blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 38
38
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
blaöió
FÓLK
folk@bladid.net
Nei, en það eru
kannski einhverjir
áfangastaðir þar ná-
lægt sem koma til greina.
Stendur til að bjóða upp á flug til bæjarins London í Arkansas?
Eins og fram kom á mbl.is í gær lenti norsk fjölskylda nýlega (því að hafna í bænum
Rodez I Frakklandi í þeirri trú að hún væri á leið til Rhodos í Grikklandi. Slíkt ku gerast
reglulega í ferðabransanum, en viðskiptavinir lceland Express á leið til Bretlands ættu
þó ekki að óttast að hafna í hinum 900 manna smábæ London í Arkansas-fylki í Banda-
ríkjunum. Matthías Imsland er framkvæmdastjóri lceland Express.
HEYRST HEFUR
Margir hafa velt því fyrir sér
hver taki við ritstjórn Mannlífs
af Reyni Traustasyni og hafa
nú augu manna beinst að Þóru
Kristínu Ásgeirsdóttur frétta-
manni sem sagt var upp störfum
á Stöð 2 um mánaðamótin. Þóra
Kristín þykir skörungur mikill
og margir bloggarar furðuðu sig
á uppsögninni. Nú er spurning
hvað Birtíngsfólk gerir en það
fyrirtæki er auðvitað í eigu
Það vakti athygli hversu margir
þekktir fjölmiðlamenn sækjast
eftir að komast í starf hjá utan-
ríkisráðuneytinu. Meðal þeirra
eru tveir verðlaunablaðamenn,
Davíð Logi Sigurðsson, sem var
valinn blaðamaður ársins, og
Auðunn Arnórsson, sem fékk
verðlaun fyrir bestu umfjöllun
ársins. Það
er ekki
slæmt
fyrir Ingi-
björgu
Sólrúnu
að hafa
verðlauna-
blaðamenn
á meðal um-
sækjenda.
Margir þekkja taílenska veit-
ingastaðinn Síam í Hafnarfirði
en hann hefur verið þekktastur
fyrir persónulega þjónustu og
einstaklega góðan mat. Hjónin
Stefanía Björnsdóttir og Tim
Manit Saifa sem rekið hafa stað-
inn hafa nú selt og nýir eigendur
tekið við. Nýju eigendurnir hafa
rekið mexíkóska veitingahúsið
Serrano í Kringlunni og á Hring-
braut og hyggj-
ast opna einn
slíkan við
hlið Síams.
Lalli Töframaður
Lærði fyrstu brögðin
sín 6 ára gamall.
Lalli Töframaður
Töframaöur í hjáverkum
Fyrsta töframannafélag
íslandssögunnar var
stofnað í febrúar síðast-
liðnum, en Lalli Töfra-
maður er ritari þess.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Hið íslenska töframannagildi,
fyrsta töframannafélag íslandssög-
unnar, var stofnað fyrr á árinu, en
meðlimir þess eru 12 talsins. Lárus
Guðjónsson, eða Lalli Töframaður
eins og hann er kallaður í daglegu
tali, er ritari félagsins.
„Allir félagsmenn eiga það sameig-
inlegt að vera áhugamenn um töfra-
brögð og sjónhverfingar, en tæplega
helmingur okkar sýnir töfrabrögð
opinberlega. Hinir eru kannski með
aðeins minni athyglisþörf en við,“
segir Lalli. Sjálfur hefur hann sýnt
töfrabrögð frá þvi að hann var 6 ára
gamall, en fyrsta launaða verkefnið
sem töframaður fékk hann þegar
hann var 12 ára. „Ætli ég hafi ekki
byrjað á þessu af alvöru þegar ég var
FÉLAGIÐ
►
►
Var stofnað í febrúar 2007.
HÍT er hringur innan IBM,
Internationai Brotherhood
of Magicians, sem eru ein
virtustu samtök töframanna
í heiminum.
►
►
Vefsíða félagsins er tofram-
enn.is.
í október stendur félagið
fyrir komu hins heimsfræga
breska töframanns Davids
Jones til landsins og mun
hann halda töfrasýningu
fyrir almenning.
14 ára gamall og núna er þetta bara
vinnan min með skóla.“
Erþetta ekki stopul vinna?
„Jú, vissulega er þetta það, enda er
stundum brjálað að gera einn mánuð-
inn og ég á í mestu vandræðum með
að púsla allt saman, og svo kannski
næsta mánuð er sama og ekkert að
gerast. Þannig er þetta eins og hjá
listamönnum og leikurum; maður
veit aldrei hvenær maður á pening
og hvenær ekki. En það er bara
gaman," segir töframaðurinn.
Trúirðu á alvöru töfra?
„Ég er náttúrlega sjónhverfinga-
maður eins og allir aðrir í Hinu
íslenska töframannagildi og sem
slíkur á ég náttúrlega ekkert að trúa
á alvöru töfra. En hvað veit maður?
Ég þori ekkert að segja um það.
Kannski trúi ég á þá þegar ég sé þá.“
Vantar töfrakonur
Félagið er að sögn Lalla Töfra-
manns opið öllum töframönnum
og töfrakonum. „Það vantar töfra-
konur í félagið og vonandi eru ein-
hverjar slíkar þarna úti. Sjálfur veit
ég um eina litla sem er sjö eða átta
ára gömul og vafalaust á hún fram-
tíðina fyrir sér. Það eru viss skilyrði
um inngöngu inn í félagið og þess
vegna eru fundirnir ekki opnir al-
menningi, þótt það væri örugglega
gaman að sjá hvernig fólk brygðist
við ef það fengi að sitja fund í félag-
inu. Á fundum erum við nefnilega
að miðla þekkingu okkar hver með
öðrum og gera alls konar brögð, en
þar sem við erum svo vanir þessu
kippir sér enginn neitt upp við að
sjá dularfullar sjónhverfingar. Það
er því enginn að súpa hveljur eða
neitt slíkt yfir svoleiðis brögðum,“
segir hann.
Hikið þið ekki við að deila kunn-
áttuykkarmeðöðrum töframönnum
sem eru ísamkeppni viðykkur?
„Nei, alls ekki, við erum alveg
ófeimnir við það. Og þó svo að það sé
vissulega samkeppni okkar á milli
er hún alveg á heilbrigðu nótunum
og við græðum allir á að miðla hver
öðrum. Svo er líka mjög fínt að geta
hitt kollega sína einu sinni í mánuði
og talað við þá á þessu „fagmáli“
töframanna sem aðrir eiga erfiðara
með að skilja.“
Verð áfram töframaður
Hvar sérðu þig fyrir þér í
framtíðinni?
„Ég er að læra trésmíði og sé því
fyrir mér að ég eigi eftir að starfa
sem slíkur, en ég stefni á að halda
áfram að vera töframaður. Það
verður þá orðið vinna með vinnu en
ekki vinna með skóla,“ segir Lalli
Töframaður að lokum.
FÖSTUDAGAR
510 3744 blaðið=
LÍFSSTÍLLBÍLAR
Auglýsingasíminn er
Su doku
5 6 3 4 9
7 1 2 5
8 2 6 7
2 8 7 4 9 3 1
8 3 7 4
1 8
4 1 9 6
5
7 9 8
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERMAN
eftir Jim Unger
Ég skal gefa þér bílinn og græjurn-
ar ef við sleppum þessu bara.