blaðið - 06.09.2007, Page 20
-it
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007
blaöiö
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@bladid.net
Að sníða líf sitt eftir hug-
myndum annarra jafngildir því
að vera þræll.
Lawana Blackwell
AFMÆLI í DAG
Joseph P. Kennedy fjárfestir og
embættismaður, 1888
Jane Addams umbótakona,
1860
METSÖLULISTI
Innlendar bækur
1. Leyndarmálið
Rhonda Byrne
2. Made in lceland - ensk
Sigurgeir Sigurjónsson
3. Spænsk íslensk orðabók - ný
Mál og menning
4. Lost in lceland - ensk
.Sigurgeir Sigurjónsson
5. Ensk orðabók - gul
Orðabókaútgáfan
6. Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
7. Viltu vinna milljarð? - kilja
Vikas Swarup
8. Þú ert það sem þú hugsar
Guðjón Bergmann
9. Konungsbók - kilja
Arnaldur Indriðason
10. íslensk dönsk / Dönsk íslensk
vasaorðabók Mál og menning
Listinn er gerður út frá sölu I Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar dagana 29.06 - 04.09.
METSÖLULISTI
Erlendar bækur
1. The Innocent Man
John Grisham
2. The Secret
Rhonda Byrne
3. Harry Potter & the Deathly
Hallows J.K. Rowlin
4. The Afghan
Frederick Forsyth
5. Stardust
Neil Gaiman
6. Next
Michael Crichton
7. The Moomin Book 1
Tove Jansson
8. The Right Attitude to Rain
Alexander McCall Smith
9. The Bourne Ultimatum
Robert Ludlum
10. Blind Willow, Sleeping Woman
Haruki Murakami
Listinn er gerður út frá sölu í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar dagana 28.06 - 03.09.
FÖSTUDAGAR
LÍFSSTÍLLBÍLAR
Auglýsingasímjnn er
510 3744
Fjölbreytt haustdagskrá Listasafns Reykjavíkur
Uppreisn og fagurfræði
Hafþór Yngvason „I Hafnarhúsinu ætlum við að notfæra okkur nálægðina sem er
við götuna, þar sem stórir gluggar eru eins og hlið út í borgina. Við ætlum að virkja ís-
lenska og erlenda listamenn og fá þá til að vinna út frá tengslum safnsins og götunnar."
Hafþór Yngvason segir
haustdagskrá Listasafns
Reykjavíkur einkennast
af stórum sýningum
íslenskra listamanna.
Þar á meðal má nefna
yfirlitssýningar á verkum
Eggerts Péturssonar og
Hreins Friðfinnssonar.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
Listasafn Reykjavíkur hefur
hauststarfsemi sína með gjör-
ólíkum sýningum. 1 Hafnarhúsinu
sýnir Gjörningaklúbburinn og á
Kjarvalsstöðum verður opnuð um
helgina yfirlitssýning á verkum
Eggerts Péturssonar og þar verður
einnig sýning á lágmyndum eftir
Helga Gíslason sem ekki hafa verið
sýndar opinberlega áður. í Norður-
sal Kjarvalsstaða verður sýning og
opin listsmiðja um byggingarlist
fyrir ungt fólk.
Uppreisn gegn hefðunum
„Þessar sýningar eru í anda
þeirrar stefnu sem ríkir í þessum
tveimur húsum,“ segir Hafþór Yng-
vason, safnstjóri Listasafns Reykja-
víkur. „Sýning Gjörningaklúbbsins
er spennandi fyrir þá sem vilja sjá
ákveðna uppreisn og sýning Eggerts
er einstaklega falleg. Muninum á
sýningum í Hafnarhúsinu og á Kjar-
valsstöðum má kannski líkja við það
þegar menn eru í stórri borg eins og
Boston og ætla sér á myndlistarsýn-
ingu. Þeir sem vilja uppreisn gegn
hefðunum velja að fara í Institute of
Contemporary Art en þeir sem vilja
einfaldlega gera sér dagamun og sjá
vandaða sýningu fara í Museum of
Fine Arts. Við erum að reyna að
byggja upp þennan mun þannig
að fólk geti fundið sýningar við sitt
hæfi.“
Hafþór segir haustdagskrá safns-
ins einkennast af stórum sýningum
íslenskra listamanna. f D-sal Hafn-
arhússins munu Jóhannes Atli Hin-
riksson og Karlotta Blöndal sýna
verk sín. í nóvembermánuði verður
Margrét Blöndal með innsetningu. f
sama mánuði sýnir Birgir Snæbjörn
Birgisson á Kjarvalsstöðum seríu
af ljósum myndum af ljóshærðum
fegurðardrottningum.
Sú sýning sem sennilega mun
vekja mesta athygli er sýning í Hafn-
arhúsinu á verkum eftir Hrein Frið-
finnsson, en þetta er sama sýning
og var í einu helsta safni Bretlands,
Serpentine, og vakti gríðarlega at-
hygli þar í landi. „Þessi sýning sam-
anstendur af verkum eftir Hrein frá
Finnlandi, Hollandi, Frakklandi,
íslandi, Englandi og víðar. Þarna
er mikið af verkum sem hafa aldrei
áður sést á íslandi," segir Hafþór.
.Hreinn er vel þekktur á meginlandi
Evrópu en sýningin í Serpentine
var svo að segja fyrsta kynning á
honum í Englandi. Metaðsókn var
að sýningunni sem er stórmerkilegt
miðað við að þar í landi er hann
svo að segja óþekktur, og dómarnir
voru frábærir."
Tengsl safns og götu
Hafþór segir að það sé þáttur í
stefnu Listasafns Reykjavíkur að
nýta Hafnarhúsið og Kjarvalsstaði
betur. „Á Kjarvalsstöðum ætlum
við að nota forsalina meira. Birtan
þar inni er mjög skemmtileg og högg-
myndir njóta sín þar vel. I Hafnar-
húsinu ætlum við að notfæra okkur
nálægðina sem er við götuna, þar
sem stórir gluggar eru eins og hlið
út í borgina. Við ætlum að virkja ís-
lenska og erlenda listamenn og fá þá
til að vinna út frá tengslum safnsins
og götunnar. Þessi hugmynd getur
tekið á sig alls kyns form, listaverk
geta til dæmis teygt sig út á strætið
fyrir framan Tryggvagötuna eða
verið í gluggunum.
Það er munur á þessum tveimur
húsum, Kjarvalsstöðum og Hafnar-
húsinu. Kjarvalsstaðir voru byggðir
í anda módernismans til að útiloka
umhverfið og skapa annað um-
hverfi innan dyra þar sem fólk getur
einbeitt þér algjörlega að listaverk-
unum. í Hafnarhúsinu viljum við
opna gluggana og taka umhverfið
inn í salinn."
20% afsláttur
af öllum vörum
MIÐVIKUDAG, FIMMTUDAG,
FÖSTUDAG OG LAUGARDAG
Sœngurfataverslun, Glœsibœ • Sími 552 0978
www.damask.ls
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
MENNINGARMOLINN
Kurosawa deyr
Á þessum degi árið 1998 lést japanski leikstjórinn Akira
Kurosawa, 88 ára gamall. Kurosawa naut virðingar um
allan heim fyrir gríðarlega vandaðar og vel hugsaðar kvik-
myndir sem er sjónræn nautn að horfa á. Enginn sem
horfir á myndir Kurosawa getur komist hjá þvi að verða
var við þá ríku mannúðarstefnu sem einkennir myndir
hans.
Hann varð á unga aldri fyrir miklum áhrifum af banda-
rísku leikstjórunum John Ford, William Wyler og Howard
Hawks. Hann leikstýrði fyrstu kvikmynd sinni árið 1943
og vakti heimsathygli árið 1950 fyrir mynd sína Ras-
homon sem fjallaði um afstæði sannleikans. Evrópskir
og bandarískir leikstjórar urðu margir fyrir miklum
áhrifum af Kurosawa og meðal eldheitra aðdáenda eru
George Lucas, Steven Spielberg og Francis Ford Coppola.