Bændablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 20070
„Ég ákvað ungur að verða bóndi.
Keypti jörðina Akurey II fyrir sjö
árum ásamt foreldrum mínum,
systur og mági. Og fyrst að út í
búskap var komið fannst mér til-
valið að afla mér meiri þekking-
ar á því sviði,“ segir Hafsteinn
Jónsson bóndi í Akurey 2. Hann
stundar fjarnám við bænda-
deild Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri og sama gerir sam-
býliskona hans, Kristín Svandís
Jónsdóttir.
„Fjarnámið hentar okkur því
mjög vel þar sem við erum bund-
inn yfir búinu og höfum ekki kost
á að stunda dagskóla. Þegar búið er
stórt og umsvifin mikil er ekki auð-
velt að finna sér tíma til námsins.
Við reynum samt að vera skipu-
lögð og taka frá ákveðinn tíma á
kvöldin,“ segir Hafsteinn sem á
síðasta ári keypti með fjölskyldu
sinni jörðina Akurey 1. Búskapur á
Akureyjarjörðunum tveimur hefur
nú verið sameinaður og þar er nú
rekið bú með um 400 þúsund lítra.
ársframleiðslu í mjólk, 60 hrossum
og fáeinum kindum.
„Sveitabú er ekkert annað en
fyrirtæki enda taka áherslur í bú-
fræðimenntun mið af því,“ segir
Hafsteinn, sem er sveitamaður í
húð og hár; fæddur og uppalinn
á bænum Sigluvík í Landeyjum.
Hann segist því hafa þekkt nokkuð
til þess hvernig standa skyldi að
búskap þegar hann byrjaði. „En ég
tel að námið eigi eftir að gagnast
mér vel í framtíðinni, við til dæmis
fóðurútreikninga, í sambandi við
heilfóðrun kúnna. Ég vil hvetja
sem flesta að kynna sér það nám
sem boðið er uppá við skólann á
Hvanneyri. Held að allir sem hafa
áhuga á búskap geti fundið náms-
efni við sitt hæfi.“
„Fjarnám við bændadeild-
ina hentaði mér mjög vel og ég
ákvað því að slá til. Persónulegar
aðstæður mínar voru þess vald-
andi að ég átti illmögulegt með
að flytjast suður á Hvanneyri og
fara í staðnám þar og einnig tel
ég fjarnámið um margt hagnýt-
ara en annað. Eg get nýtt þekk-
inguna sem ég afla mér í náminu
í daglegum störfum hér á búinu
sem aftur leiðir til þess að maður
fær endalaust nýjar spurningar
til að glíma við og leitar þá eftir
svörum hjá þeim frábæru vís-
indamönnum sem starfa við skól-
ann,“ segir Elmar Sigurgeirsson
á Hríshól í Eyjafjarðarsveit.
Elmar er einn þeirra fjölmörgu
sem stunda fjarnám í bændadeild
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri, en sá hópur hefur stækk-
að mjög á undanförnum árum. „Ég
fór á Hvanneyri um daginn í nokk-
urra daga undirbúning en mun síðan
sitja hér heima og sinna náminu.
Þetta er mjög hentugt fyrirkomulag.
Vissulega kallar þetta á talsverða
ögun og skipulag og þess vegna hef
ég losað mig út úr ýmsu félagsstarfi
til að geta sinnt náminu sem best.“
Foreldrar Sigurgeirs, þau
Sigurgeir Hreinsson og Bylgja
Sveinbjörnsdóttir, búa stóru búi á
Hríshól; eru með um 300 þúsund
lítrar kvóta, talsverða nautakjöts-
framleiðslu og um hundrað fjár.
„Já, ég stefni að því að koma inn
í búskapinn með þeim. Kannski
hefur maður alltaf ómeðvitað
stefnt í þá átt; hvert sem maður fer
þá liggur leiðin samt alltaf heim í
sveitina,“ segir Elmar sem ákvað
fyrir margt löngu að fara í búfræði-
námið þegar hann væri kominn
með sveinspróf í húsasmíði, en því
lauk hann snemma á þessu ári.
„Þegar námið fór af stað var
ég fyrst svolítið ragur, en þetta er
ekkert mál. Fjarnámið er í einkar
þægilegu viðmóti sem gerir það
auðvelt, meðal annars fyrir stráka
eins og mig sem eru ekki miklir
tölvumenn.“
Hagnýtt og hentugt
– segir Elmar Sigurgeirsson á Hríshóli
í Eyjafjarðarsveit
Reka stórbú og eru bæði í námi
„Fjarnámið er vissulega tíma-
frekt og krefjandi, en er að
sama skapi gefandi. Stóri plús-
inn er svo auðvitað sá að sam-
verustundum fjölskyldunnar
hefur beinlínis fjölgað. Ég og
eldri sonur minn sem hóf grunn-
skólanám í haust sitjum stundum
saman og grúfum okkur hér yfir
námsbækurnar okkar. Það eru
góðar stundir,“ segir Inga Birna
Baldursdóttir á Seli í Austur-
Landeyjum. Hún er einn fjöl-
margra fjarnemenda við bænda-
deild Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri en fjarnámið hentar
vel fólki sem komið er með fjöl-
skyldu og á óhægt með að flytja
sig um set og fara í hefðbundið
staðnám.
Inga Birna og Karel Geir
Sverrisson eiginmaður hennar búa
á Seli í Landeyjum og eru um þess-
ar mundir að taka við kúabúskap af
foreldrum Karels. „Aðalmarkmið
með náminu er auðvitað vissulega
að fræðast og afla sér þeirrar þekk-
ingar sem þarf við búskapinn,“
segir Inga Birna sem nú á haustönn
nemur þrjú fög, það er búfjárrækt,
búvélafræði og jarðveg og nytja-
jurtir.
„Við erum þrjú úr Landeyjum og
undan Eyjafjöllum sem erum öll í
fjarnámi frá Hvanneyri og ætlum að
hittast á tveggja vikna fresti í vetur
og bera saman bækur okkar í nám-
inu. Hafa þannig stuðning hvert af
öðru,“ segir Inga Birna sem stefnir
að því að taka búfræðinámið á fjór-
um vetrum. Það sé mjög raunhæft
markmið.
Forsenda fjarnáms eru góðar
tölvutengingar, eins og nú er
orðin raunin í Landeyjum. „Það
var ómögulegt að stunda fjar-
nám meðan við höfum ekkert
nema hefðbundna símatengingu.
Framfarirnar hafa hins vegar verið
miklar. Nú erum við komin með
fínt örbylgjusamband og þá eru
okkur allir vegir færir.“
Fjarnámið fjölgaði samverustundum
– segir Inga Birna Baldursdóttir
í Austur-Landeyjum
Bændur í fjarnámi við bændadeild LbhÍ
Kristín tekur undir með Hafsteini að fjarnámið henti þeim mjög vel því þau
eru bundin yfir búskapnum og geti engan veginn sótt dagskóla.