Bændablaðið - 02.05.2006, Qupperneq 18
18 Þriðjudagur 2. maí 2006
Á Kiðagili í Bárðardal eru reknar
skólabúðir. Árið 2004 var fyrsta
heila árið sem skólabúðirnar störf-
uðu eftir að fjórir tilraunahópar
komu í Kiðagil á haustönn 2003. Á
vorönn 2004 komu átta hópar og
spannaði aldursdreifingin alla
bekki grunnskólans og elsta hóp
leikskólans.
Segja má að viðfangsefni í
skólabúðunum tengist á einn eða
annan hátt hinum ýmsu náms-
skrám. Í skólabúðunum er megin-
áhersla lögð á að styrkja áræði
nemandans, frumkvæði, eðlislæga
sköpunargleði og aðlögunarhæfni.
Þannig verður sérhver einstakling-
ur hæfari til að takast á við kröfur
og áskoranir í daglegu lífi.
Sérstök tenging
einstakra verkefna
Handverkið: Listir hafa fylgt
manninum frá örófi alda og eru
einn af hornsteinum mannlegs
samfélags. Handverkið tengist
námsskrá listgreina og samfélags-
fræði.
Stuttmyndagerð: Stuttmynda-
gerð með sögulegu ívafi byggir á
þjóðsögum og fornsögum og teng-
ist þannig beint markmiðum sam-
félagsfræðigreina. Þar er söguvit-
undin vakin með því að börnunum
er sögð saga sem þau vinna síðan
með á margvíslegan máta. Enn-
fremur tengist stuttmyndagerðin
upplýsinga- og tæknimennt þar
sem nemendur læra að nýta tækja-
búnað til að afla og miðla þekk-
ingu sem og að nota myndræna
framsetningu á tölvutæku efni og
að setja saman stiklutexta með til-
liti til innihalds.
Rafstöðin: Þetta viðfangsefni
tengist beint eðlisvísindum þar
sem unnið er með vatnsorku,
hvaðan hún kemur, hvernig hún
verður til og hvernig hún er beisl-
uð.
Fjallakofinn: Farið er upp á há-
lendi Íslands og dvalið eina nótt í
fjallaskála á Réttartorfu. Þar er
unnið með verkefni sem reyna á
hæfni nemandans að bjarga sér við
algjörlega framandi aðstæður.
Einnig er tenging við heimilisfræði
þar sem nemendur sjá um elda-
mennsku og frágang og þrif á kof-
anum.
Blessuð sértu sveitin mín:
Námsvettvangur eru sérvaldir
sveitabæir þar sem áhersla er lögð
á að nemendur taki þátt í daglegum
störfum og lifandi landbúnaði.
Ennfremur er áhersla lögð á að
nemendur átti sig á samspili manns
og náttúru. Nemendur kynnast og
læra um íslensku húsdýrin, eigin-
leika þeirra, atferli og lífsskilyrði.
Markmiðin sem lagt var upp með
Í Skólabúðunum á Kiðagili er leit-
ast við að efla alhliða þroska nem-
andans en það felur m.a. í sér að
efla siðvit og virðingu fyrir sjálf-
um sér, öðrum og umhverfinu. Allt
starf sem fram fer þar er því miðað
að gagnkvæmri virðingu, trausti og
ábyrgð. Einnig að gera nemendur
ábyrga með því að setja sér mark-
mið, finna leiðir, sýna frumkvæði
og verða læsir á umhverfi sitt og
aðra. Líka að auka sjálfsþekkingu
nemandans þannig að hann geri sér
grein fyrir styrkleikum sínum og
veikleikum sem og styrkleikum og
veikleikum annarra í hópnum,
þannig að þeir skipuleggi vinnuna
út frá því.
Staðan í dag
Nú er starfið orðið vel mótað. Það
er mjög opið þannig að verkefnin
eru valin saman eftir áhugasviði
hvers skóla og sniðin að aldri
hópsins. Hver hópur fær þannig
sérhannaða dagskrá fyrir dvölina.
Niðurstaðan er því sú að hug-
myndin er að öllu leyti góð og hef-
ur útfærsla hennar heppnast vel.
Verkefnisstjórar eru Guðrún
Tryggvadóttir og Magnús Skarp-
héðinsson. Síminn á Kiðagili er
464-3290. Sími Guðrúnar er 466
1719.
Netf. kidagil@thingeyjarsveit.is
Heimasíða Kiðagils er undir
heimasíðu Þingeyjarsveitar. Þar er
flipi merktur skólar.
Skólabúðirnar á Kiðagili
Kjörorðið er Já, það er ekkert mál
Um páskana undirrituðu for-
svarsmenn Sláturhúss Hellu hf.
og Betra lands ehf. kaupsamning
um kaup Sláturhúss Hellu hf. á
50% hlut í Betra landi af stofn-
endum fyrirtækisins, þeim Sig-
ríði Eiríksdóttur og Sigurði
Jónssyni.
Fyrir þessi kaup höfðu fyrirtæk-
in þróað með sér samstarf sem
leiddi til þess að Sláturhúsið Hellu
ákvað að gerast hluthafi að Betra
landi. Eigendur Betra lands ehf.
eru því, eftir þessar breytingar,
Sigríður Eiríksdóttir og Sigurður
Jónsson með 50% og Sláturhús
Hellu hf. einnig með 50% eignar-
hlut.
Í framhaldi af þessum breyting-
um mun meginstarfsemi og lög-
heimili Betra lands flytjast á Suð-
urlandsveg 4, Hellu.
Ný fjögurra manna stjórn Betra
lands ehf. er skipuð þeim Ara Ein-
arssyni, Sigríði Eiríksdóttur, Sig-
urði Jónssyni og Þorgilsi Torfa
Jónssyni.
Fyrsti áburðarfarmur Betra
lands í heilum skipsfarmi er nú á
leiðinni til landsins og mun Betra
land skipa upp áburði á fjórum
stöðum, þ.e. Þorlákshöfn, Akra-
nesi, Akureyri og á Reyðarfirði.
Um Sláturhús Hellu hf.
Sláturhús Hellu hf. var stofnað
árið 2001 og rekur stórgripaslátur-
hús á Hellu. Hluthafar félagsins
voru í árslok 2005 180 talsins.
Árið 2005 voru 15 starfsmenn hjá
félaginu og hefur reksturinn geng-
ið vel frá stofnun þess.
Þorgils Torfi Jónsson er fram-
kvæmdarstjóri félagsins og mun
hann setjast í stjórn Betra lands
ásamt Ara Einarssyni stjórnarfor-
manni fyrir hönd Sláturhúss Hellu
hf.
Dótturfélag Sláturhúss Hellu hf.
er Pakkhúsið Hellu ehf. sem hefur
selt ýmsar bygginga- og búrekstr-
arvörur þ.á.m. áburð, fóðurvörur,
rúlluplast og margt fleira til bænda
á öllu Suðurlandi.
Þorgils Torfi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sláturhúss Hellu
hf.:
„Með kaupunum hefur Sláturhús
Hellu hf. fært sig inn á enn frekari
þjónustu við bændur og bindum
við miklar vonir við þetta nýja
samstarf. Betra land er traust og
gott fyrirtæki sem hefur hafið inn-
flutning á áburði og fyrirhugað er
að flytja inn fóður og ýmsar rekstr-
arvörur fyrir landbúnaðinn. Hjá
Betra landi er framsýnt starfsfólk
með kraft og vilja til góðra verka.“
Sigurður Jónsson, sölu- og
markaðsstjóri Betra lands ehf:
„Það er stórt og ánægjulegt skref
fyrir Betra land að fá inn hluthafa
eins og Sláturhúsið Hellu.
Þetta hefur mikla þýðingu fyrir
vöxt Betra lands og mun styrkja
framtíðarsýn fyrirtækisins.
Meginstarfsemi Betra lands
mun verða óbreytt fyrst um sinn
nema hvað að við munum flytja
fyrirtækið á Hellu sem er mjög
ánægjulegt.
Okkar viðskiptavinir eru á
landsbyggðinni og því við höfum
ávallt kappkostað eins og hægt er
að sú þjónusta eða þau aðföng sem
Betra land hefur þurft á að halda
komi af landsbyggðinni. Núna
gefst okkur það tækifæri að færa
okkar rekstur á landsbyggðina.
Hella er mjög spennandi staðsetn-
ing að mörgu leyti m.a. þar sem
Hella er miðsvæðis á Suðurlandi.
Betra land mun halda áfram að
byggja upp gott þjónustustig á
þjónustustöðum um allt land fyrir
viðskiptavini fyrirtækisins og
vinna að settum markmiðum.
Reynsla Betra lands og sú dýr-
mæta reynsla sem nú kemur inn í
fyrirtækið með nýjum hluthöfum á
eftir að gera Betra land enn öflugra
til þess að vinna að settum mark-
miðum. Markmið Betra lands er að
vera ávallt í fararbroddi á öllum
sviðum með kraftmikilli starfsemi
sem byggist á lítilli yfirbyggingu,
persónulegum samskiptum og
sveigjanleika þar sem leið við-
skiptavinarins er greið inn í hjarta
fyrirtækisins.
Ég hlakka mikið til að vinna
með því frábæra fólki sem kemur
inn með nýjum hluthöfum og er
sannfærður um að samstarf okkar
muni verða árangursríkt og
ánægjulegt.“ /Fréttatilkynning.
Nýr hluthafi í Betra landi
Ásta Sóllilja Þorsteinsdóttir frá Reykjakoti í Ölfusi kom með nokkur
nýfædd lömb á sumardaginn fyrsta á sýninguna á Garðyrkjuskólann í
Reykjum. Auðvitað vöktu lömbin mikla athygli yngstu kynslóðarinnar. En
takið líka eftir svip móðurinnar sam vaktar lambið sitt þó svo það sé
gulltryggt í fangi Ástu. /MHH.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á
Kiðagili á þessu og síðasta ári.
Eins og sjá má er nóg við að vera
á Kiðagili.
Fyrir skömmu tóku þessar konur þátt í „örnámskeiði“ á vegum Lifandi
landbúnaðar. Um er að ræða námskeið, sem eru haldin um allt land, en
þessi hópur er frá Snæfellsnesi. /Bændablaðið þsk