Bændablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 2007
www.fodur.is
FB Reykjavík - sími: 570 9800
FB Selfossi - sími: 482 3767
www.bustolpi.is
Sími: 460 3350
Fax: 460 3351
www.aburdur.is
Sími: 580 3200
Fax: 580 3209
Umbúðir:
210 kg tunnur
1000 kg tankar
Til verkunar og
geymslu korns
• Sýrustig pH 4,4
• Ekki ætandi – minni lykt
• 70 sinnum minni tæring á vélum
• Má flytja án sérstakra réttinda
Ómeðhöndlað bygg
eftir 4 vikna geymslu
(25% rakainnihald).
Bygg meðhöndlað
með própíonsýru
eftir 4 vikna geymslu
(25% rakainnihald).
Lupro-Grain® Própíonsýra
FB Hvolsvelli - sími: 487 8413
FB Egilsstöðum - sími: 570 9860
Samstarfsaðilar í héraði:
Kf. Skagfirðinga
og KB Borgarnesi.
Sigríður Bjarnadóttir, ráðunautur
hjá Búgarði, ritar grein í síðasta
fréttablað stofnunarinnar sem
hún nefnir Haustbeit mjólkurkúa.
Þar er mjög nytsama fræðslu að fá
fyrir bændur um haustbeit mjólk-
urkúa. Í samtali við Bændablaðið
sagði Sigríður að haustið væri
alltaf viðkvæmur tíma fyrir kýrn-
ar þegar þær væru úti í rysjóttu
veðri. Verstur væri kuldinn sem
yki mjög hættuna á júgurbólgutil-
fellum, auk þess sem beitarfram-
boð væri alla vega. Hún sagðist
þó telja að í langflestum tilfellum
gæfu menn hey meðfram beitinni
á haustin, sem væri mjög gott og
drægi úr álaginu þegar kýrnar
væru teknar á hús. Suma bænd-
ur sagði hún gefa kúm sínum hey
með beit allt árið.
Gæta vel að allri umhirðu
,,Þess vegna er það öll umhirða
kúnna sem slík sem gæta verður
vel að því eitt leiðir af öðru. Ég var
með þessum skrifum mínum aðeins
að minna menn á það sem nauðsyn-
legt er að gæta að, sem flestir gera
eflaust, en góð vísa er aldrei of oft
kveðin,“ sagði Sigríður. Í fréttabréf-
inu segir hún:
,,Nú nálgast sá tími þegar veð-
urfar getur farið að hafa áhrif á
kýrnar úti á beit, t.d. eru meiri líkur
á júgurbólgutilfellum í rysjóttu tíð-
arfari. Auk þess er beitarframboðið
misjafnt að magni og gæðum á þess-
um árstíma. Mikilvægt er að ofmeta
hvorki það magn sem innbyrt er
né beitargæðin. Kýrnar þurfa að
drekka oft á sólarhring og þá er gott
að stutt sé fyrir þær að fara í vatnið
og að það sé ferskt og gott.
Of lítið fóður – minni framleiðsla
Of lítið magn fóðurs miðað við
þarfir og raunverulega getu kúnna
getur haft í för með sér minni fram-
leiðslu og eins lægra hlutfall efna í
mjólkinni. Það skiptir máli að koma
til móts við breytingar sem þessar
með fóðrun inni (kringum mjaltirn-
ar/yfir nóttina) og bæta í bæði gróf-
og kjarnfóðurgjöf.
Kröftugt fóður (áborin há í sprettu
eða grænfóður) er gjarnan trefjalítið
og þurrefnisprósentan lág, sem aftur
getur haft áhrif á minnkandi fitu-
innihald mjólkur. Því er mikilvægt
að randbeita/takmarka/stýra aðgengi
kúnna að slíku „nammi“ og nauð-
synlegt að bjóða þeim upp á gróft
heymeti með, aðgegni að úthaga
spillir heldur ekki fyrir.
Hvað varðar steinefnin gerir
aðgengi að magnesíumríkri blöndu
með beitinni gripunum gott en jafn-
framt þarf alltaf að horfa til selens
og „gauka því að“ líka.
Kýrnar gefa vísbendingar
Með hegðun og athöfnum geta
kýrnar gefið vísbendingar um
„hvað er í gangi“:
Kýr standa mikið í hnapp – of
lítið beitarframboð/veður óhag-
stætt – meira fóður í kýrnar/fóðra
þær inni – Fall í fituprósentu þýðir
meira af grófu fóðri með – Fall í
próteinprósentu og nyt þýðir meira
og betra fóður (beitin orðin rýr)!
Eftir að dimma tekur er rétt að
hýsa kýrnar á nóttinni því í myrkrinu
gera þær sér ekkert gagn og ávinn-
ingurinn að útiverunni því enginn.
Huga þarf einnig að haustfóðrun
gripa í uppeldi. Hafi þeir gengið í
úthaga yfir hásumarið, er nauð-
synlegt að koma þeim á túnbeit
undir haustið. Síðan að gefa við-
bótargróffóður með beitinni og sé
ungneytum gefið vel af þokkalegu
heyi, geta þau sér að skaðlausu
gengið úti fram á vetur ef veður eru
ekki þeim mun hryssingslegri.“
S.dór
Sigríður Bjarnadóttir um haustbeit mjólkurkúa
Margt sem taka þarf með í reikninginn
Sigríður Bjarnadóttir ráðunautur
hjá Búgarði á Akureyri.
Fjarnámsver að
komast á laggirn-
ar á Hólmavík
Samkvæmt upplýsingum frá
Ásdísi Leifsdóttur sveitarstjóra
á Hólmavík er hafin undirbún-
ingsvinna við fjárnámsver á
Hólmavík sem verður til húsa í
fyrrum skrifstofuhúsnæði KSH
við Höfðagötu. Ásdís segir að
þessa dagana séu starfsmenn
áhaldahúss að hefja vinnu við
þrif og málningu í húsinu og
megi búast við að því verði
lokið um miðjan mánuðinn.
Þá sé í raun ekkert annað eftir
en að koma hús– og tækjabún-
aði fyrir og bjóða námsmönn-
um afnot af húsnæðinu. Fjöldi
fólks hefur undanfarið stundað
fjarnám á ýmsum skólastigum
og þarfagreining sem gerð var
í fyrr á þessu ári bendir til að
a.m.k. fjörtíu manns hafi áhuga
á að nýta sér aðstöðuna.
kse