Orðlaus - 01.10.2002, Side 28
Laura Jean Reese Witherspoon fæddist 22. mars 1976 í
New Orleans, Lousiana. Pabbi hennar, John, var læknir
hjá bandaríska hernum og bjó Reese í Þýskaiandi fyrstu
fjögur ár ævi sinnar áður en fjölskyldan settist að í Nas-
hville, Tennessee.
Á uppvaxtarárum sínum bjóst hún aldrei við að verða leik-
kona, þó að hún hafi setið fyrir og leikið í ýmsum auglýsing-
um.Hún bjóst alltaf við að verða læknir, þar sem pabbi hennar
var læknir og mamma hennar kennari í hjúkrunarfræði. Það
breyttist samt allt þegar hún fór í prufutöku með nokkrum
vinum sínum sem staðgenglar. Leikstjóra myndarinnar Man
in the Moon, Robert Mulligan, leist svo vel á hana að hann
bauð henni aðalhlutverkið sem DaniTrant, 14 ára stelpu sem
verður ástfangin í fyrsta skipti. Haft er samt eftir henni að eina
ástæðan fyrir því að hún fékk hlutverkið hafi verið sú að hún
var mjög flatbrjósta af 16 ára stelpu að vera.
Overnight Delivery, sem hefur orðið að uppáhaldi aðdá-
enda hennar, varpaði henni aftur í sviðsljós ungs fólks. Ivy
Miller (Reese), háskólanemi og strippari, fer í„roadtrip" með
Paul Rudd til að bjarga bréfi sem hann sendi fyrir mistök til
kærustunnar sinnar og verður hún ástfangin af honum á leið-
inni þvert yfir Bandaríkin. Hún er frökk og kjaftfor í myndinni
og sýnir á sér nýja hlið sem gamanleikkona. Gagnrýnendur
lofuðu hana óspart fyrir frammistöðuna.
Pleasantville, er ein umtalaðasta mynd áratugarins. Reese
og Tobey Maguire leika börn einstæðrar móður sem festast
inni í uppáhalds sjónvarpsþættinum sínum, Pleasantville, þar
sem heilbrigt líferni og traust fjölskyldubönd eru í fyrirrúmi.
Allir í þættinum eru svart-hvítir en þeir sem fylgja löngunum
sínúm og streitast á móti viðhorfi samfélagsins breytast hægt
og rólega í lit. Þetta er áhrifamikil mynd, hún fékk tilnefningar
til Óskarsverðlauna og var mikið fjallað um að hún hefði átt
miklu meira hrós skilið.
/
Hollywood, þau hafa náð að halda sér frá slúðurdálkum og
lifa sem venjulegt par.
Samband Reese við Ryan hafði einnig mikil áhrif á feril
hennar. Þegar hann fékk hlutverk í myndinni Cruel
Intentions vildi hann eingöngu taka að sér hlutverkið ef
Reese fengi hlutverk Annette, stelpunnar sem hann verður
ástfanginn af í myndinni. Hún sló í gegn um allan heim og
gerði þau bæði heimsfræg.
Mánuði seinna var Reese komin aftur á tjaldið í myndinni
Election, sem er svört komedia þar sem hún leikur kol-
klikkaða unglingsstelpu sem tekur kosningabaráttu í skól-
anum sínum aðeins of alvarlega. Þar fer hún algerlega á
kostum og gagnrýnendur lofuðu hana í bak og fyrir. Fyrir
leik sinn í þeirri mynd fékk Reese sína fyrstu Golden Globe
tilnefningu.
tffe'
(framhaldi af þessum góða árangri lék hún í nokkrum sjón-
varpsmyndum. Diane Keaton fékk hana til liðs við sig í mynd-
inni Wildflower og þar á eftir komu myndirnar Solomon's
Choice og Return to Lonesome Dove. Þessar myndir voru
einungis sýndar í sjónvarpi og fengu því ekki mikil viðbrögð,
þó að Reese hafi komið mjög vel út í þeim öllum.
Afturkoma hennar á hvíta tjaldið var í Disney myndinni A
Far Off Place. Persóna Reese í myndinni, Nonnie Parker, sem
ólst upp í Afríku, neyðist til að fara yfir Kalahari eyðimörkina
til að flýja undan veiðiþjófum sem höfðu drepið foreldra
hennar. Þetta var fyrsta hlutverk Reese þar sem hún leikur
hugrakka og sjálfstæða konu.Til að ná betra valdi á tungumáli
búskmanna (frumbyggjar í Suður-Afríku), sem hún notaði í
myndinni, settist hún að hjá þjóðflokknum Matabele í Afríku.
Myndin fékk misgóðar viðtökur gagnrýnenda en Reese var
búin að koma sér vel fyrir í kvikmyndaiðnaðinum. Næsta hlut-
verk hennar var í mynd Danny DeVito,Jack the Bear. Þar leikur
hún frekar lítið hlutverk miðað við áður. Þar leikur hún 12 ára
hippa, þó að hún hafi verið orðin 17 ára gömul. Á eftir þessu
kom myndin S.F.W. Þar sem hún leikur á móti Stephen Dorff.
Myndin fjallar um tvær persónur (Reese og Stephen) sem
komast undan gíslingu og þegar þau snúa aftur eru þau
orðin fræg og neyðast til að takast á við alla þá athygli
sem fjölmiðlar veita þeim.
Myndin, sem kom á eftir þessari var Fear sem var
mun auglýstari en hinar myndir Reese. Þar leikur hún
Nicole Walker, sem er áreytt og pintuð af kærasta sín-
um, sem leikinn er af Mark Wahlberg. Þetta hlutverk
festi nafn Reese í minnum unglinga.Á þessum tíma
var henni boðið hlutverk í Scream, I know what you
did last summer og Urban Legend en hafnaði þeim
því hún vildi ekki endurtaka aðra hrollvekju. Þetta
sýndi að hún tekur því mjög alvarlega hvaða hlut-
verk hún velur og hverju hún hafnar, því að mynd-
irnar slógu í gegn og margir óþekktir leikarar urðu
frægir fyrir leik sinn. En það er greinilega ekki það
sem skiptir hana máli.
í myndinni Freeway fann hún sig sem verð
skuldaða leikkonu þar sem hún lék Vanessu
Lutz og fékk verðlaun sem besta leikkonan
á Catalonia International Film Festival. Haft
var eftir henni að hún hafi verið dauðhrædd
við að taka að sér þetta hlutverk því að
það myndi annaðhvort ganga
upp eða verða algert flopp. í
einkalífinu var Reese einnig
að gera góða hluti. Hún lauk
menntaskóla með frábærum
einkunnum og hélt til Californiu
í Stanford Háskóla þar sem hún lagði
stund á enskar bókmenntir. Hún sá samt
fljótlega að hún yrði að hætta námi ef hún ætlaði
að taka leikferilinn alvarlega. Hún sá samt ekki fyrir
sér að hún myndi hætta alveg í skóla fyrir leiklista-
ferilinn og ætlaði sér alltaf að fara einhvern tímann
í læknisfræði. í dag hefur hún hins vegar hugsað sér
að gera frekar eitthvað gott úr frægð sinni og langar
hana til að opna fría læknisþjónustu fyrir fólk sem á
lítiðaf peningum.
Á 21. afmælisdegi hennar urðu miklar breytingar á einkalífi
hennar þegar hún kynnist Ryan Phillippe sem mætti óboðinn
í afmælisveislu til hennar fyrir frían bjór. Hann var á leiðinni í
tökur daginn eftir en þau héldu sambandi í gegnum e-mail og
síma og eftir fyrsta stefnumót- ið urðu þau óaðskiljan-
leg. Þau voru trú- ,«jlofuð í desem-
ber 1998 en •tilkynntu
fjölmiðlum það
2. mars ÆsBp.jf ' fr- ■ 1999
ásamt því a ð
þau ættu {. aKBk a v o n
á barni. íf ' ’ 'JjMjfl ,JL , ;• N ú
var brúð- i P / ■jmfwfr kaup
í vænd- / JS ’ Jm-Æ u m
og þrátt 'iÆmSmk mjmjT fyrir
pakkaða d a g -
skrá gift- vHB ÆmÆ ust þau
dag eru ' Þau eitt
heitasta
p a r
LEIKLISTAFERILL
| Sweet Home Alabama ( 2002)
The Importance og Being Earnest (2002)
Legally Blonde (2001)
Slow Motion (2000)
Trumpet of the Swan,The (2000)
Little Nicky (2000)
American Psycho (2000)
Best Laid Plans (1999)
Election (1999)
Cruel Intentions (1999)
Twilight (1998)
Pleasantville (1998)
Freeway (1996)
Fear (1996)
Overnight Delivery (1996)
S.F.W. (1994)
A Far Off Place (1993)
Jackthe Bear (1992)
Desperate Choices:To Save My Child (1992)
The Man in the Moon (1991)
Wild Flower (1991)
Seinna sama ár kom Reese fram í ódýrri mynd, Best Laid
Plans, með Josh Brolin og Allessandro Nivola. Myndin er
byggð á plottum og er þetta einhvers konar spennutrillir. Sú
mynd fékk litla umfjöllun og var mjög vanmetin að margra
mati en einnig voru aðrir sem álitu hana afar óspennandi.
Reese og Ryan urðu foreldrar 9. september 1999 og
eignuðust dótturina Ava Elisabeth. Þar með byrjaði heimilis-
líf þeirra á fullu en þau hafa sýnt það að þau fara létt með að
halda utan um heimili og halda áfram kvikmyndaferlinum.
Reese kom aftur á hvíta tjaldið eftir barnsburðinn í mynd-
inni American Psycho. Þar leikur hún eigingjarna og sjálf-
umglaða kærustu Patrick Bateman sem er raðmorðingi. Þar
sýndi hún að hún kemur jafn vel fram í aukahlutverki sem og
í aðalhlutverki.
Móðurhlutverkið hefur ekki dregið úr henni því að hún var
síðan mætt með myndina Legally Blonde, þar sem hún leik-
ur algera blondinu sem ákveður að skella sér í Harvard til að
elta fyrrverandi og sýna honum að hún geti staðið sig jafn
vel og hann í lögfræði. Hún fékk rosalega góða dóma fyrir þá
mynd og er hún núna komin á stall með fremstu leikkonum
Hollywood.
Eftir tökurnar á Legally Blonde pökkuðu Reese og Ryan
niður og fluttu til Englands þar sem Reese lék í myndinni
The Importance of Being Earnest eftir Oscar Wilde og
var það frumraun hennar sem bresk persóna. Þar er hún
meðal þekktra stjarna á borð við Rupert Everett, Dami Judi
Dench og Colin Firth.
Sweet Home Alabama
Frá Englandi lá leið Reese aftur heim til Bandaríkjanna að
leika í myndinni Sweet Home Alabama þar sem hún
leikur Melanie Carmichael, tískuhönnuð frá Alabama sem
hefur tekið New York með trompi. Hún er ekki eingöngu
eftirsóttasti hönnuðurinn á staðnum heldur er hún líka
gift syni borgarstjórans, Andrew. Þegar þau skötuhjúin
tilkynna opinberlega giftingu sína ákveður hún að halda
til heimabæjar síns til að koma örfáum málum á hreint
fyrir giftinguna. Þar bíður hennar eiginmaður, Jake, sem
neitar að skilja við hana. Ætlun hennar með ferðinni
er að reyna að fá hann til að skrifa undir skilnað-
ar-pappírana en hlutirnir breytast hratt þegar
Andrew ákveður að fylgja
henni heim. Leikstjóri mynd-
arinnar er Andy Tennant sem
hefur gert myndir á borð
við Fools Rush In, Ever After
og Anna and the King, allt eru
þetta ástarmyndir á einhvern hátt eins
og Sweet Home Alabama og hefur honum tekist
mjög vel til með þær.
Myndin verður frumsýnd hér á landi 1. nóvember hjá Sam-
bíóunum.Ef Reese stendur sig jafn vel í þessari mynd og áður
efast ég ekki um að það sé þess virði að fara að sjá hana. Hún
er falleg og sjarmerandi, klár og sniðug. Kemur manni svona
skemmtilega á óvart.