Orðlaus - 01.10.2002, Blaðsíða 39

Orðlaus - 01.10.2002, Blaðsíða 39
UNGAR KONUR OG FRAMTÍÐARSTARFIÐ Á undanförnum árum hefur fjölmargt verið gert til að bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði.Til dæmis hvetja opinberir aðil- ar bæði kynin til að sækja um störf sem auglýst eru og mörg sveitarfélög hafa samþykkt jafnréttisstefnu. Háskóli íslands hefur gert átak í að hvetja konur til að sækja í hefðbundnar karlagreinar og Reykjavíkurborg hefur styrkt stráka sem vilja læra félagsráðgjöf og stelpur sem vilja fara í verkfræði. Samt sem áður eru konur sjaldan í æðstu stjórnunarstöðum í einka- fyrirtækjum og örsjaldan eru konur á meðal tekjuhæstu einstaklinga þjóðfélagsins. Sumir segja að þegar konur taka að flykkjast í hefð- bundin karlastörf þá fari launin í þeim greinum að lækka og hafa fög eins og læknisfræði og lögfræði verið nefnd. Það er kannski eitthvað til í þessu en samt sem áður kom fram í nýlegri skýrslu á vegum Rík- isendurskoðunar að sérfræðilæknar geta haft tugi milljóna í tekjur á ári á einkastofum á meðan þeir eru í fullu starfi líka inni á sþítulunum. Skyldu konur vera á meðal þessara lækna? Fyrir ungar konur er þetta ákveðið áhyggjuefni. Menntunin virðist ekki vera trygging fyrir góðum tekjum heldur er öruggara að giftast vel menntuðum karli! Við þurfum að breyta þessu munstri, halda áfram í baráttunni eins og konurnar gerðu sem á undan fóru. Við þurfum að vita hvar við ætlum að bera niður. Ætlum við að breyta þjóðfélaginu eða eigum við að byrja á okkur sjálfum. Breytist þjóðfélagið sjálfkrafa með breyttum konum? Það er mikilvægt fyrir okkur að hafa góðar fyrirmyndir í kringum okkur sem virka hvetjandi. Þá á ég ekki við ímyndina um hina full- komnu konu sem birtist gjarnan (glanstímaritum. Hún er stjórnmála- maður eða stjórnandi, gullfalleg í góðu formi, gjarnan mynduð með fyrirmyndarbörnin í fanginu, býr í glæsilegu húsnæði og gefur góðar uppskriftir um leið og hún ræðir þjóðmálin. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að heyra (þeim sem hafa náð langt en eru ekki alltaf á síðum tímaritanna. Hvernig hafa þær farið að því að fá draumavinnuna? Vinnu sem þeim finnst skemmtileg og gjarnan vinnu með góðum launum. Hvaða leið hafa þær farið og hverju hafa þær þurft að fórna. Blaðamenn Orðlaus fóru á stúfana og ræddu við nokkrar konur sem kváðust ánægðar með þá stöðu sem þær eru í (dag og báðu þær um ráð varðandi námsval, starfsframa, barneignir, heimilishald og launa- mál svo eitthvað sé nefnt. Ungar konur og námsval Ráðin sem við fengum varðandi námsval voru eftirfarandi: 1) (huga vel eigin áhugasvið. Til dæmis með því að taka áhuga- sviðsþróf sem eru í boði hjá ráðningaskrifstofum og hjá námsráðgjöf- um og sálfræðingum. 2) Velja út þær starfsgreinar sem koma helst til greina samkvæmt niðurstöðu áhugasviðsprófs. Hversu langan tíma tekur að læra við- komandi faggrein og hvar er hægt að stunda námið? Hvernig eru laun almennt í dag í þessum fögum og hvernig hafa þau þróast undanfarin ár? Hvernig eru vinnuskilyrði, t.d. vinnutími og hvar eru helstu vinnustaðir, hjá opinberum aðilum eða einkafyrirtækjum? Er hægt að fá vinnu við fagið erlendis og er þetta starfsvettvangur sem hægt er að vinna við til dæmis úti á landi? 3) Þegar námið hefst er mikilvægt að skilja á milli þeirra erfiðleika sem eru í öllu háskólanámi og þess að finnast námsgreinin verulega óspennandi. Við getum hæglega yfirunnið hindranir en ekki þann leiða sem getur hellst yfir okkur ef valið er ekki (takt við okkar innri rödd. 4) Það getur verið skynsamlegt að skoða fjölbreytta námsmögu- leika, til dæmis að blanda saman tveimur ólíkum fögum því vinnu- markaðurinn er svo margbreytilegur í dag að það er gott að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni. 5) Erlend tungumál og gott vald á íslensku eru þættir sem skipta máli fyrir framtíðarstarfið og þess vegna er gott að þjálfa sig ( þeim þáttum á meðan á námi stendur.Það sama gildir um færni á tölvur. 6) Loks er mikilvægt að hafa það í huga að það er erfiðara að byrja nám aftur, t.d. að taka masterspróf ef það líður of langur tími á milli eftir að fyrri hluta háskólanámsins er lokið. Þá er fólk oft komið með UNGAR KONUR OG STARFSFRAMI 39 1) Öll störf sem við vinnum skipta máli á starfsferlinum. Þó okkur finnist vinna með skóla, til dæmis á veitingahúsi hafa lítið með LIFIÐ FYRIR UTAN VINNUNA framtíðarvinnuna að gera þá skiptir það máli hvernig við stöndum okkur því öll góð með- mæli styrkja stöðu okkará vinnumarkaði. 2) Enginn verður óbarinn biskuþ og því þurfum við að læra að vinna við fagið okkar áður en við getum látið okkur dreyma um að gerast stjórnendur. Mikilvægt er að hugsa alla vinnu sem lið í að afla reynslu og þekkingar til að verða betri starfsmenn. 3) Fyrir þá sem stefna að störfum innan op- inbera geirans og vilja fá mikla ábyrgð fljótt er landsbyggðin spennandi kostur. Þar gefst oft kostur á því að fá fjölbreytt verkefni og góða yfirsýn yfir starfsemina þar sem um smærri stjórnsýslueiningar er að ræða en í Reykjavík. 4) Það er mikil þörf á fólki í verkefni sem hafa góða samstarfshæfileika, hvort heldur um er að ræða þá sem hafa leiðtogahæfi- leika eða þá sem eru til dæmis tilbúnir að rétta starfsfélögunum hjálparhönd. Þátttaka í félagsstörfum telur oft með þegar verið er að ráða fólk í vinnu, sú reynsla getur gert mann víðsýnni. 5) Við þurfum að kunna að skilja á milli vinnu og einkalífs þannig að við tökum hlut- unum ekki of persónulega á vinnustaðnum. Læra að þekkja okkur sjálf til að skilja þegar við verðum pirraðar í vinnunni; hvort um sé að ræða eitthvað í vinnumhverfinu eða hvort við erum ósáttar við fjölskyldumeðlim eða vini. Barneignir Mörgum ungum stúlkum gengur illa að skilja hvernig konur geta unnið úti og komist í stjórnunarstöður á sama tíma og þær eru að eiga börn. Þær konur sem Orðlaus ræddi við hafa hugsað mikið um þessi mál en ekki komist að neinum end- anlegum sannleik. Þær gátu því kannski ekki gefið nein ráð en komu með eftirfar- andi ábendingar: 1) Það þarf að hugsa um börn - þau hugsa ekki um sig sjálf. Það er því mjög erfitt að ætla sér að vera (stjórnunarstöðu á meðan börnin eru lítil. 2) Það skiptir máli við val á lífsförunauti að hugsa sér hann í föðurhlutverki ef við viljum eiga börn með honum. Þó það komi síðar ( Ijós að sambandið gangi ekki upþ þá verðum við ævilangt foreldrar saman. 3) Það er mjög gott að hafa lært að standa á eiginfótumáðuren börnin koma.Ef barneign- ir koma á undan þá flækir það verulega Kfið. 4) Samsettar fjölskyldur verða æ algengari. Leitaðu ráðgjafar fagfólks ef þú ferð í slíkt fjölskyldumunstur, það margborgar sig þó viðtölin kosti skilding. Eins og kom fram hér á síðunni þá er glans- myndin af nútímakonunni sú að hún búi í glæsilegu og hreinu húsnæði, hún og börnin eru vel til höfð, maðurinn til fyrir- myndar, hún fer í leshringi, leikfimi, fjalla- göngur, heldur stórar matarveislur og er topp stjórnandi. Engin af konunum sem við ræddum við kannast við þessa mynd af sjálfri sér og þeim vinkonum sem eru í krefjandi störfum og eru jafnframt að ala upp börn. Ráðin sem þær gáfu voru eftir- farandi: 1) Kona í stjórnunarstarfi ætti að splæsa á sig aðstoð við hreingerningarnar, t.d. tvisvar ( mánuði, það kætir lundina og bætir samskiþtin. 2) Flest hjón kannast við að helstu erjur eru vegna heimilishalds, umgengni karlsins krafna konunnar. Konan þarf þv( að setja kröfurnar lægra og karlinn að ganga betur um. Ekki fara í sambúð með sóða ef umgegni skiptir þig máli! 3) Ef þú ert í krefjandi starfi er mjög mikilvægt að tómstundagamanið þitt krefjist ekki mikils undirbúnings, heldur sé af þeim toga að þú slakir á. Ekki bæta þv( sem á að vera skemmtun við stressið í lífinu. Áður en við tökum málin í eigin hendur og vinnum að því að styrkja sjálfsmyndina, svo við stöndum jafnfætis strákunum í launa- baráttunni, þá verðum við að heyra um það hvernig venjulegar konur þora að viðurkenna að tími gefst ekki alltaf til þess að húrra upp úr pottunum gómsæta rétti; 1944 er bara ágæt- is kvöldmatur. Þegar við erum á kafi í vinnu þá lítur heimili okkar yfirleitt út eins og eftir sprengjuárás og við tökum bara til þegar það er von á gestum. Ef við veljum að vinna mikið og eigum lítil börn þá erum við með samvisku- bit nema við séum svo heþpnar að heima fyrir sé góður karl sem hefur yndi af húsverkum og barnauppeldi.Svo langar ekki öllum konum að eiga börn en sammerkt með konum er - eins og körlum - að okkur finnst svolítið einmana- legt að hugsa til þess ( ellinni að eiga engin börn. Þau eru því trygging fyrir okkur en ekki endilega áhugamál. Konur á framabraut eru því oft með króníska sektarkennd og sérstaklega heggur það nærri þeim þegar sérfræðingastéttir þjóðfélagsins reka upp heróp um aukinn hegðunarvanda barna og eiturlyfjaneyslu unglinga. Þær kenna sér um það að vera mislukkaðar mæð- ur. Þannig að það er margt sem þarf að hugsa um ef maður ætlar að komast langt. Velja og hafna. Hvað finnst þér hafa forgang í lífinu og hverju ertu tilbúin að fórna? Þú getur þurft að yfirstíga ýmsar hindranir.en allt er hægt ef vilj- inn er fyrir hendi.

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.