Bændablaðið - 11.09.2007, Qupperneq 31
Bændablaðið | Þriðjudagur 11. september 200731
Endurmenntunarnámið sem
Landbúnaðarháskóli Íslands
stendur fyrir hefur náð mikl-
um vinsældum. Á síðasta vetri
voru haldin um 80 endurmennt-
unarnámskeið og sóttu þau rétt
um eitt þúsund manns. Að sögn
Guðrúnar Lárusdóttur, endur-
menntunarstjóra LBHI, voru það
ekki allt bændur sem sóttu þessi
námskeið þótt þeir væru í meiri-
hluta. Það eru líka námskeið um
umhverfisskipulag, fyrir garð-
yrkjufólk, skrúðgarðyrkjufólk,
blómaskeytingar og námskeið
fyrir almenning sem hefur áhuga
á því sem tengist umhverfi og
náttúruauðlindum á einn eða
annan máta.
Margt nýtt fram undan
Fram að þessu hefur Guðrún
unnið ein við skipulagningu nám-
skeiðanna en nú eru þau orðin
þrjú sem annast undirbúninginn.
Auk hennar eru það þau Ásdís
Helga Bjarnadóttir á Hvanneyri
og Björgvin Eggertsson sem hefur
aðstöðu á Reykjum. Sjálf hefur
Guðrún aðstöðu í Keldnaholti.
Hún segir að meiri kraftur sé í
öllu starfinu nú en áður; margt sé
í pípunum hjá þeim og mikið verði
um að vera á endurmenntunarnám-
skeiðunum í vetur. Guðrún býst við
að fjöldi námskeiða verði svipaður
og var í fyrra, alla vega ekki færri,
og þátttakenda líka. Hún segir að
þau séu alltaf tilbúin að búa til
námskeið ef eftirspurn er næg.
Námskeiðin haldin víða
Flest námskeiðin fara fram á starfs-
svæði Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri og Reykjum í Ölfusi.
Á Miðfossum í Andakíl er mið-
stöð fyrir öll námskeið sem snerta
hesta. Síðan er farið um landið með
nokkur þeirra. Námskeiðin snerta
ekki bara landbúnaðinn beint og
nefnir Guðrún námskeið í skóg-
fræðum sem dæmi og afar góða
braut í umhverfisskipulagi. Þá má
nefna endurmenntunarnámskeið í
hestafræðum sem mjög stór hópur
hefur áhuga á.
Lengd námskeiðanna er afar
mismunandi – frá einum degi og
upp í heila önn. Þá nefnir Guðrún
námskeiðaröð sem kallast ,,Grænni
skógar.“ Það er endurmenntunar-
námskeið fyrir fólk í skógrækt-
inni og er þar um að ræða þriggja
ára nám. Á því námskeiði er um
að ræða ákveðna lotuvinnu og líka
fjarnám og heimavinna.
Endurmenntun var í mörg á
hjá Bændaskólanum á Hvanneyri
og garðyrkjuskólanum gamla á
Reykjum. Landbúnaðarháskólinn
er ekki nema rúmlega tveggja ára
og síðan hann var stofnaður hafa
endurmenntunarnámskeiðin verið,
í þeirri mynd sem þau eru núna, á
hans vegum. S.dór
Guðrún Lárusdóttir, endurmenntunarstjóri LBHI
Endurmenntunarnámskeiðin
njóta sívaxandi vinsælda
Guðrún Lárusdóttir endurmennt-
unarstjóri Landbúnaðarháskóla
Íslands.
Fjöldi manns sækir endurmenntunarnámskeið LBHÍ. Hér eru garðyrkju-
menn á námskeiði í starfsstöð LbhÍ að Reykjum í Ölfusi í fyrra.
Sturtuvagnar
og stálgrinda
hús frá
WECKMAN
Sturtuvagnar
H. Hauksson ehf
Suðurlandsbraut 48
Sími: 588 1130
Fax: 588 1131
Stálgrindahús.
Margar gerðir,
hagstætt verð.
Einnig þak
og veggstál
á góðu verði