Bændablaðið - 02.05.2006, Side 2

Bændablaðið - 02.05.2006, Side 2
2 Þriðjudagur 2. maí 2006 Veiðihundadeild Hundarækt- arfélags Íslands hefur sótt um leyfi til umhverfisráðherra til að nota rafmagnsólar sem fyr- irbyggjandi aðgerð gegn hundsbitum í sauðfé. Pétur Allan Guðmundsson, formaður veiðihundadeildarinn- ar, sagði að á hverju ári kæmu upp nokkur tilfelli þar sem hundar réðust á og særðu eða jafnvel dræpu sauðfé. Hér á landi verða veiðihundar að gangast undir strangt próf sem byggt er á norskum reglum. Í Noregi fær hundur ekki að fara í veiðipróf nema búið sé að venja hann við kindur. Sumir hundar ráðast aldrei á kindur en á þá hunda sem það gera er sett raf- magnsól. Ef hann sýnir sauðfé áhuga þá er gefinn straumur á ólina með fjarstýringu. Hundur- inn myndar þá tengingu að kind- urnar myndi þennan straum. Þetta er gert einu sinni eða í hæsta lægi tvisvar af sérfróðum mönnum. Eftir það forðast þess- ir hundar sauðfé. Leyft og bannað Það er leyfður innflutningur á þessum rafmagnsólum og fjar- stýringum, En að sögn Péturs Allans má ekki gefa strauminn. Það er sem sé leyfð sala en notk- un tækisins bönnuð. „Við viljum fá notkunarleyfi fyrir þá sem hafa lært þetta og kunna fullkomlega til verka. Ef einhverjir sem ekki kunna til verka eru að nota ólina þá geta þeir gert vitleysur svo sem að hundarnir fari að óttast girðing- ar eða eitthvað þvíumlíkt,“ sagði Pétur Allan. Málið í skoðun Hann bendir á að í Noregi fá standandi fuglaveiðihundar ekki að fara í próf fyrr en hægt er að sýna vottorð um að þeir séu sauð- fjárgæfir. Pétur Allan segir að málið sé í skoðun hjá umhverfisráðuneytinu og Umhverfisstofnun. Á sumar- daginn fyrsta kom norskur sér- fræðingur í hundatamningum til landsins og hélt námskeið fyrir út- valda menn. Meðal gesta voru fulltrúar frá Umhverfisstofnun og munu þeir síðan gefa skýrslu um málið. Pétur Allan segist vonast til að í framhaldinu verði gefið leyfi fyrir notkun rafmagnshundaóla. Norska Íslandshesta- félagið sækir um að- gang að WorldFeng Norska Íslandshestafélagið hef- ur ákveðið að sækja um aðgang fyrir alla sína félagsmenn að WorldFeng frá og með næsta ári. Þetta var samþykkt á aðal- fundi félagsins fyrir nokkrum dögum. Þá hafa tvö fjölmenn Ís- landshestafélög ákveðið að opna aðgang að WorldFeng fyrir alla félagsmenn en sænska félagið ákvað að gera þetta strax á þessu ári fyrir sína félagsmenn, sem eru um 6.500 talsins. Það er því ljóst að áskrifendur World- Fengs verða um 10.000 frá og með næstu áramótum. „Ég tók grunninn að þessu nýja húsi í fyrrahaust og lauk við að steypa sökkulinn og fylla inn í hann. Svo reikna ég með að fara í gang aftur nú í byrjun maí. Þá fer ég að sjóða saman stálbitana og reisa húsið. Það er 3.400 fer- metrar að stærð þannig að þetta tekur sinn tíma en ég þarf helst að geta tekið hluta af því í notk- un í júlí því ég setti talsvert mik- ið á af dýrum í fyrrahaust og vantar því pláss þegar hvolparn- ir fara að stækka,“ sagði Sig- mundur Sigurðsson, loðdýra- bóndi í Héraðsdal í Skagafirði, þegar tíðindamaður blaðsins náði tali af honum á dögunum. Loðdýrabúið rekur Sigmundur nú undir nafninu Quality á Ís- landi ehf. Sigmundur byrjaði í loðdýra- rækt árið 1982 og þekkir þessa búgrein orðið nokkuð vel. Hann er í dag með um 3.000 minkalæður og 400 refalæður á búinu, en býst við að hætta með refinn og snúa sér alfarið að minknum í haust. Ástæðan er sú að það er alltaf tap á refnum, að hans sögn. Með til- komu nýja hússins getur Sigmund- ur verið með um 5.000 minkalæð- ur. Hann hefur í mörg ár verið með búið á tveimur stöðum. Auk húsa á heimajörðinni keypti hann fyrir allmörgum árum loðdýra- skála í landi Reykjaborgar, sem er um 7 km frá Héraðsdal. Þar byggði hann í fyrra nýtt hús, sem í er fóðurstöð og frystigeymsla. Sig- mundur hefur frá árinu 1992 rekið eigin fóðurstöð og sækir hráefni víða að, fiskúrgang til Dalvíkur, sláturúrgang til Akureyrar og lýsi og mjöl til Siglufjarðar og fær að auki bætiefni frá Danmörku. Með tilkomu nýja hússins getur hann verið með mun meiri birgðir af hráefni en áður. Aðspurður um hve margir starfi við búið nú, segir hann að þar séu yfirleitt fimm starfsmenn og svo aukafólk meðan skinnaverkun standi yfir. En hann segir erfitt að fá fólk. Þegar bygg- ingin verði tilbúin segist hann þurfa fimm menn til viðbótar. Miklar verðsveiflur -En er afkoman bærileg hjá loð- dýrabændum í dag? „Þessi staða á gengi krónunnar, sem verið hefur lengi, hefur komið illa við okkur loðdýrabændur eins og aðra sem eru að flytja afurðir á erlendan markað. En verðið er með besta móti núna, ég vonast eftir að jafnaðarverð fyrir minkaskinn verði a.m.k. 2.500 krónur og ef vel gengur geti það nálgast 3.000 krónurnar. En það er erfitt að ráða í verðið, því þótt eitt uppboð gefi gott verð er ekki víst að það haldist eins hátt á næsta uppboði. Maður hefur séð miklar sveiflur upp og niður á verðinu í gegnum tíðina, t.d. þegar minkaskinnin voru á milli 7 og 800 krónur. Ég lét engin skinn á markað þá og hef oft geymt skinn á milli ára þegar verðið hefur verið lágt. Það hefur alltaf borgað sig. En maður vonast til að sjá ekki slíka stórniðursveiflu aftur. En skinnaverð í dag er með því skásta í langan tíma og það gefur manni tilefni til bjartsýni. Þess vegna er ég að fara út í þessa húsbyggingu, sem væntanlega kostar um 50 milljónir króna. Og Landsbankinn virðist hafa trú á þessu og hefur gefið grænt ljós á að lána út á þessa framkvæmd,“ sagði Sigmundur Sigurðsson loð- dýrabóndi. /ÖÞ Sigmundur Sigurðsson í Héraðsdal í Skagafirði: Trúir á betri tíð í loðdýrabúskapnum Þollur er besta nautið í ár- gangi 1999 Á aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands, sem haldinn var á Flúðum 21. apríl sl. afhenti Jón Viðar Jónmundsson landsráðu- nautur í nautgriparækt Kristni Guðnasyni bónda á Þverlæk í Holtum viðurkenningu fyrir besta nautið í nautaárgangi 1999. Viðurkenninguna hlaut Kristinn fyrir ræktun kynbóta- nautsins Þolls 99008 undan Skildi 91022 og Grautargerð 346, Bassadóttur 86021. Jón Viðar sagði við þetta tæki- færi að sér væri mikil ánægja að því að afhenda Kristni þessa við- urkenningu þar sem Þverlækur væri eitt fárra búa á landinu þar sem nautgriparækt væri stunduð af sömu ástríðu og sjá mætti í hrossa- og sauðfjárrækt. Hann sagði það segja sína sögu að nú væru þrjú reynd naut frá Þverlæk í nautaskrá en slíkt væri afar sjald- gæft og bæri glöggt vitni um ár- angur áratuga ræktunarstarfs og áhuga á nautgriparækt. Rafmagnsólar sem fyrir- byggjandi aðgerð gegn hundsbitum á sauðfé Í vetur hefur verið unnið af fullum krafti við byggingu veiði- húss í landi Hólabæjar í Langadal. Það er veiðifélag Blöndu og Svartár sem lætur byggja húsið en aðalverktaki er bygginga- fyrirtækið Krákur ehf. á Blönduósi. Krákur byrjaði um ára- mót á byggingunni en þá var grunnur með steyptri gólfplötu tilbúinn. Lárus Jónsson byggingameistari og framkvæmda- stjóri Kráks sagði að framkvæmdir við húsið hefðu gengið vel í vetur og væru á áætlun en húsinu á að skila 20. maí nk. Veiðihúsið er timburhús, 702 fermetrar að grunnfleti, og ljóst að það verður allt hið glæsilegasta. Í suðurálmu hússins eru tólf her- bergi ætluð veiðimönnum, öll tveggja manna með parketi á gólfi, baði og sturtu. Þá eru í húsinu fimm herbergi ætluð starfsfólki og snyrtingar og setustofa. Einnig eru rúmgott eldhús og borðstofa í vesturálmu með útsýni yfir ána. Þar mun náttúrufegurð dalsins njóta sín vel á góðviðrisdögum. Í húsinu er einnig ýmisleg aðstaða fyrir veiðimenn, eins og geymsla fyrir vöðlur og rúmgóður kælir fyrir veiðina. Tveir heitir pottar verða við húsið og stórir sólpallar. Jón Guðmundsson arkitekt á Blönduósi teiknaði húsið, en burðar- þolsteikningar gerði Bragi Haraldsson hjá Stoð ehf. á Sauðárkróki. Veiði á svæði 1 í Blöndu mun hefjast þann 5. júní nk. en síðar á öðrum svæðum, en alls eru tólf stangir leyfðar í ánni. Í Svartá hefst veiði 25. júní og lýkur 25. september. Nýlega samþykkti veiðifélag Blöndu og Svartár að taka tilboði frá fyrirtækinu Lax-á hf. í veiði í ánum árin 2007 til 2011. /ÖÞ Eitt glæsilegasta veiðihús landsins rís í Langadal Á myndinni eru f.v.: Sigurjón Pálmason verkstjóri, Lárus Jónsson byggingameistari, Bragi Haraldsson hönnuður og Jón Guðmundsson arkitekt. Á innfelldu myndinni má sjá norður- og vesturálmur veiðihússins á bökkum Blöndu. Sigmundur loðdýrabóndi með fallegan mink á búi sínu í Héraðsdal. /Bbl. Örn. Spáir góðri gras- sprettu í sumar Á heimasíðu Búnaðarsambands Suð- urlands er haft eftir Páli Bergþórssyni, fyrrverandi veðurstofustjóra, að hann spái svipaðri grassprettu og í fyrra. Að sögn Páls hefur vetrarhiti, frá október til apríl, verið góður, um 1,5 gráður, og því ætti að verða góð grasspretta í sumar auk þess sem annar gróður ætti að þrífast vel. Bændur ættu því ekki að þurfa að bera meira á en síðasta sumar.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.