Bændablaðið - 11.09.2007, Side 4
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 2007
Ný Hvalsárrétt í Hrútafirði verð-
ur tekin í notkun laugardaginn
15. september næstkomandi en
þar hefur verið rétt áratugum
saman. Jóhann Ragnarsson,
bóndi í Laxárdal III, sagði í sam-
tali við Bændablaðið að nýja rétt-
in væri hringlaga trérétt. Gamla
réttin var einnig trérétt en var
orðin gömul og úr sér gengin.
Sveitarfélagið, Bæjarhreppur,
byggði nýju réttina með hjálp
heimamanna.
Jóhann sagði að um 3 þúsund
fjár kæmi úr heimalöndum og af
fjalli í réttina. Hann sagði að flest-
ar jarðirnar í hreppnum væru land-
stórar og bændur hefðu fé sitt á
jörðum sínum allt sumarið. Hins
vegar væru fjórar jarðir, gömul
eyðibýli, sem sveitarfélagið ætti og
þær jarðir þyrfti að smala niður.
Til stendur að hafa gleði og
gaman á réttardaginn þegar nýja
réttin verður tekin í notkun og sagð-
ist Jóhann eiga von á mörgu fólki,
bæði heimamönnum og gestum.
S.dór
Nýr björgunarsveit-
arbíll á Hofsósi
Fyrir skömmu fékk björgunar-
sveitin Grettir á Hofsósi afhenta
nýja og fullbúna bifreið af gerð-
inni Nissan Patrol sem sveitin
keypti fyrr á þessu ári.
Jón Einar Kjartansson, formað-
ur Grettis, sagði að bíllinn kostaði
kr. 8,5 milljónir eftir breytingar
og kaup á aukabúnaði sem búið er
að setja í hann. Þá er búið að fella
niður af kaupverðinu tolla og virð-
isaukaskatt. Breytingarnar felast
m.a. í því að bíllinn var hækkaður
upp, en búnaðurinn er talstöðvar,
aukaljós, sírenur, gjallarhorn og
auk þess sjúkrabúnaður. Þessi bíll
er hrein viðbót hjá björgunarsveit-
inni en fyrir átti hún Landrover-
bifreið. Jón lét þess getið að nýja
bifreiðin væri ein af níu sams
konar sem björgunarsveitir víðs-
vegar um land hefðu verið að
kaupa undanfarið. Um fjörutíu
manns á svæðinu norðan úr
Sléttuhlíð og inn í Viðvíkursveit
starfa í björgunarsveitinni Gretti.
ÖÞ
Á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal
er rekið hótel og þar hefur verið
komið upp vísi að hreindýrasetri
eða safni sem opið hefur verið í
sumar. Aðalsteinn Jónsson, bóndi
í Klausturseli, og bróðurdóttir
hans Fjóla Hrafnkelsdóttir eru
aðaleigendur hótelsins.
Hreindýraveiðimenn gista
gjarna á Skjöldólfsstöðum og
sagði Aðalsteinn í spjalli við
Bændablaðið að hann hefði komið
upp aðstöðu heima hjá sér til að
kæla og geyma hreindýrakjöt og
væri það vel þegið. Hann sagði að
Hreindýrasetrið hefði líkað vel hjá
þeim sem skoðuðu það í sumar en
ferðamannafjöldi hefði verið í góðu
meðallagi það sem af væri ári.
Fjóla Hrafnkelsdóttir hótelstjóri
sagði að aðsókn að hótelinu hefði
verið mjög góð í sumar en boðið
er upp á bæði mat og gistingu. Sá
vísir að hreindýrasafni sem kominn
er upp á Skjöldólfsstöðum hefur
vakið mikla athygli og sagði Fjóla
að stefnt væri að því að stækka það
og gera það veglegra.
Ákveðið hefur verið að hafa
hótelið opið í vetur. Fjóla sagði
Skjöldólfsstaði vel staðsetta að
því leyti að þeir væru fyrsti bærinn
sem fólk kæmi að frá því það legði
upp frá Mývatni eftir að þjóðveg-
inum var breytt. Möðrudalur væri
nú úr leið hvað þetta varðaði. Þau
ætla að bjóða fyrirtækjum aðstöðu
þegar farið er með deildir eða hópa
í hvataferðir í vetur. Þá verður hægt
að halda árshátíðir og þorrablót á
Skjöldólfsstöðum og þar er gisting
fyrir 40 manns.
S.dór
Í sumar hefur mikil undirbún-
ingsvinna verið í gangi vegna
álvers á Húsavík. Meðal þess sem
unnið hefur verið að er borun
eftir háhita á Þeystareykjum og
sagði Hreinn Hjartarson, bæj-
arverkfræðingur í Norðurþingi,
að helgina 25.-26. ágúst hefði lokið
borun holu 4 á Þeystareykjum og
væri endanleg dýpt hennar um
2200 m.
Við borun holunnar var bor-
að í gegnum sprungusveim á
2000 m dýpi og eru vísbending-
ar um að þetta verði öflugasta
holan á Þeystareykjum til þessa.
Undirbúningur við holu 5 er þegar í
gangi og hefst borun á næstu dögum.
Næstu holur verða boraðar frá sama
borplani, sín í hvora stefnuna, og eru
jafnframt á sama borplani og hola 1
sem boruð var 2002.
Þeystareykjasvæðið kemur vel út
Hreinn sagði að Þeystareykjasvæðið
kæmi mjög vel út í öllu sem þar
hefði verið gert varðandi rannsókn-
ir og háhitaboranir. Svæðið gerði
ekki annað en að stækka og batna. Í
Gjástykki verður boruð kjarnahola í
haust, fáist leyfi til þess.
Ef álver rís við Húsavík verð-
ur orka tekin frá fjórum svæð-
um til að dreifa áhættunni, það
er frá Þeystareykjum, Gjástykki,
Bjarnarflagi og Kröflu, jafnvel
þótt eitt svæði dygði vel, að sögn
Hreins, enda er þarna um að ræða
svæði sem hvert um sig er á við
Hellisheiðarsvæðið syðra.
Hreinn sagði að í gangi væri
ýmiss annar undirbúningur fyrir
álver við Húsavík. Hönnunarvinna
er í gangi og meðal annars er verið
að hanna veg frá Húsavíkurhöfn
út að staðnum þar sem álver mun
rísa, ef af verður. Á vegum Alcoa
er umhverfismat í gangi og ýmsir
útreikningar varðandi álverið.
Hreinn sagði að það væri því allt
á fullu í undirbúningi álvers og að
ekkert neikvætt hefði komið upp
sem stoppaði undirbúninginn. S.dór
Laxaseiðum sleppt
í Jökulsá á Dal
Einhvern tíma hefði sá maður
verið talinn galinn sem hefði
stungið upp á því að sleppa
laxaseiðum í Jökulsá á Dal.
En allt er í heiminum hverf-
ult og nú er svo komið að
menn telja í lagi að sleppa
laxaseiðum í ána og hefur
það þegar verið gert. Vatnið
í ánni hefur hreinsast vegna
tilkomu Hálslóns. Í fyrra var
sleppt laxaseiðum í hliðarár
sem renna í Jökulsá og veidd-
ust nokkrir laxar í þeim ám í
sumar.
Aðalsteinn Jónsson, bóndi í
Klausturseli á Jökuldal, sagði
í samtali við Bændablaðið að
með þessu væri hafin tilraun
til að byggja ána upp sem lax-
veiðiá.
Aðspurður hvort fjárfestar
af höfuðborgarsvæðinu hefðu
eitthvað sóst eftir jörðum á
Jökuldal sagðist hann ekki vita
til þess. Hins vegar myndi það
án efa breytast ef laxaræktin
í Jökulsá heppnaðist, þá gæti
margt breyst.
Aðalsteinn sagði að heyskap-
ur hefði gengið vel á Jökuldal í
sumar. Hreindýraveiðar sem nú
standa yfir ganga ágætlega en
Aðalsteinn er meðal leiðsögu-
manna við þær veiðar. Hann
flær hreindýr og kælir kjötið
fyrir veiðimenn. Almennt sagði
hann mannlíf með ágætum á
Jökuldal. S.dór
Stjórnarfólk í Gretti og nýi Nissan-bíllinn við bækistöð sveitarinnar á
Hofsósi. Frá vinstri: Eiríkur Arnarson, Bjarni K. Kristjánsson, Þorsteinn
Axelsson, Jón Einar Kjartansson og Rán Sturlaugsdóttir. Mynd: ÖÞ.
Ný Hvalsárrétt verður tekin í
notkun laugardaginn 15. sept.
Í sumar hefur verið unnið að
byggingu nýrrar réttar í Deildar-
dal í Skagafirði. Réttin sem er í
landi jarðarinnar Skuggabjarga
er milli 800 og 900 ferm. að
stærð, hringlaga með 10 dilkum
ásamt nokkrum smærri hólfum.
Þar sem í henni verður bæði rétt-
að hrossum og kindum er veggja-
hæð 165 cm. Réttin er að mestu
úr timbri en allar uppistöður og
hurðir eru úr galvaníseruðu járni.
Það er sveitarfélagið Skagafjörður
sem kostar bygginguna, en bændur
sáu um að brjóta gömluréttina sem
var á sama stað niður og fjarlægja
hana. Talverð vinna var við grunn
réttarinnar sem í eru drenlagnir og
steyptar undirstöður grafnar um
100 sentimetra niður. Yfirsmiður
við bygginguna var Friðbjörn
Jónsson á Sauðárkróki.
Að sögn Jóns Einars Kjartans-
sonar stjórnarmanns í fjallskiladeild-
inni var gamla réttin sem áður er
getið var upphaflega byggð árið
1960. Hún var steinsteypt en und-
irstöður hafa ekki verið grafnar
nægilega niður því veggir henn-
ar sprungu og skekktust. Hún
var dæmd ónýt árið 1974 en var
notuð þrátt fyrir það á hverju árið
þrátt fyrir að nokkrir dilkar væru
hrundir. Nokkuð er síðan þessi rétt-
arbygging komst á dagskrá þótt
ekki yrði af framkvæmdum fyrr en
í ár. Í fjallskiladeild Deildardals eru
auk Jóns eru Loftur Guðmundsson
Melstað og Guðmundur Jónsson
Óslandi sem er fjallskilastjóri. ÖÞ
Ný rétt byggð í Deildardal í Skagafirði
Þeir voru að vinna að lokafrágangi við réttina í síðustu viku frá vinstri
Páll Óskarsson Skuggabjörgum,Sigmundur Jóhannesson Brekkukoti og
Loftur Guðmundsson Melstað. Ljósm. ÖÞ
Stoltir smiðir við fullbúna Hvalsár-
rétt, Ragnar Pálmason á Kollsá t.v.
og Hannes Hilmarsson. Ljósm. kse
Hreindýrasetri komið
upp á Skjöldólfsstöðum
30 ára afmæli Orkubúsins
fagnað á Hólmavík
Þann 26. ágúst voru liðin 30 ár frá
því að undirritaður var sameigna-
samningur um Orkubú Vestfjarða
af Gunnari Thoroddsen þáver-
andi iðnaðarráðherra og fulltrú-
um vestfirskra sveitarfélaga.
Af þessu tilefni var opið hús hjá
Orkubúi Vestfjarða á Hólmavík.
Nýtt skrifstofuhús og verkstæði á
Skeiði var til sýnis í tilefni dagsins,
boðið var upp á léttar veitingar og
börnin fengu glaðning. Töluverður
fjöldi fólks kíkti við í Orkubúinu,
að sögn Þorsteins Sigfússonar
svæðisstjóra. Á svokölluðu svæði
3, sem nær yfir Strandasýslu og
A-Barðastrandasýslu, starfa átta
til tíu manns og þjónusta einnig
hluta af svæði 4, Ísafjarðardjúp frá
Mjóafirði út á Snæfjallaströnd. Að
sögn Þorsteins er Orkubúsmenn „í
útrás“ þessa dagana þar sem tveir
menn voru lánaðir í Lagarfljóts-
virkjun austur á Héraði. „Fram-
undan er vonandi lagfæring á
línum út í Tungusveit og stærsta
verkefnið á næsta ári verður teng-
ing Ísafjarðardjúps við landskerfið
eins og ráðherra boðaði fyrir vest-
an um daginn,“ sagði Þorsteinn.
kse
Mikil undirbúningsvinna í
gangi vegna álvers á Húsavík
Hinn 15. ágúst tóku íslensk
stjórnvöld að fullu yfir rekstur
og verkefni Ratsjárstofnunar frá
Bandaríkjamönnum en stofn-
unin hefur hingað til verið rekin
á grundvelli bandarískra reglna
og starfsemin að fullu kostuð af
bandarískum yfirvöldum.
Ratsjárstöðvarnar fjór-
ar (á Bolafjalli, Miðnesheiði,
Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi)
sem fylgjast með flugumferð um
landið eru tengdar ljósleiðara sem
liggur hringinn í kringum landið.
Atlantshafsbandalagið á fimm af
átta vírum í ljósleiðaranum en hinir
þrír urðu eign íslenska ríkisins í
kjölfar breytinganna 15. ágúst.
Aðilar á markaði, svo sem fyr-
irtæki og stofnanir, hafa lýst áhuga á
að fá aðgang að ljósleiðurunum og er
starfshópur á vegum utanríkisráðu-
neytisins því að kanna hvernig, að
höfðu samráði við NATO, megi flýta
því að almenningur fái aðgang að net-
inu. Breytingin gæti leitt til þess að
gagnaflutningsgeta innanlands auk-
ist um allt að 60%. Utanríkisráðherra
vill að ljósleiðarinn komi almenn-
ingi til bóta, ekki síst á landsbyggð-
inni þar sem nettengingar gætu víða
verið betri. Fjarskiptastofnanir hafa
áhuga á að ljósleiðarinn verði boðinn
út en utanríkisráðherra mun bráðlega
skýra út hvaða stefna verður tekin í
málinu. ehg
Von um bættar tengingar með ljósleiðara