Bændablaðið - 12.12.2006, Page 35
35Þriðjudagur 12. desember 2006
WECKMAN STURTUVAGNAR
H. Hauksson ehf.
Suðurlandsbraut 48
Sími 588 1130
Fax 588 1131
Verðdæmi:
10 tonn
Verð kr. 780.000 með virðisaukaskatti
12 tonn
Verð kr. 870.000 með virðisaukaskatti
16 tonna malarvagn
Verð kr. 2.040.000 með virðisaukaskatti
(Athugið! Fleiri gerðir í boði: 1,5 - 17 tonn)
91, 105 og 130 hö.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 568 6411
WWW.RAFVORUR.IS · RAFVORUR@RAFVORUR.IS
VÉLADEILD
ehf.
VETRARTILBOÐ
ÓDÝRIR
OG GÓÐIR
Hrútaspilið er að koma í versl-
anir þessa dagana, þetta er nýtt
spil sem byggist á því að keppt
er um eiginleika hrútanna.
Hönnuðir Hrútaspilsins eru
tveir, Stefán Pétur Sólveigarson
og Sverrir Ásgeirsson, en báðir
eru nýútskrifaðir frá Listahá-
skóla Íslands.
Spilið inniheldur 52 spil með
myndum af hrútum úr hrúta-
skránni 2006-2007 og eru upplýs-
ingar fengnar úr henni. Á hverju
spili er mynd af viðkomandi hrút,
nafn og ýmsir eiginleikar er varða
útlit, líkamsburði og eiginleika,
s.s. hvort um er að ræða hyrndan
hrút eða kollóttan, stuttfættan,
langan, kubbslegan og svo mætti
áfram telja.
Spilið er tvíþætt en bæði er hægt
að nota það á venjulegan hátt, eða
spila um eiginleika íslenskur hrút-
anna. Það er líka einfalt, en spila-
reglur fylgja með í spilastokkn-
um, þær eru á íslensku og ensku,
en reglurnar er einnig að finna á
þýsku og frönsku á slóðinni, www.
hrutaspilid.is og getur spilið því
verið tilvalin jólagjöf til vina og
vandamanna í útlöndum.
Spilað um eiginleika
hrúta í Hrútaspilinu
Spilastokkur og nokkur spil í Hrútaspilinu.