Bændablaðið - 02.05.2006, Blaðsíða 17

Bændablaðið - 02.05.2006, Blaðsíða 17
17Þriðjudagur 2. maí 2006 Garnaveiki- tilfelli í Gnúp- verjahreppi Aðalfundur Landssamtaka sláturleyfishafa: Stjórnarmönnum fækkað úr sjö í fimm Landssamtök sláturleyfishafa (LS) koma fram fyrir hönd slát- urleyfishafa við framkvæmd laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, nú lög nr. 99/1993 með síðari breytingum, og annarra laga, sem fjalla um málefni sláturleyfishafa og hags- muni þeirra. Á aðalfundi Landssamtaka slát- urleyfishafa, sem haldinn var 21. mars 2006, var gerð breyting á sam- þykktum félagsins þannig að aðal- menn í stjórn verði eftirleiðis 5 í stað 7. Sömuleiðis var samþykkt að fækka varamönnum úr 7 í 5. Stjórnina skipa: Ágúst Andrésson; Kf. Skagfirðinga. Varamaður: Heimir Ágústsson, Sláturhús KVH ehf. Sigurður Jóhannesson, SAH Afurðir ehf. Varamaður: Þórður Pálsson, Sl- Vopnfirðinga. Steinþór Skúlason, SS Varamaður: Hjalti H. Hjaltason, SS. Þorsteinn Benónýson, Borgarnes- Kjötvörur Varamaður: Magnús Freyr Jónsson, Kf.-Króksfjarðar. Sigmundur Ófeigsson, Norðlenska Varamaður: Reynir Eiríksson, Norðlenska. Samþykkt var óbreytt fyrir- komulag að varamenn mættu sitja stjórnarfundi með málfrelsi og til- lögurétt. Formaður: Sigurður Jóhannes- son, SAH Afurðir ehf., Varaformað- ur: Steinþór Skúlason, SS. Ritari: Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir. Starfsmaður samtakanna: Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir Bændahöllinni v/Hagatorg 107 Reykjavík Sími: 563-0300 Netfang: landslatur@bondi.is Í síðustu viku kom upp garna- veikitilfelli á bæ í Gnúpverja- hreppi. Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum, bendir á að hér sé um að ræða sjúkdóm sem hægt er að bólusetja við og þess vegna þarf engan allsherjar niðurskurð. Hins vegar eru nautgripir í hættu ef veikin kemur upp í sauðfé sem er í uppeldi í sama húsi. Sigurður sagði að búið væri að taka frá tvær sýktar kindur og að nú yrði athugað hvort fleira fé sé smitað. Síðan yrði kannað með blóðprufum hvort veikin hafi bor- ist í kúastofninn. Garnaveiki hefur komið upp á nokkrum bæjum í Gnúpverja- hreppi í áranna rás og væntanlega vegna þess að ekki hefur verið bólusett nógu snemma. Sigurður segir að nú verði haldinn fundur með sveitarstjórn og íbúunum þar sem lagt verður á ráðin um hvernig megi snúa vörn í sókn í baráttunni gegn garnaveik- inni. Allar upplýsingar í síma 892-2030 Beinskipt eða sjálfskipt með GPS. Takmarkað magn. Tækifærisverð frá 555 þús.+ vsk. 4 X 4 HONDA TRX 450 og TRX 500 SÚGÞURRKUNARBLÁSARI Landssmiðjublásari H-12 og 15 ha. Jötunsmótor 440V Tilboð óskast. SUBARU LEGACY STATION 03/1999 Ekinn 119 þús. Ástand gott. Útborgun 380 þús. + 500 þús.lán Beisli og sumardekk fylgja. Þessi frábæra kjötsög með hakkavél frá Dinamix er komin aftur Ryðfrítt vinnsluborð og bandsagarblað - vinnsluhæð 240 mm vinnslubreidd 250mm - færanlegt vinnsluborð 470x600 mm - hakkavél - mótor 550 wött - hæð 1470 mm - þyngd 58 kg. Verð aðeins kr. 44.900.- Sími 568 6899 & fax 568 6893 Síðumúla 11, 108 Reykjavík. Bændablaðið kemur næst út þriðjudaginn 16. maí

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.