Bændablaðið - 12.12.2006, Blaðsíða 40
40 Þriðjudagur 12. desember 2006
Nokkur réttindi / hlunnindi
sem tengjast aðild að Bændasamtökum Íslands
Starfsmenntasjóður BÍ
Stofnaður 2006 með samkomulagi við Framleiðnisjóð landbún-
aðarins og kemur í stað framlaga, sem Framleiðnisjóður hef-
ur veitt til að styrkja endurmenntunarnámskeið fyrir bændur.
Ráðstöfunarfé:
a) Árlegt framlag úr Framleiðnisjóði
b) Eigið framlag BÍ
c) Vaxtatekjur
Réttur til framlaga:
a) Félagar BÍ með fasta búsetu á lögbýli
b) Starfandi bændur með búnaðargjaldskyldan rekstur
c) Starfsfólk bænda (nánari skilyrði)
Styrkhæf námskeið:
• Námskeið tengd starfs-/ búgreinum eða fagsviði umsækj-
enda
• Námskeið sem auka almenna starfshæfni – tölvutækni,
tungumál, fjarvinnsla og samskipti, félagsstörf
Út á hvað er greitt:
• Námskeiðsgjöld
• Ferðakostnað
• Fjarskiptakostnað v. fjarnáms
Styrkfjárhæðir:
Hver og einn getur fengið styrk annað hvert skólaár.
a) Námskeið a.m.k. 8 kennslustundir: kr. 8.000
b) 2 dagar a.m.k. 15 kennslustundir: kr. 15.000
c) Einfaldara, styttra námskeið (4–8 st.): kr. 4.000
Ferðastyrkir breytilegir kr. 3.000/6.000
Skilafrestur umsókna:
• Fyrir 10. hvers mánaðar
• Ef umsókn er rafræn verður móttaka staðfest innan
tveggja virkra daga
• Afgreiðsla tilkynnt fyrir 25. dag mánaðarins
Reglur og umsóknareyðublað á bondi.is
Sjúkrasjóður BÍ
• Stofnaður 2004 með 10 millj. kr. framlagi skv. fjárhags-
áætlun
• Markmið: Að styrkja sjóðsfélaga vegna langvarandi veik-
inda og tekjutaps vegna þeirra, t.d. til að kosta afleysing-
ar
• Tekjur: Fjárveitingar skv. ákvörðun búnaðarþings hverju
sinni
• Réttindi: Félagar í BÍ og makar þeirra, sem stunda búr-
ekstur á lögbýlum
• Styrkupphæð: Nú 100 þ. kr. á mánuði
• Ekki greitt út á styttra veikindatímabil en tvo mánuði
• Ekki greitt út á fyrsta mánuð veikinda
• Mest 3 mánuðir í senn og mest 6 mánuðir á 12 mánaða
tímabili
• Heimilt að greiða vegna sjúkrakostnaðar
Til frádráttar:
Aðrar tekjur/bætur umfram 40 þús. kr. á mánuði
Reglur og umsóknareyðublað á bondi.is
– félagssvið
Mikilvægt er, að greinargóð gögn fylgi umsókn, t.d. að
læknisvottorð tilgreini tímabil, þegar viðkomandi telst
óvinnufær
Orlofssjóður / orlofshús BÍ
Stofn sjóðsins: Söluandvirði sumarhúsa við Álftavatn
1998
BÍ eiga 2 sumarhús á Hólum og íbúð í Sólheimum, Reykjavík
Tekjur sjóðsins:
a) Árleg raunávöxtun
b) Leigutekjur af íbúð og orlofshúsum
Réttindi:
Þeir sem uppfylla skilyrði um aðild að BÍ
• Hámark 70 styrkir á ári
• 4 ár milli úthlutana til sama aðila eða maka
Umsóknarfrestur:
Til 15. mars ár hvert
Styrkupphæð:
Nú 31.500 kr. miðað við 7 daga eða 4.500 kr. á sólar-
hring.
• Greitt gegn reikningi fyrir gistikostnað
Orlof hvar?
Innanlands sem utan; þó ekki greitt fyrir dvöl í orlofshús-
um BÍ
Hús á Hólum:
Úthlutun jafngildir úthlutun orlofsstyrks
Íbúð í Sólheimum:
• Dvöl allt að viku í senn og lengur við sérstakar aðstæður
• Verð á sólarhring 3.500 kr.
• Svefnpláss fyrir átta manns
• Sótt um til Kötlu Sigurgeirsdóttur, s. 821 4840
milli kl. 09 – 17 virka daga
Upplýsingar um Orlofssjóð BÍ á bondi.is
– félagssvið
Afsláttarkjör á hótelum
BÍ eiga og reka tvö hótel:
• RadissonSAS Hótel Saga
• Park Inn Ísland (Hótel Ísland)
Félagsmönnum BÍ bjóðast afsláttarkjör á báðum hótelum frá
1. október til 30. apríl
Gisting með morgunverði (kr.): Eins m./Tveggja m.
RadissonSAS – Hótel Saga 7.000 / 8.000
Park Inn Ísland (Hótel Ísland) 6.000 / 7.000
Afsláttarkort fást í afgreiðslu BÍ gegn
staðfestingu á félagsaðild og/eða
greiðslu í Lífeyrissjóð bænda
Tryggingasamningur við VÍS
BÍ gerðu rammasamning um tryggingar fyrir bændur 1999
að undangengnu útboði.
Samningurinn er til endurskoðunar, en hann kveður á um:
Skilgreiningu á tryggingavernd
Tvö stig:
• Grunntryggingar
• Valtryggingar
• Iðgjaldagrunn og afslátt
• Þjónustu