blaðið - 06.09.2007, Qupperneq 12
12
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
blaöið
§T*W/J
blaöi
Útgáfufélag: Árvakur hf.
Ritstjóri: Ólafur Þ. Stephensen
Fréttastjórar: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Ritstjómarfulltrúi: Elín Albertsdóttir
VIÐHORF
KLIPPT OG SKORIÐ
AFSLATTUR GEGN
AFHENDINGU MIÐANS TIL
1. OKTÓBER 2007 AF ALLT
AÐ 4 SAMLOKUM EÐA
SALÖTUM OG GOSI ÚR VÉL
Oiyggiog
samkeppni í apótekum
STf\ÐA ÍSLEMSKO Þ)'ov bCIKKJbis/v/i/Z 7 þRoUfjog t/PPBKGGfiVfc/7
ul>PLÝSTS •y^E'LFER.-OAAMFÉLA&r * 'T-X oUOLUUX 1
Loksins hillir undir að útgáfa lyf-
seðla færist í nútímahorf. Svo lengi
sem elstu menn muna hefúr útgáfan
verið með þeim hætti, að fólk hefúr
leitað til læknis og fengið afhentan
lyfseðil, eða læknir hefúr hringt í apó-
tek og veitt þær upplýsingar sem
nauðsynlegar eru, svo fólk geti fengið
lyfið sitt í því apóteki. Kosturinn við
að vera með lyfseðilinn í höndunum
hefúr verið sá, að viðkomandi ein-
staklingur getur þá leitað til hvaða
apóteks sem hann kýs, en aðrir segja
símaleiðina betri, enda þurfi lyfja-
fræðingar þá ekki að rýna í þær ill-
skiljanlegu rúnir, sem rithönd sumra
lækna óneitanlega er. Nýtt kerfi raf-
rænna sendinga lyfseðla mun þannig
auka öryggi þeirra sem neyta lyfjanna.
Gamla vinnulagið er löngu orðið
úrelt. Frá næstu áramótum senda
læknar, hvar sem þeir eru á landinu,
lyfseðilinn úr tölvu sinni í svokallaða
lyfjagátt, sameigjnlegt svæði sem apó-
tekin hafa aðgang að. Fólk getur farið
í hvaða apótek sem er og beðið um að
fá lyfin afgreidd þar, í samræmi við
lyfseðilinn í tölvunni
Hagræðingin er skýr. Það verður til
dæmis ekkert mál að sækja lyfin í það
apótek sem er næst vinnunni eða
heimilinu, líkamsræktarstöðinni eða
skólanum, allt eftir því hvað hentar
hverju sinni. Og engin óþægindi af
því að uppgötva í sumarfiríi í öðrum
landsfjórðungi að gleymst hafi að
leysa út lyf áður en ferðin hófst. Þá
nægir að fara í næsta apótek. Valið er
einstaklingsins.
þjóð og víða er verið að stefna að því
að taka þennan hátt upp á næstu ár-
um. Hér á landi er stefnt að því að
helmingur allra lyfseðla verði raf-
rænn í árslok 2007, þ.e. lyfseðlar frá
flestum heilsugæslustöðvum, heil-
brigðisstofnunum og sjúkrahúsum
landsins. í kjölfarið fylgja svo aðrir
læknar.
Það er að miklu að keppa og nægir
að benda á að heildarfjöldi lyfseðla
árið 2004 var tæpar tvær miíljónir.
Full ástæða er til að draga úr þeirri
skriffinnsku eftir mætti.
Fyrir utan almennt hagræði af raf-
rænni útgáfú lyfseðla, þá ætti hún að
ýta undir samkeppni lyfjaverslana. Sú
var tíðin að fólki var beint í viðskipti
við apótek sem viðkomandi læknir
áttí í viðskiptasambandi við. Með raf-
rænu lyfseðlunum verður fólki al-
gjörlega í sjálfsvald sett við hvaða
apótek það skiptír. Tengsl lækna og
apóteka ættu þar engu máli að skipta.
Hitt er svo líka uppi á borðinu, að
rafrænir lyfseðlar auki ekki aðeins
samkeppni milli apóteka hér á landi,
heldur ýtí undir að virk samkeppni
komist á frá apótekum í öðrum lönd-
um. Aðilar með fúUgild lyfsöluleyfi í
Evrópu gætu fengið aðgang að ís-
lensku lyfjagáttinni og þannig afgreitt
lyf eftír íslenskum, rafrænum lyfseðl-
um og sent þau til íslands. Þessi
möguleiki er raunhæfúr. Þar með
myndu íslensku apótekin fá sam-
keppni svo um munaði.
Höfundur er aðstoðarmaður heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra
Þáttastjórnandi
Morgunvakt-
arinnar gat
ekki á sér setið við
leiðaralestur dag-
blaðanna í gær-
morgun og sagði áður en hann
hóf lestur úr leiðara DV að rit-
stjórinn nýi við hlið Sigurjóns M.
Egilssonar, Reynir Traustason,
væri „harðorður". Leiðarinn ber
yfirskriftina: „Taktu pokann þinn,
Björn.“ Svo ritar Reynir: „Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
virðist bera takmarkaða virðingu
fyrir Iýðræðislegum leikreglum."
Svo rekur Reynir „flumbrugang"
ráðherrans þar sem Hæstiréttur
dæmdi að reglugerð, sem sett var
til að tryggja saksóknara efna-
hagsbrotadeildar ákæruvald,
stangaðist á við lög. „Björn er þó
fjarri því að taka þennan áfells-
dóm alvarlega. Hann ypptir bara
öxlum og segir þetta tæknileg
mistök."
Reynir segir ummæli Björns
lýsa hroka og léttúð gagnvart
embættinu sem hann gegni, en
völd Björn séu tilkomin vegna
ætternis og uppruna. „Sjálfstæð-
isflokkurinn verður að hreinsa til
og henda út seinustu risaeðlunni
frá Daviðstímanum.“
Björn Bjamason virðist þó
ekki kippa sér upp við
harkaleg orð í sinn garð
og minnist ekki
einu orði á þau á
heimasíðu sinni.
Klippari veltir
fyrir sér hvort
hin hörðu um-
mæli séu tilraun til að auka
lestur blaðsins. Að leiðarinn sé
þá „snilldarherbragð“ eins og
Guðmundur Oddur Magn-
ússon í Listaháskólanum lýsti
Símaauglýsingunni nýju, því
nú vitnar klippari í orð Reynis
og veitir DV ókeypis umfjöllun
og þar með ff ía auglýsingu.
Er þetta leiðin til að þjóna
„litla manninum í samfélag-
inu“?
gag@bladid.net
Öryggi
I umræðu um misnotkun lyfja
heyrist stundum að allt of auðvelt sé
að nálgast lyf annars fólks í apótek-
um. Dæmi eru um að fólki, sem
hyggst misnota lyf, takist að leysa út
lyf í apóteki með því einu að spyrjast
fyrir um hvort ekki sé þar að finna
lyfseðil á ákveðnu nafni. Rafrænar
sendingar lyfseðla setja auðvitað ekki
undir þann leka, þvert á móti. Hins
vegar verður að gera þá kröfú til
Hanna Katrín Friðriksson
starfsfólks apóteka að fólk sýni per-
sónuskilríki þegar það leysir út lyf og
þá sérstaklega lyf sem vitað er að eru
ávanabindandi eða hættuleg að öðm
leyti.
Samkeppni
íslendingar hafa verið eftirbátar
frændþjóðanna varðandi rafrænar
sendingar lyfseðla því þær hafa þegar
verið teknar upp í Danmörku og Sví-
Að umbera
þriðju kynslóðina
Síminn, stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins, hefur að undanförnu spurt
í auglýsingum: „Hvað er Síminn?“ Og í öðrum auglýsingum er því svarað
á óteljandi vegu fýrir hvað Síminn stendur.
Nú hefur eitt svar bætzt við: Síminn er fyrirtæki, sem finnst í góðu lagi
að spauga dálítið með trúarbrögðin til að ná sér í athygli. Það fer ekkert á
milli mála að stjórnendur Símans vissu að auglýsingin hlyti að verða um-
deild, enda var það líklega markmiðið. Deilurnar um hana eru ókeypis
auglýsing; hún er „snilldarherbragð" eins og prófessor við Listaháskólann
kvað upp úr með hér í Blaðinu í gær.
Möguleikarnir, sem liggja í því að spauga með hluti sem fólki eru heil-
agastir og ná sér þannig í ókeypis auglýsingu, eru óþrjótandi. Hér heima
gæti Síminn náð umtalsverðum árangri í markaðssetningu með til dæmis
spaugilegri notkun á þjóðfánanum eðá skjaldarmerkinu í auglýsingum.
Og á alþjóðlegum vettvangi er líka hægt að vekja heilmikla athygli, ef fyr-
irtæki eru í útrásarhugleiðingum. Fyrst héraðsfréttablaði í Svíþjóð tekst að
ná heimsathygli með illa teiknaðri mynd af Múhameð, gæti Síminn þá
ekki náð viðlíka árangri með flottri auglýsingu, þar sem spámaðurinn
hringir til dæmis í fjallið með þriðjukynslóðarsímanum sínum og skipar
því að koma?
Það er ekki nokkur ástæða til að kæra Símann, banna honum að birta
auglýsinguna sína eða neitt af því tagi. Á íslandi ríkir tjáningarfrelsi, sem
sjálfsagt er að fólk noti. Birting auglýsinga af því tagi, sem Síminn telur
skila góðum árangri, byggist fyrst og firemst á dómgreind og smekk og
Síminn telur sig ljóslega hafa hvort tveggja til að bera.
Kannski munu forsvarsmenn Símans - og annarra fýrirtækja, sem
standa í hinni stöðugu baráttu um athygli neytenda - þó velta fýrir sér
hvort slík athygli, sem yfirleitt stendur í stuttan tíma og skilar þá vænt-
anlega skammtímahagnaði, kann að verða á kostnað þeirrar ímyndar, sem
yfirleitt tekur fyrirtæki langan tíma að byggja upp.
Fyrir kirkju og kristni í landinu skiptir birting á svona auglýsingu engu
máli. Kristindómurinn er sterkara afl en svo að ein auglýsing hafi einhver
áhrif á hann. Kannski verða sumir pirraðir á þriðju kynslóðinni, svona
eins og frelsarinn sjálfur þegar hann sagði: „Ó, þú vantrúa og rangsnúna
kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður og umbera yður?“ En í hinu tvö
þúsund ára sögulega samhengi kristindómsins, sem Síminn reynir raunar
af veikum mætti að setja sig í, er ekkert vandamál að umbera eina auglýs-
ingu.
Ólafur Þ. Stephensen
SÆKTU LEIÐARANN A WWW.MBL.IS/PODCAST
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjóm & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavik
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladidxiet frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Landsprent ehf.