Bændablaðið - 12.12.2006, Page 43
43Þriðjudagur 12. desember 2006
Í hlöðunni að Bjarteyjarsandi
í Hvalfjarðarsveit er svo sann-
arlega hægt að gleyma sér í ys
og þys jólaundirbúningsins við
að skoða handunna listmuni
og handverk á jólamarkaði Álf-
hólfs.
Gallerí Álfhóll sem er í súr-
heysgryfjunni á Bjarteyjarsandi er
opið allt árið en fyrir jólin bætist
jólamarkaðurinn við og þá er hlað-
an einnig lögð undir. Jól í Álfhól
er samstarfsverkefni heimafólks á
Bjarteyjarsandi og fleiri aðila en
í ár er hann haldinn í fjórða sinn.
Opið er alla daga milli 13 og 18
fram að jólum.
Hekl, brúður og tólgarkerti
“Þetta er fjölbreytt hjá okkur og
jólastemmningin einstök, þó ég segi
sjálf frá. Þess fyrir utan er hægt að
koma til okkar alveg fram að jólum
og kaupa vörur. Þá tökum við á móti
hópum alla daga og þeir fá móttöku,
tónlist, fróðleik um staðinn, heim-
sókn í fjárhús og fleira skemmtilegt.
Við erum aðeins með heimagerðar
og handunnar vörur og alls kyns list-
muni og handverk. Þetta er til dæmis
unnið úr lopa, prjónað og þæft, við
erum með trémuni, glerlistavörur,
vatnslitamyndir, útsaum, hekl, brúð-
ur, sérsaumað, olíumálverk, tólgar-
kerti, leir, kökur, sultur og fleira og
fleira,“segirArnheiðurHjörleifsdótt-
ir einn ábúenda á Bjarteyjarsandi og
bætir jafnframt við:
„Þetta gefur okkur mjög mikið,
við fáum jákvæða umfjöllun og
ákveðna sérstöðu í þeirri ferðaþjón-
ustu sem við erum að byggja upp.
Við fáum þakklæti þeirra sem koma
og þeirra sem selja muni hjá okkur.
Þetta er auðvitað heilmikil vinna en
það gleymist fljótt! Þetta gefur líka
íslensku dreifbýli mikið því þetta
er liður í því að skapa jákvæða og
eftirsóknarverða ímynd. Og það er
ekki síst það sem er yfirmarkmið
allrar okkar starfsemi á Bjarteyjars-
andi.“
V E R K I N T A L A
Gylfaflöt 32 • 112 Reykajavík • Sími 580 8200 • Fax 580 8210 • velfang@velfang.is
• Við minnum á stórtilboð Kuhn
og Vélfangs
• Hágæða vélar á hagstæðu verði
• Gildir til áramóta
Stórtilboð
Rómantísk sveitajólastemmning