Bændablaðið - 02.05.2006, Qupperneq 37

Bændablaðið - 02.05.2006, Qupperneq 37
37Þriðjudagur 2. maí 2006 Á landsmótsári eru mörg hesthús full af kynbóta- hrossum sem bíða eftir að sýna hvað í þeim býr á komandi kynbótasýningum. Það er til mikils að vinna og margir sem leggja gríðarlega vinnu, tíma og peninga í undirbúning. Svo eru sérstakar tilfinn- ingar oft bundnar við einstaka gripi, vonir og vænt- ingar miklar og því reynt að standa sem allra best að málum. Þegar undirbúa skal hross fyrir kynbótasýningu skiptir mjög miklu máli að það sé vel fóðrað, ekki of grannt en heldur ekki of feitt. Taka þarf tillit til byggingarlags hestsins þar sem sumum hrossum fer betur að vera heldur feit á meðan önnur þola það alls ekki og líta strax út fyrir að vera mun þyngri í byggingu. Hrossin þurfa einnig að vera vel hirt og heilbrigð. Kenna þarf hestun- um að standa rólega jafnt í alla fætur, ekki inn undir sig en ekki of teygðir heldur. Mikilvægt er að hrossin haldi athyglinni því annars fara þau mörg fljótt að „hanga“ og missa útgeislun um leið. Það getur skipt máli í útkomu byggingareinkunnar hvernig hesturinn stendur, rétt eins og fólk getur gefið afar ólíka mynd af sjálfu sér eftir því hvort það stendur beint í baki með inndreginn magann eða húkandi með niðurlútan svip. Hrossin þurfa líka að standa hnarreist (ekki of- reist) með inndreginn kvið, hvorki fött né húkandi og helst með glaðlegan, vakandi svip. Einnig getur verið misjafnt eftir byggingargerð hvaða staða hentar hverju hrossi og er gott að æfa þetta áður en í sýningu er komið. En þótt hrossið sé vel hirt, fóðrað og kunni að standa rétt skiptir þjálfunin ekki síður máli. Ljóst er að þjálfun hefur mikil áhrif á vöðvaþroska sem og á andlegt ástand og styrk hrossa. Þannig getur þjálfun- in haft talsverð áhrif á hvernig hestur stigast í bygg- ingu og að sjálfsögðu úrslitaáhrif á hæfileikadóm. Með markvissri, uppbyggilegri þjálfun má styrkja og bæta jafnvægi á gangi sem og úthald, þor og gleði hesta. Uppbyggileg þjálfun felur í sér að hross- in verði færari til að bera knapa í jafnvægi á öllum gangtegundum á ýmsum hraða. Hestur sem ber knapann í góðu jafnvægi öðlast meiri frjálsleika í hreyfingum og jafnvægi í sinni og því fylgir oft meiri útgeislun. Óvissuþátturinn í sýningum eykst og dagsformið skiptir meira máli ef eitthvað skortir á undirbúninginn. Vissulega er þó aldrei hægt að ganga að neinu vísu þegar um lif- andi skepnur er að ræða en til þess eru yfirlitssýningarnar, að gefa tækifæri til að bæta það sem ekki var sem skyldi í fordómi. Stundum eru sömu hrossin margsýnd á einu sumri og má ætla að stundum sé fulllangt gengið og hrossin verði frekar þreytt og lúin eftir margar erfiðar sýningar í röð. Þess eru þó dæmi að hross hafi hækkað talsvert milli sýninga og er það bara gott, enda gengið út frá því að ekki sé hægt að sýna meira en í hrossinu býr. Dómarar geta hins vegar eingöngu dæmt það sem þeir sjá hverju sinni en reyna með krossum á dóm- blaði að skýra niðurstöður sínar. Þannig má oft fá mun meiri upplýsingar með því að lesa athugasemd- irnar en ekki einkunnirnar eingöngu. Það er tilhlökkunarefni fyrir alla áhugamenn um hrossarækt að fylgjast með kynbótasýningum vors- ins. Njótið heil! Hestar og hestamenn Herdís Reynisdóttir AUGLÝSING um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að fuglaflensa eða Avian Influensa berist í alifugla. 1. gr. Með vísan til þess að staðfest hefur verið tilvik fuglaflensu, Avian Influensu af H5N1 stofni á Bretlandseyjum, hefur landbúnaðarráð- herra að fengnum tillögum Landbúnaðarstofnunar ákveðið að fyrir- skipa eftirfarandi ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að hindra út- breiðslu og til að afstýra hættu og tjóni af völdum sjúkdómsins. 2. gr. Öllum þeim sem halda alifugla (hænsnfugla, kalkúna, endur og gæsir) er skylt að fylgja eftirfarandi reglum: a. Allir alifuglar skulu lokaðir inni í yfirbyggðu gerði eða húsi. b. Gerðin og húsin skulu vera fuglaheld. c. Tryggja skal að ekkert í umhverfi húsanna, s.s. fóður, laði að villta fugla. d. Setja skal hatta á allar loftræstitúður. e. Setja skal fuglanet fyrir allar loftræstitúður, op og glugga á þeim húsum þar sem alifuglar eru haldnir og skal öllum óvið- komandi bannaður aðgangur að húsinu með sérstökum merk- ingum á hurðum þess. f. Allir sem sinna fuglunum skulu nota hlífðarfatnað (galla og stígvél), sem eingöngu er notaður þar, og skulu þeir einnig þvo og sótthreinsa hendur fyrir og eftir umhirðu fuglanna. g. Óheimilt er að hafa önnur dýr hjá fuglunum, þ.m.t. hunda og ketti. h. Vatn skal uppfylla kröfur gildandi reglugerðar um neysluvatn. i. Gæta skal fyllsta hreinlætis í umgengni við fuglana og fylgja al- mennum hreinlætisreglum. 3. gr. Finnist tveir eða fleiri dauðir fuglar á sama stað skal tilkynna um það án tafar til Landbúnaðarstofnunar (héraðsdýralæknis), sem tekur ákvörðun um aðgerðir. 4. gr. Landbúnaðarstofnun hefur eftirlit með framkvæmd þessara reglna og getur veitt undanþágur frá þeim við sérstakar aðstæður, að því tilskyldu að smitvarnir séu nægilega tryggðar með öðrum hætti að mati stofnunarinnar. 5. gr. Verði eigandi eða umráðamaður alifugla ekki við tilmælum Land- búnaðarstofnunnar um aðgerðir samkvæmt auglýsingu þessari getur landbúnaðarráðherra með vísan til 21. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, fyrirskipað bótalausa förg- un eða eyðingu fuglanna að fengnum tillögum Landbúnaðarstofn- unnar. Brot gegn auglýsingu þessari varða sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Með mál vegna brota skal farið að hætti opinberra mála. 6. gr. Um alifuglabú gilda einnig ákvæði reglugerðar nr. 251/1995 um aðbúnað og sjúkdómavarnir á alifuglabúum og útungunarstöðvum, með síðari breytingum. Auglýsing þessi er sett með vísan til 8. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt síðari breytingum og tekur gildi 12. apríl 2006. Landbúnaðarráðuneytinu, 6. apríl 2006. F.h.r. Ólafur Friðriksson. Atli Már Ingólfsson. Til á lager á hagstæðu verði. Joskin haugsuga 8400 L galv……………………………… Avant 635 með skotbómu, lyftigeta 1200 kg……… Avant 220 minivél með sláttuvél…………………………… Reck mykjuhrærur 3 gerðir………………………………….. Álrampar fyrir minivélar……………………………………… Maschio tætarar 235-260-285-300 cm………………. Maschio grastætari 250 cm. f. PTO framan/aftan Nardi fjórskera plógur 140-160 cm……………………. Nardi MRAP70 einskorinn brotplógur 52x55……… Lyftu tengdir dráttarkrókar…………………………………. Vökva yfirtengi margar gerðir……………………………… 12/24V dieselolíu dælur 45/60 l/min…………………… LACOTEC kornmylla PTO 540 ca. 10 t/klst…………. Ávinnsluherfi (slóðar) 4 mt………………………………….. Tonutti hjólrakstrarvélar 2,8mt – 6mt………………… Otma M/551 einskorinn brotplógur 58x63………….. Michelin traktors dekk 540/65 x 30……………………. Europower traktotrsrafstöðvar 38 kvA……………… Europower ferðarafstöðvar 1-1,7 kvA……………….. Haugsugudælur 6150-7000-8100-10490 l/min…. Niemeyer sláttuvélar, heytætlur, rakstrarvélar…… FH skotbómulyftari með þrítengibeyzli og PTO….. Crosmec 2,2mt. safnkassasláttuvél……………………. Trjáplöntustafir, bakkabelti og bakkahaldarar……… Lambhelt girðinganet og gaddavír……………………… Skógar flekkjarar fyrir dráttavél…………………………. Flekkidiskar fyrir sláttuorf…………………………………… Rafsuðu inverter 180 A. sýður 1,6-5 mm. 8,3 kg. O R K U T Æ K N I e h f. S ím i: 5 8 7 6 0 6 5 . Kynbótasýningar Hinn heimsfrægi tamningamaður Monty Roberts frá Bandaríkjunum sótti Íslendinga heim um páskana og hélt kennslusýningu í reiðhöllinni í Víðidal á skír- dag. Húsfyllir var á sýningunni og uppselt með löng- um fyrirvara. Monty sýndi hvernig hann vinnur með hesta sem eru ýmist ósnertir, ótamdir eða eiga við einhver hegðunarvandamál að stríða. Á þessari sýn- ingu tók hann fola sem var alveg ótaminn og að hálf- tíma liðnum var kominn knapi á bak honum, allt án átaka, en það er einmitt markmið Monty að útrýma ofbeldi gagnvart hestum. Einnig sýndi hann athyglis- verðar aðferðir við að nálgast mjög eyrnastyggt hross og notaði til þess ýmsan búnað s.s. hárblásara og hanska á priki og var mjög gaman að fylgjast með því hversu fljótt hryssan brást við meðhöndlun hans og var orðin allt önnur að stuttum tíma liðnum. Svo höndlaði hann algerlega ósnerta stóðmeri og hest sem hefur ekki viljað fara inn á hestakerru. Sýningin var hin fróðlegasta og áhugaverð nýjung fyrir ís- lenska hestamenn sem ekki hafa átt þess kost að fá erlenda fræðimenn á þessu sviði hingað til lands. Monty þessi hefur gefið út fjölda bóka og mynd- banda og er hægt að kynnast starfsemi hans betur með því að skoða vefsíðuna www.montyro- berts.com. /HGG Monty Roberts ásamt Trausta Þór Guðmundssyni, tamningamanni, sem túlkaði fyrir hann á sýningunni. Bændablaðsmynd: HGG Undirbúningi að Landsmóti hestamanna sem fram fer á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 26. júní - 2. júlí nk. mið- ar vel. Ýmsar verklegar fram- kvæmdir hafa verið í gangi á mótssvæðinu, þjónustuáætlun hefur verið gerð, en gert er ráð fyrir veitingasölu og markaðs- torgi, vellir hafa verið stækkað- ir og lagfærðir og vegir á svæð- inu endurbættir. Unnið er að því að gera svæðið enn betur til þess fallið að taka á móti öllum þeim gestum sem væntanlegir eru, en búist er við um 12 til 15 þúsund manns. Reist verður áhorfendastúka fyrir 1.600 manns sunnan aðalvallar gegnt áhorfendabrekkunni og kemur það til með skapa ákveðna hringleikjastemningu sem er nýjung á slíkum mótum. Auk þess verður 200 manna áhorf- endastúka byggð við kynbóta- völlinn. Af öðrum nýjungum í skipu- lagi má nefna að frá fimmtudegi til sunnudags munu allir helstu dagskrárliðir mótsins fara fram á aðalvelli í stað þess að skiptast á tvo velli eins og áður hefur verið. Hugsunin er sú að áhorfendur þurfi ekki að hlaupa of mikið frá einum velli til annars til að fylgj- ast með því markverðasta sem í boði er. Að venju verður boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá ásamt tónleika- og dansleikjahaldi á kvöldin. Fjölskyldufólki verður gert hátt undir höfði með afþrey- ingu, leiksvæðum, barnagæslu og góðri aðstöðu. Landsmót hestamanna er einn stærsti einstaki viðburður sem haldinn er hérlendis og stendur hvorki meira né minna en í heila viku. Þar kemur saman breiður hópur fólks til að njóta rjómans af því besta í íslenskri hesta- mennsku. Forsvarsmenn Lands- móts vonast til að sjá sem flesta á Vindheimamelum í Skagafirði og segir Guðrún H. Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri LM 2006, að mikill hugur sé í mönnum. „Það stefnir í stórgott mót, hestakostur- inn verður frábær eins og alltaf og okkar markmið er að svæðið og aðstaðan verði með því besta sem gerist. Fyrstu úrtökurnar munu fara fram seinnipartinn í maí en síðasti skráningardagur á lands- mótið er 12. júní. Við munum bjóða upp á fjölbreytta dagskrá, en hægt er að skoða hana nánar á vefsíðu okkar, www.landsmot.is,“ segir Guðrún að lokum. /HGG Undirbúningi Landsmóts hestamanna miðar vel Húsfyllir hjá hestahvíslara

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.