Bændablaðið - 11.09.2007, Page 22
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 2007
Sögusetur íslenska hestsins stóð
fyrir málstofu um sögu hests-
ins út frá fornleifum á Hólum í
Hjaltadal 21. ágúst síðastliðinn.
Þar voru ýmsar áhugaverðar
framsögur um til dæmis mik-
ilvægi fornra dýrabeina fyrir
túlkun menningarsögunnar og
kynntar rannsóknir á beinum
hesta og nautgripa á járnöld.
Í upphafi gerði Ragnheiður
Traustadóttir, fornleifafræðingur
og stjórnandi Hólarannsóknarinnar,
grein fyrir mikilvægi fornra dýra-
beina fyrir túlkun menningarsög-
unnar. Dýrabein af ýmsu tagi
eru á meðal þess merkasta sem
fundist hefur við fornleifaupp-
gröftinn á Hólum, í Kolkuósi og í
Keldudal, auk þess að vera það fyr-
irferðamesta. Nú þegar er búið að
grafa upp og greina um eitt tonn af
dýrabeinum í þessum rannsóknum.
Út frá beinunum má ráða mikið
um mataræði fólks á mismunandi
tímum, notkun dýra í landbún-
aði, veðurfar og það sem kannski
kemur mest á óvart, gæludýrahald,
sem aftur gefur vísbendingar um
efnahag fólks.
Þrátt fyrir ritaðar heimildir um
mikið hestahald á Hólum á miðöld-
um, þar sem í fyrsta sinn er getið
um að menn hafi þegið laun fyrir
að temja og þjálfa hross og hesta-
sveinar tilheyrðu starfsstétt, hafa
nær engin hestabein frá þeim tíma
fundist við uppgröftinn á Hólum.
Bein hesta og nautgripa á járnöld
Ylva Telldahl, fornleifafræðingur
og sérfæðingur í dýrabeinum við
Háskólann í Stokkhólmi, kynnti
rannsóknir sínar á beinum hesta
og nautgripa á járnöld (200–1000
e. Kr.) auk beinafunda frá miðöld-
um. Hún hefur lagt sig sérstaklega
eftir að meta hvernig þessi dýr
voru notuð í landbúnaði. Í sumum
tilfellum er hægt að greina hvort
hross hafi verið notuð til reiðar eða
dráttar og meta heilsufar þeirra.
Athygli vakti að spatt reyndist vera
sá fótasjúkdómur sem oftast sáust
merki um á sænskum hestabeinum
frá járnöld. Miðað við lengd leggj-
anna má ætla að hestarnir hafi verið
af svipaðri stærð og íslenski hest-
urinn.
Hestar ekki járnaðir á
landnámsöld
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir
hrossasjúkdóma hjá Landbúnaðar-
stofnun, greindi í lokin frá rann-
sóknum á hestabeinum sem fundist
hafa í kumlum og varðveitt eru á
Þjóðminjasafni Íslands. Um er að
ræða bein úr hrossum sem lifðu á
árunum 874-1000, það er land-
námshestunum og fyrstu afkom-
endum þeirra.
Nú hafa bein úr 31 kumli sem
höfðu að geyma að minnsta kosti
35 hesta verið rannsökuð. Reynt
var að meta aldur hestanna út frá
tönnum og beinum (vaxtarlínum).
Með nokkurri nákvæmni var hægt
að greina aldur tíu hesta og aldur
tíu annarra var metinn gróflega.
Þeir reyndust vera frá þriggja vetra
og upp úr, flestir á besta aldri eða
5-15 vetra.
Framleggir 14 hesta eru varð-
veittir og afturleggir 16 hesta.
Framleggirnir reyndust að með-
altali 27,2 sm og afturleggirnir 23,2
sm. Út frá þessum mælingum má
ætla að hestarnir hafi verið á bilinu
145-149 sm á herðakamb sem er
öllu hærra en áður hefur verið talið
og hærra en meðaltal hrossastofns-
ins nú á dögum. Breytileiki í stærð
hestanna var ekki mikill.
Hjá 18 hestum voru bein hækils-
ins það vel varðveitt að hægt var að
meta hvort þeir hafi haft spatt. Svo
reyndist vera í sex tilfellum. Hjá
fjórum hestum mátti sjá að griffil-
bein höfðu kalkað föst við fram-
leggi með tilheyrandi beinhnútum.
Alvarlegar breytingar fundust einn-
ig í hryggjarliðum fjögurra hesta.
Það er ljóst að spatt hefur verið
algengur fótasjúkdómur í land-
námshestinum líkt og nú á dögum
og það sama má segja um bein-
hnúta milli griffilbeins og leggjar
framfóta. Það er athyglisvert í ljósi
þess mikla munar sem ætla má að
sé á notkun hrossanna og ýmissa
annarra ytri aðstæðna. Til dæmis
má geta þess að ekki hafa fundist
nein merki þess að hestar hafi verið
járnaðir á landnámsöld. Þessi gögn
styrkja þannig aðrar rannsóknir sem
sýnt hafa fram á að spatt sé fyrst og
fremst arfgengur sjúkdómur, líklega
tengdur byggingarlagi hækilsins.
Þær alvarlegu breytingar sem
sáust í hryggjarliðum fjögurra hesta
benda til þess að þeir hafi verið
notaðir til reiðar þótt ekki sé hægt
að útiloka að notkun hrossanna
til burðar, til dæmis með klifber-
um, hafi getað valdið svo miklum
skemmdum á hryggjarliðum.
Áframhaldandi rannsóknir á
þessum dýrmætu fornminjum eru
nú þegar komnar í gang við Land-
búnaðarháskóla Íslands, þar sem ætl-
unin er að einangra erfðaefni úr tönn-
um og beinum landnámshestanna og
bera saman við erfðaefni úr öðrum
hrossakynjum að fornu og nýju.
Líflegar umræður áttu sér stað
að fyrirlestrum loknum. Ármann
Gunnarsson dýralæknir greindi
meðal annars frá rannsóknum dr.
Günters Nobis sem gerði merk-
ar greiningar á fornum íslenskum
hrossabeinum á árunum um 1960.
Það er ljóst að hin fornu hrossabein
á Þjóðminjasafninu eru mikill fjár-
sjóður og eiga enn eftir að segja
okkur mikið um uppruna og sögu
íslenska hestsins.
Forn dýrabein mikilvæg
fyrir menningarsöguna
Tveir fyrirlesaranna, Sigríður Björnsdóttir (t.v.) og Ylva Telldahl, velta
vöngum yfir nokkrum dýrabeinum sem fundist hafa við uppgröft.
Þessi dýrabein fundust við uppgröft á kumli við Ytra-Garðshorni í
Svarfaðardal.
Nokkrir þátttakenda í málstofunni sem fram fór að Hólum í Hjaltadal.