, jafnt leikskólakennara sem aðra starfsmenn, og því hafi verið reynt að fara þessa leið. „Við erum í ágætis aðstöðu hérna til að taka við pólskumælandi starfsfólki. Við erum með pólskan leikskóla- kennara starfandi hér sem kennir pólskum börnum íslensku. En þetta er bara einn af möguleikunum í stöðunni sem við erum að skoða.“ Aðspurð segir Margrét að hún hafi fengið nokkur viðbrögð við auglýs- ingunni en þó hafi enginn verið ráð- inn enn sem komið er. „Við sjáum ekki fram á að geta fullmannað leikskólann í bráð og ekki heldur að geta tekið inn börn sem eru að bíða eftir því að komast inn, því miður“ segir Margrét. freyr@bladid.net Eldisfiskur frá Asíu á Evrópumarkað Eldisfiskur frá Asíu gæti veitt fiski úr Norður-Atlantshafi harða samkeppni á Evrópumark- aði á næstu árum. Einkum er um að ræða eldisfiskinn pangasius, að því er kemur fram á vef Fiski- frétta sem vitna í norska blaðið Fiskaren. Fiskholdið af pan- gasius, sem mest er framleitt af í Víetnam, er ljóst og verðið lágt og því gæti hann orðið valkostur á móti frystum hvítfiski, svo sem þorski, ufsa, ýsu, karfa og grá- ÍÚðu. ibs Alira síðustu sætin! Súpersól til Salou í september frá kr. 29.995 Terra Nova býður ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Salou og Pinetfa í september. Salou og Pineda eru fallegir bæir á Costa Dorada ströndlnni, sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Stórkostlegar strendur, fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. 1 ^ -- ttai*'-J&iæ y A/TÍS’* ki Kr. 29.995 Netverö á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 böm í v Súpersól tilboð, 14. og 21. september. Kr. 39.990 Netverö á mann, m.v. 2 fulloröna í viku. Súpersól tilboð 14. og 21. september. 0 Terra Nova pmm croup Skógarhlíð 18-105 Reykjavík Sími: 5919000 • www.terranova.is Akureyri sími: 4611099 Hafnar^örður sími: 5109500 Baldur Bjarki Guðbjartsson Hefur kært Heilbrigðisstofnun Suðurlands vegna gjald- töku, en honum var aldrei sagt að aðgerð hans væri ekki gjaldfrjáls. Kærir óvænta gjaldtöku spítala ■ Hvergi tæmandi listi yfir meðferð sem þarf að greiða ■ Telja sig ekki þurfa að tilkynna um gjald vegna umræðna í fjölmiðlum Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net „Mörgum mánuðum eftir að ég fór í aðgerð hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands fékk ég sendan reikning vegna aðgerðarinnar,“ segir Baldur Bjarki Guðbjartsson. Eins og fjallað hefur verið um í Blaðinu undanfarna daga er gjald- taka og endurgreiðsla innan heil- brigðiskerfisins háð reglum sem erf- itt er að botna í. Sagt hefur verið frá því að ekki sé heimild í lögum fyrir gjaldtöku vegna aðgerðar sem fram- kvæmd er á sjúklingi sem lagður er inn, þrátt fyrir að sjúklingur á dag- deild geti þurft að greiða fyrir sömu aðgerð. „Ég veit ekki hvernig þeir skil- greina innlögn, en ég dvaldist á spítalanum frá 8 að morgni til há- degis daginn eftir,“ segir Baldur, sem kært hefur gjaldtökuna til heilbrigðisráðuneytisins. Óskýr reglugerð Heilbrigðisstofnun Suðurlands ber fyrir sig reglugerð nr. 340/1992, en þar segir að fyrir ferliverk greiði ÓVÆNTUR REIKNINGUR ► Almenna reglan er sú, eins og Blaðið hefur fjallað um að undanförnu, að sjúklin- gur sem leggst inn á spítala þarf ekki að greiða með- ferðina. ► ► Fyrir heimsókn á spítala er hins vegar greitt komugjald Fyrir svokölluð ferliverk, sem ekki krefjast innlagnar „nema í undantekningartilvi- kum“ getur þurft að greiða en ekki er til listi yfir þau. sjúklingur gjald, þrátt fyrir að hann þurfi að dvelja á sjúkrahúsi yfir nótt, en ferliverk er skilgreint sem „lækn- ismeðferð sem sjúklingum er veitt á læknastofum eða á sjúkrahúsum og krefst ekki innlagnar á sjúkradeild nema í undantekningartilvikum“. Hjá Jóni Sæmundi Sigurjónssyni, sérfræðingi í almannatrygginga- fræðum hjá heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneyti, fengust þær upplýsingar að ekki sé til listi yfir þær læknismeðferðir sem krefjast ekki innlagnar á sjúkradeild nema í undantekningartilvikum. Ekki tilkynnt um gjald Fyrir aðgerðina höfðu Bjarka staðið tveir kostir til boða: ann- aðhvort að láta framkvæma aðgerð- ina á einkastofu í Reykjavík, eða bíða í einhverja mánuði eftir að Heil- brigðisstofnun Suðurlands fengi fjármagn til að framkvæma aðgerð- ina. „Ég valdi síðari kostinn í þeirri trú að greiða þyrfti fyrir aðgerðina á einkastofu en ekki á heilbrigðis- stofnuninni, en aldrei var rætt um kostnað við mig.“ í bréfi sem framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands skrifar undir og sent var heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu vegna kæru Bjarka segir orðrétt: „Mikið hefur verið fjallað um þessa gjaldtöku á opinberum vettvangi, m.a. í fjölmiðlum, á undanförnum árum og ætti hún því að vera flestum kunnug.“ ÞEKKIRÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Formaður Landssambands kúabænda um vöxt Mjólku Ekki tækifæri fyrir bændur Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, telur þróun í starfsumhverfi mjólkur- fyrirtækja hérlendis vera á sömu leið og hjá nágrannalöndum okkar. Blaðið sagði frá því í gær að Mjólka, eini einkaaðilinn á íslenskum mjólk- urmarkaði, ætli að fimmfalda fram- leiðslu sína á næstu árum. Þórólfi finnst vöxtur Mjólku vera hið besta mál en sér engin sérstök tækifæri í honum fyrir kúabændur. „Ég held að við séum að sjá sömu þróun og annars staðar á Norðurlöndum þar sem einkarekin samlög sem eru í ein- hverjum sérvörum verði til hliðar við þessi stóru samlög sem eru yfir- leitt framleiðendasamfélög. Það er ekkert óeðlilegtviðaðsúþróuneigi sér stað hérlendis líka. Hún þarf eig- inlega að eiga sér stað svo að þetta verði í svipuðum farvegi og annars staðar á Norðurlöndum." Þórólfur gerir fastlega ráð fyrir því að Mjólka muni áfram vinna að mestu úr mjólk innan greiðslu- marks en ætli sér ekki að sækjast eftir umframmjólk utan kvóta fyrir þessa auknu framleiðslu. Mjólka tilkynnti í síðasta mánuði að fyrir- tækið myndi greiða framleiðendum 52 krónur á hvern lítra afkeyptri um- frammjólk, sem er tæplega helmingi hærra verð en Mjólkursamsalan greiðir fyrir sama mjólkurlítra. thordur@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.