blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 blaðiö Blaðinu dreift til strætófarþega Blaðinu verður dreift í strætis- vagna á höfuðborgarsvæðinu eftir- leiðis. Þar með fetar blaðið sömu slóðir og mörg fríblöð erlendis, s.s. skandinavíska fríblaðið Metro sem er dreift á lestarstöðvum og i strætisvögnum. Þorbjörg Helga Vig- fúsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnar- fulltrúi í Strætó bs., segist fagna því mjög að þetta samstarf hafi komist á milli Blaðsins og Strætó. „Þetta er mjög jákvætt mál og við gleðjumst yfir því hversu framsýnt Blaðið er.“ Þorbjörg segist treysta því að þetta verkefni slái í gegn, á sama hátt og Frítt í strætó-verkefnið sé að gera. HA gerir samstarfs- samning við BioPol Háskólinn á Akureyri og BioPol ehf., sem er nýtt sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd, skrifuðu í gær undir samning um rannsóknasamstarf á sviði sjávarlíftækni. Meginmarkmið samningsins er að efla rannsóknir og tækniþróun á sviði sjávarlíftækni, matvælafræði og tengdum sviðum. í því felst m.a. að skilgreina ný rannsóknarverkefni og liggur helsti styrkleiki samstarfsins í samlegð ólíkrar sérfræðiþekkingar og þar með meiri líkum á árangri stærri rannsóknar- og þróunarverkefna. BioPol er ætlað að skoða lífríki Húnaflóa ofan í kjölinn, standa að rannsóknum á vettvangi líftækni og nýsköpun á vettvangi sjávarlíf- tækni. Enn fremur mun fyrirtækið standa að markaðssetningu og sölu á afurðum úr sjávarlífverum. mbl.is Lagabreytíngar þörf opnist markaðvuinn il Eigandi minlyf.net segir að verði lyf frá útlöndum send í pósti þurfi lagabreytingu ■ Ráðherra skoði endurgreiðslu á lyfjum að utan Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Breyta þarf lögum eigi hugmyndir Guðlaugs Þórs Þórðarsonarheilbrigð- isráðherra um að opna lyfsölumark- aðinn með rafrænum sendingum lyfseðla milli landa að verða að veru- leika. Þetta segir Aðalsteinn Arnar- son læknir sem Lyfjastofnun bannar að hafa milligöngu um kaup á lyfjum í apótekum í Svíþjóð í gegnum vefsíð- una minlyf.net. „Lyfjastofnun segir póstverslun með lyf bannaða. Ráð- herra talar um að opna möguleika á að senda lyfseðla rafrænt utan og fá lyf send heim. Þau færu þá væntan- lega í gegnum pósthús og þá þarf að breyta þessum lögum." Aðalsteinn bendir einnig á að nú endurgreiði Tryggingastofnun ríkisins ekki hluta af verði lyfja sem keypt eru erlendis. „Ég sendi í sumar inn erindi til heilbrigðisráðu- neytisins þar sem ég bið ráðherra um að taka afstöðu til endurgreiðslu á lyfjum keyptum erlendis og hvort neitun á slíkum endurgreiðslum standist EES-samninga. Ég hef ekki fengið svör frá ráðuneytinu enn sem komið er.“ RAFRÆNIR LYFSEÐLAR ► Rafræn sending lyfseðla á að vera komin í gagnið um allt land um næstu áramót. ► í stað þess að afhenda sjúk- lingi pappírslyfseðil sendir læknirinn lyfseðilinn raf- rænt í sérstaka lyfseðlagátt þangað sem apótek getur sótt hann. W, Með rafrænum sendingum lyfseðla opnast væntanlega möguleikar í framtíðinni á að hægt verði að fá lyf send heim frá erlendum apótek- um, að því er heilbrigðisráð- herra hefur greint frá. íhugar kæru Aðalsteinn ákvað að gera hlé á starfsemi vefsíðunnar sem aðeins var opin í nokkra daga í sumar vegna úrskurðar Lyfjastofnunar. Hann hefur hins vegar mótmælt því að um póstverslun sé að ræða þar sem hann bjóði ekki upp á neinar vörur og njóti ekki söluágóða af lyfj- unum. Um þessar mundir er hann að bræða það með sér hvort hann eigi að kæra úrskurð Lyfjastofnunar til heilbrigðisráðuneytisins. „Ég held að ég geri það til að klára þetta mál. En þótt ég fengi það svar að Lyfjastofnun væri ekki stætt á að banna mér að hafa milligöngu um kaup á lyfjum þá er sú þjónusta sem ég bauð upp á ekki eins og þetta á að vera.“ Vildi fá umræðu í gang Með því að hafa milligöngu um kaup á lyfjum fyrir Islendinga vildi læknirinn fá í gang umræðu um lyfsölu. „Til að mótmæla háu lyfja- verði á Islandi vildi ég fá umræðu í gang með öðrum þrýstingi en gert hefur verið áður. En auðvitað á fólk ekki að þurfa að fara svona flókna leið. Þetta verður miklu einfaldara ef erlendum apótekum verður gert kleift að koma inn á íslenska markaðinn og selja ein- staklingum ódýrari lyf en hér fást. Það á að vera eðlilegri samkeppni á íslenskum markaði," leggur Aðal- steinn áherslu á. Hann segir þess vegna hugmyndir heilbrigðisráð- herra afar athyglisverðar. VIÐ HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA 5-9 MANNA Vagnhöfða 25 I 12 Rcykjavík sími 567 4455 fax 567 4453 Er hárið farið að gfáll& og þynnast? Þá er Grecian 2000 hárfroðan lausnin! Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í, greiðir og hárið nær sínum eðlilega lit á ný, þykknar og fær frískari blæ. Leiðbeiningará (slensku fylgja ta recian 2000 hárfroðan fæst: Lyfju Lágmúla, og Lyfju Smáralind - Árbæjar Apótek Lyfjaval Apótek, Mjódd - Hársnyrtistofan Hár Hjallahrauni 13 Hfj. Rakarastofa Grfms - Rakarastofa Ágústar og Garðars Rakarastofan Klapparstíg - Rakarast. Ragnars, Akureyri Torfi Geirmunds, Hverfisg. 117 og í Hagkaupsverslunum Aml Schmvlng mlf. - Hmlldvmrmlun m/ml 007 7030 Aukið vægi ensku í Háskólanum í Reykjavík Háskólinn verði að fullu tvítyngdur árið 2010 Háskólinn í Reykjavík mun auka vægi ensku í kennslu sinni á næstu misserum. Stefnt er að því að skól- inn verði tvítyngdur innan skamms og er þetta liður í alþjóðavæðingu skólans. Jóhann Hlíðar Harðarson, markaðsstjóri Háskólans, segir að stefnt sé að því að skólinn verði að fullu tvítyngdur árið 2010. Nú þegar eru formleg samskipti að miklu leyti bæði á íslensku og ensku. Því sé þetta eðlileg þróun í vaxandi skóla, mikill fjöldi erlendra kenn- ara kemur að kennslunni og nem- endur þurfi að nýta sér ensku í miklum mæli í störfum sínum að námi loknu. Jóhann segir hins vegar að engin áform séu uppi um að enskan taki við af íslenskunni. „Það er lykilat- Framtíðin í Öskjuhlíðinni HR stefnir aö því að verða tvítyngdur árið 2010. Enska verður notuð til jafns við íslensku um svipað leyti og skólinn flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði. riði að standa vörð um íslenskuna, nám verði í síauknum mæli á ensku. hún á aldrei að víkja eða verða Hins vegar eru engin áform uppi minnipokamál." Nú þegar fer MBA- um að taka ensku upp í auknum nám í skólanum að fullu fram á mæli í grunnnámi. ensku og stefnt er að því að meistara- freyr@biadid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.