blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 8
FRETTIR FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 blaðiö Níkaragva Felix drepur fjóra Fjórir létust og nokkrir slösuðust þegar fellibylurinn Felix gekk yfir Níkaragva. Felix eyðilagði þús- undir heimila áður en hann missti kraft og varð að hitabelt- isstormi. Yfirvöld í Níkaragva, Gvatemala og Hondúras hafa varað við því að hættuleg flóð og aurskriður kunni að fylgja úrhell- inu. Mildi þykir að Felix kom á land á fremur strjálbýlu svæði í Níkaragva og olli því minna tjóni en fyrirfram var óttast. aí Noregur Vill Finna með í varnarsamstarf Jonas Gahr Store, utanrík- isráðherra Nor- egs, hefúr óskað eftir nánara ör- yggis- og varn- arsamstarfi bæði við Sví- þjóð og Finn- land. Store hef- ur tekið vel í hugmyndir yfirmanna norska og sænska her- aflans um aukið samstarf og vill jafnframt ræða við Finnland. Hann hefur boðið utanrík- isráðherrum Svía og Finna til fundar í Bodo í næsta mánuði. aí Svíþjóð Odenberg segir af sér Mikael Oden- berg sagði af sér embætti varn- armálaráðherra Svíþjóðar í gær. Hann segir ástæðu afsagn- arinnar deilur við fjár- málaráðherrann Anders Borg, sem tilkynnti fyrr á árinu áform um að skera niður útgjöld til varnarmála um fleiri tugi milljarða króna. Utanríkisviðskiptaráðherrann Sten Tolgfors tekur við embætti varnarmálaráðherra. aí n C- Hunangs^ . A 'i Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar. f VOGABÆR Frábær köld meö kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna. Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa. m Varasöm leikföng I nýjustu innkoll- unarlotu Mattels er um að ræða Fisher Price-leikfangalestirog aukahluti með Barbie-dúkkum. - _ Enn fleiri leikföng frá Kína innkölluð ■ Tíu eintök af mögulega hættulegu Barbie-leikfangasetti voru seld til íslands ■ Blýmagn í leikföngunum hefur mælst of hátt INNKÖLLUÐ LEIKFÖNG Barbie-fylgihlutir • Living Room Playset (K8613), vegna gulrar málningar á handtöskunni. • Living Room Playset (K8608), vegna brúnnar málningar á kettinum. • Dream Puppy House (J9485), vegna appelsínugulrar málningar á hundinum. • Dream Kitty Condo (J9486), vegna brúnnar málningar á kettinum. • Table & Chairs Kitchen Playset (K8606), vegna málningar á diskum, hundinum og skálum. • Bathtub & Toilet Playset (K8607), vegna brúnnar málningar á kettinum. • Desk & Chair Bedroom Playset (K8609), vegna brúnnar málningar á hundinum. Fischer-Price-leikfangalestir • GEOTRAX Rail & Road System • Freightway Transport, vegna gulrar málningar á stiganum og Ijósum lestarvagnsins. • GEOTRAX Special Track Pack, vegna gulrar málningar á stiganum og Ijósum lestarvagnsins. • „It’s a Big Big World 6-in-1 Bongo Band, vegna málningar á plasttrommunni. Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Bandaríski leikfangaframleið- andinn Mattel hefur ákveðið að innkalla ellefu gerðir leikfanga, eða um 850 þúsund eintök, þar sem blýmagn í málningu þeirra hefur mælst of hátt. Tíu eintök af einni tiltekinni gerð sem um ræðir voru seld beint til íslands. Þetta er þriðja stóra innköllun Mattels á leikföng- um sem búin eru til í Kína á einum mánuði. Leikföngin sem um ræðir eru aukahlutir fyrir Barbie-dúkkur og Fisher-Price-leikfangalestir. Tíu eintök á íslandi Samkvæmt upplýsingum sem Neytendastofu hafa borist frá Mat- tel hafa tíu eintök af einni tiltekinni gerð leikfangs, sem þessi innköllun nær til, verið seld beint til íslands. Um er að ræða fylgihlut fyrir Bar- bie-dúkkur, nánar tiltekið hand- tösku með framleiðslunúmerinu K8613, sem seld var með setti af fylgihlutum „Barbie Living Room Playset“ með framleiðslunúmerið K8610. 1 tilkynningu frá Neytenda- stofu er varað við því að leikföngin kunni hugsanlega að hafa borist til landsins með öðrum hætti. Foreldr- ar og forráðamenn eru hvattir til að fjarlægja þegar í stað þau leikföng sem hætta getur mögulega stafað af. Mattel hefur sent frá sér enn eina afsökunarbeiðni vegna innköllunar á leikföngum, þar sem ítrekað er að gallarnir hafi uppgötvast vegna nýrra og bættra öryggisprófana. Brian Stockton, einn forsvars- manna Mattels, segir fyrirtækið vera hreinskilið í garð neytenda með því að greina frá því hvað sé á seyði. „Við vonumst til að neytendur dæmi okkur af verkum okkar, en ekki af því að einhverjir undirverk- takar hafi ekki gert það sem til stóð.“ Milljónir innkallaðar Síðasta mánuðinn hefur Mattel innkallað átján milljönir leikfanga sem búin eru til í Kína, þar sem blý- magn í málningu hefur mælst of hátt. Á heimasíðu Mattels segir að í þessari lotu hafi 530 þúsund leik- föng í Bandaríkjunum verið inn- kölluð, en 318 þúsund í öðrum ríkj- um. Kínversk stjórnvöld hafa ekki sent frá sér yfirlýsingu vegna nýj- ustu innköllunarinnar, en hafa áður bent á að einungis fáar af þeim milljörðum vara sem framleiddar eru þar í landi séu gallaðar. Eftir fýrstu innköllun Mattels í síðasta mánuði voru yfirvöld í Kína fljót að affurkalla starfsleyfi umræddrar leikfangaverksmiðju, sem staðsett er í Guangdong-héraði. ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Fleiri handtökur á grundvelli hryðjuverkalaga í Evrópu Þrír handteknir í Þýskalandi m ... j Jfe—— 4 \ W I r -Ai i i 1 i Grunaður hryðjuverkamað- ur leiddur á brott. Lögregla segir þrímenningana hafa hlot- ö þjálfun í búðum í Pakistan. % * i - ! Æ ■4K l’ / Þrír menn voru handteknir í Þýska- landi á þriðjudaginn, grunaðir um skipulagningu hryðjuverka í land- inu. Fullyrt er að þeir hafi haft í hyggju að ráðast á alþjóðaflugvöll- inn í Frankfurt og bandarísku her- stöðina í Ramstein. Ríkissaksóknarinn Monika Harms segir að mennirnir þrír hafi hlotið þjálfun í búðum í Pakistan og geymt um sjö hundruð kíló af sprengiefnum. 1 þýskum fjölmiðl- um er greint frá því að tveir mann- anna séu þýskir og einn tyrkneskur og að þeir séu grunaðir liðsmenn hryðjuverkahópsins Islamska Jihad. Mennirnir voru handteknir í sumarbústað við landamæri Hes- sen ogNordrhein-Westfalen. Tunn- ur með sprengiefnunum fundust hins vegar í Svartaskógi. Þingmað- urinn Wolfgang Bosbach segir að yfirvöld hafi fylgst með mönnun- um um nokkurt skeið. Grunur léki á að hryðjuverkin yrðu framin sama dag og þess yrði minnst að sex ár væru liðin frá hryðjuverkaárás- unum á Bandaríkin, 11. september 2001. Handtökurnar í Þýskalandi áttu sér stað sama dag og tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Kaupmannahöfn vegna gruns um að hafa hryðjuverk í undirbúningi. I dönskum fjölmiðlum kemur fram að tvímenningarnir, sem eru af pakistönskum og afgönskum upp- runa, hafi um árabil búið í Dan- mörku, en skyndilega gengið til liðs við herskáa múslíma. atlii@biadid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.