blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 35

blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 35
blaöió FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 35 ORÐLAUSBÍÓ ordlaus@bladid.net Svo má líka horfa til Holly- wood, en þar er frekar algengt að börn leikara fari leiklistina líka. Lýst sem 90 mínútna leiðindum Heimildarmynd Leonardo DiCaprio þykir flopp Heimildarmynd leikarans Leon- ardo DiCaprio fær ekki góða dóma og þykir algjörlega misheppnuð. Myndin sem kallast The nth Hour fjallar um þá ógn sem jörðinni stafar af gróðurhúsaáhrifunum en skilaboðin komast ekki eins vel til skila og til stóð. Myndin þykir að minnasta kosti ekkert í líkingu við mynd Al Gore, An Inconvenient Truth, sem þótti afar vel heppnuð. Aðsókn á The n th Hour hefur verið dræm en á fyrstu átján sýning- ardögunum halaði myndin aðeins inn 27 milljónir íslenskra króna á meðan An Inconvenient Truth rak- aði saman 227 milljónum á sama tíma. Áhorfendur sofna Mynd DiCaprio er lýst sem 90 mínútna leiðindum þar sem áhorf- endur geti ekki annað en lagt augun aftur og hvílt sig á meðan á sýningu stendur, en að sögn gagnrýnenda er helsti galli myndarinnar sá að í henni kemur fram fjöldi vísinda- manna sem hver á eftir öðrum tala í langan tíma og setja fram heims- endaspár, og það sé ekki nóg til þess að halda neinum við efnið. Myndin sem hefur verið sýnd í 111 kvik- myndahúsum víðsvegar um Banda- ríkin fer að öllum líkindum beint á DVD eftir helgi verði aðsóknin svo dræm áfram. Kvikmyndin Veðramót frumsýnd á föstudaginn Böm þekktra Is- lendinga áberandi Kvikmyndin Veðramót verður frumsýnd um land allt annað kvöld. Einvalalið leikara fer þar fremst í flokki, en sér- staka eftirtekt vekja börn þekktra íslendinga úr leiklistargeiranum. Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur halldora@bladid.net íslenska kvikmyndin Veðramót í leikstjórn Guðnýjar Halldórs- dóttur verður frumsýnd um land allt þann 7. september næstkom- andi. Myndin, sem fjallar um þrjá byltingarsinna sem taka að sér stjórn vistheimilis fyrir vandræða- unglinga, gerir sifjaspelli, ofbeldi og mannshvörfum sérstök skil og farið er í saumana á þeim úrræðum sem í boði hafa verið fyrir fórnar- lömb ofbeldis. Með aðalhlutverk fara þau Hilmir Snær Guðnason, Tinna Hrafnsdóttir, Atli Rafn Sigurðar- son og Jörundur Ragnarsson, en sér- staka athygli vekur að börn þekktra íslendinga eru áberandi í mynd- inni. Má þar nefna Baltasar Breka, son Baltasars Kormáks, Heru Hilmarsdóttur, dóttur leikstjórans Hilmars Oddssonar, Arnmund Ernst Backman, son Eddu Heið- rúnar Backman, og aðalleikkonuna Tinnu Hrafnsdóttur, dóttur Hrafns Gunnlaugssonar. Þá syngur Bryndís Jakobsdóttir, dóttir stuðmannsins Jakobs Frímanns Magnússonar og Ragn- hildar Gísladóttur, eigið lag í myndinni og texti lagsins mun vera eftir rapparann Dóra DNA, sem jafnframt er sonur leikstjórans Guð- nýjar Halldórsdóttur og framleið- andans, Halldórs Þorgeirssonar. Bara tilviljun ein „Þetta var nú bara tilviljun ein. Guðný fór á flestar leiksýningar menntaskólanna og kom heim eftir hverja sýningu og sagðist hafa séð einhvern sem henni leist vel á. Svo kom það bara á daginn að þetta voru börn einhvers sem við þekktum,“ segir Halldór Þorgeirs- son, framleiðandi kvikmyndar- innar og eiginmaður leikstjórans Guðnýjar Halldórsdóttur. „Það spilar auðvitað stórt inn í að þessir krakkar alast upp í þessu umhverfi og eiga kannski auðveldara með að stíga beint inn í þetta. Þau vita hvað kvikmynd er mikil vinna og bið og þau vita að það þarf að gera þetta svona og hinsegin. Þegar þú ert að fara í tökur út á land að hausti og vetri þá verðurðu að hafa allt svona á hreinu. Svo má líka horfa til Hollywood, en þar er frekar algengt að börn leikara fari í leiklistina líka. Og sennilegast líka í Evr- ópu. Þau alast upp í þessu umhverfi og hver veit nema þetta sé eitthvað í genatíkinni líka,“ segir Halldór, sem annars kveðst hinn ánægðasti með afraksturinn. „Ég held að þessi mynd eigi eftir að gera það gott. Ég eiginlega veit það. Það stóðu sig allir mjög vel, enda er fólk orðið svo sjóað í dag að þetta er bara gert frá a til ö.“ Maguire í hjónaband Leikarinn Tobey Maguire, sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Spiderman, gekk í hjóna- band á mánudag er hann gekk að eiga Jennifer Meyer, barnsmóður sína og unnustu til fjögurra ára. Athöfnin sem var fámenn fór fram á Havaí og var aðeins þeirn allra nánustu boðið. Maguire og Meyer kynntust árið 2003 og eiga saman ársgamla stúlku. Styrktartónleikar í Iðnó Vinir og kunningjar leggja sitt af mörkum Vinir og velunnarar listamanns- ins Olfs Chaka Karlssonar ætla að halda styrktartónleika í Iðnó í kvöld, en Úlfur hefur barist við hvítblæði undanfarin ár og hefur oft þurft að gangast undir meðferð. Veikindin hafa sett stórt strik í reikninginn og þau hafa komið í veg fyrir að Úlfur hafi getað aflað tekna að ráði en hann hefur dvalist lang- dvölum á sjúkrastofnunum. Margir muna eflaust eftir Úlfi sem söngvara hljómsveitarinnar Stjörnukisi, en félagar hans úr mörgum af betri böndum landsins vilja nú leggja sitt af mörkum og styðja hann í veikindum sínum með því að halda þessa styrktartónleika, þar sem öðrum gefst einnig tæki- færi til að létta Ulft og fjölskyldu hans lífið í baráttunni. Dagskráin í kvöld er ekki af verri endanum en allir sem koma fram gefa vinnu sína og tengjast Úlfi vin- Úlfur Chaka Vlnir og kunningjar halda styrktartónleika í kvöld áttu- og kunningjaböndum. Hljóm- sveitirnar Pornopopp, Singapore sling, Reykjavík!, Mínus, Mr. Silla, Bacon og The Way Down koma fram og hefur verið haft á orði að hljóm- sveitin Ilam muni stíga á stokk í lok kvöldsins. Tónleikarnir hefjast hefjast stund- víslega klukkan 20.00 en húsið verður opnað klukkan 19.30. CARLTON BADMINTONSPAÐAR FÁSTiFLESTUM SPORTVORUVERSLUNUM tSOUETKXH&AZWAPe fí»UAxmmf<mR Powerblade 4000 Powerblade 2000 ■Flreblade S-Lite *Powerblade 6000 • Nanopulse'" -GRAFÍT COMPOSITE •84 GRÖMM *96 GROMM •LEIÐB.VERÐ ‘LEIÐB..VERÐ 12.990.- 5.990.- •GRAFÍTSK/ ÁLHAUS *STÁLSPAÐI •90GROMM -120 GROMM •LEIÐB.VERÐ *LEIÐB.VERÐ NATHAN ROBERTSON OG GAIL EMMS OLYMPISKIR SILFURVERÐLAUNA- HAFAR & HEIMSMEISTARAR 2006 NOTA CARLTON

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.