Orðlaus - 01.10.2002, Blaðsíða 30
f
MIÐVIKUDAGUR
Ég verð að fara að koma mér út á markaðinn,
það er orðið svo langt síðan að ég lenti í því
að vera skotin í einhverjum strák að það liggur
við því að ég sé farinn að efast um kynhneigð
mína. Það er bara ótrúlegt hvað það venst vel
að vera einn, sérstaklega þegar maður lítur
nokkra mánuði til baka, þegar maður var svo
einmanna að maður hefði byrjað með sveitta,
feita frænda sínum. Einmitt eftir þann tíma,
þegar maður var búin að byrja með nokkrum
svo vonlausum að maður hefði alveg eins
getað verið með gömlum hundi eða sófa þá
heyrði ég málsháttinn „Betra er autt rúm en
illa skiþað"og ákvað að lifa eftir því. Það varð
hins vegar bara til þess að ég hef ekki lifað kyn-
lífi í fleiri mánuði og sleikur er orðinn fjarlæg-
ur draumur. En ætli það sé samt sem áður ekki
skref í rétta átt. Maður getur nefnilega lifað
ótrúlega sáttur ef maður á eggið, það versta
sem það gerir þér er að verða batteríslaust
eða bræða úr sér.
Amma greyið er samt hætt að sofa á nóttunni
út af þessu, hún segir að það séu svo margar
piparjónkur í föðurættinni að hún sé dauð-
hrædd um að ég taki upp á því að pipra og
eignast barn með sæðisbanka í framtíðinni.
Að hennar áliti er ég löngu komin á giftingar-
aldurinn, alveg orðin 23 ára gömul og breyt-
ingarskeiðið nálgast óðfluga.
Hún er búin að kaupa brúðarblöð handa mér
oftar en einu sinni,potandi að mér blaðagrein-
um um fólk sem fann ástina á netinu í tíma
og ótíma og stakk uppá því í seinustu viku
að ég ætti að fara í Djúpu laugina, um leið og
hún gaukaði að mér 1000 kalli og sagði mér
að fara og bjóða einhverjum fallegum dreng
upp í glas.
30
Ég hef samt aldrei farið á eitthvað svona
MEGA-DEIT, ekkert frekar en 90% (slendinga.
Fram að þessu hefur þetta verið hin klass-
íska íslenska leið, drekka sig hauslausa- fara
í sleik- enda heima hjá mér eða honum- lifa
fáranlega ömurlegu kynlífi (sökum ofurölvun-
ar)- vakna daginn eftir og ...sá sem er fyrstur
út um hurðina VINNUR! Þetta getur haft mjög
mismunandi afleiðingar, stundum halda þeir
að þeir séu kærastarnir mínir eftir þetta, við
lítil fagnaðarlæti af minni hálfu. Stundum
held ég að ég sé kærstan þeirra, við slæmar
undirtektir en í lang flestum tilfellum þá er
tekinn hunspakkinn á þetta. Það er rosalega
skemmtileg keppni sem byggist á því, hvort
getur hunsað hitt meira.
En þá er það stóra spurningin... Hvernig kemst
maður á alvöru deit þegar maður er búsettur
á íslandi? Ég vil ekki heyra að svarið við spurn-
ingunni sé Einkamál.is, í mínu tilfelli er netið
ekki „option" Fínt ef að fólk er að finna ástina
þar...Af hverju ekki? Ég myndi bara ekki meika
mómentið þar sem maður fer og hittir hinn að-
ilann í fyrsta skiptið,eða þegar fólk spyr okkur
hvernig við kynntumst...„Á netinu!" eða „On-
line" eins og við myndum örugglega segja,
þar sem að við værum svo„advanced irkarar"
Glaaaataaaað!
Þá er það hin leiðin, að bjóða einhverjum út!?!
En hvað ef hann segir nei??? Hvað ef hann á
kærustu??? Ég fæ aulahroll bara við tilhugsun-
ina...!!! Hvernig myndi maður sjálfur bregðast
við ef einhver myndi bara labba upp að manni
og bjóða manni út? Ef hann væri ekki „drop-
dead" þá myndi maður örugglega segja nei,
verða geðveikt pínlegurog koma séreinhvern
veginn út úr því...
MÁNUDAGUR
Vááááá...Hið ómögulega hefur gerst! Ég er að
fara á„DEIT"á fimmtudaginn... Mér var boðið
út...eða svona nálægt því.
Ég var í vinnunni í gærkvöldi alveg tryllings-
lega þunn, nýbúin að afgreiða þrjá litla krakka
með bland í poka. Ég var að rétta fitnessparinu
„Möppuna"til þess að það gæti leigt sér klám-
mynd í þynnkugreddunni, þegar hann labbar
inn. Þetta var bara svona ofurvenjulegur gaur,
alveg sætur og allt það, en samt týpan sem
maður myndi aldrei taka eftir á djamminu.Ég
tók strax eftir honum og hefði getað hugsað
mér mun girnilegri aðstæður til þess að hitta
hann í, allar aðstæður eru skárri en bakvið
búðarborðið í sjoppu. Hefði helst viljað hafa
ferilskránna mína svona alveg„óvart"á búðar-
borðinu þannig að hann hefði getað séð að
mér var sagt upp VEGNA SAMDRÁTTAR!!! Eina
ástæðan fyrir því að ég er að vinna í þessari
skítasjoppu er vegna þess að Maggi frændi
bauð mér vinnu hjá sér á meðan ég væri að
finna eitthvað annað... helv... djöf... kreppa!
Alla vega..Við erum að tala um dökk-skolhærð-
an, hávaxinn, frekar sætan strák með geðveikt
flottar hendur. Á meðan hann valdi spólur þá
æfði ég mig í að halda maganum inni. Það var
alls ekki auðvelt þar sem að ég stútaði pulsu
og risa jarðaberjasjeik 5 mín áður en hann
labbaði inn.
Loksins labbar hann að borðinu, hann ákvað
að taka „Ali" en sem fríspólu með tók hann
„Hope floats" HVAÐ ER ÞAÐ!?! Annað hvort
á hann kærustu, er hommi, býr heima hjá
mömmu sinni eða er með einhver „serious
issues'L.Týpan sem grætur þegar hann fær
það!!! Ég ákvað samt að líta fram hjá því,
kveikti á sjarmanum og byrjaði að daðra (það
er óhætt að segja að maður sé farinn að nálg-
ast botninn þegar það er hægt að setja mann
í flokkinn„graðar sjoppukerlingar").
Um leið og ég leit upp og brosti til hans,
svelgdist honum á tyggjóinu og hann SPRAKK
úr hlátri. Það er enginn SVONA hress á sunnu-
dagskvöldi og ég var dauðhrædd um að hann
væri að hlægja að mér, sem reyndist líka á
endanum vera málið. Ég var með 10 mínútna
gamla remúlaðiklessu á kinninni sem gerir
hana í mannsárum talið svona áttræða - frék-
ar pínlegt! Remúlaðið varð nú samt til þess að
við fórum að tala saman og bonduðum líka
svona rosalega yfir því hvað það gæti verið er-
fitt að borða pulsur án þess að subba sig allan
út (hann á við sama vandamál að stríða)
Við enduðum með því að tala saman í svona
20 mín. Sem var nægur tími fyrir mig að koma
því á framfæri að ég væri ekki á hápunkti
starfsferils míns þessa stundina.Ég ætti stærri
drauma og þetta væri bara allt kreppu og sam-
drætti að kenna. Hann skyldi það mjög vel
og sagðist sjálfur vera blankur og vitlaus þar
sem að hann væri að reyna að meika það sem
Ijósmyndari. (Áttum strax eitthvað sameigin-
legt!!!) Þá komum við að aðalatriðinu... Hann
átti tvo aukamiða á Ijósmyndasýningu sem
verður næsta fimmtudag og hann gaf MÉR þá
og sagði mér að koma og taka einhvern með
mér. Þetta hlýturað þýða eitthvað,ekki satt???
Ég hlakka geðveikt til að hitta hann!!! Verð að
hitta Hildi vinkonu á kaffihúsi í kvöld til þess
að„analýsera"málið... Hvern á ég að taka með
mér? ( hverju á ég að fara? Hvernig á ég að ná
að léttast um fimm kíló á fjórum dögum???
/// PLÖTUDÓMAR-SÓLEY
Aaliyah
Aaliyah fæddist í Brooklyn árið 1979 og var
skírð Aaliyah Dana Haughton. Þennan disk gaf
hún út rétt áður en hún lést í hræðilegu flug-
slysi 25. ágúst 2001. Diskurinn er frábær og
tónlistin hennar sker sig út úr öllu þessu hipp-
poppi sem er verið að framleiða. Hann fór
beint í 1 .sæti í Bandaríkjunum og við þekkjum
mörg lög sem hafa orðið vinsæl eins og More
Than a Woman,Try Again og Rock the Boat en
myndbandið við það var það síðasta sem hún
gerði. Hún hefði örugglega gert myndband
við We Need a Resolution með Timbaland en
diskurinn hefst á því lagi og er frábært.
Aaiiyah hefur sungið frá því hún var lítil og
var pöntuð í brúðkaup hér og þar til að syngja
fyrir vini og vandamenn. Frændi hennar var
giftur Gladys Knight og hann var líka umboðs-
maður fyrir R.Kelly á þeim tíma. R.Kelly heyrði
hana syngja og réði hana til sín á Blackground
Enterprises aðeins 13 ára gamla. Hann samdi
og pródúseraði fyrir hana plötuna Age Ain't
Nothing But a Number sem kom út þegar hún
var 15 og lagið Back and Forth og At Your Best
(You Are Love) náðu 1. sæti á r'n'b/hip hop
lista Bandaríkjanna.Á eftir Aaliyuh komu fram
stelpur eins og Brandy og Monica líka undir
sínu fyrsta nafni.
Orðrómur um að R.Kelly og Aaliyah hafi gifst
fór eins og eldur um sinu því hún var langt
undir aldri og titill plötunnar var ekki á það
bætandi. R.Kelly er reyndar í dag þekktur fyrir
smástelpurnar en það er önnur saga. Aaliyah
neitaði þessu alltaf en hætti samstarfi við
hann og fór að vinna með Timbaland. Árið
1996 kom út One in a Million sem varð met-
söluplata. Hún söng lög í kvikmyndunum
Anastasia og Dr.Doolitle og lék síðan aðal-
hlutverkið í fyrstu kvikmyndinni sinni Romeo
Must Die og var executive producer á tónlist-
inni.Bæði myndin og diskurinn náðu metsölu.
Hún fékk frábæra dóma fyrir leik sinn og varð
eftirsótt (Hollywood. Næsta kvikmynd hennar
var aðalhlutverkið ( Queen of the Damned
og hún skrifaði undir að leika í Matrix II og
Matrix III.
Á sama tíma vann hún að þessari plötu þan-
nig að hún var með öll járn í eldinum og hefði
örugglega orðið "Hollywood's most wanted".
Maður er enn með tárin f augunum yfir því að
hún hafi dáið en tónlistin hennar hefur alltaf
verið algjör stelputryllir, það er ekki hægt að
segja annað. Strákarnir skilja þetta ekki nema
þegar þeir sjá stelpurnar óðar á dansgólfinu.
Hún hefur haft mikil áhrif á stefnuna í r'n'b
tónlistinni og við verðum bara að njóta þess
sem hún gerði meðan hún lifði.
Angie Stone
Angie er rosalegur pródúser og tónlistin sem hún
gerir er kölluð neo-soul.
Það er farið að kalla hana "queen of soul'' og
samt er þetta bara önnur sólóplatan sem hún
gerir. Hér eru mörg góð lög en diskurinn er miklu
rólegri en ég bjóst við. Hann er samt þægilegur
og afslappandi og ef maður er að taka því rólega
er hann f(nn. Hún notar stundum gospel raddir (
bakgrunn því pabbi hennar tók hana oft á gospel
tónleika þegar hún var Ktil og hún söng sjálf í kór.
Hún kenndi sjálfri sér á hljómborð og hefur alltaf
samið mikið af textum. Besta lagið finnst mér
vera I Wish I didn't Miss You sem eralveg geeeeð-
veikt lag. Brotha er flott og remixið er ágætt þar
sem Alicia Keys og Eve taka undir með henni.
Hér gerir hún hlutina alveg eins og hún vill en á
síðustu plötunni hennar Black Diamond (1999)
fékk hún marga fræga menn til liðs við sig eins
og Lenny Kravitz, Ali Shaheed úr A Tribe Called
Quest og D'Angelo. Angie Stone er búin að vera
lengi í bransanum og t.d. spilaði hún einu sinni
á saxafón með Lenny Kravitz. Hún og D'Angelo
hafa þekkst lengi og hún hjálpaði honum mikið
við Brown Sugar. Það er með flottari r'n'b/soul
plötum sem hafa verið gerðar enda varð hún
margföld platína og opnaði dyrnarfyrir tónlistar-
mönnum á borð við Erykuh Badu og Lauryn Hill.
Angie er frábær en mér finnst þetta samt of ró-
legt fyrir minn smekk. Hún ætti að gera fleiri lög
eins og I wish I didn't miss you og þá á hún eftir
að ná enn þá lengra.
★ ★ ★ ★
Aaliyah
Angie Stone
Mahogany Soul