Bændablaðið - 02.05.2006, Side 23
23Þriðjudagur 2. maí 2006
!"#$%&'()*+++,-.$-/-,%
0123 4
5013 MEINDÝRAEYÐING
Vilja ekki allir eiga flugulaust sumar???
Eyði hvers kyns meindýrum og skordýrum svo sem
geitungum, húsflugu, fiskiflugu og silfurskottum.
Efnið má meðal annars nota í íbúðarhúsnæði,
bakaríum, verksmiðjum, matvöruverslunum,
hótelum, eldhúsum, veitingastöðum, mjólkurbúum,
sláturhúsum, korngeymslum, útihúsum og víðar.
Athygli skal vakin á því að best er að pantanir
berist sem fyrst, með því móti get ég
skipulagt ferðir mínar vel og haldið
ferðakostnaði í lágmarki.
Er einnig með garðaúðun og eitur gegn
roðamaur.
Upplýsingar og pantanir á eyðingu:
Hjalti Guðmundsson, meindýraeyðir
Huldugili 6 – 103
603 Akureyri
Símar: 893-1553, 853-1553 og 462-6553
Erfðabreytt
matvæli
Merkingar þeirra
hafa ekki verið teknar
upp í EES samningnum
Í svari umhverfisráðherra við
fyrirspurn Katrínar Júlíusdótt-
ur á Alþingi um hvað líði
ákvörðun Evrópusambandsins
frá 2004 um merkingar á erfða-
breyttum matvælum, kemur
fram að hún hefur ekki verið
tekin upp í EES samninginn og
þess vegna ekki hér á landi.
Umhverfisráðherra kvað ástæð-
una vera þá að ekki væri lokið við
að ganga frá málinu á vegum Evr-
ópska efnahagssvæðisins, (EES
samningnum).
Katrín Júlíusdóttir benti á í um-
ræðum um svar ráðherra að ekkert
væri því til fyrirstöðu að Íslend-
ingar taki málið til afgreiðslu ef
við viljum gera kröfu um að þessi
matvæli verði merkt sérstaklega.
Ráðherra kvað engan efa í huga
sínum um að mikilvægt sé fyrir
neytendur að erfðabreytt matvæli
verði merkt sérstaklega. Það væri
grundvallaratriði til þess að fólk
geti valið, hvort það vill kaupa
slíkar vörur eða velja annað.
Norskir bændur voru á ferð í
tveimur hópum sem fóru um
Borgarfjörð og Dali í aprílmánuði.
Alls voru þetta um 80 bændur sem
komu hingað til lands á vegum
Gilde norsk kjött og voru
sauðfjárbændur í miklum
meirihluta. Hér á landi tóku á móti
hópunum Ólafur Dýrmundsson
hjá Bændasamtökunum og
Eyjólfur Kristinn Örnólfsson
kennari á Hvanneyri. Hann er hér
til hægri á myndinni ásamt
Marianne Aas Halse frá Gilde sem
skipulagði ferðirnar en á milli
þeirra er Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson bóndi í Bakkakoti í
Stafholtstungum en myndin er
tekin í fjárhúsinu í Bakkakoti.
Eyjólfur sagði að norsku
bændurnir hefðu spurt mikið út í
vinnubrögð bænda og sérkenni
íslenska sauðfjárins, ekki síst
forystuféð sem þeim fannst mikið
til um. Gjafatæknin sem byggist á
rúllum og kynbótastarf bænda
kveikti líka fjölmargar spurningar.
Auk Bakkakots heimsóttu norsku
bændurnir Eystri-Leirárgarða,
Lambeyrar, tilraunabúið á Hesti og
skoðuðu starfsemina á Hvanneyri,
skólana og söfnin.
Kúabursti
Vélaval-Varmahlíð hf.
sími: 453-8888
Kálfaskjól
Bændablaðið
kemur næst út
þriðjudaginn 16. maí