blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 24

blaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 blaóið LIFSSTILLKONAN konan@bladid.net Konur hafa verið grýttar til bana og .■■J&' hengdar fyrir að stunda kynlíf utan hjónabands og fólk er brennt á báli fyrir galdra. Heldur fólk að það sé með þeirra vilja? Fáar konur hafa verið jafn áberandi í fréttum og bloggspjalli undan- farna daga og Þóra Kristín Ásgeirs- dóttir fréttamaður. Hún er kona vikunnar að þessu sinni. Hvað ætlaðirþú að verða þegarþú varst lítil? Sjóræningi í Suðurhöfum eða ljónatemjari. Efekki hér, þá hvar? Þá vildi ég vera að ganga eftir svartri strönd. Helst í rigningarúða og sól. Heima biði mín heitt bað og fólk sem skiptir mig máli. Hvað er kvenlegt? Náttúran er kvenleg. Hún er falleg, mjúk, blíð, stundum grimm, en líka varnar- laus og undirgefin. En engin skildi vanmeta náttúruna. Hún eignast okkur öll að lokum. Er munur á körlum og konum og ef svo er, hver er hann? Já, það er mik- ill munur á körlum og konum fyrir utan þennan augljósa líkamlega. Svo er munur á sumum körlum og öðrum körlum og einhverjum konum og sumum konum. Sem betur fer. Er fullu jafnrétti náð? Nei. Og jörðin er ekki flöt. Hvað skiptirþig mestu máli í lífinu? Ástin og vináttan skipta mestu máli og frelsið til að fá að vera manneskja. Ekki augnaráðsþræll eða undir- lægja. Og húmor er líka nauðsyn- legur. Ekki verra að hann sé beittur. Helstu fyrirmyndir? Fólk sem þorir. Fólk með ríkar tilfinningar og rétt- lætiskennd. Skemmtilegt og skapandi fólk. Ráð eða speki sem hefur reynstþér vel? Á ísskápnum mínum hanga eftirfarandi einkunnarorð: Elskaðu óvin þinn. Það mun gera hann alveg brjálaðan. Uppáhaldsbók? Þær eru margar. Ég vil ekki gera upp á milli. Og svo eru hinar sem hafa ekki verið skrifaðar. Draumurinn þinn? Þessa stundina langar mig til að lífið komi mér skemmtilega á óvart. Kvennakirkjan messar ' Kvennakirkjan er sjálfstæður hópur sem starfar í íslensku þjóðkirkjunni og byggir starf sitt á kvennaguðfræði. Kvennakirkjan verður með fyrstu messu haustsins í Seltjarnarnes- kirkju, sunnudagskvöldið 9. sept- ember kl. 20.30. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar og kór Kvennakirkjunnar leiðir safnaðar- söng undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Umhugsunarefni kvöldsins verður það sem rætt verður í vetur hjá Kvennakirkjunni. Hvað um allt talið um streituna? Er hún þjóðfélaginu að kenna eða okkur? Markmið okkar er að komast að niðurstöðu. Konur geta gerst meðlimir Kvennakirkjunnar gegn 3.000 króna ár- gjaldi. Félagskonur fá sent fréttabréf Kvennakirkjunnar mánaðarlega. o © Jafnréttisráð Jafnréttisviðurkenning 2007 Jafnréttisráö lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviöurkenningar fyrir áriö 2007. Viðurkenningu geta hlotiö einstaklingar, hópar, fyrirtæki eöa félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verölauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karia og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 24. september n.k. til Jafnréttisráðs. Borgum, 600 Akureyri, í síma 460 6200, bréfsíma 460 6201 eða í tölvupósti jafnretti@jafnretti.is Baráttukonan Maryam Namazie er stödd hér á landi Mannréttindi eiga að vera algild Fyrrum múslíminn og núverandi baráttu- konan Maryam Namazie er stödd hér á landi til að vekja máls á stöðu mannréttinda í múslímalöndunum. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Maryam Namazie fæddist í íran en flýði þaðan með fjölskyldu sinni árið 1980, ári eftir valdatöku Khomeinis. Fyrst um sinn bjó fjöl- skyldan í Indlandi en flutti þaðan til Bretlands og svo Bandaríkjanna. Maryam hefur allar götur síðan verið ötul baráttukona fyrir mann- réttindum og jafnrétti kynjanna ásamt því sem hún hefur starfað með samtökum íranskra flótta- manna og barist gegn geistlegu valdi og fyrir veraldarhyggju. „Á hverju ári flýja þúsundir manna og kvenna frá íran og þeir skipta milljónum sem hafa gert það frá árinu 1979. Þeir væru áreiðan- lega fleiri ef ekki væri orðið svona erfitt að flýja land og fá pólitískt hæli í öðrum löndum. Nú á dögum eru pólitískir flóttamenn oft stimpl- aðir sem glæpamenn og mörg lönd gera allt sem þau geta til þess að loka landamærum sínum fyrir þeim. Á dögum kalda stríðsins var það mun auðveldara enda gátu Vest- urlönd þá tekið á móti fólki frá Sovét- ríkjunum til þess að sýna fram á yf- irburði sína í mannréttindamálum. Nú eftir lok kalda stríðsins er öldin önnur og stjórnmálamenn keppast við að segja hver ofan í annan: Við verðum að loka landamærunum til þess að fá ekki „falska“ flótta- menn inn í landið. En hvernig geta þeir vitað að flóttamenn eru falskir þegar þeir eru ekki einu sinni teknir í viðtöl?" spyr Maryam og bætir því við að flóttamenn dagsins í dag séu að mestu eða öllu leyti sama fólk og flóttamenn fyrri áratuga. „Enn er fólk að flýja frá íran, Irak, Afgan- istan og fleiri löndum þannig að það hefur ekki breyst.“ (lagi að gagnrýna trúarbrögð Flestir vita að almenn mannrétt- indi og jafnrétti kynjanna eru fótum troðin í íran í dag en Maryam segir það vonbrigði hversu margir líti framhjá því. „I fjölmiðlum er vissu- lega oft einungis fjallað um eina hlið málsins, hlið valdhafanna. En á Int- ernetinu og ekki síst á youtube má sjá fjölmörg dæmi þess að almennir borgarar þar i landi eru að berjast fyrir sínum rétti. Til dæmis má sjá á youtube konu sem rífur af sér blæjuna úti á götu og er fyrir vikið gripin af lögreglumönnum sem hrinda henni inn í bíl og keyra með hana í burtu. Margir blanda menn- ingarlegri afstæðishyggju inn í um- ræðuna, sem mér finnst afar miður. Ef það er hluti af menningu fólks og trú að konur þurfi að hylja sig, af hverju þurfa þá lögreglumenn að beita valdi til þess að þær geri það? Konur hafa verið grýttar til bana og hengdar fyrir að stunda kynlíf utan hjónabands og fólk er brennt á báli fyrir galdra. Heldur fólk að það sé með þeirra vilja? Menningarleg afstæðishyggja gerir ekkert annað BARÁTTUKONAN Maryam Namazie er af strangtrúaðri fjölskyldu í föðurætt, þar sem afi henn- ar var klerkur og fjölskyldu- meðlimir báðu til guðs fimm sinnum á dag, borðuðu ekki svínakjöt og drukku ekki vín. Móðir hennar játaðist hins vegar ekki íslam fyrr en hún giftist föður hennar. Hún á eina yngri systur. Maryam segist þó ekki hafa fengið mjög trúarlegt upp- eldi og að hún hafi gengið af trúnni í nokkrum skrefum á sínum yngri árum. en að gefa fólki tækifæri til að líta framhjá mannréttindabrotunum án þess að fá samviskubit. Svo eru margir sem hræðast að vera stimpl- aðir sem rasistar ef þeir gagnrýna íslam. En ég segi þvert á móti að það er nauðsynlegt að gagnrýna trúarbrögð og það líta fæstir á það sem rasisma að gagnrýna kristni," bendir Maryam á. Hafa mannréttinda- og kvenna- samtökaðþínu mati brugðist konum í Iran? „Auðvitað hafa þau gert það. Hvar er hneykslunin og reiðin? Það er ekki eðlilegt að fólk skuli mega búa við slíka ógn og valdbeitingu í Mið- Austurlöndunum í dag og að það sé látið viðgangast. Þar spilar menning- arleg afstæðishyggja inn í sem og ótt- inn við að vera stimplaður sem ras- isti. En ég hvet fólk gjarnan til þess að setja sig í spor Irana. Hvernig heldur fólk að það sé að búa við guð- veldi líkt og á miðöldum? Þar sem fólk nýtur ekki málfrelsis og á á hættu að vera fangelsað, pyntað eða myrt fyrir að hlýða ekki skipunum valdhafa? Fólk á ekki að óska ein- hverjum öðrum einhvers sem það myndi aldrei óska fyrir sjálft sig. í Mið-Austurlöndum er fjöldi fólks að berjast fyrir réttindum sem þykja sjálfsögð á Vesturlöndum.“ Verum á varðbergi Maryam Namazie er í hinum sí- vaxandi hópi yfirlýstra fyrrverandi múslíma, eða ex-muslims, í heim- inum. „Fólk eins og ég, sem flestir myndu stimpla sem múslíma þótt ég sé trúlaus, hefur mikilvægu hlut- verki að gegna í baráttunni gegn geistlegu valdi. Fyrst við gerum það er ljóst að maður þarf ekki að vera rasisti til að gagnrýna íslam eða önnur trúarbrögð. Reyndar á þessi barátta líka erindi á Vesturlönd- unum, þar sem málfrelsi á undir högg að sækja. Við munum öll eftir Múhameðs-málinu í Danmörku fyrir skömmu og svipað er að ger- ast í Svíþjóð núna ásamt þvl sem við sjáum uppgang hinnar kristnu hægristefnu víða. Það er ekki langt síðan kaþólska kirkjan í Bretlandi vísaði manni, sem leitaði ásjár, á dyr vegna þess að hann var samkyn- hneigður. Trúarbrögð verða að vera aðskilin frá opinberu valdi og mann- réttindi þurfa að vera algild. Við verðum að vera á varðbergi gagn- vart því,“ segir Maryam Namazie áð lokum. Maryam verður með fyrirlestur í Háskóla íslands milli klukkan 12.15 og 13.15 í dag. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Afneitun trúarinnar, fyrrum múslímar og áskoranir pól- itísks íslams og fer fram í stofu 101 í Odda.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.