Bændablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 20071
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Gjafagrindur
Vinsælu fóðurgrindurnar fyrir sauðfé.
Láréttir rimar. Hentugar fyrir hyrnt fé.
Heitgalvaniseraðar.
Hagstætt verð.
Byggðarráð Norðurþings
hefur óskað eftir viðræðum
við umhverfisráðuneytið og/
eða Umhverfisstofnun um með
hvaða hætti eigi að bregðast við
breytingum á farvegi Jökulsár
á Fjöllum innan marka sveitar-
félagsins. Ljóst þykir að áin muni
á næstu árum breyta farvegi
sínum og að auki geta krapastífl-
ur og/eða flóð valdið verulegu
tjóni. Það er mat byggðarráðs
Norðurþings að nauðsynlegt sé
að gera viðbragðsáætlun og jafn-
framt meta möguleika á fyrir-
byggjandi aðgerðum í samvinnu
við hagsmunaaðila.
„Í ljósi þeirra viðbragða sem
fram komu sl. vetur þegar tekin var
ákvörðun um ákveðnar aðgerðir
til að hafa áhrif á rennsli Jökulsár
á Fjöllum þegar krapastífla kom í
hana neðan Skjálftavatns í Keldu-
hverfi er ráðlegt að það fari fram
viðræður milli sveitarstjórnar og
allra þeirra sem hagsmuna hafa að
gæta á því svæði sem Jökulsáin
gjarnan flæðir yfir þegar hún fer
úr farvegi sínum einhverra hluta
vegna,“ segir í greinargerð frá
Jóni Grímssyni vegna málsins.
Hagsmunaaðilar eru m.a. land-
eigendur og atvinnurekendur á
svæðinu, umhverfisráðuneytið,
Umhverfisstofnun, Landgræðslan,
Vegagerðin og ef til vill fleiri.
Með hvaða hætti á að bregðast við?
Í greinargerð Jóns segir að mark-
miðið með viðræðunum eigi að
vera með hvaða hætti bregðast eigi
við þegar slíkt ástand kemur upp og
eins að þeim sem taka þurfi skjótar
ákvarðanir um aðgerðir verði gert
það kleift án þess að eiga á hættu
eftirmála eins og málaferli. Þá þurfi
að skilgreina hagsmuni og hvað
eigi að verja.
Krapastíflur sem þessar eru
engin nýlunda í farvegi Jökulsár
og einnig hafa komið í hana tölu-
vert mikil hlaup að sumarlagi sem
valdið hafa tjóni og er ekki langt
síðan brúna á Sandá tók af í slíku
hlaupi og munaði litlu að vegurinn
út í Austursand færi sömu leið. Í
janúar árið 1968 kom krapastífla
í ána (Bakkahlaupið) á svipuðum
stað og sl. vetur. Á þeim tíma var
Skjálftavatn ekki til og landið vest-
an ár stóð talsvert hærra en nú er.
Þá fór hún upp úr farveginum og
flæddi til austurs yfir veginn niður
í Austursand norðan brúarinnar á
Sandá, gegnum sandgræðslugirð-
inguna og austur í Brunná. Var
sums staðar hálfs metra djúpt vatn
á veginum og algerlega ófært að
bæjum í Austursandi. Varnargarður
við Skjálftavatn kynni að hafa þær
afleiðingar að þessi staða gæti
komið upp aftur.
Í marsbyrjun árið 2001 kom
krapastífla í ána (Bakkahlaupið)
nokkru neðar og þá fór hún upp
úr farveginum austur í gamla
Jökulsárfarveginn og þaðan norður
í Skógalón, síðan austur í Staðarlón
og áfram austur í Brunná. Þá
hækkaði vatnsborð Skógalónsins
það mikið að það flæddi vatn inn í
dæluhús Hitaveitu Öxarfjarðar og
vatn tók að renna suður allar mýrar
í átt að Ærlækjarseli. Var þá tekin
ákvörðun um að grafa út svokall-
aðan Lónaós til þess að lækka
vatnsborðið og koma í veg fyrir
frekara tjón. „Af þessu má sjá að
það er nauðsynlegt að reyna að gera
sér grein fyrir því hvaða áhrif varn-
argarður á einum stað hefur annars
staðar á svæðinu til þess að hægt sé
að taka vel undirbúnar ákvarðanir
um varnaraðgerðir þegar á þarf að
halda,“ segir í greinargerðinni.
Á að flýta fyrir?
Fram kemur einnig að áin skipti
gjarna um farveg á 70 til 100 ára
fresti. Sú staða virðist vera komin
upp og að nú geti verið komið að
kaflaskilum í rennsli árinnar. Nefnt
er að unnið hafi verið nákvæmt
hæðarkort af söndunum fyrir botni
Öxarfjarðar og þar megi sjá hvar
líklegast sé að áin komi til með að
renna í næstu framtíð, svo fremi að
ekki komi til einhverjar náttúru-
hamfarir, landsig, landris og/eða
einhverjar meiriháttar framkvæmd-
ir manna sem hafi breytingar í för
með sér. Þar til áin kemur sér í
nýjan farveg muni hún flæmast um
sandana þegar stíflur komi í hana
og valda mismiklu tjóni „og er þá
spurningin hvort það eigi jafnvel að
flýta fyrir því að hún komist í þann
farveg og freista þess að lágmarka
tjónið sem þessi færsla veldur eða á
að reyna að halda henni í núverandi
farvegi með einhverjum aðgerð-
um,“ spyr Jón í greinargerð sinni,
en tekur fram að ljóst sé að hvað
svo sem gert verði kosti það mikla
fjármuni og að þá peninga verði að
sækja til ríkisins.
Ýmsir hagsmunir eru í hættu
Ýmsir hagsmunir eru í hættu,
komi til stórflóðs í ánni. Nefnd er
hin verðmæta veiðiá, Litlaá, heita-
vatnsborhola Orkuveitu Húsavíkur
við Skjálftavatn, norðaustur af
Lindarbrekku, og að auki bæir á
Vestursandi sem allir eru í eyði en
notaðir til frístundadvalar og land til
beitar. Þá eru tvær djúpar borholur
sem gefa mikið magn af heitu vatni,
borhola Hitaveitu Öxarfjarðar við
Skógalón og dæluhús Skeljalax eru
líka nefnd til sögunnar en afköst
duga til að hita upp um 2.000
hús. Þá er líka nefnt sauðfjárbú í
Ærlækjarseli, umfangsmikil lífræn
gulrótarækt í Akurseli, búseta er á
Víðibakka og loks er Silfurstjarnan
með stóra fiskeldisstöð þar sem eru
um 20 ársverk.
Jarðskjálftahrinur hafa verið við
Upptyppinga og ekki er útilokað
að upp komi eldgos, en það myndi
hafa í för með sér stórhlaup í ánni.
Heimamönnum þykir því rétt að
skoða hvort grípa þurfi til aðgerða
til varnar flóðum og benda á að for-
dæmi séu fyrir slíku með byggingu
snjóflóðavarnargarða. MÞÞ
Hvernig á að bregðast við breyting-
um á farvegi Jökulsár á Fjöllum?
Nauðsynlegt að gera viðbragðsáætlun og huga að
fyrirbyggjandi aðgerðum
Það sem vantar!
á öll sveitaheimili landsins er:
Hágæða ítölsk vacuum pökkunarvél frá
ORVED sem hentar vel í sláturtíðina.
Maturinn geymist allt að 5 sinnum lengur vacuum
pakkaður og engin hætta á frostskemmdum.
Einnig má vacuum pakka fatnaði og fer þá mun
minna fyrir honum og helst hann líka þurr til dæmis í
göngum og veiðiferðum. Einnig eru mun fleiri
pökkunarmöguleikar.
Frekari upplýsingar
www.esjugrund.is
esjugrund@esjugrund.is
s. 565-3322
visa / euro / greiðsludreifing
Sendum í póstkröfu.
Íslandspóstur opnaði í liðinni
viku nýtt pósthús á Húsavík en
það markar ákveðin tímamót í
starfsemi Íslandspósts, enda nú
liðin tíu ár frá því að pósthús
var byggt frá grunni á Íslandi.
Pósthúsið á Húsavík er það fyrsta
í röð tíu pósthúsa sem til stendur
að reisa víðs vegar um land.
Í nýju húsnæði er ætlunin að
bjóða upp á aukna þjónustu til að
koma til móts við breyttar þarfir
viðskiptavina. Hér er meðal annars
átt við sölu á ýmiss konar vörum
eins og skrifstofuvörum, ritföngum,
pappír, geisladiskum, kortum og
öðru sem mikilvægt er fyrirtækjum,
einstaklingum og ferðalöngum.
Í nýjum pósthúsum verða sett
upp „Samskiptaborð“ sem eru nýj-
ung í þjónustu Póstsins. Þar verður
í boði að kaupa netaðgang, prenta út
gögn og ljósmyndir, skanna og ljós-
rita, svo eitthvað sé nefnt. Einnig
gefst viðskiptavinum kostur á að
panta aðra þjónustu Samskipta á
pósthúsunum og fá senda um hæl.
Opnun pósthússins á Húsavík er
fyrsti áfanginn í að efla enn frekar
þjónustu Póstsins á landsbyggð-
inni, segir í frétt á vef Íslandspósts.
Næsti áfangi í uppbyggingu
þjónustunetsins verður opnun nýs
pósthúss á Reyðarfirði í lok þessa
mánaðar. Framkvæmdir við póst-
húsið í Stykkishólmi eru vel á veg
komnar og fyrr í sumar var tekin
fyrsta skóflustungan að nýju póst-
húsi á Akranesi. Í kjölfarið verða
opnuð ný pósthús í Borgarnesi, á
Sauðárkróki, Höfn í Hornafirði,
Hvolsvelli, í Vestmannaeyjum
og á Selfossi, en þessir staðir
auk Reykjavíkur, Patreksfjarðar,
Ísafjarðar, Blönduóss, Akureyrar,
Egilsstaða og Keflavíkur hafa
verið skilgreindir sem kjarnastaðir
í starfsemi Póstsins.
Nýtt pósthús á Húsavík
FRAMLEIÐNISJÓÐUR
LANDBÚNAÐARINS
Auglýsir:
Framleiðnisjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til
rannsókna- og þróunarverkefna á sviði landbúnaðar haust-
ið 2007. Lögð er áherzla á að verkefnin séu til þess fall-
in að auka framleiðni og arðsemi í landbúnaði. Forgangs
njóta verkefni sem efla nýsköpun og fjölbreytni innan hins
nýja landbúnaðar. Takmarkað fé er til ráðstöfunar í þessu
skyni á haustmisseri.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. október n.k. til skrifstofu
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3 -
311 Borgarnes, á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Umsóknareyðublöð er einnig að finna á heimasíðu sjóðs-
ins, veffang: www.fl.is.
Ath. að ofangreindur umsóknafrestur á ekki við um önnur
viðfangsefni sem sækja má um stuðning við til sjóðsins
s.s. á sviði atvinnunýsköpunar á bújörðum eða önnur
atvinnuskapandi verkefni til sveita. Almennur umsókn-
arfrestur er viku fyrir næsta boðaðan fund hverju sinni.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri, 311 Borgarnes.
Sími 430-4300 / myndsími 430-4309 / netfang fl@fl.is