Orðlaus - 01.10.2002, Side 44
J
3
'0
///KÆRAANNA
Kærastinn minn vill að ég raki af
öll skapahárin!
Ég elska kærastann minn út af lífinu og
myndi gera nánast allt fyrir hann en ný-
lega bað hann mig að raka af öll skapa-
hárin. Ég snyrti mig mjög vel að neðan
en ég er ekki tiibúin til að raka það allt
af. Tilhugsunin um að vera alveg ber að
neðan finnst mér hrikaleg og ég skil ekki
af hverju hann er svona æstur. Hann
segir að allar kærustur geri þetta fyrir
kærastana sína og að við myndum njóta
kynlífsins miklu betur. Á ég að gera þetta
fyrir hann?
Það skiptir öllu máli að hvað sem þú gerir,
gerir þú á réttum forsendum.Hægt er að finna
önnur rök með því að snoða sig en það að allir
aðrir geri það! Þetta er afskaplega hreinlegt
og alls ekkert óþægilegt og ég myndi ráð-
leggja stelpum að prófa til að sjá hvað þeim
finnst.
öll sambönd eru byggð upp á málamiðlunum
en þá er ekki þar með sagt að ekki séu þeir
hlutir til sem við erum ekki tilbúin að fórna,
sem í þínu tilviki virðast vera skapahárin.
Athugaðu hvort þú getir ekki fengið kærast-
annn þinn til að raka sig líka og þá getið þið
slegið þessu upp í léttan leik saman.
Ég get ekki hætt að blaðra...
Ég var skotin í stráknum sem ég er með
núna í ár áður en við byrjuðum saman
og mér finnst ennþá skrítið að hann hafi
á endanum litið við mér. Þetta gerir mig
svo taugaóstyrka, allaveganna í kringum
hann og þegar ég verð taugaóstyrk blaðra
ég endalaust. Þegar við erum ein sam-
an tala ég út í eitt og um daginn spurði
hann mig hvort ég hefði tekið eftir því
hvað mér líkaði mín eigin rödd. Hrikalegt
„komment!" Hvað get ég gert?
44
Hér er það nokkuð Ijóst að þú ert með ein-
hverskonar minnimáttarkennd. Það er algjör
óþarfi þar sem hann er jú með þér af því að
honum finnst eitthvað varið í þig. Óöryggi er
besti vinur minnimátarkenndarinnar og þá
fyrst fer maður að blaðra. Þannig að elskan
mín reyndu bara að horfa hlutlaust á hann
og þá muntu sjá að hann er ekkert annað en
venjulegur strákur og engin þörf á að vera
upptjúnuð í kringum hann. Reyndu bara að
slappa af og þótt þú sért ekki örugg,„feikaðu"
þig það allavega.
Einkamál.is
Ég hitti mann á Einkamál.is og mér líst
alveg rosalega vel á hann, vandamálið
er bara að ég hef aldrei treyst svona síð-
um. Mér hefur heldur aldrei litist á þetta
fyrirkomulag til að byrja að deita en samt
ætti þetta að vera besta leiðin með það í
huga að maður kynnist mjög vel áður en
eitthvað fer af stað. Hvað á ég að gera?
Myndi heldur ekki vilja segja fólki að ég
hafi kynnst honum þar!
Ein desperat
Kæra desperat,
Þetta er ekki einu sinni vandmál.
Stefnumótasíður á borð við Einkamál.is eru
framtíðin og þetta er ekkert nema eðlilegt.
Passaðu bara að hitta hann á einhverjum
„public" stað svona fyrst ef þetta er bara ein-
hver þerri. Þetta er fín leið til að hitta fólk og
ég meina er eitthvað skárra að hafa kynnst
þegar þið duttuð í sleik hauslaus á djamm-
inu?
Klám á netinu..
Nýlega komst ég að því að kærastinn
minn, sem ég er í sambúð með, er við-
stöðulaust skoðandi klám á netinu. Um
leið og ég fer út úr húsi er hann sestur
niður við tölvuna að skoða þessar síður
og fróar sér meir að segja yfir þeim. Hann
á það jafnvel til að hanga í he.nni fram eft-
ir á nóttunni þegar ég er heima og farin
upp í rúm. Skemmtilegt, eins og ég sé bara
einhver manneskja sem hann situr uppi
með. Kynlífið hefur minnkað jafnt og þétt
síðasta árið en ég held hann hafi byrjað
um það leiti. Ég komst alveg óvart að þes-
su þegar ég var eitthvað að fikta í tölvunni'
hans um daginn, ég hélt hann væri alltaf
að vinna í henni.Núna fer ég ítölvuna dag-
lega til að athuga hvað hann er að skoða,
mér finnst þetta svo ógeðslegt. Er þetta
eðlilegt? Hvort á ég að tala um þetta við
hann eða þykjast ekkert vita?
Þetta finnst mér vera lengst frá því að vera eðli-
legt þar sem hann er að taka einhverjar súrar
klámdrottningar fram fyrir kærustuna sína og
myndi því flokka þetta sem framhjáhald. Upp
á sambandið að gera þá þurfa ekki að vera
nein tengsl milli þess að hann sé óánægður
og sókn hans í klám, þetta getur alveg eins
verið einhver spennufíkn eða einfaldlega
forvitni. Sestu niður og talaðu um þetta við
hann sem fyrst af því að þetta getur orðið að
fíkn eins og allt annað. Fyrstu viðbrögð hans
verða líklega þau að neita fyrir þetta þannig
að þú verður bara að vera hörð og þvinga
hann til að ræða þetta.Til eru samtök um all-
an heim sem díla við svona og ég býst við að
einhver hliðstæð samtök séu til hérna heima.
GetnaðarvarnarsprautanH
Er ekki komin einhver getnaðarvörn á
markaðinn sem er á sprautuformi? Hvað
kostar að fá hana og hvað dugar hún
lengi? Hvar get ég nálgast hana?
Jú, það er til getnaðarvörn sem er einfaldlega
kölluð sprautan. Þetta er hormónalyf líkt og
pillan og dugar í þrjá mánuði. Hún kostar um
þúsund krónur og best er að hafa samband
við kvensjúkdómalækni til að nálgast hana.
Hafðu samt varann á, þetta fer misvel í stelpur.
Ég hef heyrt góðar sögur af þessu en líka fullt
af slæmum. Stelpur eiga það til að verða alveg
vitlausar í skapinu og grenja yfir minnstu
hlutum. Prófaðu þetta til að byrja með en ef
þú finnur fyrir einhverjum stórvægilegum
breytingum varðandi skapið myndi ég hætta
þessu strax og sjá hvernig þér líður þá.
Talar bara um sjálfan sig!!!
Ég er að hitta strák og hann talar eigin-
lega bara um sjálfan sig og sitt líf og hefur
engan áhuga á því sem ég er að gera eða
hef verið að gera. Mér finnst hann samt
æðislegur, hann er skemmtilegur og fynd-
inn en er þetta eitthvað sem ég get litið
framhjá? Ætli ég deyi ekki úr leiðindum
með honum til lengdar?
Jú, veistu, ég held það. Það er ekkert leiðin-
legra en að hlusta á manneskju sem sér ekkert
annað en sjálfan sig. En aftur á móti getur
verið að hann sé bara stressaður og tali því
mikið og hefur þá ekkert betra um að tala en
sig sjálfan.
Aftur á móti ef þetta heldur svona áfram eitt-
hvað lengi og hann hefur engan áhuga á að
heyra nokkurn skapaðan hlut um þig myndi
ég hugsa málið betur. Þið eruð líka bara nýbú-
in að kynnast og það er til endalaust af sætum
strákum.
Sendið mér póst á
kaeraanna@ordlaus.is
Mérfinnst óþolandi...
...þegar að konur fara saman á klósettið. Ég
meina, hvað er það? Fastlega má gera ráð
fyrir að ekki þurfi þær hjálp við að athafna sig
þegar sest er niður og eins þegar að hreinsað
er til í kjallaranum eftir losun. Ekki þarf mikla
aðstoð við handþvottinn, að minsta kosti eru
þær konur sem ég þekki flestar með sæmi-
lega hreinar hendur að staðaldri. Spegill er
yfirleitt til staðar svo að „hvernig lít ég út"
spurningunni er svarað á staðnum og varla
þarf sjónárvotta.
Varla er það mitt eigið óöryggi sem veldur
þessum pirringi hjá mér. Maður hefur svo
sem gefið tilefni til þess að heilu og hálfu
klósettferðunum sé eitt í „hey, veistu hvað/í
alvörunni!" umræður um mig og okkur strák-
ana en það er langt slðan að ég hætti að velta
mér upp úr því. Forvitni? Kannski er þetta
bara sjúkleg forviti sem ég þjáist af og verð að
velta mér upp úr því hvað er verið að spjalla.
En hvað ætti það svosem að vera? Snyrtivörur,
barneignir,framhaldsnám? Nú stendurmaður
á gati þar sem engin kona hefur verið fáanleg
til að segja mér af hverju þær þurfa að vera
a.m.k.tvær saman á klóinu.
Reyndar er mig farið að gruna að tilgangur-
inn sé tilefnislausar árásir á mannorð okkar
strákana, rógburður, innihaldslaust hjal um
hluti sem skipta engu máli nema fyrir konur
á klósettum. Auðvitað er erfitt fyrir ykkur kon-
urnar að viðurkenna að þannig sé í pottinn
búið, hvað þá að reyna að telja okkur strák-
unum trú um að þetta sé nauðsynlegt. „Þeir
skilja þetta hvort eð er ekki" En við viljum
skilja - trúið mér stelpur!
Ákalla ég nú kvennþjóðina og óska hér með
eftir að við strákarnir fáum að fljóta með og
kynnast því hvað fer fram þegar þið konurnar
notið „bad kamer" (klósett á hollensku skv.
leiðbeiningum á sótthreinsandi afþurrkunar-
klútum fyrir baðherbergi sem má sturta niður
eftir notkun). Með þessu væri fyrsta skrefið
stigið ( að brúa bilið milli menningarheima
karla og kvenna þar sem eflaust kæmi í Ijós að
klósetthópferðirnar er jafn auðvelt að skilja
og hollenska orðið „bad kamer"
Sem sjálfskipaður menntamálaráðherra
karJþjóðarinnar bíð ég spenntur eftir opin-
beru boði og mun ég gera mitt besta til að
miðla upplýsingum um hvers ég verð vísari til
annarra karlmanna sem mun færa okkur öll
nær takmarkinu um fullkominn skilning milli
kynjanna. Ja, nema að þið stelpurnar viljið
bara halda áfram að vera óþolandi.