blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 22

blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 blaðiö LÍFSSTÍLL48K 48k@bladid.net Því er líklegt að fyrst um sinn muni 3G-tæknin gera lítið annað en að svala forvitni þeirra tæknióðu. KÍLÓBÆT Eldheitir Nokia í síðasta mánuði innkallaði Nokia rafhlöður af gerðinni BL- 5C vegna fjöl- margra fregna um að þessar rafhlöður ættu það til að springa. Nú virðist sem fleiri Nokia-rafhlöður séu í sprengihættu því indversk kona lenti í því á dögunum að farsíminn hennar sprakk í loft upp en rafhlaðan í þeim síma var af gerðinni BL-D3. Betri stjórntæki Drekaflugleikurinn Lair hefur ekki fengið þær móttökur sem framleiðendur leiksins bjuggust við en leikurinn þykir skarta óþægilegum stjórn- tækjum að mati gagnrýnenda. Nú hefur það hins vegar komið í ljós að Lair er hægt að spila á PSP-lófatölvunni í gegnum Remote Play fídus PS3-tölv- unnar og segja menn að þá sé mun auðveldara að stýra drek- unum góðu. En hvað með Maríó? Samkvæmt slúðrinu í net- heimum er hin mikla aðalsögu- hetja Halo-leikjanna, Master Chief, við það að hlotnast einn mesti heiður sem hugsast getur. Heimildir herma að nú sé unnið að undirbúningi á vaxútgáfu af hetjunni miklu sem mun verða til sýnis í hinu víðfræga Madame Tussaud-vax- myndasafni. Sögusagnir herma einnig að styttan eigi að verða tilbúin fyrir 25. september. Kærið mig Ást manna á Nintendo Wii á sér engin takmörk og nú hefur fyrirtækið Black Market Skateboards sett á markaðinn hjólabretti sem er býsna góð eftirlíking á hinni mögnuðu Wiimote. Með þessu vonast fyrirtækið lík- lega til þess að ná til aðdáenda leikjatölvunnar góðu en líklegra verður þó að teljast að fyrir- tækið nái athygli lögfræðinga Nintendo-risans. Stórhættulegir Spánverjar Fjórði Resident Evil-leikurinn gerist sex árum eftir atburði Re- sident Evil 3. Umbrella-fyrirtækið sem bar ábyrgð á öllum uppvakn- ingunum og skrímslunum er farið á hausinn. Leon S. Kennedy, einn af þeim fáu sem lifðu af atburði fyrri leikja, vinnur nú fyrir leyni- þjónustu Bandaríkjanna. Hann er sendur til Spánar í leit að dóttur Bandaríkjaforseta sem hafði verið rænt. Honum til mikillar mæðu eru allir íbúar smábæjarins sem hann er sendur til sýktir af sníkjudýrum sem stjórna hegðun þeirra og þjóna þeir allir sértrúarsöfnuðinum Los Illuminatos. Leikurinn er ekki nýr, hann kom út árið 2005. Hins vegar var hann endurútgefinn fyrir Wii-leikjatölvuna með endurbættu stjórnkerfi sem nýtir möguleika Wii-fjarstýringarinnar. Það er ekki hægt að segja annað en Wii- fjarstýringin henti full- komlega fyrir leikinn en hún er notuð til að stjórna miði byssunar og maður lifir sig meira inn í leikinn og hann verður hraðari og meira spennandi. Grafíkin er stórgóð. Þrátt fyrir að vera tveggja ára gamall leikur lítur hann mjög vel út. Ef það er eitthvað sem hægt er að gagnrýna er það að leikurinn þjáist af lita- leysi sem hrjáir marga spennu- og hryllingsleiki. Það er samt nokkuð ótrú- legt hversu marga tóna af brúnum og gráum framleiðendum leiksins tókst að koma fyrir á skjánum. Resident Evil 4 er stórgóður leikur og verður aðeins betri þegar maður spilar hann á Wii-tölvunni, hraður, Elías R. Ragnarsson elli@bladid.net = 93% spennandi og tekst að hræða mann þegar maður spilar hann einn með ljósin slökkt. 3G-væðing íslands Framtíðin er núna Með tilkomu 3G-tækn- innar mun farsímamenn- ing landsmanna taka enn eitt stökk í átt til framtíðar. Myndsímtöl, sjónvarp í símanum og öflugri gagnaflutningur er bara brot af því sem 3G-tæknin státar af. Eftir: Viggó I. Jónasson viggo@bladid.net Síminn afhjúpaði í vikunni 3G- kerfi sitt, fyrst allra íslenskra far- símafyrirtækja, en Vodafone mun afhjúpa sitt kerfi innan tíðar. Með tilkomu 3G-staðalsins mun farsíma- notkun landsmanna taka nokkrum stakkaskiptum enda eru möguleik- arnir í kerfinu töluvert meiri en í núverandi farsímakerfi. Sjáumst fær nýja merkingu Það fyrsta sem fólk mun taka eftir varðandi 3G-tæknina er mögu- leikinn á myndsímtölum enda hefur Síminn tekið þann pólinn í hæðina að auglýsa tæknina út frá þeim möguleika. Heyrnarlausir og heyrn- arskertir munu nú eiga mun auð- veldara með samskipti sín á milli þvi nú geta þeir spjallað saman í gegnum myndsimtöl. Nú munu ef- laust margir velta því fyrir sér hvort þessi myndsímtöl muni ekki kosta mun meira en hefðbundin símtöl en samkvæmt verðskrá Símans munu þessi símtöl fyrst um sinn kosta það sama og hefðbundin símtöl. Þann 1. nóvember mun síðan taka gildi ný verðskrá fyrir myndsímtölin og þá munu notendur þurfa að greiða allt að 20 krónum meira á mínútuna fyrir myndsímtölin en fyrir hefð- bundin símtöl. Imbakassinn í símanum Annar möguleiki 3G-símanna er móttaka á sjónvarpsútsendingum, en þeir gera fólki kleift að horfa á útsendingar stöðva á borð við 3G Tæknin sem kölluð er þriöja kynslóðin heitir á tæknimál- inu UMTS sem stendur fyrir Universal Mobile Telecomm- unications System. Hraði UMTS-tenginga erfrá 300kb á sekúndu í allt að 3mb á sekúndu. Þriðju kynslóðar kerfið sem Síminn notast við var hann- að af símarisanum Sony Ericsson. Hægt verður að nota 3G-síma sem módem fyrir ferðatölvur. Síminn tengist tölvunni þráðlaust í gegnum Bluetooth. RÚV, Skjá einn, CNN og Cartoon Network. Fólk sem hugsar sér gott til glóðarinnar og hyggst horfa á Skjáinn í sumarbústaðnum ætti þó ekki að gera sér of miklar vonir því sjónvarpsefnið er bara aðgengilegt á því svæði þar sem 3G-samband er fyrir hendi og sem stendur er 3G- samband einvörðungu á höfuðborg- arsvæðinu og í Leifsstöð en sam- kvæmt fréttatilkynningu Símans er reiknað með að innan þriggja ára verði um 60 prósent landsmanna komnir í 3G-samband. Ennfremur ná ekki allir símar þessum útsend- ingum en Síminn hefur staðfest að Sony Ericsson-símar, W88oi og K8ioi geti nú þegar móttekið þessar sjónvarpsútsendingar. Á brattann að sækja Ljóst er að með tilkomu 3G-stað- alsins munu íslenskir farsímanot- endur fá marga nýja, spennandi möguleika. Það er hins vegar gefið mál að það er dágóður aukakostn- aður sem fylgir því að hringja mynd- símtöl og horfa á sjónvarpsefni í sim- anum. Þ ví er líklegt að fyrst um sinn muni 3G-tæknin gera lítið annað en að svala forvitni þeirra tæknióðu en ekki ná hylli hins almenna borg- ara sem spáir meira í krónurnar en nýjustu tækni. En fyrir þá sem vilja vera í sambandi við Netið öllum stundum er uppfærslan í 3G nánast formsatriði. Sony-klúður Þökk sé Wikiscanner, sem rekur breytingar á Wikipediu-vefnum til einstakra IP talna, hefur nú litið dagsins ljós eitt lítið hneykslismál sem gæti komið Sony í vanda. Svo virðist sem einhver innanbúðar- maður hjá Sony hafi farið inn á færsluna um Halo3 og sett inn athugasemd um að hvað grafík varðar verði leikurinn lítið skárri en Halo2. Foleo fæðist andvana Palm hefur hætt við að gefa út Foleo-lófatölvufélagann eins og þeir kölluðu gripinn. Tækið var í raun ferðatölva sem ekkert annað gat gert en að tengjast Palm-lófatölv- unni og gefa notandanum þannig stærri skjá og lykla- borð. Foleo hefur verið harð- lega gagnrýnt frá því að það var fyrst kynnt i vor fyrir að vera einfaldlega gagnslaust. Amerísk æska Ungir svefnvana tölvusjúklingar Samkvæmt nýrri rannsókn frá hinu réttnefnda svefnráði, The Sleep Council, er æskan nú til dags svefn- vana og algjörlega háð hvers konar rafmagnstækjum svo sem sjónvarpi og leikjatölvum. I rannsókn svefn- ráðsins voru 1000 unglingar á aldr- inum 12-16 ára yfirheyrðir varðandi svefnvenjur þeirra. Af þessum þús- und unglingum voru um 30 prósent sem sögðu að þeir fengju ekki hinn ráðlagða 8-9 klukkustunda svefn nóttina fyrir skóladag heldur væru oftast í því farinu að sofa fjórar til sjö klukkustundir. Drengir sofa lítið um helgar Þar að auki játuðu 23 prósent unglinganna að þeir sofnuðu með kveikt á sjónvarpinu, hljómflutn- ingstækjum eða tölvum. Þegar talið barst að nætursvefni um helgar varð ástandið enn verra og þá sögðu 9 prósent 15-16 drengja að þeir svæfu minna en fjórar klukkustundir á hverri nóttu. Margir halda eflaust að þetta svefnleysi ætti að valda ung- lingunum áhyggjum en þvert á móti þá lýstu aðeins 11 prósent þeirra yfir áhyggjum vegna svefnvenja sinna. Samt tóku um 40 prósent þeirra sem tóku þátt í rannsókninni það fram að þau yrðu vör við þreytutil- finningu á hverjum einasta degi. Tölvan tekur toll Þegar kom að því að finna söku- dólginnfyrirþessusvefnleysiþástóð ekki á svörum hjá unglingunum. Sumir skelltu skuldinni á óþægilegt rúm eða áhyggjur vegna næsta skóla- dags en um 20 prósent drengjanna í rannsókninni voru hreinskilnir og sögðu að óhófleg notkun á tölvu og sjónvarpi ætti stærstu sneiðina af þessari svefnleysisköku.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.