blaðið - 06.09.2007, Page 11
blaóið
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
FRÉTTIR
11
Yfirheyra for-
seta um orku
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
íslands, hefur verið boðið til
fundar, svokallaðrar yfirheyrslu,
hjá öldungadeild Bandaríkja-
þings um orkumál nú í lok sept-
ember. Ólafur Ragnar sagði í sam-
tali við Fréttavef Morgunblaðsins,
er hann tók þátt í ráðstefnu um
orkumál á vegum Glitnis í New
York í dag, að hann væri að öllum
líkindum fyrsti þjóðhöfðinginn í
Evrópu sem hefði verið boðið til
slíkra viðræðna.
Segir Ólafur Ragnar að yfirheyrsl-
urnar séu tæki Bandaríkjaþings
til að fá til sín fólk með þekkingu
og reynslu víða að til viðræðna
um ýmis mál og hann hafi
ákveðið að þiggja boðið. Þetta sé •
í raun yfirlýsing um áherslubreyt-
ingar, að Bandaríkjaþing ætli að
efna til sérstakra funda þar sem
stór hópur öldungadeildarþing-
manna fær tækifæri til þess að
spyrja um þessi mál. mbi.is
Geir sækir
írland heim
Geir H. Haarde forsætisráðherra
fer í opinbera heimsókn til
frlands í næstu viku ásamt Ingu
Jónu Þórðardóttur, eiginkonu
sinni. Fram kemur í blaðinu
The Irish Times í dag, að Geir
muni m.a. hitta Bertie Ahern,
forsætisráðherra írlands, og
Mary McAleese, forseta, að máli í
heimsókninni.
Tóku bruggara
á Suðurlandi
Lögreglan á Hvolsvelli handtók í
síðustu viku karlmann á þrí-
tugsaldri fyrir landabrugg. Við
húsleit á heimili hans fannst bún-
aður til bruggunar en einungis
tveir lítrar af landa með um 40%
vínandastyrkleika.
Húsleitin var gerð í kjölfar ábend-
ingar sem lögreglu barst. Maður-
inn á von á ákæru.
mbl.is
Starfsgreinasambandið vill dómsmál gegn Húnnebeck og GT-verktökum
Verktakar misnota sér aðstæður
„Við viljum sjá fyrirtækin
dæmd,“ segir Skúli Thoroddsen,
framkvæmdastjóri Starfsgreina-
sambands íslands, um fyrirtækin
Hiinnebeck Polska og GT-verktaka
sem hafa ekki skilað inn ráðningar-
samningum erlendra starfsmanna
sinna til Vinnumálastofnunar.
Til stóð að starfsemi þeirra yrði
stöðvuð með lögregluvaldi á mánu-
dag en þeim hefur ítrekað verið
veittur aukinn frestur til að ganga
frá málum sínum.
Skúli er harðorður í garð fyrirtækj-
anna og segir þau vera að misnota að-
stæður á íslenskum vinnumarkaði.
„Ef það er ekki tekið hart á svona
brotum þá er íslenskur vinnumark-
aður á leið í algerar ógöngur. Þessi
fyrirtæki misnota vanþekkingu er-
lendra verkamanna á íslandi og eru
auk greinilega að reyna að komast
hjá því að greiða sambærileg gjöld
og aðrir atvinnurekendur á Islandi.
Ég sé ekki annað en að hér sem um
einbeittan brotavilja að ræða.“
Hann gefur lítið fyrir þá fresti
sem Vinnumálastofnun hefur gefið
fyrirtækjunum tveimur og skilur
ekki af hverju starfsemi þeirra hefur
ekki verið stöðvuð. „ Ef hús brennur
og slökkviliðið er kallað út þá er rétt
að láta það slökkva eldinn. Það er al-
veg fáránlegt að kalla út lögregluna
ef hún á svo ekki að sinna sínu verki.
Hún hefði átt að yfirheyra menn
urn hvort þeir greiddu skatta sínar
og skyldur."
Þrátt fyrir margítrekaðar til-
raunir náðist ekki í Gissur Péturs-
son, forstjóra Vinnumálastofnunar,
við vinnslu fréttarinnar.
thordur@bladid.net
4ra þrepa alvöru sjálfskipting,
1.5 L, 101 hestafla vél, búnaður
og aksturseiginleikar í sérflokki.
Komdu í reynsluakstur
upplifunin verður ánægjuleg.