blaðið - 25.09.2007, Qupperneq 8
8
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007
blaöiö
130 þúsund
mótmæltu
Um 130 þúsund
munkar og al-
mennir borgarar
komu saman til
að mótmæla her-
foringjastjórn
Mjanmars á göt-
um Rangoon,
fyrrum höf-
uðborgar landsins, í gær. Gangan
var sú fjölmennasta frá því að
mótmælin hófust fyrir viku.
Að sögn fréttaskýrenda er óljóst
um framhaldið, en á fréttavef
breska ríkisútvarpsins segir að
herstjómin í Mjanmar hafi sýnt
óvanalega stillingu í málinu. aí
íranar þurfa
ekki kjarnavopn
Mahmoud Ah-
madinejad írans-
forseti segir að
íransstjórn ætli
sér ekki í stríð við
Bandaríkin og að
íran hafi enga
þörf á kjarn-
orkuvopnum.
Ahmadinejad flytur fýrirlestur
við Columbia-háskóla í New York
í dag. Upphaflega stóð til að ír-
ansforseti héldi fyrirlesturinn í
skólanum á síðasta ári, en þá var
hætt við hann af öryggis-
ástæðum. Mótmæli hafa verið við
skólann vegna fyrirlestursins. aí
Höfuðborgin Stanley Rúmlega þrjú
þúsund manns búa á Falklandseyjum,
sem hafa lengi verið bitbein Breta og
Argentínumanna.
Norðmenn á
móti ESB-aðild
Tæplega 53 pró-
sent Norðmanna
eru mótfallin því
að Noregur gerist
aðili að Evrópu-
sambandinu,
k. samkvæmt nýrri
skoðanakönnun
Sentio. Andstæð-
ingar ESB-aðildar eru nú í meiri-
hluta í öllum landshlutum, ald-
urshópum, tekjuhópum og bæði
meðal karla og kvenna. Ef litið er
til stjórnmálaflokka sést að and-
stæðingar eru nú í meirihluta í
öllum flokkum, að Höyre frátöld-
um. 35,6 prósent aðspurðra eru
fylgjandi aðOd.
Norðmenn hafa tvívegis hafnað
því í þjóðaratkvæðagreiðslu að
gerast aðOar að ESB, fyrst árið
1972 og svo aftur 1994. aí
STUTT
• Laus Norska auðkýfingnum
Kjell Inge Rokke var sleppt úr
fangelsi í gær. Rokke var
dæmdur í 120 daga fangelsi ár-
ið 2005 fyrir að hafa mútað
embættismanni, en síðustu 90
dagar dómsins eru skilorðs-
bundnir.
• Hvirfilbylir Öflugir hvirf-
Obyljir gengu yfir Bretland og
oUu talsverðum skemmdum í
gærmorgun. Byljimir orsök-
uðu skemmdir á tugum húsa,
meðal annars í Nuneaton,
Farnborough, Luton og Nott-
ingham.
• Rannsókn Ríkissaksóknari í
ísrael hefur fyrirskipað lög-
reglurannsókn á viðskiptum
Ehuds Olmerts, forsætisráð-
herra landsins, með fasteignir í
Jerúsalem.
VIÐ HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
Vagnhöfða 25 112 Reykjavík sími 567 4455 fax 567 4453
Vilj a svæði við
Falklandseyj ar
■ Stjómvöld í Argentínu bregðast ókvæða við kröfum Breta
■ Um sextíu milljónir tunna af olíu á hafsbotni við Falklandseyjar
Eftir Atia ísleifsson
atlii@bladid.net
Argentínsk stjórnvöld hafa brugð-
ist ókvæða við áætlunum Breta um
að krefjast yfirráða yfir víðfeðmum
hafsvæðum við Falklandseyjar í
Atlantshafi. Hafsvæðin eru talin rík
af gasi og olíu og vinna bresk
stjórnvöld nú að því að safna gögn-
um sem verða lögð fyrir Samein-
uðu þjóðirnar til að sanna að fleiri
þúsund ferkílómetrar af hafsbotn-
inum séu landfræðilega hluti af
eyjunum.
Krafan er borin upp í kjölfar
nýrrar nálgunar alþjóðalaga, þar
sem lögsaga ríkis getur náð allt að
350 mílum frá landi, takist að
sanna svæðið sé hluti af landgrunni
strandlengjunnar. Eftir miklu er að
slægjast því rannsóknir hafa leitt í
ljós að allt að sextíu milljónir
tunna af olíu kunni að finnast á
hafsbotni við Falklandseyjar.
DEILT UM HAFSVÆÐI
Frestur strandríkja, þar á
meðal fslands, til að gera
tilkall til landgrunns utan
200 sjómílna rennur út um
miðjan maímánuð 2009.
Fulltrúar íslendinga, Breta,
(ra og Dana, fyrir hönd Fær-
eyinga, munu funda í
Reykjavík um landgrunn á
Hatton-Rockall-svæðinu í
Norður-Atlantshafi í vik-
unni.
Kröfur skarast
í tilfelli Falklandseyja munu
kröfur Breta og Argentínumanna
til landgrunnsins skarast, sem færir
aukinn þunga í deilu ríkjanna sem
staðið hefur um margra áratuga
skeið. Ruperto Godoy, formaður
argentínskrar stjórnvaldsnefndar
sem berst fyrir tilkalli Argentínu til
Falklandseyja, sagði um helgina að
Argentínumenn myndu berjast
hart gegn kröfum Breta. „Við erum
algerlega mótfallin hugmyndum
breskra stjórnvalda um að stækka
yfirráðasvæði sitt. Við viljum taka
upp viðræður um Falldandseyjar
að nýju, en Bretar hafa þessa af-
stöðu okkar að engu.“
Hatton-Rockall og Ascension
Bretar gera einnig tilkall til haf-
svæða á Hatton-Rockall-svæðinu í
Norður-Atlantshafi og í kringum
eyjuna Ascension, miðja vegu milli
Afríku og Brasilíu. Strandríki
heims þurfa að senda inn grein-
argerð til landgrunnsnefndar Sam-
einuðu þjóðanna um tilkall sitt til
hafsvæða fyrir maí 2009. Um sjö
milljónum ferkílómetra, sem jafn-
gildir stærð Ástralíu, kann að verða
skipt upp víðs vegar um heiminn.
Lotus Professio
Heildarlausnfyrir;
Lotus enMotion blár snertifrír skammtari
Lotus enMotion hvítur snertifrír skammtari
Lotus sápuskammtari Foam blár
Lotus sápuskammtari Foam hvítur
WC SmartOne statíf blátt
WC SmartOne statíf hvítt
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2-110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Eyðsla Frakklands-
stjórnar gagnrýnd
Jean-Claude Trichet, bankastjóri
Seðlabanka Evrópu, gagnrýndi
Frakklandsstjórn harðlega í gær
fyrir að vera sú eyðlusamasta í álf-
unni. Trichet varaði Frakka við að
að teknu tilliti til vergrar þjóðar-
framleiðslu væri Frakkland á góðri
leið með að eyða miklu meiru en
önnur ríki Evrópu árið 2007.
Francois Fillon, forsætisráðherra
Frakldands, sagði Fralckland í raun
vera gjaldþrota þegar hann ræddi
við fulltrúa bænda á eyjunni Kor-
síku á sunnudaginn. Franskir
bændur hafa farið fram á hærri rík-
isstyrki, en Fillon sagði það ekki
geta gengið í landi þar sem íjárlög
hefðu ekki verið hallalaus í 25 ár.
Frakkar hafa þó kennt Seðla-
banka Evrópu um lítinn hagvöxt
og að evran sé í sögulegu hámarki
gagnvart Bandaríkjadollar. Franska
ríkisstjórnin mun leggja fram fjár-
lög í vikunni, en Fillon hefur sagt
að nauðsynlegt sé að ríkið verði
rekið með hallalausum fjárlögum
árið 2012.
atHI@bladld.net