blaðið - 25.09.2007, Page 2
2
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007
blaöiö
Ólafur Ragnar verðlaunaður
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, tók á sunnudag við
verðlaunum fyrir forystu á al-
þjóðavettvangi í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum og fyrir að
stuðla að nýrri sýn á nýtingu
hreinnar orku víða um heim.
Verðlaunin eru veitt af Louise T.
Blouin-stofnuninni sem árlega
heldur leiðtogafund í New York
sem helgaður er þörfinni á nýrri
forystu í alþjóðamálum - Global
Creative Leadership Summit.
Aðrir sem hlotið hafa verðlaunin
eru William Jefferson Clinton,
fyrrverandi forseti Bandaríkj-
anna, og Abdullah II., konungur
Jórdaníu. aþ
Þingað um
Hatton Rockall
Fulltrúar fjögurra ríkja, sem gera
tilkall til landgrunns á Hatton
Rockall-svæðinu á Norður-Atl-
antshafi, þinga hér á landi í vik-
unni. íslensk stjórnvöld vilja að
ríkin fjögur komi sér fyrst saman
um skiptingu svæðisins og leggi
síðan fram sameiginlega greinar-
gerð um ytri mörk svæðisins fyrir
landgrunnsnefnd Sameinuðu
þjóðanna.
Fulltrúar íslendinga, Breta, íra
og Dana, fyrir hönd Færeyinga,
munu eiga viðræður hér á landi
næsta miðvikudag og fimmtudag
um Hatton Rockall-málið. Við-
ræðurnar snúast um yfirráð yfir
landgrunni, þ.e.a.s. hafsbotni,
á Hatton Rockall-svæðinu á
Norður-Atlantshafi.
Öll ríkin fjögur gera tilkall til ein-
hvers af landgrunninu á Hatton
Rockall-svæðinu og segir Tómas
H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur
í utanríkisráðuneytinu, kröfur
ríkjanna skarast verulega og því
um umdeilt svæði að ræða.
Tómas segir að fjórhliða við-
ræður ríkjanna hafi hafist
haustið 2001 að frumkvæði
f slendinga og að þeim hafi verið
fram haldið reglulega síðan. „Á
fundinum nú verða sérstaklega
til umræðu hugsanlegar leiðir til
skiptingar landgrunnsins á svæð-
inu milli aðilanna.“
Hlutafé Alfesca
skráð í evrum
Hluthafar í matvælafyrirtækinu
Alfesca samþykktu nú rétt fyrir
fréttir að fyrirtækinu væri heim-
ilt að skrá allt sitt hlutafé í evrum.
Helstu markaðir þess eru á Spáni,
í Frakklandi og Bretlandi og því
eru nær allar tekjur og gjöld fyrir-
tækisins í evrum og pundum. Ól-
afur Ólafsson, stjórnarformaður
fyrirtækisins, sagði í samtali
við fréttastofu Útvarps að þetta
væri gert til að lágmarka áhættu
fjárfesta af sveiflum íslensku
krónunnar.
Alfesca ætlar einnig að auka
hlutafé sitt um 20% eða um 11
milljarða króna.
Orkuveitan
nýr hluthafi
í gær var það staðfest að Orku-
veita Reykjavíkur yrði nýr hlut-
hafi í Landsneti hf. þegar hlut-
hafafundur Landsnets heimilaði
að auka hlutafé fyrirtækisins um
400 miljónir króna með útgáfu
nýrra hluta til OR.
Hluthafafundurinn staðfesti
þannig samning sem gerður var
í lok ágúst á milli fyrirtækjanna
og fól í sér kaup Landsnets á flutn-
ingsvirkjum í eigu OR á 1.300
miljónir króna og er hluturinn
hluti af þeirri greiðslu. Landsnet
greiðir þær 900 miljónir sem
eftir standa í reiðufé. ejg
mbl.is
Ritstjóri stefnir vegna meiðyrða
Meiðyrðamál Bjarna Brynjólfssonar gegn Elínu Guðrúnu Ragnars-
dóttur verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Bjarni var rit-
stjóri Séð og Heyrt þar til í júní í fyrra er tionum var sagt upp störfum.
Elín, sem þá var framkvæmdastjóri tímaritaútgáfu Fróða, sakaði
Bjarna um fjársvik en ekki var gefin út ákæra á hendur honum.
Flugþjónustan misnotaði markaðsráðandi stöðu að mati héraðsdóms
60 milljóna sekt
Staðfesta
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær að Flugþjónustan
á Keflavíkurflugvelli (IGS) hefði
misnotað markaðsráðandi stöðu
sína við afgreiðslu farþegaflugvéla.
Staðfestir hann því niðurstöðu Sam-
keppniseftirlitsins sem komst að
sömu niðurstöðu í mars í fyrra.
Upphaf málsins má rekja til þess
þegar Vallarvinir ehf. sendu inn
erindi til Samkeppniseftirlitsins
vegna verðtilboðs IGS til þýska flug-
félagsins LTU, sem Vallarvinir voru
í viðskiptum við á þeim tíma. Vildi
fyrirtækið meina að IGS hefði mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína
með því að gera LTU verðtilboð sem
var 30 prósentum lægra en almennt
gilti fyrir sambærilega þjónustu.
Samkeppniseftirlitið komst að
þeirri niðurstöðu að IGS hefði
brotið gegn 11. grein samkeppn-
islaga og var fyrirtækinu gert að
greiða 80 milljónir króna í stjórn-
valdssekt. IGS, sem var dótturfelag
FL Group en er nú undir hatti Ice-
landair Group, áfrýja.ði málinu til
áfrýjunarnefndar samkeppnismála
sem staðfesti niðurstöðu samkeppn-
isyfirvalda, en ákvað að stjórnvalds-
sektin yrði lækkuð niður í 60 millj-
ónir. IGS skaut málinu til dómstóla
og krafðist þess að sektin yrði felld
niður eða lækkuð verulega, en hér-
aðsdómur féllst ekki á kröfu fyrir-
tækisins. magnus@bladid.net
Vill heilbrigðisþjón-
ustu til sveitarfélaga
■ Sveitarstjóri Hornafjarðar hefur áhyggjur af heilbrigðismálum í
sveitarfélaginu vegna erfiðleika við ráðningu lækna
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
„Ég held að til lengri tíma sé betra
ef sveitarfélögin taka að minnsta
kosti við hluta af heilbrigðisþjónust-
unni og að það verði gert með sama
hætti og gert var með grunnskólana.
Að málaflokkurinn sé fluttur yfir og
einhverjir tekjustofnar með,“ segir
Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri
Hornafjarðar.
Ríkisendurskoðun skilaði í byr jun
þessa mánaðar niðurstöðum stjórn-
sýsluúttektar sinnar á þjónustu-
samningi milli sveitarfélagsins og
heilbrigðisráðuneytisins um heilsu-
gæslu og öldrunarþjónustu. Þar
kom fram að stofnunin teldi ekki
endilega að samningurinn þjónaði
fjárhagslegum hagsmunum ríkisins
betur en ef það sæi sjálft um rekstur-
inn. Veigamesta aðfinnsla Ríkisend-
urskoðanda sneri að gæðaeftirliti
sem hann taldi ábótavant.
Hjalti segir þó ráðuneytið einnig
bera ákveðnar skyldur í þeim
efnum. „Við erum til dæmis með
annan samning við félagsmála-
ráðuneytið um málefni fatlaðra þar
sem þeir leggja fram ákveðið gæða-
módel sem við eigum að vinna eftir.
Það væri mjög eðlilegt ef heilbrigð-
isráðuneytið gerði slíkt hið sama
til að mæla gæði þjónustunnar alls
staðar með sambærilegum hætti.
Með þessu er ég ekki að bera blak af
okkur fyrir að hafa ekki sett okkur
gæða- og þjónustumarkmið. En rík-
isendurskoðandi segir beinlínis að
Höfn í Hornafirði Sveitarstjórinn hefur áhyggjur af því
hversu illa gengur að ráða lækna til starfa í héraðinu. 11
til 17 læknar hafa starfað þar árlega í þremur stöðugild-
um og því ekki um mikinn stöðugleika að ræða.
ráðuneytið hafi ekkert skipt sér að
þessu.“
Hefur áhyggjur af heilsugæslunni
Alls hafa 38 læknar starfað í
þremur stöðugildum í sveitarfé-
laginu á samningstímanum, eða
11 til 17 á ári. Hjalti segir það ekki
endilega vera þjónustusamninginn
sem valdi þessu ástandi. „Ég hef
áhyggjur af heilsugæslunni. Það
hefur gengið illa að ráða hingað
lækna og það er skýrt merki um að
þjónustunni sé ábótavant. Við erum
erfitt og afskekkt læknishérað og
það er því engan faglegan stuðning
að hafa úr nálægðum byggðum. Ef
það kemur upp erfitt tilfelli þá er
það ekki þannig að við getum vísað
mönnum á bráðamóttökuna eins
og í Reykjavík heldur þarf að sinna
sjúklingnum, sama í hvaða ástandi
SAMNINGURINN
Sveitarstjóri Hornafjarðar
fór sjálfur fram á stjórn-
sýsluúttekt á þjónustusamn-
ingi milli rfkisins og sveitar-
félagsins um heilsugæslu
og öldrunarþjónustu.
► Sveitarstjórn Hornafjarðar
hefur ritað greinargerð
vegna úttektarinnar sem
verður hennar innlegg í við-
ræður við ráðuneytið.
hann er, þangað til sjúkraflugvélin
kemur frá Akureyri. Það er því
miklu meira álag á læknunum
hérna. Þetta hefur grundvallaráhrif
á gæði þjónustunnar vegna þess að
það skapast ekki þessi tengsl milli
heilsugæslunnar og samfélagsins
sem nauðsynleg eru.“
VEÐRIÐ í DAG
Hlýjast syðst
Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt
og bjart með köflum, en skúrir á stöku stað
suðaustanlands síðdegis. Hiti 1 til 10 stig að
deginum, hlýjast syðst.
Á MORGUN
Rigning vestanlands
Gengur í suðaustan 13-18 m/s með rigningu
um landið vestanvert, en annars hægari
vindur og víða þurrt og bjart. Hlýnandi veður,
hiti 6 til 12 stig síðdegis.
Starfsmenn
ríkisins eldast
í nýútkomnu
vefriti fjármála-
ráðuneytisins
kemur fram að
meðalaldur ríkis-
starfsmanna hefur
hækkað um rúm
fjögur ár frá árinu
1995, en hann er nú 45,4 ár.
Konur í störfum hjá ríkinu eru
aðeins yngri en karlar. Konurnar
eru tæplega 45 ára að meðaltali
en karlarnir 46 ára.
Þá kemur fram í fréttabréfinu
að hlutfall starfsmanna ríkisins
með háskólamenntun hefur
hækkað töluvert frá árinu 1998,
úr 43 prósentum í 57 prósent.
ejg
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 26
Amsterdam 16
Ankara 22
Barcelona 26
Berlln 22
Chlcago 30
Dublin 13
Frankfurt 22
Glasgow 12
Halifax 20
Hamborg 23
Helsinki 15
Kaupmannahöfn 18
London 17
Madrid 27
Mílanó 25
Montreal 14
Miinchen 16
New York 20
Nuuk 2
Orlando 24
Osló 15
Palma 25
París 14
Prag 17
Stokkhólmur 16
Þórshöfn 12