Bændablaðið - 02.05.2006, Qupperneq 34
34 Þriðjudagur 2. maí 2006
Stórbrotin náttúra
Ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég
kom til Reykjavíkur á fallegum
haustdegi í september og veðrið
var frábært allt þar til daginn áður
en ég fór heim aftur. Þrátt fyrir að
Reykjavík sé ekki stór, af höfuð-
borg að vera, fær maður nokkra til-
finningu fyrir ástæðum fjárfestinga
Íslendinga erlendis. Náttúran er
stórbrotin og veitti mér mikinn
unað og þó á ég enn eftir að sjá
a.m.k. ¾ landsins en ég heimsótti
bara suðvestur- og vesturhluta
þess. Ég get á augabragði nefnt
Þingvelli, heitu hverina og laug-
arnar, Gullfoss, Snæfellsjökul og
sjávarþorpin við suðurströndina.
Þingvellir höfðu mikil áhrif á mig,
sérstaklega með tilliti til sögunnar
og menningarinnar - að hugsa sér,
þar stóðu frjálsir menn fyrir meira
1.000 árum og settu landslög!
En ég var jú kominn til Íslands
til að kenna eða uppfræða naut-
griparæktarráðunauta. Ég er bú-
fræðikandídat (B.Sc.) frá Land-
búnaðarháskólanum í Kaupmanna-
höfn og um þriggja ára skeið á tí-
unda áratug síðustu aldar starfaði
ég sem nautgriparæktarráðunautur
í Himmerland á N.-Jótlandi. Und-
anfarin 10 ár hef ég síðan unnið
við rannsóknir og kynbætur, eink-
um varðandi kynbótaskipulag og
hvernig það skuli lagt upp á raun-
hæfan hátt. Ég er því í nánu sam-
starfi við bæði Dansk Kvæg og
Dansire. Þess utan fara um 15-
20% af vinnutíma mínum í erfða-
fræðilegar rannsóknir á húsdýrum
með hagræna sjálfbærni og varð-
veislu stofna í huga.
Skilyrði til
mjólkurframleiðslu á Íslandi
Þegar maður kemur frá landi þar
sem aðstæður til mjólkurfram-
leiðslu eru eins góðar frá náttúr-
unnar hendi og þær eru í Dan-
mörku, þá gæti maður furðað sig á
af hverju mjólkurframleiðsla er
yfir höfuð stunduð á Íslandi. Kanni
maður hagkvæmni þess getur það
heldur ekki borgað sig. Fyrir Ís-
land væri mun hagkvæmara að
flytja mjólk og mjólkurvörur inn
frá ESB-löndunum eða Bandaríkj-
unum, a.m.k. á höfuðborgarsvæð-
inu. Það væri alla vega mjög erfitt
fyrir íslenska mjólkurframleiðslu
að fóta sig ef mjólkurverðið væri
undir 25 kr./l. og myndi leiða til
gríðarlegrar samþjöppunar í grein-
inni. Að sjálfsögðu ráða heldur
ekki einungis hagræn sjónarmið
þegar þjóðir ákveða að vera sjálf-
um sér nægar, viðhalda menningu
og byggðum og lífi í sveitum eða
sjá gripi í haganum. Þar er naut-
griparækt og mjólkurframleiðsla
engin undantekning.
Við tölum um landbúnað í víð-
asta skilningi, landbúnað sem gerir
annað og meira en bara að fram-
leiða matvæli. Það hef ég orðið
mjög var við hér í Austurríki þar
sem ég dvel í vetur. Hér er naut-
griparækt annað og meira en fram-
leiðandi mjólkur og kjöts. Hér er
nautgriparæktin einnig framleið-
andi skíðasvæða og fallegs menn-
ingarlandslags. Landslagið er
minna virði án kúa og nautgripa,
gripirnir eru hluti þess, og vel að
merkja, gömlu miðevrópsku naut-
gripakynin en ekki amerískar,
svartskjöldóttar Holstein-kýr.
Þannig hefur nautgriparæktin sín
áhrif á að 10-12% af brúttótekjum
Austurríkismanna koma af ferða-
þjónustu. Á Íslandi gegnir sauðféð
og íslenski hesturinn svipuðu hlut-
verki en ekki má gleyma kúnum.
Þær hafa einnig þýðingu.
Í ferð minni til Íslands ræddi ég
við ráðunautana á námskeiðinu
auk þess sem ég heimsótti kúabú.
Út frá þeirri reynslu er það mitt
mat að þrátt fyrir mikla styrki er
mikið unnið í því að auka hag-
kvæmni og skilvirkni mjólkur-
framleiðslunnar á Íslandi. Þó tel ég
að einkum ætti að huga að góðri
nýtingu graslendis og beitar. Ég
varð undrandi á hversu margir
kjósa rúlluverkun en fáir bændur
verka vothey í stæðum eða flat-
gryfjum þrátt fyrir að
það sé mun ódýrara og
vel framkvæmanlegt,
jafnvel á smærri
búum.
Nautgriparæktar-
starfið á Íslandi
Þegar að ræktunar-
starfinu kemur er um
tvær meginleiðir að
velja sem ég veit að
hafa verið til umræðu.
Annars vegar að
byggja íslenska mjólk-
urframleiðslu áfram á
íslenska kúakyninu
eins og gert hefur verið í yfir 1.000
ár eða hins vegar að flytja inn nýtt
mjólkurkúakyn, svo fremi að lög-
gjöfin heimili. Það er ekki mitt að
segja til um hvað er rétt og hvað er
rangt í þessu sambandi. Það verða
framkvæmdavaldið fyrir hönd
þjóðarinnar og íslenskir kúabænd-
ur að gera. Ég vil hins vegar aðeins
vega og meta málið frá báðum
hliðum.
Það er alveg ljóst að með inn-
flutningi mælir að auðvelt væri að
finna kyn sem með mikilli fóðrun
myndi mjólka meira en íslenska
kýrin. Það er eðlilegt þar sem kyn-
bótaframfarir eru nátengdar stofn-
stærð þar til hún hefur náð
500.000-1.000.000 kúm. Ofan við
þau mörk hefur stofnstærð afmörk-
uð áhrif. Hins vegar veit maður
ekki hvort íslenska kúakynið hefur
þróast á einhvern hátt sem hentar
sérstaklega íslenskum framleiðslu-
aðstæðum þannig að það hafi á
einhvern hátt forskot við þær að-
stæður. Verði innflutningur fyrir
valinu er mikilvægt að velja kúa-
kyn þar sem áhersla hefur verið
lögð á heilsufar í ræktunarstarfinu.
Verði það hins vegar að halda
mjólkurframleiðslunni áfram með
íslenska kúakyninu hefur það
mikla kosti með hliðsjón af fjöl-
breytilegu gildi nautgriparæktar-
innar. Ef veruleg áhersla er lögð á
erfðafræði- og menningarlega eig-
inleika kynsins tel ég það hafa
verulegt gildi fyrir ferðaþjónust-
una - íslenski hesturinn og féð hafa
það nú þegar. Þar að auki kunna að
skapast möguleikar á framleiðslu-
aukningu með útflutningi og með
hliðsjón af náttúrulegum aðstæð-
um á Íslandi er ég sannfærður um
að útflutningur mjólkurvara er að-
eins raunhæfur kostur á sérvöru-
markaði þar sem verðið er hátt og
varan einstök. Möguleikar Íslands
á hinum harða samkeppnismarkaði
magnvörunnar eru ekki miklir, til
þess er samkeppnin of hörð.
Möguleg mjólkurafurð, sem
höfðað gæti ekki aðeins til Evr-
ópubúa og Bandaríkjamanna, gæti
verið Icelandic Skyr from Iceland-
ic Viking Cow. Holl og næringarrík
vara byggð á aldagamalli íslenskri
hefð frá sjálfbærum og umhverfis-
vænum landbúnaði auk þess sem
mjólkin væri úr 1.000 ára gömlu
kyni. Mitt mat á kynbótastarfinu á
Íslandi er byggt á núverandi kyni
og því að framhald verði á að ís-
lenska kúakynið sé það kyn sem
mjólkurframleiðsla á Íslandi reiðir
sig á. Taki menn þá ákvörðun að
flytja inn nýtt kúakyn felur það í
sér ákvörðun um hvaða kyn og þá
um leið að kynbótastarfið mun að
verulegu leyti flytjast úr landi.
Lykiltölur sem hafa þarf í huga
Í hverju kynbótaskipulagi eru
nokkur atriði og lykiltölur sem
þarf að hafa í huga. Kynbótamark-
miðið er mjög mikilvægt því með
því er framkvæmdin ákvörðuð.
Kynbótamarkmið er sett með því
að vega saman ákveðna eiginleika
í eina heildareinkunn. Í töflunni
hér að neðan má sjá samanburð á
vægi eiginleika í heildareinkunn á
Íslandi, hjá dönskum Holstein-
kúm (SDM-DH), rauðum dönsk-
um (RDM) og dönskum Jersey
(DJ). (Sjá töflu).
Eiginlega eru tölurnar misvís-
andi á þann hátt að halda mætti að
framfarir í afurðum hjá íslenska
kúakyninu væru 44% og 31% hjá
RDM . Svoleiðis er
það þó ekki þar sem
að erfðasamhengi
eiginleikanna og
kynbótaskipulagið
hafa mikil áhrif á
hverjar framfarirnar
eða árangurinn
verður. Þannig ná
t.d. RDM og SDM-
DH 70% þeirra
framfara í afurðum
sem ná mætti með
því að setja 100%
vægi á afurðir með
núverandi kynbóta-
skipulagi og heilda-
reinkunn.
Taflan segir því miklu frekar til
um á hvaða eiginleika hin einstöku
kyn leggja höfuðáherslu á í rækt-
unarstarfinu. Þannig er mun meiri
áhersla lögð á afurðir hjá íslenska
kúakyninu en t.d. RDM og SDM-
DH sem er að mínu mati skynsam-
legt með hliðsjón af stærð kynsins.
Að auki má sjá að hjá íslenska
kúakyninu er lögð meiri áhersla á
skap, mjaltir og júgur en hjá
dönsku kynjunum. Ég held að
skynsamlegt sé að leggja meiri
áherslu á júgur og spena en dönsku
kynin gera þar sem þessa eigin-
leika þarf að bæta hjá íslensku
kúnum auk þess sem að þeir hafa
hátt arfgengi og þar með góðar lík-
ur á að ná megi árangri með kyn-
bótum. Auk þessa hafa þessir eig-
inleikar jákvætt samhengi við júg-
urhreysti. Nema því aðeins að
mjöltum og skapi sé verulega
ábótavant sýnist mér fremur mikið
vægi sett á þessa eiginleika í
heildareinkunn hjá íslensku kún-
um. Íhugunarvert væri að flytja
nokkuð af áherslunni þar yfir á
júgurhreysti, þótt áður verði að
sjálfsögðu að gera afleiðuútreikn-
inga.
Afkvæmaprófanir mikilvægar
Á Íslandi eru prófuð um 20-25
óreynd naut á hverju ári sem er
miðað við stofnstærð í góðu lagi
og gefur möguleika á ágætum
erfðaframförum. Með stofnstærð-
ina í huga er það mjög skynsamleg
ákvörðun að slátra nautunum eftir
að hafa tekið úr þeim 7 þúsund
skammta. Afkvæmaprófanir eru
mjög mikilvægar við kynbætur, al-
veg sama hvaða kyn á í hlut. Und-
anfarin 5-10 ár hafa margir trú-
að/vonað að kortlagning gena
myndi leysa afkvæmaprófanir af
hólmi. Það verður tæplega raunin í
allra nánustu framtíð. Um það
skrifuðu Gert Pedersen Aamand
(framkvæmdastjóri Nordisk Avls-
værdivurdering) og undirritaður
grein í Kvægavleren sem Dansire í
Danmörku gefur út og Avlskurier-
en sem Svensk Avel í Svíþjóð gef-
ur út. Greinin heitir „Gæði af-
kvæmaprófana byggja á góðum
skráningum“. Þetta er enn mikil-
vægara við litla stofnstærð eins og
á Íslandi. Vandaðar og öruggar
skráningar án villna hafa því án efa
mikla þýðingu fyrir íslenska naut-
griparækt. Á námskeiðinu var ég
spurður hvort ræktunarkjarnar
væru íslenskri nautgriparækt gagn-
legir. Með hliðsjón af kostnaði við
slíkt verkefni tel ég það ekki vera
tilfellið.
Minni skyldleikaræktun
en búast mátti við
Í litlum búfjárkynjum er mjög
mikilvægt að halda skyldleika-
aukningu innan ákveðinna marka.
Þess vegna er brýnt að nota skyn-
samlegan fjölda nautsfeðra. Í dag
eru notaðar nútímalegar aðferðir
við val nautsfeðra á Íslandi auk
þess sem 7 þúsund skammtar úr
hverju nauti þýða að hvert og eitt
naut er ekki hægt að nota án tak-
markana.
Þorvaldur Kristjánsson hefur
nýlokið við útreikninga á skyld-
leikarækt í íslenska kúastofninum
og hún er mun minni en ég átti
von á. Hins vegar eru ætternisupp-
lýsingarnar mun lakari en ég á að
venjast og ein af ástæðum þess að
skyldleikaræktin reiknast svo lítil
gæti verið mikil notkun óskráðra
heimanauta. Sé ætterni grips ekki
þekkt fær viðkomandi gripur
skyldleikastuðulinn 0 þrátt fyrir að
hann geti verið mun hærri í reynd.
Þetta er eitt dæmi um neikvæðar
afleiðingar ófullkominna skrán-
inga.
Þrátt fyrir að skyldleikarækt í
íslenska kúastofninum reiknist
ekki mikil gæti tilhneiging til auk-
ins kálfadauða og minni endingar
kúnna verið vísbending um skyld-
leikaræktarhnignun. Þó er erfitt að
skýra aukinn kálfadauða með auk-
inni skyldleikarækt eingöngu þar
sem hann hefur aukist svo skyndi-
lega og hratt. Ég ímynda mér að
þar hafi eitthvað í umhirðu og
fóðrun kúnna áhrif.
Mikil heimanautanotkun
og kálfadauði
Það að notkun heimanauta skuli
vera svo útbreidd sem raun ber
vitni í þetta litlum kúastofni er
mjög neikvætt fyrir kynbótafram-
farir í stofninum, og séu þau held-
ur ekki skráð gerir það illt verra.
Frá mínum bæjardyrum séð eru
mikil heimanautanotkun og kálfa-
dauði stærstu vandamál íslenskrar
nautgriparæktar í dag. Það fyrr-
greinda er auðleyst af kúabændum
sjálfum hér og nú - notið sæðinga-
naut! Það síðarnefnda útheimtir
rannsókn sem mér skilst að sé í
burðarliðnum.
Heilt yfir virðist mér að íslensk
nautgriparækt geti horft björtum
augum á framtíðina, einkum og
sér í lagi ef menn taka fjölþætt
hlutverk hennar með í reikninginn.
Ferðalag að sumri til um íslenska
náttúru og landslag auðgast við að
sjá marglitar kýr á beit. Það vonast
ég til að upplifa innan tíðar!
Íslensk nautgriparækt
- spennandi áskorun -
Í byrjun síðasta árs var óskað
eftir því við mig að koma til
Íslands, á námskeið fyrir ís-
lenska nautgriparæktarráðu-
nauta. Ég vík örlítið síðar að
ástæðum þess og bakgrunni
mínum. Þar sem ég hafði
ekki komið til Íslands áður
var ég ekki í nokkrum vafa
um að þetta væri mjög
spennandi verkefni og sagði
auðvitað já. Ísland hefur
ávallt haft visst aðdráttarafl
fyrir mig en ég hef heyrt mik-
ið um náttúrufegurðina og
svo eru bæði Danir og Ís-
lendingar af norrænum upp-
runa. Þá hef ég gegnum árin
hitt marga áhugaverða Ís-
lendinga, bæði í námi mínu
og vinnu. Að lokum fannst
mér einnig áhugavert að sjá
og mynda mér skoðun á þeim
sem kaupa meðal annars
stórmarkaðina og flugfélögin
okkar. Þegar að dýrum og
búfé kemur er jú Ísland
þekktast fyrir íslenska hest-
inn og sauðféð en minna hef-
ur farið fyrir nautgripunum
sem ég, eftir á að hyggja, tel
mjög miður.
Morten Kargo Sørensen,
Danmörku
Guðmundur Jóhannesson,
ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi
Suðurlands þýddi greinina.
Hlutfallslegt vægi eiginleika í heildareinkunn hjá
íslenska kúakyninu, RDM, SDM-DH og DJ
Eiginleiki Ísl. kýr RDM SDM-DH DJ
Afurðir 44 31 32 42
Kjöt - 5 4 -
Frjósemi 8 8 8 10
Lífsþróttur kálfa - 5 6 2
Burðarerfiðleikar - 4 6 4
Júgurhreysti 8 18 13 14
Heilsufar - 3 2 3
Ending 8 6 6 7
Skrokkur - - 2 -
Fætur - 5 5 5
Júgur 16 4 8 10
Mjaltir 8 7 6 2
Skap 8 4 2 1