blaðið - 06.09.2007, Side 26

blaðið - 06.09.2007, Side 26
IÞROTTIR ithrottir@bladid.net 4 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2007 Rígur er mikill milli allra liðanna fjögurra og eykur það skemmtanagildið til muna fyrir áhorfendur. íþróttin er vissulega hörð en þannig á það líka að vera og verður að vera ef ísland ætlar sér nokkurn tíma árangur í greininni utan landsteinanna. SKEYTIN INN Helsti ráðgjafi forseta « Real Madrid, Miguel Portugal, léthafaeftir sérá spænskxi útvarps- stöð í gær að ef örlítil áhersla hefði verið lögð á unglingastarf fé- lagsins þegar stjörnufarganið var sem mest fyrir fimm árum gætu þeir Giovani dos Santos, Cristi- ano Ronaldo og Leo Messi verið leikmenn hðsins í dag. Portugal veit hvað hann talar um en hann stjórnaði einmitt unglingastarfi liðsins á þeim tíma, en það mætti „ þá afgangi hjá forseta þess. T| oman |-c Abramov- X Vich, eigandi Chelsea, er haldinn mikil- mennskubrj álæði afhæstugráðu ef - marka má fréttir úr herbúðum liðsins. Ærðist hann svo mjög við tap Chelsea gegn Aston Villa um helgina að hann hellti sér yfir Mourinho þjálfara sem svaraði eins og hans er von og vísa í sömu mynt. Er staða hans talin veik fyrir vikið enda ekki í fyrsta sinn sem þeim lendir saman. Yngri sonur knattspyrnu- goðsins danska Michaels ^ Laudrup, hinn 17 ára gamli Andre- as Retz Laudrup, æfir nú með unglingaliði Real Madrid en engum sögum fer af því hvort strákurinn hefur erft hæfileika föðurins. Pabbinn er ekki langt frá enda þjálfari Getafe sem er iðnaðarúthverfi í höfuðborginni spænsku. Stríð gæti verið í upp- siglingu milli landsliðseinvalds Englands, Steve McLaren, og stjóra Liverpool, Rafa Benítez, en McLaren vill að Steven Gerrard verði sprautaður niður til að geta leikið með lands- liðinu gegn Israel um helgina. Leikmaðurinn er tábrotinn og hefúr verið sprautaður niður að undanförnu en það þykir ekki heillavænlegt til lengdar og Rafa vill ekki heyra á það minnst. Ljóst er að Manchest- er City er ekkert að fara í keppnisferðalag til Taílands næstu árin. Eigandi þess, Thaksin Shinawatra, er eftirlýstur í landinu fyrir mannréttindabrot og Thaksin missir ekki af leik með liði sínu. ][ uventus sækir I þaðnúhart að fá Michael allacklánað- an eftir að ljóst varð að hann er í raun ekki inni - í myndinni lengur hjá Mourin- ho.þjálfara Chelsea. En fleiri félög hafa áhuga, sérstaklega þar sem hann mun geta leikið í Meistaradeildinni með öðru liði eftir áramótin. Real Madrid hefur forvitnast en áhuginn þar takmarkast aðeins við sljórnarmenn sem vilja græða á seldum skyrtum. Aðdáendur eru langþreyttir á svoleiðis rugli. Tölfræðin úr fyrstu leikjum úrvalsdeildarinnar kemur á óvart Didier Drogba grófastur Ýmislegt forvitnilegt kemur í ljós þegar skoðuð er töl- fræði leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu umferðirnar. Fáir hefðu til dæmis rennt f grun að Didier Drogba hefði brotið mest af sér hingað til eða að hinn rándýri Fernando Torres væri aðeins með 20 prósenta skotnýtingu. Drogba hefur til að mynda brotið af sér 17 sinnum í aðeins fimm leikjum sem er með því mesta fyrir sókn- armann. Hann er hins vegar afar séður því aðeins einu sinni hefur hann fengið gult spjalt fyrir brotin. Fern- ando Torres kemur við sögu á tveimur stöðum í helstu tölfræðinni. Annars vegar er hann fremstur í flokki með að hitta markið úr skotum sínum en 15 spörk hans hafa ratað rétta leið. Hins vegar nýtast aðeins 20 pró- sent þeirra til marka sem er dapurt miðað við Michael Chopra hjá Sunderland en 67 prósent skota hans enda í netinu. Þá er Kasper Schmeichel fremstur markvarða en hann hefur varið 91 prósent allra skota á mark sitt. Kl. 19.20 Björninn - Skautafélag Akureyrar Kl. 20.35 Skautafélag Reykjavíkur - Narfinn Kl. 21.50 Skautafélag Reykjavíkur - Skautafélag Akureyrar Kl. 23.05 Narfinn - Björninn Blaöiö/ÞÖC Slaeurinn að hefjast Hraðmót í íshokkí Frítt inn og frábær skemmtan Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Það væri kannski að bera í bakka- fullan lækinn að tala um að öll bestu íshokkílið landsins taki þátt í hrað- bikarmóti sem fram fer í Egilshöll í dag og á morgun. Þannig er það nú samt enda félögin aðeins fjögur tals- ins og hvert um sig getur á góðum degi unnið öll hin. Áhugasamir eru hvattir til að mæta enda gerast íþróttir ekki hraðari og meira spenn- andi, sérstaklega þegar um hraðmót er að ræða, en með mótinu hefst ís- hokkítímabilið formlega. Skautafélag Reykjavíkur, Skauta- félag Akureyrar, Björninn og Narfi taka þátt í mótinu sem er óhefð- bundið. Aðeins er leikið í tvisvar sinnum 15 mínútur með nokkurra mínútna hléi en venjulegur íshokk- íleikur skiptist í þrjá 20 mínútna leikhluta. Mikil undiralda Annars er mikil undiralda hvað íshokkí snertir hér á landi og fjöldi TÖLFRÆÐIN Fjögur íslensk félagslið Tvö frá Reykjavík og tvö að norðan ► 700 einstaklingar alls æfa íþróttina í dag ísland er í 37. sæti á heimslistanum þeirra sem stunda íþróttina og æfa reglulega hefur margfaldast á skömmum tíma í kjölfar uppbygg- ingar á skautahöllum í landinu. Þær eru þó nú þegar orðnar yfirfullar og sést það kannski á því að um- rætt Aseta-hraðbikarmót er leikið í kvöld og annað kvöld stanslaust frá kvöldmatartíma til tæplega ellefu um kvöldið. Er því um fína veislu fyrir aðdáendur að ræða en ráð er að taka með sér púða undir aftur- endann ætli fólk sér að fylgjast með frá upphafi til enda. Enginn bróðir í leik Rígur er mikill milli allra liðanna fjögurra og eykur það skemmtana- gildið til muna fyrir áhorfendur. lþróttin er vissulega hörð en þannig á það líka að vera og verður að vera ef ísland ætlar sér nokkurn tíma árangur í greininni utan landstein- anna. Enginn varð svikinn af fimm leikja úrslitabaráttu SA og SR um titilinn í vor sem leið en síðasta úr- slitaleiknum fylgdi allt sem fylgja á skemmtilegum leik; þrotlaus barátta í venjulegum leiktíma og gegnum framlengingu og þurfti vítakeppni til að knýja fram úrslit. Vonandi leggur sá leikur línurnar fyrir mótið nú. Nadal búinn Tenniskappinn Rafael Nadal er úr leik á Opna bandaríska meistaramótinu eftir tap í maraþonviðureign gegn Spánverjanum David Ferrer. Lék Ferrer afar vel en Nadal var í tjóni; vafinn um bæði hnén auk meiðsla á annarri hendi en vildi ekkert um það tala eftir ósigurinn. Það væri aðeins um afsökun að ræða. Nadal hefur vart tekið pásu í heilt ár og leikgleðin farin að taka toll. Parker maðurinn NBA-leikmaðurinn Tony Parker var allt í öllu í 69-62 sigri Frakka á ítölum í Evrópu- keppni landsliða í körfuknatt- leik. Skoraði stjarnan heil 36 stig og átti auk þess fjölda stoðsendinga. Þjóðverjinn Dirk Nowitski er engu að síður stigahæstur í keppninni með tæp 30 stig að meðaltali í leik. Tiger efstur Óbreytt staða er á toppi heims- listans í golfi eftir mót ágúst- mánaðar. Tiger Woods heldur öruggri forystu sinni sem er það mikil að næsti maður, Phil Mickelson, þarf nokkra sigra til þess eins að nálgast hann. Mickelson skipti um sæti við Jim Furyk og Geoff Ogilvy og K.J. Choi höfðu sæta- skipti í 8. og 9. sætinu en að öðru leyti er tíðindalaust. Rússar ráðvilltir Rússar mega muna sinn fífil fegri í íshokkíi og hefur landslið þeirra farið hægt og sígandi hallloka seinni árin. Besta dæmið er að liðið hefur ekki unnið neinn leik í sérstakri rimmu við Kanada, sem kallast Super Series, en fimm leikir eru búnir. Fjórir þeirra fóru fram í Rússlandi og næstu fjórir í Kanada en staðan er 5-0 fyrir Kanada- menn og þrír síðustu leikirnir verða á þeirra heimavelli.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.