Bændablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 2007 Sögusetur íslenska hestsins stóð fyrir málstofu um sögu hests- ins út frá fornleifum á Hólum í Hjaltadal 21. ágúst síðastliðinn. Þar voru ýmsar áhugaverðar framsögur um til dæmis mik- ilvægi fornra dýrabeina fyrir túlkun menningarsögunnar og kynntar rannsóknir á beinum hesta og nautgripa á járnöld. Í upphafi gerði Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur og stjórnandi Hólarannsóknarinnar, grein fyrir mikilvægi fornra dýra- beina fyrir túlkun menningarsög- unnar. Dýrabein af ýmsu tagi eru á meðal þess merkasta sem fundist hefur við fornleifaupp- gröftinn á Hólum, í Kolkuósi og í Keldudal, auk þess að vera það fyr- irferðamesta. Nú þegar er búið að grafa upp og greina um eitt tonn af dýrabeinum í þessum rannsóknum. Út frá beinunum má ráða mikið um mataræði fólks á mismunandi tímum, notkun dýra í landbún- aði, veðurfar og það sem kannski kemur mest á óvart, gæludýrahald, sem aftur gefur vísbendingar um efnahag fólks. Þrátt fyrir ritaðar heimildir um mikið hestahald á Hólum á miðöld- um, þar sem í fyrsta sinn er getið um að menn hafi þegið laun fyrir að temja og þjálfa hross og hesta- sveinar tilheyrðu starfsstétt, hafa nær engin hestabein frá þeim tíma fundist við uppgröftinn á Hólum. Bein hesta og nautgripa á járnöld Ylva Telldahl, fornleifafræðingur og sérfæðingur í dýrabeinum við Háskólann í Stokkhólmi, kynnti rannsóknir sínar á beinum hesta og nautgripa á járnöld (200–1000 e. Kr.) auk beinafunda frá miðöld- um. Hún hefur lagt sig sérstaklega eftir að meta hvernig þessi dýr voru notuð í landbúnaði. Í sumum tilfellum er hægt að greina hvort hross hafi verið notuð til reiðar eða dráttar og meta heilsufar þeirra. Athygli vakti að spatt reyndist vera sá fótasjúkdómur sem oftast sáust merki um á sænskum hestabeinum frá járnöld. Miðað við lengd leggj- anna má ætla að hestarnir hafi verið af svipaðri stærð og íslenski hest- urinn. Hestar ekki járnaðir á landnámsöld Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Landbúnaðar- stofnun, greindi í lokin frá rann- sóknum á hestabeinum sem fundist hafa í kumlum og varðveitt eru á Þjóðminjasafni Íslands. Um er að ræða bein úr hrossum sem lifðu á árunum 874-1000, það er land- námshestunum og fyrstu afkom- endum þeirra. Nú hafa bein úr 31 kumli sem höfðu að geyma að minnsta kosti 35 hesta verið rannsökuð. Reynt var að meta aldur hestanna út frá tönnum og beinum (vaxtarlínum). Með nokkurri nákvæmni var hægt að greina aldur tíu hesta og aldur tíu annarra var metinn gróflega. Þeir reyndust vera frá þriggja vetra og upp úr, flestir á besta aldri eða 5-15 vetra. Framleggir 14 hesta eru varð- veittir og afturleggir 16 hesta. Framleggirnir reyndust að með- altali 27,2 sm og afturleggirnir 23,2 sm. Út frá þessum mælingum má ætla að hestarnir hafi verið á bilinu 145-149 sm á herðakamb sem er öllu hærra en áður hefur verið talið og hærra en meðaltal hrossastofns- ins nú á dögum. Breytileiki í stærð hestanna var ekki mikill. Hjá 18 hestum voru bein hækils- ins það vel varðveitt að hægt var að meta hvort þeir hafi haft spatt. Svo reyndist vera í sex tilfellum. Hjá fjórum hestum mátti sjá að griffil- bein höfðu kalkað föst við fram- leggi með tilheyrandi beinhnútum. Alvarlegar breytingar fundust einn- ig í hryggjarliðum fjögurra hesta. Það er ljóst að spatt hefur verið algengur fótasjúkdómur í land- námshestinum líkt og nú á dögum og það sama má segja um bein- hnúta milli griffilbeins og leggjar framfóta. Það er athyglisvert í ljósi þess mikla munar sem ætla má að sé á notkun hrossanna og ýmissa annarra ytri aðstæðna. Til dæmis má geta þess að ekki hafa fundist nein merki þess að hestar hafi verið járnaðir á landnámsöld. Þessi gögn styrkja þannig aðrar rannsóknir sem sýnt hafa fram á að spatt sé fyrst og fremst arfgengur sjúkdómur, líklega tengdur byggingarlagi hækilsins. Þær alvarlegu breytingar sem sáust í hryggjarliðum fjögurra hesta benda til þess að þeir hafi verið notaðir til reiðar þótt ekki sé hægt að útiloka að notkun hrossanna til burðar, til dæmis með klifber- um, hafi getað valdið svo miklum skemmdum á hryggjarliðum. Áframhaldandi rannsóknir á þessum dýrmætu fornminjum eru nú þegar komnar í gang við Land- búnaðarháskóla Íslands, þar sem ætl- unin er að einangra erfðaefni úr tönn- um og beinum landnámshestanna og bera saman við erfðaefni úr öðrum hrossakynjum að fornu og nýju. Líflegar umræður áttu sér stað að fyrirlestrum loknum. Ármann Gunnarsson dýralæknir greindi meðal annars frá rannsóknum dr. Günters Nobis sem gerði merk- ar greiningar á fornum íslenskum hrossabeinum á árunum um 1960. Það er ljóst að hin fornu hrossabein á Þjóðminjasafninu eru mikill fjár- sjóður og eiga enn eftir að segja okkur mikið um uppruna og sögu íslenska hestsins. Forn dýrabein mikilvæg fyrir menningarsöguna Tveir fyrirlesaranna, Sigríður Björnsdóttir (t.v.) og Ylva Telldahl, velta vöngum yfir nokkrum dýrabeinum sem fundist hafa við uppgröft. Þessi dýrabein fundust við uppgröft á kumli við Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal. Nokkrir þátttakenda í málstofunni sem fram fór að Hólum í Hjaltadal.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.