Bændablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 11.03.2008, Blaðsíða 2
2 Fréttir Bændablaðið | Þriðjudagur 11. mars 2008 Skaftholt hlaut umhverfisverðlaun Skeiða- og Gnúpverjahrepps Nýlega voru ábúendum í Skaftholti, þeim Guðfinni Jakobssyni og Atie Bakker, afhent umhverfisverðlaun Skeiða- og Gnúpverjahrepps fyrir árið 2007 af umhverfisnefnd sveitarfélagsins. Þetta er annað skipti sem þessi verðlaun eru veitt, en árið 2005 fékk búið að Reykjum verð- launin og næst verða þau afhent 2009. Í Skaftholti er rekið heimili fyrir 8 þroskahefta einstaklinga þar sem lifað er og starfað í sátt við náttúruna. Þar hefur verið stundaður lífrænn búskapur allt frá árinu 1980 og er heimilið sjálfu sér nægt með flestar bús- afurðir. Þar starfa 14 manns og er staðurinn einn af fjölmennari vinnustöð- um í sveitarfélaginu. Í Skaftholti er lífrænt grænmeti ræktað bæði úti og í gróðurhúsum, auk þess sem á búinu er ræktað lífrænt korn og dýrahald er eins og á bestu bæjum; kýr, kindur, hestar og hænur. Á búinu eru m.a. framleiddar nokkrar tegundir osta, sem vakið hafa mikla athygli. Auk grænmetisræktunar eru flestar mjólkurvörur til heimilisins unnar á búinu, s.s. ostar, jógúrt og rjómi. MHH Frá afhendingu umhverfisverðlauna Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2008. Guðfinnur og Atie ásamt Úlfhéðni Sigurmundssyni, starfandi formanni umhverfisnefndar. Skiltið verður sett upp við heimreiðina í Skaftholti. Í sumar verður hafist handa við fornleifauppgröft í Flatey á Breiðafirði. Verða fjórir forn- leifafræðingar við uppgröftinn og er Albína Hulda Pálsdóttir ein af þeim. Bændablaðið spurði Albínu hvernig staðið yrði að uppgreftrinum og hvað hún hefði verið að gera að undanförnu. „Ég hef verið í burtu í 3 vikur í fornleifauppgreftri á Barbuda, sem er eyja í Karíbahafinu og þar er lítið netsamband. Ég er á þriðja ári í doktors- námi í dýrabeinafornleifafræði við The Graduate Center, The City University of New York og stefni á útskrift árið 2011. Ég lauk BA-prófi í fornleifafræði frá HÍ vorið 2005 og hélt beint út í doktorsnám. Ég hef hlotið styrki til námsins frá The Leifur Eiríksson Foundation, Minningarsjóði Margrétar Björg- úlfs dóttur og námsstyrk Thor Thors. Ég hef áður unnið að forn- leifauppgreftri á Skriðuklaustri í Fljótsdal og í Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp, auk þess að sjá um greiningu hluta dýrabeina frá upp- gröftunum. Ég hef einnig tekið þátt í greiningu dýrabeina frá Grænlandi.“ Grafa á upp ruslahaug frá því á 13. öld Albína segir uppgröftinn í Flatey munu fara fram í júní og verði þar fjórir fornleifafræðingar, öll frá The City University of NY, auk mast- ersnema frá Kanada sem sérhæfi sig í skordýragreiningum úr forn- leifauppgröftum. Aðalmarkmið verkefnisins er að grafa upp hluta ruslahaugs Miðbæjar, sem spannar tímabil- ið frá 13.-17. öld. Mögulegt er að hann nái allt aftur til landnámsald- ar, en það vitum við ekki enn. Miðbær á að hafa verið helsta stórbýlið í Flatey á þessum tíma, samkvæmt ritheimildum. Þau bein og gripir sem finnast munu varpa ljósi á verslunarsögu eyjunnar og breytingar á náttúrufari. Spennandi tímar „Miðaldir voru spennandi tími í Flatey, sem var mikilvægur versl- unarstaður fram að tíma einok- unarverslunarinnar, en þá fluttist verslunarstaðurinn í Stykkishólm. Eftir afnám einokunar varð Flatey aftur mikilvæg og mikið menning- arsetur. Allur jarðvegur sem við gröf- um upp mun vera sigtaður til að hámarka þær upplýsingar sem við getum fengið. Sé ekki sigtað týnast smærri bein, s.s. úr fiskum og fugl- um, sem vitað er að íbúar í Flatey nýttu mikið, sem og smærri gripir. Fiski-, fugla- og dýrabein sem finnast mun ég svo greina á rann- sóknarstofu skólans míns í New York til að skilja hvernig íbúar í Flatey nýttu mismunandi náttúru- auðlindir. Mögulega munu fiski- beinin einnig varpa ljósi á stöðu þorskstofnsins í Breiðafirði á þeim tíma sem ruslahaugurinn nær yfir. Fiskibeinin geta einnig sagt til um hvort fiskveiðar voru stundaðar til verkunar og útflutnings eða hvort fiskurinn var eingöngu nýttur til að fæða íbúa eyjunnar. Þeir gripir sem kunna að finnast, svo sem leirkers- og krítarpípubrot, geta varpað ljósi á verslunartengsl við Evrópu, en rannsóknin á Miðbæ mun tengjast stærra fjölþjóðlegu verkefni um verslun í Evrópu á miðöldum,“ segir Albína. Verkefnið er unnið í sam- starfi við Fornleifastofnun Íslands og er styrkt af Þjóðhátíðarsjóði, CUNY Northern Science & Education Center og styrkj- um frá the US National Science Foundation, Office of Polar Programs (Arctic Social Sciences Program), Archaeology Program, International Polar Year Program og Human and Social Dimensions of Global Change Program. S.dór Fornleifauppgröftur í Flatey í sumar Albína Hulda Pálsdóttir fornleifa- fræðingur. Á Búnaðarþingi urðu töluverð- ar umræður um ræktarland og lögðu Búnaðarsamband Suð ur- lands, Lands samband kúabænda, Bún að arsamtök Vesturlands, Búnaðar samband Vestfjarða, Búnaðar samband Kjalarnesþings og Lands samtök sauðfjárbænda öll fram erindi í þessu máli. Jóhann Már Jóhannsson, bóndi í Keflavík í Skagafirði, á sæti í allsherjarnefnd sem fjallaði um þetta mál. Hann sagði í samtali við Bændablaðið að þar sem við séum fámenn þjóð í stóru landi hafi verið litið á það land, sem henti til kornræktar og annarrar ræktunar almennt, sem ótæmandi auðlind. „Hins vegar hefur það gerst hin síðari ár að alls konar land hefur farið undir önnur afnot, svo sem frístundahús, skógrækt og ýmislegt annað. Það sem var til umræðu varðandi þessi erindi var að koma í veg fyrir að við göngum um of á þetta ræktanlega land með annars konar notkun. Við teljum að nóg sé af öðru landi sem henti til annars en ræktunar, þess vegna verði að verja ræktunarlandið sem frekast er kost- ur og varðveita allt land sem við gætum þurft að nota til ræktunar í framtíðinni,“ sagði Jóhann. Því má bæta hér við sem kem- ur fram í greinargerð Búnaðar sam- bands Suðurlands um þetta mál: „Alls er talið að um 6% af flatarmáli Íslands séu gott rækt- unarland, eða um 600 þúsund hekt- arar. Um 120.000 hektarar eru nú nýttir, að mestu til túnræktar, um 6 þúsund hektarar til grænfóðurs- ræktunar, um 4 þúsund hektarar til kornræktar og um eitt þúsund hektarar til ræktunar matjurta. Með hlýnandi veðurfari aukast líkur á að hægt verði að rækta hér fleiri tegundir nytjajurta en áður, jafn- framt því sem þrengist um rækt- unarland annars staðar í heiminum. Með hækkandi kornverði erlendis er líklegra en áður að hagkvæmni íslenskrar kornræktar aukist veru- lega. Ef allt það korn sem notað er hér í búfjárrækt og til manneldis verður ræktað hér á landi, þá þarf um 20 þúsund hektara lands til að sinna þeirri þörf. Það hlýtur að vera okkur kappsmál að skila ræktunar- landinu óskemmdu og aðgengilegu til næstu kynslóða…“ S.dór Ferðaþjónusta bænda hf. og Félag ferðaþjónustubænda hafa skrifað undir samning við fyr- irtækið Better Business á Íslandi um 3ja ára verkefni á sviði gæða- og þjónustumála. Um er að ræða hulduheimsóknir „Mystery Shopper“ á ferðaþjónustubæi sem geta veitt samtökunum og einstökum félögum verðmæt- ar upplýsingar sem miða að því að styrkja stöðu og samkeppn- ishæfni Ferðaþjónustu bænda á sviði gæða og þjónustu í nánustu framtíð. Markmið gæðaverkefnisins er að gera stöðumat á aðbúnaði og þjón ustu hjá félögum innan Ferða- þjónustu bænda út frá sjónarhorni gesta næstu þrjú sumur, þ.e. á árun- um 2008-2010. Verkefnið er gæða- og þróunar- verkefni og geta félagar verið þátt- tak endur hluta af tímabilinu eða yfir það allt. Alls munu 50 ferða- þjón ustubæir fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni í sumar en af þeim 130 aðilum sem eru í Ferða- þjónustu bænda gefst um 100 aðil- um að taka þátt í þessu verkefni á 3ja ára tímabilinu. Ferðaþjónustubændur sem bjóða upp á gistingu í uppbúnum rúmum og morgunverð munu fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni og á það við um félaga sem bjóða upp á heimagistingu, gistingu í gistihús- um bænda og á sveitahótelum Um er að ræða eitt stærsta verk efni sem ráðist hefur verið í á vegum Ferðaþjónustu bænda á sviðum gæða- og þjónustumála, þar sem lögð verður mikil áhersla á eft- irfylgni og þróun á þjónustustefnu ferðaþjónustubænda. MÞÞ Gæðaverkefni hjá ferðaþjónustubændum „Varðveita þarf auðræktað land til komandi kynslóða“ Vilja að núverandi jarðalög verði tekin til endurskoðunar Áttatíu ár voru í liðinni viku frá því fyrst var tekið á móti mjólk í Mjólkursamlagi KEA á Akureyri, nú MS. Aðal hvata maður að stofnun mjólkursamlagsins var Vilhjálmur Þór en umræður um stofnun þess hófust þegar á árinu 1924, en það ár var ungur bóndasonur, Jónas Kristjánsson frá Víðigerði í Hrafnagilshreppi, sendur til Dan merkur að nema mjólkur iðn. Að námi loknu ferðaðist hann um Eyjafjörð og ræddi við bændur um fyrirhug- að mjólkursamlag. Að lokinni sláturtíð árið 1927 var hafist handa við að breyta hús- næði sláturhúss KEA í Grófar gili í mjólkurvinnslustöð, vélar voru keyptar frá Danmörku og þær sett- ar upp í húsnæðinu. Fyrsta mjólkin barst svo samlag inu 6. mars 1928, alls 1600 lítrar þann daginn og var meira en menn bjuggust við. Þátttaka bænda í samlaginu varð fljótt mjög almenn og tóku neyt- endur gerilsneyddu mjólkinni vel. Ekki leið að löngu þar til einnig var farið að framleiða smjör, skyr og osta í samlaginu. Tæpum áratug síðar eða árið 1937 flutti samlagið ofar í Gilið og var starfsemin þar allar götur til ársins 1980 þegar samlagið var fært í útjaðar bæjarins, á Lundstún sem nú heitir við Súluveg þar sem það er enn. Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkurbússtjóri MS á Akureyri segir að tímamótanna verði minnst síðar, að líkindum í lok ágúst eða byrjun september og verði þá mikið um dýrðir. „Það er alltaf eitthvað um að vera hjá okkur,“ segir Sigurður Rúnar en vegna anna nú þótti heppilegra að minnast tímamót- anna síðar. Von er á nýjum pökk- unarvélum fyrir nýmjólk til mjólkurbúsins í næsta mánuði og þá hófst í síðastliðinni viku fram- leiðsla á smurostum þar, en hún hafði áður verið sunnan heiða. „Við erum bjartsýn á framtíðina,“ segir Sigurður Rúnar og bætir við að enda sé ekki ástæða til annars. Á liðnu ári, 2007 var metár hvað varðar innvegna mjólk en tekiðv- ar á móti 31.795.000 lítrum og hefur aldrei í 80 ára sögu samlags- ins verið tekið á móti svo miklu magni til vinnslu. Aukningin nam tæpum 9%, þrátt fyrir að fram- leiðendum á svæðinu hafi fækkað um tvo á sama tíma, en þeir voru í árslok 167 talsins. MÞÞ 80 ára frá því Mjólkursamlag KEA, nú MS tók fyrst á móti mjólk Tímamótanna minnst í sumar Hestamenn vilja ekki akstursíþróttir í nágrenni við sig Hestamannafélagið Léttir á Akureyri stóð fyrir nýverið fyrir fundi um öryggis- og skipulags- mál og var á honum skorað á bæjaryfirvöld að falla frá hug- myndum um nýtt skipulag á svæði í Glerárdal fyrir aksturs- íþróttir en það er í námunda við hesthúsahverfi Akureyrar. Þykir hestamönnum þessi starfsemi ekki fara saman, þ.e. hesta- mennska og akstursíþróttir. Telur fundurinn nauðsynlegt að finna aðrar lausnir, því ljóst má vera að hvorugt svæðið á möguleika á því að þróast eðlilega til framtíðar ef svo fer fram sem horfir. Ásta Ásmundsdóttir formaður Léttis sagði í erindi sem hún hélt á fundinum að félagið hefði barist fyrir umbótum á svæðinu á milli hesthúsahverfanna í Breiðholti og Hlíðarholti en þar hefði um árabil verið opnar námur, umferð þunga- vinnuvéla og mótorhjóla. Nefndi hún að bæjaryfirvöld hefðu sýnt takmarkaðan skilning á eðli hesta- mennsku, m.a. með því að leyfa hávaðasamar torfæru- og mót- orhjólakeppnir á svæðinu og að úthluta þar svæðum án tillits til starfsemi hestamanna og eins að vinna tillögur að deildiskipulagi þar sem gert er ráð fyrir akstursíþrótt- um af ýmsu tagi sem og skotsvæði. Sagði Ásta ýmislegt athugavert við tillöguna og nefndi m.a. að hljóð- kort væri ófullnægjandi og ekki hefði verið svarað á fullnægjandi hátt gagnrýni frá hljóðsérfræðingi Léttis. Þá hefði ekki verið reynt að meta slysahættu eða áhrif á hesta af starfseminni sem fyrirhuguð er á svæðinu. Hún sagði lítið gert með þau gögn sem Léttir hefði lagt fram og réttur hestamanna sem verið hefðu með starfsemi á svæð- inu í 40 ár væri ekki virtur. Deiliskipulag af svæðinu hefur verið auglýst og hafa um 40 athugasemdir borist, flestar frá hestamönnum. Þá sagði Ásta að Skipulagsstofnun hefði gert athuga- semdir við tillöguna og henni nú verið breytt og í framhaldinu verð- ur hún auglýst að nýju. MÞÞ www.bbl.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.