blaðið - 06.09.2007, Side 18
18
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
blaöiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Miðað við það sem Nova kynnti fyrir okkur
þegar umsókn um leyfin lá fyrir mátti ráða að
þeir væru því sem næst tilbúnir og því undrast
ég þann tíma sem þeir telja sig þurfa.
Fjórfaldur hagnaður
Hagnaður Sparisjóðs Bolungarvíkur nam 230 milljónum króna á fyrri
helmingi ársins samanborið við 62 milljóna króna hagnað á fyrri hluta
ársins 2006.
Stjórnendur sparisjóðsins gera ráð fyrir að afkoma á seinni hluta
ársins verði góð þó að ekki sé gert ráð fyrir sömu hækkunum á verð-
bréfum sjóðsins á seinni hluta ársins. mbl.is
Útboð til aukning-
ar stofnfjár Byrs
Ákveðið hefur verið að auka
stofnfé Byrs sparisjóðs um tæpa
þrjá milljarða með útboði þar
sem stofnfjáreigendum verður
boðið að skrá sig fyrir nýju
stofnfé. Heildarnafnverð nýs
stofnfjár í útboðinu er um 1,6
milljarðar og er verð hvers stofn-
fjárhlutar um 1,90 krónur.
Ragnar Z. Guðjónsson, spari-
sjóðsstjóri hjá Byr, segir útboðið
forsendu þess að hægt sé að ná
skiptihlutföllum sem gert sé ráð
fyrir í fyrirhuguðum samruna
við Sparisjóð Kópavogs (SPK). aí
Bregðast við
óróa á markaði
Seðlabanki Evrópu sagðist í gær
fylgjast grannt með þróun mála
á peningamarkaði og myndi
bregðast við ef útlit væri fyrir
viðvarandi óróa þar. Evrópsk
hlutabréf lækkuðu í verði í gær
og bandarísk hlutabréf lækkuðu
þegar viðskipti hófust á Wall
Street. Þau hækkuðu í gærkvöldi
þar sem líkur þóttu hafa aukist
á að bandaríski seðlabankinn
myndi lækka vexti. mbi.is
Jómfrúarflugi
Dreamliner frestað
Jómfrúarflugi þotunnar Boeing
787 Dreamliner hefur aftur verið
frestað, nú um þrjá mánuði. Boeing
reiknar nú með að jómfrúarflugið
verði farið á tímabilinu frá miðjum
nóvember og fram í miðjan des-
ember. Vélarnar eiga þó sem fyrr
að verða afhentar viðskiptavinum
á réttum tíma, eða í maí á næsta
ári. Icelandair er meðal þeirra flug-
félaga sem hafa samið um kaup á
Dreamliner.
Dreamliner er fyrsta stóra farþega-
flugvélin sem smíðuð er að mestu
úr samsettum plasttrefjaefnum. Að
sögn Boeing gerir það vélina léttari,
sparneytnari og ódýrari í viðhaldi.
aí
Síminn einn um
hituna í fyrstu
■ Síminn eina fyrirtækið með 3G~þjónustu ■ Neytendur bíða
samkeppni til áramóta þegar Nova og Vodafone hefja þjónustu
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
„Það kom náttúrlega aldrei til
greina að leggja einhvern stein
í götu Símans en fyrir mitt leyti
kemur á óvart að Nova skuli ekki
vera komið lengra áleiðis,” segir
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst-
og fjarskiptastofnunar. Fyrir liggur
að Síminn verður einráður á mark-
aði þriðju kynslóðar farsíma- og net-
þjónustu fram undir árslok þegar
fyrirtækið Nova i samstarfi við
Vodafone ætlar fyrst að bjóða neyt-
endum sambærilega þjónustu.
Þriðju kynslóðar dreifikerfi gefa
farsíma- og tölvunotendum marg-
faldan gagnaflutningshraða en áður
hefur þekkst og opnar margvíslegar
nýjar víddir fyrir þá sem nýta vilja
sér þjónustuna. Myndsímtöl, sjón-
varp og netsamband í símann og
fartölvuna nánast hvar og hvenær
sem er. Um sannkallaða byltingu
er að ræða og kemur mörgum á
óvart að aðeins eitt fyrirtæki sitji
að slíku gnægtaborði í fleiri mán-
uði en Síminn hyggst eðlilega nýta
sér forskot sitt til hins ítrasta og
býður notendum sínum að hringja
myndsímtöl sér að kostnaðarlausu
fram í nóvember næstkomandi.
Viðbúið að Síminn yrði fyrstur
Forsvarsmenn Nova hafa þó
engar sérstakar áhyggjur enda hafi
verið viðbúið frá því leyfin voru
veitt að Síminn hefði umtalsvert for-
skot enda bendir Liv Bergþórsdóttir
framkvæmdastjóri á að ekki aðeins
þurfti Nova að byggja upp dreifi-
kerfi sitt heldur einnig að byggja
upp innviði fyrirtækisins sem er ný-
lega stofnað. „Það lá alltaf fyrir að
við gætum ekki boðið þjónustuna
á sama tíma en við erum engu að
síður óhrædd við að taka slaginn.
Dæmin sýna að það þarf ekki endi-
lega að vera neikvætt að vera seinni
með nýjungarnar heldur snýst þetta
um að bjóða samkeppnishæft verð
og gæði þegar þar að kemur og það
munum við kappkosta.”
Hrafnkell V. Gíslason segir ill-
mögulegt hafa verið við útboð á 3G-
leyfunum að tiltaka sérstaklega hve-
Þriðja kynslóðin Síminn
verður einn á markaði fyrstu
mánuðina og býður ókeypis
SÍmtÖI. Blaöiö/BrynjarGauti
nær þjónustan ætti að hefjast en þó
hafi verið sett ákveðin tímamörk.
,Það var meðal annars gert í þágu
neytenda svo að þau fyrirtæki sem
leyfin fengu yrðu að vera tilbúin
innan ákveðins tíma en við sáum
ekki fyrir að um nokkurra mán-
aða forskot yrði að ræða á þessum
markaði. Miðað við það sem Nova
kynnti fyrir okkur þegar umsókn
um leyfin lá fyrir mátti ráða að þeir
væru því sem næst tilbúnir og því
undrast ég þann tíma sem þeir telja
sig þurfa.”
MÍNÚTUVERÐ
► Síminn
Mínútuverð á myndsímtali*:
29 kr. innan kerfis
39 kr. utan kerfis
* eftir fyrsta nóvember
Almennt mínútuverð:
11,50 kr. innan kerfis
22,50 kr. í önnur farsímakerfi
► Nova
Engin ákvörðun tekin um
gjaldskrá að svo stöddu
Grandagarði 3
Sími: 552-9940
TSALA.N ER HAFIN
liWf
15-75% AFSLATTUR
Vpininnrtin
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 5. sept. 2007
Wðskipti (krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð i lok dags:
verö breyting viösk.verös viöskipta dagsins Kaup Sala
Félög í úrvalsvísitölu
▲ Atorka Group hf. 10,01 3,20% 5.9.2007 19 938.581.771 9,90 10,00
■* Bakkavör Group hf. 66,30 -0,15% 5.9.2007 14 74.057.998 65,70 66,30
▼ Existahf. 33,75 -0,59% 5.9.2007 37 329.759.315 33,65 33,95
a FLGrouphf. 26,70 1,91% 5.9.2007 42 707.222.675 26,75 26,85
a Glitnir banki hf. 28,75 1,05% 5.9.2007 120 6.810.366.721 28,70 28,75
▼ Hf. Eimskipafélag (slands 40,95 -0,12% 5.9.2007 4 2.001.882 40,95 41,20
▼ lcelandair Group hf. 27,55 -0,54% 5.9.2007 13 156.064.000 27,45 27,70
▼ Kaupþing banki hf. 1149,00 -0,26% 5.9.2007 63 1.107.432.027 1145,00 1146,00
▼ Landsbanki íslands hf. 41,70 -0,48% 5.9.2007 23 1.048.480.529 41,65 41,70
Mosaic Fashions hf. 17,50 - 4.9.2007 - - - -
▼ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 20,20 ■0,74% 5.9.2007 44 208.390.386 20,10 20,20
a Teymi hf. 6,19 0,65% 5.9.2007 15 32.461.958 6,19 6,25
▼ össurhf. 104,00 -0,48% 5.9.2007 3 311.118 104,50 105,50
Onnur bréf á Aðallista
♦ 365 hf. 2,65 0,00% 4.9.2007 - - 2,64 2,66
a Alfescahf. 6,12 1,83% 5.9.2007 14 95.905.100 6,10 6,12
a Atlantic Petroleum P/F 1075,00 0,47% 5.9.2007 6 3.702.280 1070,00 1080,00
♦ EikBanki 693,00 0,00% 4.9.2007 - - 690,00 695,00
♦ Flaga Group hf. 1,55 0,00% 5.9.2007 1 30.000 1,54 1,56
♦ Foroya Bank 225,00 0,00% 5.9.2007 12 2.467.341 225,00 228,00
lcelandic Group hf. 5,95 - 22.8.2007 - - 5,90 5,98
* Marelhf. 100,00 3,31% 5.9.2007 18 107.816.000 100,00 100,50
Nýherji hf. 21,50 - 30.8.2007 - - 21,50 21,90
a Tryggingamiöstöðin hf. 45,30 11,85% 5.9.2007 26 20.396.405.245 45,20 45,30
Vmnslustöðin hf. 8,50 - 22.8.2007 - - - 9,00
First North á íslandi
a Century Aluminium Co. 3320,00 3,43% 5.9.2007 10 99.076.000 3320,00 3355,00
♦ HB Grandi hf. 12,00 0,00% 4.9.2007 - - - -
Hampiðjan hf. 6,50 - 5.9.2007 1 2.528.435 - 6,60
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX
í gær voru með bréf Trygginga-
miðstöðvarinnar, fyrir um 20,4
milljarða króna.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Tryggingamiðstöðvarinnar, eða
11,85%. * Mesta lækkunin var á
bréfum Straums-Burðaráss, eða
0,74%. Bréf Exista lækkuðu um
0,59% og bréf Icelandair Group um
o,54%-
• Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,06% í gær og stóð í 8.279 stigum
í lok dags.
• fslenska krónan veiktist um
0,21% í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
lækkaði um 2,04% í gær. Breska
FTSE-vísitalan og þýska DAX-vísi-
talan lækkuðu báðar um 1,7%.